Þjóðviljinn - 28.10.1984, Blaðsíða 7
verð ekki í
hlutverki
böðuls
Markús
Örn
Antonsson
nýskipaður
útvarpsstjóri,
tekinn
á beinið.
Markús Örn Antonsson, á-
hrifamaður í Sjálfstæðis-
flokknum.forseti borgar-
stjórnar Reykjavíkur og for-
maður útvarpsráðs var í síð-
ustu viku skipaður í embætti
útvarpsstjóra, samkvæmttil-
nefningu flokkssystursinnar,
Ragnhildar Helgadóttur,
menntamálaráðherra.
Embættisveitingin sætirtíð-
indum, ekki einungis sökum
pólitískra tengsla Markúsar
Arnarog Ragnhildar, heldur
einnig sökum þess að Markús
örn hefur í ræðu og riti lýstsig
fylgjandi því að einkaréttur
ríkisins á útvarpi verði brotinn
á bak aftur. Er verið að setja
mann til höfuðs útvarpinu? Er
Ragnhildur Helgadóttir að
hyglaflokksgæðingi? Þessar
spurningar og aðrar voru sett-
ar fyrir Markús Örn í stuttu
spjalli á skrifstofum borgar-
innarvið Austurvöll síð-
astliðinn fimmtudag.
- Ef menntamálaráðherra væri
Alþýðubandalagsmaður og hefði
veitt flokksfélaga sínum embætti
útvarpsstjóra, myndir þú ekki
kalla það pólitíska veitingu?
„Ekki nauðsynlega. Pað verð-
ur að metast hverju sinni eftir því
hvað viðkomandi hefði til brunns
að bera og samanburði við aðra
umsækjendur".
- Nú ert þú flokksfélagi Ragn-
hildar Helgadóttur og augljóst að
flokkurinn vill hafa sinn mann i
þessu embætti. Er skipun þín því
ekki pólitísk veiting?
„Ráðherra metur einfaldlega
hver umsækjenda erhæfastur. Eg
tel hiklaust að ég hafi staðíð að
minnsta kosti jafnfætis öllum um-
sækjendunum og get hiklaust
sagt: nei - þetta var ekki pólitísk
veiting“.
- Núverandi útvarpsstjóri hef-
ur markað þá stefnu að yfirmenn
einstakra deilda séu einungis
ráðnir til tiltekins tíma í senn. Þú
ert hins vegar æviráðinn. Er
Sjálfstæðisflokkurinn með þessu
að tryggja sér áhrif til frambúðar
í útvarpinu?
„Ég vísa þvi algerlega á bug, að
Sjálfstæðisflokkurinn sé aðili að
þessu máli sem slíkur. Þarnæst
bendi ég á, að samkvæmt út-
varpslögum er útvarpsstjóri ævi-
ráðinn og til að breyta því þarf
lagabreytingar".
- í verkfallinu sem nú stendur
yfir spruttu upp útvarpsstöðvar.
Ertu sammála því, að þær hafi
verið ólöglegar?
„Ég hefi lýst því yfir í útvarps-
ráði, að samicvæmt núgildandi út-
varpslögum þá fer ekki á milli
mála, að Ríkisútvarpið á eitt rétt
til að útvarpa efni. Fyrir verkfall-
ið var ríkisútvarpið hinsvegar
stöðvað fyrirvaralaust, og þar
með var fólk svipt ákveðnu ör-
yggisatriði, fólk úti á landi varð til
dæmis sambandslaust við um-
heiminn að verulegu leyti. í þess-
um kringumstæðum komu út-
varpsstöðvarnar fyrrnefndu upp.
Þær voru réttlættar með neyðar-
rétti, og það er hlutverk dómstól-
anna að skera úr um réttmæti
hans. Ég geri það ekki.“
- Þú ert með öðrum orðum
ekki tilbúinn til að lýsa yflr að
stöðvarnar hafi verið ólöglegar?
„Þær urðu til við sérstakar
kringumstæður og einsog ég
sagði þá er það júridískt atriði að
skera úr um það“.
- En í útvarpsráði studdir þú
ekki tillögu um að koma upp
stuttum fréttatímum í útvarpinu.
Má þá ekki segja að þú hafir verið
að stuðla að þvi að koma í kring
þeim sérstöku aðstæðum sem þú
telur að kunni að réttlæta stöðv-
arnar?
„Nei, það get ég engan veginn
sagt. Þessi atburðarás var eftir-
farandi: á mánudegi lögðu út-
varpsmenn fyrirvaralaust niður
vinnu. Á miðvikudegi var fundur
í útvarpsráði og þá lögð fram til-
laga um þessar stuttu fréttir af
Eiði Guðnasyni og Markúsi Ein-
arssyni. Afgreiðslu hennar var
frestað fram á föstudag. Þá voru
útvarpsstöðvarnar sem þú nefnd-
ir komnar á fót, en það hafði eng-
in áhrif á afstöðu mína til tillögu-
nnar. Ég sat hjá, og í bókun okk-
ar sjálfstæðismanna var það rök-
stutt með því að tillaga þeirra
gerði ekki ráð fyrir nægjanlega
mikilli þjónustu og yrði síst til að
tryggja til frambúðar það öryggi
sem útvarpsþjónusta á að gera.
