Þjóðviljinn - 08.01.1985, Síða 3
FRETTIR
Kjaradómur
Davíö og Steingrimur
101.608 krónur
Meiri hœkkun en í almennum samningum. Sýslumenn og fógetar missa vœna tuggu
Alaugardaginn ákvað Kjara-
dómur launakjör pólitíkusa
og þeirra embættismanna sem
undanskildir eru í samningum
BHM og BSRB. Meðalhækkunin
er um 25%, ívið meiri en hækk-
unin í samningum ASI, BSRB og
BHM. Rökstuðningur Kjara-
dóms er sá að þá hafi laun í efstu
flokkum hækkað meira en í hin-
um lægri. Þingmenn og hæsta-
[réttardómarar fá þó mun meira í
vasann, 37 og 34%, og er sú
ákvörðun tekin „vegna þeirrar
röskunar á launahlutföllum, sem
leitt hefur af föstum yfirvinnu-
greiðslum til ýmissa ríkisstarfs-
manna“.
Þessar föstu greiðslur fyrir yfir-
vinnu hefur Kjaradómur reyndar
fellt niður hjá því fólki sem hér er
um vélt. í frétt frá dómnum segir
að flestum toppembættis-
mönnum hafi verið greiddar frá
27 uppí 60 yfirvinnustundir á
mánuði. Ennfremur eru nú nið-
urlagðar greiðslur fyrir uppboð
og innheimtu en þær greiðslur
hafa ekki beinlínis verið roðið og
uggarnir á helstu sýslumanns- og
fógetaheimilum. Sjálf fastalaun
fógeta og sýslumanna voru 30-40
þúsund en verða nú 50-65 þúsund
eftir embættum og starfsaldri.
Þeir ráða því hver fyrir sig hvort
þeir þiggja laun eftir Kjaradóms-
úrskurði eða halda gömlum
kjörum til 1990, og er talið að
nokkrir hinna gildustu muni velja
síðari kostinn, enda geta mánað-
arlaun þeirra með sporslunum
farið langt uppfyrir hundraðasta
þúsundið nú.
Hundrað þúsund á mánuði:
Teitur Bergþórsson kennari í Hólabrekkuskóla. mynd: -eik.
Kjaradómur
yfir því marki eru nú forseti ís-
lands (105.136), Steingrímur for-
sætisráðherra (101.608) og Davíð
borgarstjóri sem laun hans eru
söm og Steingríms. „Óbreyttir"
ráðherrar sem fá 94.905 krónur
fyrir mánuðinn, hæstaréttardóm-
arar 82.807 (forsetinn 88.648),
biskup 72.265, ráðuneytisstjóri
69.848.
Eins og áður segir hefur úr-
skurður kjaradóms áhrif á kjör
pólitíkusa í Reykjavík. Davíð
fylgir Steingrími, og borgarfullt-
rúar fá sömu hækkun og þing-
menn, hafa 30% þingfararkaups
Þingmenn
og 45% ef þeir sitja í borgarráði.
Þóknun fyrir nefndarstörf hjá
borginni hækka á sama hátt, fyrir
bestu nefndarbitana fengust áður
5500 krónur á mánuði, nú um
7500 krónur.
-m
Milljón á ári
Skrifstofustjórinn hefur þó vinninginn í fastalaunum
ingmenn fengu bestu jólagjöf-
ina frá Kjaradómi: 37%
hækkun. Þingfararkaupiö er nú
56.970 krónur en var 42.311. Þar
við bætist húsnæðiskostnaður
landsbyggðarþingmanna, 8.300
krónur á mánuði, og dvalar-
kostnaður á þingtíma: 315 krón-
ur á dag. Landsbyggðarþing-
menn með lögheimili í Reykjavík
fá á ári 53.300 krónur sem dvalar-
kostnað í kjördæmi. Ennerótal-
inn ferðakostnaður, sem fyrir
Reykjavíkurþingmann er 3450
krónur, fyrir Reykjanesmann
6350, og fyrir hina 10.700; allt
mánaðarlega. Ársgreiðsla til
landsbyggðarþingmanns árið
1985 verður sennilega um 978
þúsund, til Reykjavíkurþing-
mannaum 725 þúsund.
Önnur hlunnindi tengd þing-
störfum eru að borgaður er fyrir
þá einn sími, þeir fá eintak af
öllum dagblöðum,sendanpóst sér
að kostnaðarlausu og fá greitt
kílómetragjald fyrir þær ferðir
utan kjördæmis sem taldar eru
tengjast þingmennskunni. Engar
sérgreiðslur koma fyrir störf í
þingnefndunum nema þeim sem
starfa milli þinga, - fjárveiting-
arnefndarmenn fá nokk-
urnveginn mánaðarlaun fyrir
sumarvinnu sína.
Sá sem hæst fær launin fyrir
störf á þinginu er ekki alþingis-
maður, heldur skrifstofustjóri;
Friðrik Ólafsson fær sömu laun
og ráðuneytisstjórar, tæp 70 þús-
und.
