Þjóðviljinn - 08.01.1985, Qupperneq 1
HEIMURINN
MANNLÍF
ÍÞRÓTTIR
Kaffihneykslið
Þið borgið brnsann
Erlendur Einarsson: Kaffiafslátturinn kom neytendum ekki tilgóða.
Afslátturinn gekk einnig til annarra innflytjenda kaffisfrá Brasilíu.
Innflutningsskjöl O. Johnson og Kaaber vefengd - Sjá bls. 2.
Afslátturinn sem KafHbrennsla
Akureyrar og Samband ís-
lenskra samvinnufélaga fékk á
kaffiinnflutningnum frá Brasilíu
kom neytendum ekki til góða
nema síðustu 3 árin. Hann rann
til sjóða Sambandsins en hefur
síðan verið endurgreiddur Kaffi-
brennslunni. Þetta sagði Er-
lendur Einarsson forstjóri Sam-
Fiskútflutningur
Svika-
mylla
aðopnast
Skilaverð á gámafiski
mun lœgra en markaðs-
verðið - Nokkurfyrir-
tœki í hörpuskelfiski með
lœgra skilaverð en út-
flutningsleyfið hljóðaði
upp á og verðlistar í
Bandaríkjunum segja til
um
Það er fleira en kaffisopinn sem
liggur undir misferlisgrun um
þessar mundir. I Hagtíðindum er
greint frá því að meðalverð á hin-
um svonefnda „gámafiski“ en það
er ísaður fískur, sem fluttur er út
með farmskipum, sé 15.50 kr.
fyrir kflóið. Þeir sem fylgst hafa
með markaðsverði á fsfíski í Bret-
landi segja að þetta verð sé langt
fyrir neðan það sem gerist á
markaðnum ytra. Á fyrstu 10
mánuðum ársins 1984 voru flutt
út 10 þúsund tonn af gámafíski og
hafa útgerðarmenn sagt opinber-
lega að verð fyrir þennan fisk sé
margfalt hærra en fram kemur í
Hagtíðindum. Hvað er á seyði?
Þá hefur einn af fulltrúum í
verðjöfnunarsjóði fullyrt við
Þjóðviljann að skilaverð á hörp-
uskelfiski hjá sumum útflytjend-
um væri mun lægra en uppgefið
útflutningsverð og raunar einnig
lægra en verðlistar gefa upp á
hörpuskelfiski, bæði á austur- og
vesturströnd Bandaríkjanna.
Fyrirtæki í Stykkishólmi, sem
stofnað hefur sölufyrirtæki í
Bandaríkjunum, skilaði mjög
litlum gjaldeyri frá því í septemb-
er 1983 fram í september 1984.
Margir sem með þessum mál-
um fylgjast draga í efa að rétt
söluverðkomi fram í skilaverði. í
einu dagblaðanna í gær kemur
fram hjá Árna Benediktssyni
fulltrúa í yfirnefnd Verðlagsráðs
sjávarútvegsins að hann dragi
það í efa að hér sé um rétt sölu-
verð að ræða.
- S.dór
bandsins í samtali við Þjóðviljann
í gær.
Sem kunnugt er af fréttum nam
umræddur afsláttur rúmum 220
miljónum króna á árunum 1979-
1981, og var það tæp 35% af upp-
gefnu innkaupsverði Kaffi-
brennslunnar.
í fréttatilkynningu Sambands-
ins frá því fyrir helgi segir að
„hérlendum kaffikaupendum
hafi oftlega boðist hærri verð-
tryggingabætur (þ.e. afsláttur) en
gilda fyrir meðlimaþjóðir Al-
þjóða Kaffistofnunarinnar.“
Við bárum það undir Erlend
Einarsson hvort hér væri átt við
að aðrir íslenskir kaffiinnflytj-
Þrjár íslenskar stúlkur æfa um þessar mundir með ítölsku 1. deildarfé-
lagi og miklar líkur eru á að þær gangi til liðs við það.
endur hefðu notið sömu afsláttar-
kjara og Sambandið.
Ég get ekki svarað fyrir aðra
innflytjendur, sagði Erlendur, en
þar sem ísland er ekki aðili að
Alþjóða Kaffistofnuninni hefur
það oft fengið sérstök vildarkjör.
Ekki reyndist unnt að fá viðtal
við Ólaf O. Johnson fram-
kvæmdastjóra O. Johnson og Ka-
aber hf., sem einnig flutti inn
kaffi frá Brasilíu á umræddum
tíma. Leyfilegt hámarksverð á
kaffi hér á landi var á sama tíma
byggt á innflutningsgögnum frá
O. Johnson og Kaaber.
ólg.
Sjá bls. 9-12
Kjaramál
lágmarics-
laun
Forsœtisráðherra má
vel una við úrskurð
Kjaradóms um laun
ríkistoppanna. Meiri
hœkkun en ísamn-
ingunum í haust
Eftir úrskurð Kjaradóms á
laugardag hafa forsætisráðherra
og borgarstjóri rúmt hundrað
þúsunda króna í mánaðarlaun.
Lágmarkslaunin eru 14.075
krónur. Undir Kjaradóm falla
launamál æðstu embættismanna,
þingmanna og ráðherra, og er
meðalhækkunin um 25%, mun
meiri en meðalhækkun í samn-
ingum verkalýðsfélaganna i
haust.
Þingmenn fengu mesta hækk-
un launa sinna, um 37%, og er
það rökstutt með því að embætt-
ismenn hafi fengið miklar yfir-
vinnugreiðslur.
Til nýmæla í úrskurði Kjara-
dóms telst að dómurinn hefur
gert útaf við þessar greiðslur fyrir
fasta og ómælda yfirvinnu emb-
ættismanna. í fréttatilkynningu
frá dómnum kemur fram að topp-
arnir hjá ríkinu hafa fengið metn-
ar uppundir 60 yfirvinnustundir á
mánuði. Ennfremur er gert ráð
fyrir að aukatekjur sýslumanna
og fógeta af innheimtu og upp-
boðum falli niður, en þeim er þó
með lögum gefinn kostur á að
vera í gamla farinu til 1991.
Reykjavíkurborg miðar
greiðslur til borgarfulltrúa við
þingfararkaup og hækka því laun
þeirra einsog þingmanna. Davíð
Oddsson borgarstjóri fær jafnhá
laun og forsætisráðherra.