Þjóðviljinn - 08.01.1985, Blaðsíða 2
FRETTIR
Framtíð BÚH
Komið aftan að
starfsfólkinu
80starfsmenn BÚHóskuðu eftirfundi með bœjaryfirvöldum umfyrirhugaða
sölu. Forseti bœjarstjórnar boðar fund daginn eftir að málið verður afgreitt.
Hallgrímur Péturssonformaður Hlífar: Alveg eins gott að halda þá enganfund.
Um 80 fyrrverandi starfsmenn
Bæjarútgerðar Hafnarfjarð-
ar, sem hefur verið lokuð frá í
byrjun október á sl. ári, sendu
forseta bæjarstjórnar erindi á
dögunum þar sem óskað var eftir
fundi með bæjaryfirvöldum þar
sem upplýst yrði hvað þau hyggð-
ust varðandi framtíð BÚH. Arni
Grétar Finnsson forseti bæjar-
stjórnar og oddviti Sjálfstæðis-
manna tilkynnti formanni Verka-
mannafélagsins Hlífar að hann
væri tilbúinn að ræða við starfs-
fólkið síðdegis á morgun miðvik-
udag.
Hann iét hins vegar ekki
vita af því að á bæjarstjórnar-
fundi í kvöld verður tekin til af-
greiðsiu tillaga sérstakrar starfs-
nefndar bæjarins um málefni
BÚH þar sem lagt er til að bæjar-
útgerðin verði lögð niður og
fyrirtækinu breytt í hlutafélag.
„Þetta fyrirtæki er búið að vera
lokað í 5 mánuði af síðustu 12 og
það er ekki nema sjálfsögð krafa
að starfsfólkið fái að fylgjast með
því hvað bæjaryfirvöld eru að
hugsa. Ef að það á hins vegar að
standa svona að málum að bjóð-
ast til að halda fund með okkur
um það sem þegar er afgreitt, þá
er alveg eins gott að halda engan
fund“, sagði Hallgrímur Péturs-
son formaður Hlífar í gær.
Hann sagði að ekki hefði
hvarflað að sér að afgreiða ætti
málið í bæjarstjórn í kvöld óg
forseti bæjarstjórnar hefði ekki
haft nein orð um það er fundart-
íminn var ákveðinn.
-*g-
Aft kvöldi þrettánda dags jóla var gengin friðarganga á Akranesi. Að henni stóðu samtök kvenna í bænum. Athöfnin hófst við dyr Akranes-
kirkju þar sem sóknarprestur séra Björn Jónsson flutti ávarp. Því næst söng Kristján Elíasson einsöng, Friðarins Guð. Að því loknu var
gengið upp Skagann að Sjúkrahúsi Akraness, þar sem Valborg Kristmundsdóttir flutti Ijóð eftir Davíð Stefánsson, en síðan sleit séra
Björn Jónsson samkomunni og hópurinn söng Heims um ból. Ganganvarmjögfjölmennogfórafarvirðulegatram. - S.dór.
Ríkisstjórnin
Minnkandi líkur á breytingu
Andstaða innan beggja flokka við breytingarnar á ráðuneytunum. Hagsmunaaðilar á móti.
Ráðherrarfastirfyrir. Reynir á málið á þingflokksfundum nú í vikunni?
Amk. tveir ráðherrar munu
vera andvígir fyrirhuguðum
skipulagsbreytingum á ráðuneyt-
um og líkur fara minnkandi á því
að atlaga forystu Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknarflokks-
ins að ráðherrunum takist.
Til að skipulagsbreytingarnar á
ráðuneytunum verði að veruleika
þarf lagabreytingar og þingflokk-
arnir hafa ekki fengið málið til
umfjöllunar, ekki heldur breyt-
ingu á skipan ráðherra.
Samkvæmt hugmyndunum er
ætlunin að leggja viðskiptaráðu-
neytið niður. Utanríkisviðskipti
fara þaðan til utanríkisráðuneyt-
isins, bankamálin fara undir
‘fjármálaráðuneytið en neytenda-
og verðlagsmál undir iðnaðar- og
verslunarráðuneytið. Matthías
Á. Mathiesen er sagður eiga að
verða samgönguráðherra.
Félagsmálaráðuneytið verður
einnig lagt niður. Samskiptin við
launamannasamtökin (sátta-
semjara og þul. fara undirforsæt-
isráðuneytið, og sveitastjórnar-
mál undir innanríkisráðuneytið).