Þess má geta að meðal þing-
manna (aðallega hægramegin)
hafa sprottið nokkrar áhyggjur
um launakjör, og telja hinir áhyg-
gjuþrungnu að ýmsir mætir mátt-
arstólpar séu illfáanlegir til lög-
gjafarstarfsins vegna lélegra
kjara. Þingmenn hafa hinsvegar
ýmis ráð til að bæta kjör sín. Eitt
af þeim er nefndaseta: nefnda-
kóngur þingsins árið 1983, Stefán
Valgeirsson, vann sér inn 224
þúsund krónur það ár fyrir for-
mennsku í bankaráði Búnaðar-
banka og stjórn Stofnlánadeildar
landbúnaðarins. Lágmarkslaun
verkamanns árið 1983 voru
kringum 130 þúsund.
-m
Valgerður Selma Guðnadóttir yfirkénnariog LindaKonráðsdóttirkennari Hólabrekkuskóla. mynd:-eik.
Hólabrekkuskóli
Ráðning á síðustu stundu
Betra að láta
dæma á kennara
Valgerður Selma: Erfitt að fá fólk til kennslu vegna launanna. Linda Konráðs-
dóttir: Sérkjarasamningarnir algerlega óviðeigandi
Miðað við niðurstöður kjara-
dóms í launum opinberra
embættismanna, þar sem meðal-
talshækkun er um 25%, væri
hægt að vonast eftir betri árangri
en stjórn kennarasamtakanna
náði í sérkjarasamningnum ef
málið hefði farið fyrir kjara-
dóm,“ sagði Teitur Bergþórsson
kennari í Hólabrekkuskóla.
„Ég er alveg yfir mig hissa á að
stjórn kennarasamtakanna skuli
skrifa undir þessa samninga. Ég
hefði talið öllu nær að stjórnin
hefði látið kjaradóm skera úr og
dæma á kennarana.
í niðurstöðum kjaradóms
varðandi ríkisstarfsmenn er
gengið út frá því að afnema auka-
greiðslur sem ekki hafa fallið inn í
föstu launin. Það finnst mér sjálf-
sagt að gera. En, á sama tíma
samþykkir stjórn kennarasam-
takanna að taka inn auka-
greiðslur í formi stflapeninga.
Þetta er eitt af því sem ósamræmi
er í nú þegar samið er um laun
opinberra starfsmanna á þessum
tveimur vettvöngum.“
-jP
Serkjarasamningar kennara
um tveggja flokka hækkun og
stflapeninga eru beinlínis hlægi-
legir miðað við kröfurnar og al-
gerlega óviðunandi“sagði Linda
Konráðsdóttir kennari í Hóla-
brekkuskóla. Kennarar voru að
ganga frá sérkjarasamningum
þar sem m.a. var samið um að
byrjunarlaun þeirra hækkuðu úr
15.flokki í 17.fl. Launin hækka
um 1240 krónur úr 17.440 í
18.682, auk greiðslu fyrir heima-
vinnu sem svarar einni yfirvinnu-
stund á viku.
„Það þýðir ekkert að svekkja
sig á þessu, maður verður bara að
leita sér að annarri vinnu“, sagði
Linda. „Mér finnst lélegt að kjar-
adómur dæmi síðan í málum ann-
arra rikisstarfsmanna þannig að
munurinn verði enn meiri milli
stétta. Ráðamenn láta dæma sér
frá 21% upp í 37% hækkun. Það
er miklu meiri krónuhækkun en
kennarar og aðrir í BSRB fengu
og auk þess hærri prósentuhækk-
un. Kennarar fengu 21% eftir
mánaðarverkfall. Ég hélt að við
myndum að minnsta kosti fá 5
flokka í sérkjarasamningnum,
þar sem kröfur hljóðuðu upp á 10
flokka og þýddu 7.000 króna
hækkun...
Maður vonar bara að endur-
skoðun sú er fer fram á kennar-
astarfinu og á að líta dagsins ljós
1. mars fylgi niðurstöðum kjara-
dóms.“
Hér tókst á síðustu stundu að
ráða kennara nú eftir áramótin.
Á föstudaginn þurftum við að
senda bekk heim vegna þess að
ekki var búið að ganga frá ráðn-
ingu kennara. Það er erfitt að fá
fólk til vinnu fyrir þau laun sem í
boði eru“, sagði Valgerður Selma
Guðnadóttir yfirkennari Hóla-
brekkuskóla við Þjóðviljann, í
framhaldi af frétt blaðsins um
helgina.
„Ég er hrædd um að mikil
fækkun verði í kennarastéttinni í
haust. Fólk sem er að ljúka við að
læra skili sér ekki. Hér á kennar-
astofunni má heyra vonleysi á tali
fólks. Af 60-70 kennurum sem
hér vinna heyrist á tali 10-12 að
þeir ráðgeri að hætta í vor og leita
sér að betur launaðri vinnu.“
jP
Þriðjudagur 8. janúar 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 3