Þjóðviljinn - 28.10.1984, Qupperneq 17
Þröstur Ólafsson Dagsbrún
Semja þarf sem fyrst
- Ég held að það sé mjög
nauðsynlegt að reyna að semja
sem allra fyrst. Verkfall opinberra
starfsmanna er farið að hafa
mjög alvarlegar afleiðingar, bæði
á atvinnu annarra og tekjur þeirra
sem standa í verkfallinu, sagði
Þröstur Ólafsson. Það er
nauðsynlegt að semja, en ég hef
ekki neina formúlu fyrir því hvern-
ig þeir samningar eiga að líta út.
Eins og nú er komið tel ég það
skipta meira máli að samið verði
fljótt, heldur en hvor leiðin verði
farin. Ég er ekki mjög trúaður á
að menn nái nokkrum samning-
um með þessari skattalækkunar-
leið, en ég óttast það líka mjög að
hin leiðin leiði ekki til mikilla eða
batnandi lífskjara fyrir fólk, því
það nást engin þau verðtrygging-
arákvæði inn í slíka samninga
nema reynt yrði að negla ákvarð-
anir ríkisvaldsins niður.
Það er því ekki hægt að vera
með neina spádóma á þessari
stundu um hvað muni gerast, við
þurfum að vinna að því að samið
verði sem allra fyrst áður en á-
standið verður enn alvarlegra og
atvinnuleysi fer að gera vart við
sig. BSRB hefur nú staðið í þess-
ari baráttu í 4 vikur og að ýmsu
leyti staðið sig með fádæmum
vel. Ég held að það hefði enginn
trúað því að þeir gætu haldið út
svona löngu verkfalli með svona
mikilli samstöðu. Það út af fyrir
sig er ákaflega merkilegur hlutur
nútildags, burtséð svo frá því
hvort menn hafa einhverjar
minni háttar athugasemdir við
einstök mál sem upp hafa komið.
ólg
Mólhildur Sigurbjörnsdóttir fiskvinnslukona
Vildi óska okkur
jafn mikillar samheldni
„Ég vildi óska að samheldni
verkafólks innan ASÍ væri jafn
mikil og hún er hjá BSRB. Við
þurfum að ná mikilvægum kjara-
bótum því misréttið sem verka-
konur í Framsókn búa við er
geysimikið", sagði Málhildur Sig-
urbjörnsdóttir fiskvinnslukona
hjá BÚR og trúnaðarmaður á
staðnum.
„Ég er dálítið smeyk um að far-
ið verði á bak við okkur og samið
undan okkur. Þá er ekkert annað
fyrir fiskvinnslufólk að gera en að
rísa upp og berjast fyrir bættum
kjörum.
Til þess höfum við stofnað Fé-
lag verkafólks í fiskiðnaði. Við
eigum í erfiðleikum með að miðla.
upplýsingum til fólksins en þurf-
um þess þó nauðsynlega. Upplýs-
ingar frá verkalýðsfélögunum
mættu einnig vera meiri inni á
vinnustaðnum.
Við verður að fá tvöfalda
launakerfið í burt og sambæri-
legan uppsagnarfrest og er hjá
öðrum verkaiýðsfélögum. Per-
sónulega get ég alveg farið í verk-
fall eins og að láta arðræna mig
svona ár eftir ár. Stéttarvitund
fólks er aftur á móti ekki mikil,
svona almennt. Það nennir ekki
einu sinni á fundina, gerir sér
ekki grein fyrir krafti síns valds“.
-ÍP
Ágúst Valtýsson verkamaður Hafsklps
Vantar meira af upplýsingum
„Mér virðist alger eymd fram-
undan eftir þetta langdregna
verkfall BSRB“, sagði Ágúst
Valtýsson verkamaður hjá Haf-
skip. „Stjórnin kemur engan veg-
inn á móti ríkisstarfsmönnum
þrátt fyrir lág laun þeirra. Laun
Dagsbrúnarmanna eru jafn lág
og trúlega fylgja okkar samning-
ar því sem aörir ná. Það er þó alls
ekki nóg og ég verð ekki ánægð-
ur nema einnig komi til skatta-
lækkunar."
„Það er mikill hugur í verka-
mönnum hjá Hafskip", sagði Ág-
úst í gær. „Maður er bara allt of
lítið inni í málum. Vinnustaða-
fundi og meira af upplýsingum
vantar. Mér finnst forystan kann-
ski ekki nógu vakandi. Ég er
hræddur um að veruleg kjarabót
fáist ekki nema með því að sýna
hörku og ég er tilbúinn í slag ef
með þarf til að ná mannsæmandi
launum.“
-jP
Ágúst Vernharðsson verkamaður
og
„Eins og stendur er ekkert
annað að gera en bíða eftir
BSRB og fá síðan rneira", sagði
Ágúst Vernharðsson formaður
Félags verkafólks í fiskiðnaði og
verkamaður hjá BÚR. „Ekki
skiptir öllu máli hvað við gerum
því þjóðfélagið er komið í ræki-
Bíða eftir BSRB
fá síðan meira
aðarmaður á sínum vinnustað.
„Við erum sá hópur íslensku
þjóðarinnar sem langt er að baki
lægstu viðmiðunarmörkunum í
launum og hljótum að fá verulega
kjarabót nú“.
jp
lega köku og við ættum ekki að
þurfa að fara í harðar aðgerðir til
að ná bættum kjörum".
„Samheldni er meðal fólks og
það er tilbúið að standa að baki
forystunni til að góðir samningar
náist“, sagði Ágúst sem er trún-
Sunnudagur 28. október 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17