Þjóðviljinn - 08.01.1985, Side 15
FRÉTTIR
Vertíðarbyrjun
Mjög góð línuveiði
Með 13-15 tonn í róðri. Mikið um ýsu og smáþorsk í Flóanum og undir Jökli. Lélegt í net við Eyjar.
Vertíðin hefur byrjað með á-
gætum hjá bátum á suðvest-
urhorninu og á Snæfellsnesi.
Hafa stærri bátarnir verið að
koma með 13-15 tonn úr róðri og
smærri bátar allt upp í 4 tonn á 24
bjóð.
Góð veiði hefur verið á miðun-
um út af Reykjanesi undir Jökli
og út af Snæfellsnesi. Nær allir
bátarnir stunda línuveiðar á þess-
um miðum og er aflinn að hálfu
leyti góð ýsa og millistór og smár
þorskur.
Sérstaklega hefur gengið vel
hjá minnstu bátunum bæði á
Snæfellsnesi og í Sandgerði en
nær allir þeir bátar eru byrjaðir
veiðar enda veðráttan með ein-
dæmum góð. Aðeins þrír bátar
eru byrjaðir veiðar frá Grindavík
en nokkrir eru stopp vegna þess
að ekki fást undanþágur fyrir yf-
irmenn. Aflinn hefur verið með
ágætum enda sækja bátarnir allir
vestur fyrir nesið.
Ordeyða hefur hins vegar verið
hjá þeim Eyjabátum sem byrjað-
ir eru veiðar en þeir eru alíir á
netum. Hefur aflinn verið frá nær
engu uppí 5 tonn.
-Jg-
Hólmavík
Banaslys
Búvélar
Innan við 30% stóðust práfið
Athugun á öryggisbúnaði 863 dráttarvéla leiðir í Ijós mikla vankanta
Yfir fjörutíu dauðaslys við landbúnað á 12 árum
Aundanförnum árum hafa slys
við landbúnaðarstörf verið í-
skyggilega mörg. Samkvæmt ár-
bókum Slysavarnafélagsins hafa
dauðaslys við landbúnað orðið 41
á árunum 1970-1982. Um helm-
ingur þessara slysa varð í sam-
bandi við dráttarvélar, drifbún-
aða þeirra og vélar tengdar þeim.
flokki voru 272 vélar, 62 í lagi eða
22,8%, 210 fengu athugasemdir
eða 77,2%. í C-flokki voru 273
vélar, 102 í lagi eða 37,4%, en
171 fékk athugasemd eða 62,6%.
Flestar athugasemdirnar beind-
ust að hlífum aflúrtaks, stýribún-
að, hemla, stöðuhemil og ljósa-
búnað, þar sem hans er krafist.
Af öðrum vélum, sem skoðað-
ar voru: heyvinnuvélum og vél-
um við almennan búrekstur, iðn-
aðarvélum, snjóblásurum o.fl.,
alls 2124, voru athugasemdir
gerðar við 810 eða 38,1%. Oftast
beindust þær að drifskaftshlífum,
aflúrtaki og aflinntaki, reimh-
lífum, hlífum yfir keðjudrif, net-
ahlífum yfir blásara og hlífðar-
svuntum á sláttuþyrlum.
Þessum athugunum verður
haldið áfram og í sumar eru fyrir-
huguð skoðun véla á 360 býlum.
-mhg
Síðdegis á sunnudag varð ban-
aslys á Hólmavík er 14 ára piltur
varð undir dráttarvél.
Pilturinn var á heimleið er
dráttarvélin rann til á hálku og
missti hann stjórn á vélinni sem
fór út af veginum og valt. Skorð-
aðist hann undir dráttarvélinni en
var enn á lífi þegar að var komið.
Voru þegar gerðar ráðstafanir til
að flytja piltinn til Reykjavíkur
með sjúkraflugi en hann lést á
leiðinni.
Sumarið 1983 hóf Vinnueftirlit
ríkisins eftirlit með landbúnaðar-
vélum. Fór það þannig fram, að
dregin voru út 10% bændabýla á
öllu landinu, sem voru með meira
en 100 ærgildi og var miðað við
hefðbundinn búskap. f úrtakinu
voru 357 býli og náði skoðunin til
302 afþeiníeða 84,6%. Skoðaðar
voru 863 vélar.
