Þjóðviljinn - 28.10.1984, Page 19
Tíðindalaust jafntefli
Pað var heldur tíðindalaust á
austurvígstöðvunum er 18. skák-
inni lauk með jafntefli í gær. Eftir
þekkta leikjaröð í drottning-
ar-indverksri vöm upphófust
mikil uppskipti þar sem
heimsmeistarinn jafnaði taflið
ömgglega með svörtu. Og í 22.
LÁRUS
JÓHANNESSON
leik sá Kasparov sitt óvænna og
þvingaði fram jafntefli, enda ekki
eftir neinu að slægjast.
Svo virðist sem hin afdrifaríka
16. skák hafi tekið mjög á kepp-
endur því hvomgur hættir nú á
neitt og upp er komin hálfgerð
biðstaða. Þeir virðast vera að
undirbúa sig fyrir næstu lotu og
vonandi fer hún nú að líta dagsins
ljós. Við skulum líka gera okkur
það ljóst að það er Kasparov sem
verður þar í aðalhlutverki. Hann,
getur vart leyft sér að gera tut-
tugu leikja jafntefli öllu lengur,
eða hvað? Vel má vera að hann
vilji reyna á úthald Karpovs sem
er 12 ámm eldri. Og áskorandinn
veit líka hvað skeði í Bagio fyrir 6
ámm en þar var Karpov 5-2 yfir
gegn Kortsnoj en skyndilega
hafði Korstnoj jafnað 5-5 og ein-
vígið opið upp á gátt. Einmitt
þegar allir höfðu afskrifað Korts-
noj hjó hann til baka, svipuð
staða gæti nú komið upp þó mað-
ur verði að draga þá ályktun að
Karpov hafi ýmislegt af þessu
lært. Eitt atriði enn gæti rennt
stoðum undir það að Kasparov
ætli sér ekki að fara óðslega en
það er þáttur aðstoðarmann-
anna. Vitað er fyrir víst að flestir
sterkustu skákmenn Sovétríkj-
anna leggja Karpov lið og verða
Þreytumerkl i Moskvu
eflaust sendir á Ólympíumótið.
Þetta þýðir það að holur munu
myndast í liði Karpovs og fyrir
þær sakir mun hann eiga erfiðara
með að mæta nýjum leikjum í
byrjunum o.s.frv.
18. einvígisskákin:
Hvítt: Gary Kasparov.
Svart: Anatoly Karpov.
Drottningarindversk vörn.
1. d4 - Rf6
2. c4 - eó
3. RÍ3 - b6
4. g3 - Ba6
5. b3 - Bb4+
6. Bd2 - Be7
7. Bg2 - c6
8. Bc3 - d5
9. Rbd2 - Rbd7
10. 0-0
(í sextándu skákinni lék Kaspar-
ov 10. Re5, sem er hvassari
leikur, og náði mjög góðri stöðu.
Á textaleiknum sést að einhverj-
ar endurbætur hafa litið dagsins
Ijós).
10. - 0-0
11. Hel - c5
12. e4 - dxe4
13. Rxe4 - Bb7
14. Rfg5 - cxd4
15. Bxd4 - Dc7
(Karpov hefur tekist að einfalda
stöðuna á miðborðinu og enn em
uppskipti fyrirsjáanleg).
16. Rxf6+ - Bxf6
17. Bxb7 - Dxb7
18. Re4 - Bxd4
19. Dxd4 - Had8
20. Hadl • Da8!
(Einfaldur og sterkur leikur sem
hótar t.d. 21. - Rc5).
21. Dc3 - Rb8
22. Rf6+ og jafntefli var samið
því eftir 22. - gxfó 23. Dxf6 þrá-
skákar hvítur.
Byggingasamvinnu-
félag Kópavogs
óskar eftir umsóknum félagsmanna í byggingu raö-
húsa við Vallarbraut í Hafnarfirði. Áætlað er að af-
henda húsin í okt. 1985, uppsteypt og fullfrágengin að
utan ásamt frágenginni lóð.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar fást á skrif-
stofu félagsins. Umsóknarfrestur er til 9. nóv. n.k.
Byggingasamvinnufélag Kópavogs
Nýbýlavegi 6, Kópavogi.
Sími 42595.
Heimiiishjálp
Kópavogskaupstaðar
óskar eftir að ráða nú þegar starfsmenn til aðstoðar á
heimilum. Möguleikar eru á hlutavinnu.
Upplýsingar veitir forstöðumaður Heimilishjálpar í
síma 41570.
Félagsmálastofnun Kópavogs.
FLUTTIR
innan veggja
VARAHLUTAVERSLUN okkar er flutt í glæsilegt húsnæði
i sömu byggingu og viö hötum verið í að
Ármúla 3, inngangur frá Hallarmúla.
Næg bílastæði.
Opiðfrá kl. 8.30 til kl. 18.00
alla virka daga frá mánudegi til föstudags.
BÚNADARDEILD
Hvenær þarft þú
á penineum að
halda í framtíóinni ?
*
I Kjörbók Landsbankans verða ekki
kaflaskil við úttekt.
Það getur verið býsna erfitt að sjá nákvæmlega fyrir hvenær þörf er á
handbæru fé í framtíðinni. Þá er lítið öryggi fólgið í því að eiga peninga undir
innlánsformi þar sem ávöxtunin lyppast niður við hverja úttekt.
Kjörbók Landsbankans rís undir úttektum, ávöxtun hennar er örugg og
stígandi. Berðu Kjörbókina saman við tilboð annarra banka.
Hafðu í huga að innstæður eru ávallt lausar til úttektar og að allt, sem eftir
stendur við úttekt, fær stighækkandi ávöxtun. Þú þarft ekki að stofna margar
bækur eða reikninga þó að þú þurfir að hreyfa hluta innstæðunnar á
sparnaðartímanum. Leitaðu til Landsbankans. Starfsfólk Landsbankans veitir
þér skýrar upplýsingar um hvaða sparnaðarform hentar þér best.
KJÖRBÓK LANDSBANKANS EINFÖLD BÓK — ÖRUGG LEIÐ
LANDSBANKINN
Grœddur er geymdur eyrir