En ég vil í þessu sambandi undir-
strika að það var síður en svo að
ég hafi verið með skemmdarverk
í gangi gagnvart útvarpinu. Það
komu upp gróusögur um að ég
væri sjálfur að starfa að þessum
stöðvum en það er hrein della og
ekkert nema furðulegur tilbún-
ingur“.
- Telurðu að fréttamenn út-
varpsins hafi gætt hlutleysis í
starfi sínu meðan á verkfallinu
hefur staðið?
„Ég get ekki dregið neinar alls-
herjar ályktanir af störfum þeirra
því ég hef einfaldlega misst af of
mörgum fréttatímum í verkfal-
linu til að geta það. Hins vegar er
ég viss um að þeir eru undir mikl-
um þrýstingi af hálfu félaga sinna
í BSRB. En þeir verða auðvitað
að gæta að því að gagnaðilar
BSRB fái að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri til jafns við
BSRB“.
- Teiurðu að misbrestur hafi
orðið þar á?
„Á síðasta útvarpsráðsfundi
var ég með sjö eða átta atriði sem
ég eða aðrir höfðu tekið eftir, þar
sem svo var talið vera. Þar af
snertu sum hlut BSRB í fréttum.
Ég tek sem dæmi, að síðasta
föstudag, þegar verið var að
greiða atkvæði um Reykjavíkur-
samninginn svokallaða, þá var í
hádegisfréttum haft eftir orðrétt
áskorun frá Kristjáni Thorlacíus
þar sem skorað var á fólk að fella
samninginn. Þetta er náttúrlega
ekkert annað en áróður og það á
kjördag. Það var svo ekki fyrr en í
kvöldfréttatímanum sem Haraldi
Hannessyni, formanni Starfs-
mannafélags Reykjavíkur tókst
að koma að athugasemdum um
þessa íhlutun formanns BSRB“.
- En fannst þér þá hinar út-
varpsstöðvarnar sem störfuðu
um tíma í verkfallinu gæta nægi-
legs hlutleysis?
„Ég hlustaði lítið á þær nema
helst átta-fréttirnar að morgni
hjá Fréttaútvarpinu. Ég gat ekki
fundið nein merki um gróf brot
þar. Og almennt fannst mér
nokkuð fagmannlega að verki
staðið hjá starfsmönnum þess“.
- Þú ert stuðningsmaður þess
að einkaréttur ríkisins á útvarpi
verði afnuminn. Hvernig á frjálst
útvarp að vera?
„Ætli ég teljist ekki í hópi
þeirra varkáru. Ég vil beita
breska kerfinu, þar sem fyrir-
komulagið er þannig að leyfi þarf
fyrir stöðvum og þær fá síðan að
starfa við hlið ríkisútvarpsins á
ákveðnum svæðum, en þurfa hins
vegar að sæta nokkru aðhaldi. En
ég held að frjáls samkeppni í út-
varpsrekstri sé nauðsynleg til að
auka og efla þjónustuna við fólk-
ið í landinu. Það ætti til dæmis að
vera öllum ljóst að staðbundnar
útvarpsstöðvar fyrir smærri
byggðarlög eða stærri geta veitt
mun betri staðbundna þjónustu
en ríkisrekið útvarp fyrir alla
landsmenn. Hins vegar hefur
reynslan erlendis sýnt að slíkar
stöðvar eru mest í því að útvarpa
fréttum og léttu efni og það er því
alveg ljóst að Ríkisútvarpið
myndi áfram gegna miklu hlut-
verki við gerð vandaðs, fjöl-
breytilegs, menningarlegs dag-
skrárefnis. Því verður að sjálf-
sögðu haldið áfram. Hins vegar
er það fjöldamargt sem þarf að
skoða hjá Ríkisútvarpinu með til-
liti til þeirrar samkeppni sem
framundan er, fyrr eða síðar.
Þetta er spurning um breytta
þjónustu við hinar breiðu byggðir
landsins, og raunar er það alveg
ótalmargt sem er hægt að tala um
sem verkefni hjá Ríkisútvarpinu í
ljósi frjálsrar samkeppni. Að því
verki mun ég ganga strax og ég
hef störf'.
- Þannig að með skipan þinni
er Sjálfstæðisflokkurinn ekki að
setja mann inní Ríkisútvarpið til
að ganga milli bols og höfuðs á
því?
„Það hefur aldrei verið stefna
Sjálfstæðisflokksins og ég hefði
heldur aldrei tekið að mér slíkt
böðulshlutverk“.
-ÖS
Sunnudagur 28. október 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7