í nýútkomnum Frey segir Guð-
mundur Eiríksson hjá Vinnueft-
irlitinu frá niðurstöðum þessara
athugana. Dráttarvélunum var
skipt í 3 flokka. í A-flokki voru
vélarmeð þeim búnaði, sem kraf-
ist er í reglugerð um gerð og bún-
að ökutækja, auk öryggishúsa
eða öryggisgrinda, og því heimilt
að aka í almennri umferð. í B-
flokki voru þær vélar, sem ætlað-
ar eru til notkunar við bústörf
utan alfaravegar, eru búnar ör-
yggishúsi eða -grind en undan-
þegnar kröfum um ljósabúnað. í
C-flokknum voru svo húss- og
grindarlausar vélar, notkunar-
svið hið sama og hjá B-flokknum
en stjórnendur þeirra mega ekki
vera undir 16 ára aldri.
í A-flokki voru skoðaðar 318
vélar. í lagi reyndust 84 vélar eða
26,4%. Athugasemdir voru gerð-
ar við 234 vélar eða 73,6%. í B-
Selfoss
Kulda-
kasti
lokið
Selfyssingar þurfa ekki lengur
að skjálfa úr kulda vegna heita-
vatnsskorts en eins og menn rekur
minni til hrundi ofaní aðalholuna
á jóladag. Síðastliðinn laugardag
bilaði svo dæla í varaholu.
Skömmu eftir miðnætti á sunn-
udag var viðgerð lokið á dælu í
varaholu en aðalholan er enn bil-
uð. Vatnskrafturinn er því
eitthvað minni en vant er en ráð-
gert að viðgerð á aðalholu hefjist
fljótlega. Mun ætlunin að dæla
upp úr aðalholunni eða jafnvel
bora hana upp aftur ef ekki vill
betur til. Sundlaug Selfoss er lok-
uð og verður það áfram meðan
viðgerð á aðalholu stendur yfir.
Þú fœrð miðana hjá umboðsmanninum og svör við spurningum:
Liggur draumanúmerið á lausu? Hve mikið get ég unnið? Hve marga
miða get ég fengið með sama númeri? Hvernig get ég spilað langsum
og þversum? Hœkkar miðaverð aðeins um 20 kr. ? Hvenœr fœ ég
vinninginn greiddan?
Umboðsmenn Happdrættis Háskóla íslands 1985:
Reykjavík:
Aðalumboð, Tjarnargötu 4, sími 25666
Búsport, verslun, Arnarbakka 2—6, sími 76670
Bókabúðin Álfheimum 6, sími 37318
Bókabúð Fossvogs, Grímsbæ, sími 686145
Bókabúð Jónasar Eggertssonar, Rofabæ 7, sími 83355
Stokkur, bókaverslun, Kleppsvegi 150, sími 38350
Griffill s.f., Síðumúla 35, c/o Teitur Gústafsson,
sími 36811
Frímann Frímannsson, Hafnarhúsinu, sími 13557
Neskjör, Ægissíðu 123, sími 19832
Rafvörur, Laugarnesvegi 52, sími 686411
Verslunin Straumnes, Vesturbergi 76, sími 72800
Þórey Bjarnadóttir, Kjörgarði, sími 13108
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Skólavörðustíg
I I, sími 27766
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Hátúni 2b.
sími 12400
Úlfarsfell, Hagamel 67, sími 24960
HAPPDRÆTTI HASKÓLA ISLANDS
milljón í hverjum mánuði
Seltjarnarnes:
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Austurströnd 3,
sími 625966
Kópavogur:
Anna Sigurðardóttir, Hrauntungu 34, sími 40436
Borgarbúðin, Hófgerði 30, sími 40180
Blómaskálinn v/Nýbýlaveg, sími 40980
Garðabær:
Bókaverslunin Gríma, Garðaflöt 16—18, sími 42720
Hafnarfjörður:
Tréborg, Reykjavíkurvegi 68, sími 54343
Reynir Eyjólfsson, Strandgötu 25, sími 50326
Mosfellssveit:
Bókaverslunin Snerra s.f., Þverholti, sími 666620