Málefni þroskaheftra fara undir
heilbrigðisráðuneytið. Alexander
Stefánsson yrði landbúnaðarráð-
herra en Jón Helgason innanríkis-
ráðherra. Til tals hefur komið að
Guðmundur Bjarnason leysi ann-
an hvorn þeirra af hólmi.
Samkvæmt hugmyndunum
yrði Sverrir Hermannsson þá
verslunar- og iðnaðarráðherra,
Matthías Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra og önnur skipan
óbreytt. Skipulagstillögur þurfa
ekki að þýða að ráðherrar verði
að víkja úr ríkisstjórninni, og því
gæti niðurstaðan útúr atlögunni
m.a. orðið sú, að Albert Guð-
mundsson hefði enn meira vald
en áður í stjórninni. Á það mun
væntanlega reyna í atkvæða-
greiðslu í þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins.
Þegar hefur verið boðaður
fundur í þingflokki Framsóknar-
flokksins á fimmtudaginn um
breytingu á skipan ráðherra, en
þar er Alexander mjög fastur
fyrir gegn breytingum samkvæmt
heimildum Þjóðviljans. Matthías
Á. Mathiesen mun einnig vera
mjög andvígur þessum fyrirhug-
uðu breytingum, en Þjóðviljan-
um tókst ekki að ná sambandi við
þá Alexander og Matthías Á. í
gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans í gær var talið líklegt að
atlaga Þorsteins og Friðriks hefði
þegar mistekist og að víðtæk and-
staða væri gagnvart fyrirhuguð-
um breytingum á ráðuneytum
meðal t.d. útflytjenda, fagfólks í
ráðuneytunum og innan þing-
flokka beggja stjórnarflokkanna.
Þegar þeir eru búnir að borga
okkur kaffið getur maður sest
inná veitingahús, fengið sér
kaffibolla - og rukkað þjóninn
um tíkall!
Kaffihneykslið
Innflutnings-
skjöl vefengd
Þar sem ýmislegt bendir til þess
að Kafíibrennsla O. Johnson
& Kaaber hafi notið sama afslátt-
ar af kaffibaunainnflutningi sín-
um frá Brasilíu og SIS, beindi
Þjóðviljinn þeirri spurningu til
Guðmundar Sigurðssonar hjá
Verðlagsstofnun, hvort stofnunin
myndi gera frekari rannsóknir á
innflutningsgögnum fyrirtækis-
ins í Ijósi þess að hún ákvað á
sínum tíma hámarksverð á kafll á
forsendum þeirra gagna. Guð-
mundur sagðist ekki vita til þess
að slíkt væri í deiglunni, enda
hefði stofnunin vart bolmagn til
þess.
Var það hámarksverð sem
stofnunin ákvað á sínum tíma
ekki óeðlilega hátt miðað við hin-
ar háu umboðstekjur Sambands-
ins?
Það var ekki hátt miðað við
heimsmarkaðsverð, en miðað við
þessar upplýsingar má segja að
það hafi verið of hátt.
Bendir þetta ekki til að þau
innflutningsgögn sem þið miðuð-
uð við frá O. Johnson & Kaaber
hafi gefið ranga mynd af verði
vörunnar?
Ég veit ekki hvort við fengum
rétt gögn, en það er kannski ekki
óeðlilegt að álykta út frá þessum
upplýsingum að svo hafi ekki ver-
ið.
Væri þá ekki ástæða til að
kanna gögn þessi betur?
Það má ef til vill segja svo, en
það kann hins vegar að vera erf-
iðleikum bundið, þar sem pappír-
ar fyrir þessum viðskiptum liggja
trúlega ekki fyrir.
Ekki reyndist unnt að ná sam-
bandi við Garðar Valdimarsson
skattrannsóknarstjóra í gær, og
aðrir starfsmenn embættisins
vildu ekki svara fyrirspurnum
Þjóðviljans um málið.
ólg.
Hafnarfjörður
Fékk kínverja
í augað
Á þrettándadagskvöld gerðist
það slys í Hafnarfirði að ungur
maður fékk kínverja í augað. Var
hann fluttur á slysadeild Borgar-
spítalans þar sem gert var að sár-
um hans. Þaðan var hann fluttur
á augndeild Landakotsspitala en
frekari upplýsingar um líðan
hans hafa ekki fengist.
í miðbæ Hafnarfjarðar var
nokkuð um ölvun og óspektir.
Rúður voru brotnar og nokkur
jólatré eyðilögð. Voru þar að
verki bæði unglingar og fólk á
þrítugsaldri og er það nýnæmi að
sá aldurshópur taki þátt í hefð-
bundnum þráttándadagsóspekt-
um að sögn iögreglunnar í Hafn-
arfirði.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. janúar 1985