Þjóðviljinn - 08.01.1985, Síða 16
Þriðjudagur 8. janúar 1985 5. tölublað 50. örgangur
í Aðalsfmi: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
MðÐVIUINN
NT-„fréttin“
„Algjör uppspuni“
Svavar Gestsson: Enginn áhugi á stjórnarsamstarfi við Sjálfstœðisflokkinn.
Viðrœður við félagshyggjufólk úr stjórnarandstöðuflokkun um á döfinni
Fróttir
II'______________
Ágreiningur i uppsiglingu innan Alþýðubandalagsins:
Formaðurinn hallur undir sam-
starf við Sjálfstæðisfiokkinn
- en sterk öfl vilja efla
samsfarfið til vinstri
1
Ágreiningur innan Alþýðubandalagsins:
Sögulegar sættir eða sam-
starf félagshyggjuflokka
Marge
vann
Larsei
Frctt“ NT um ágreining innan
Alþýðubandalagsins um
„sögulegar sættir“ bandalagsins
við Sjálfstæðisflokksins og að for-
maður Alþýðubandalagsins sé
hallur undir slíkt samstarf er al-
gjör uppspuni, segir Svavar
Gestsson og bendir m.a. á að á
döfinni séu viðræður um hugsan-
legt samstarf félagshyggjufólks í
stjórnarandstöðunni.
Hefur orðið vart við óskir eða
kröfu innan forystu Alþýðu-
bandalagsins um samstjórn við
Sj álfs tæðisflokkinn ?
-Svarið er nei.
Er það rétt eftir formanni Al-
þýðubandalagsins haft, að það sé
þrýst á það f þjóðfélaginu, að hin
andstæðu öfl, -Sjálfstæðisflokk-
urinn og Alþýðubandalagið taki
höndum saman um hin erfíðu
vandamál sem við er að glíma í
þjóðfélaginu?
-Svarið er enn nei.
-Það er með öðrum orðum
enginn ágreiningur og enginn fót-
ur fyrir frétt NT?
-Eg hef talað við NT og sagði
eftirfarandi: „Þessi svokallaða
„frétt" NT í dag er uppspuni frá
rótum. Tilgangurinn getur ekki
verið annar en sá að varpa rýrð á
Alþýðubandalagið til að draga úr
athygli fólks á algerri íhalds-
þjónkun Framsóknarforystunn-
ar, sem nú framkvæmir leiftur-
sóknina sem hún barðist á móti
1979. Afstaða okkar til samstarfs
verklýðssinna og félagsshyggju-
fólks liggur fyrir m.a. í fjölmörg-
um ræðum og greinum sem frá
mér hafa komið undanfarið eitt
og hálft ár auk ítrekaðra flokks-
samþykkta Alþýðubandalagsins.
Næstu daga munu flokksstofnan-
ir Alþýðubandalgsins fjalla enn
frekar um þau mál og verður gerð
grein fyrir niðurstöðum þeirra
opinberlega. Þar gerum við ráð
fyrir að hefja formlegar viðræður
við félagshyggjufólk úr stjórnar-
andstöðuflokkunum auk þess
sem við munum reyna að ná til
annarra aðila svo sem kostur er. í
því sambandi minni ég hins vegar
á að við munum engar tilraunir
gera til viðræðna við Framsókn-
arforystuna. Framsóknarflokk-
urinn var úrræði margra félags-
hyggjusinna fyrr á öldinni - það
er liðin tíð. Þar hafa orðið afger-
andi kaflaskil í íslenskum
stjórnmálum þegar Framsókn-
arflokkurinn gekk yfir miðjuna
og yfir í herbúðir hægri stefnunn-
ar. Framsóknarflokkurinn kemst
ekki fram hjá þeirri sögulegu
staðreynd þó að reynt sé að Ijúga
óhróðri um Alþýðubandalagið
eða forystumenn þess.
-Það er þá ósatt með öllu sem
segir í fyrirsögn NT að formaður-
inn sé hallur undir samstarf við
Sjálfstæðisflokkinn?
-Það er eins og hver önnur lygi,
en þeim væri nær að spyrja for-
mann Framsóknar hvernig hon-
um líði í samstarfinu með íhald-
Halldór Árnason flugmaður við nefið á TF-GTI eftir að búið var að draga vélina í skýli í gærkvöldi. Hann sagði að reiknað
væri með að þessar vélar gætu nauðlent þó að nefhjólið færi ekki niður. Ljósm.: EÖ
Flug
Giftusamleg
nauölending
Nefhjól á einni af flugvélum Sverris Þóroddssonar fór ekki niður og
nauðlenti hún á Reykjavíkurflugvelli með 8 farþega innanborðs
Þjóðviljinn
Nýr
útbreiðslu-
■ ■ r m
stjori
Þetta starf leggst ágætlega í mig
og ég er sannfærð um að vel
gengur að bæta við áskrifenda-
tölu Þjóðviljans á næstu mánuð-
um, sagði Sigríður Pétursdóttir
nýráðinn útbreiðslustjóri Þjóð-
viljans en hún hóf störf í gær.
Sigríður sagði að í gærkvöldi
hæfist hringingaherferð og vænti
hún góðs árangurs. „Þjóðviljinn
er eina stjórnarandstöðublaðið
sem kveður að og hann vill vera
málsvari allra þeirra sem vinna
gegn íhaldsöflunum í þessu landi.
Til að gegna því veigamikla hlut-
verki sínu þarf blaðið á fleiri
áskrifendum að halda og væri vel
þegið ef hver áskrifandi aflaði
eins áskrifanda", sagði Sigríður.
„Því er ekki að neita að vax-
andi gengi stóru blaðanna á ís-
lenskum blaðamarkaði setur að
manni ugg þegar hugsað er til
þess hvað verður um skoðana-
myndun meðal fólks. Við rákum
okkur hins vegar rækilega á það í
fyrra að undirtektir fólks voru
afar góðar þegar því var boðinn
Þjóðviljinn til kaups og einmitt
þær undirtektir örva okkur til enn
frekari verka á því sviði“.
Signður Pétursdóttir hefur
starfað um tíma á útbreiðsludeild
blaðsins og væntir Þjóðviljinn sér
góðs af störfum hennar.
Sigríður Pétursdóttir: Ætlum að aera
átak í því að efla og útbreiða Þjóðvilj-
ann á næstu mánuðum. Ljósm. eik.
Síðdegis í gær varð flugvélin
TF-GTI frá Sverri Þórodds-
syni að nauðlenda á Reykjavík-
urflugvelli en nefhjól hennar fór
ekki niður.
1 vélinni voru 8 farþegar og
sagði Halldór Árnason flugmað-
ur í samtali við Þjóðviljann í gær
að engin hræðslumerki hefði ver-
ið að sjá á þeim. Vélin seig niður
á nefið í lendingunni og skemmd-
ist það eitthvað en þó átti eftir að
kanna hversu miklar skemmdirn-
ar voru. Enginn meiddist en með-
al farþega voru hjón með þrjú
börn.
Flugvélin var í flugi til Holts í
Önundarfirði en þegar átti að
setja hjólin niður þar fóru þau
ekki og sagði Halldór að aðeins
hefði heyrst eitthvert brak. Var
sveimað þar um stund yfir en síð-
an snúið til baka til Reykjavíkur.
Þar var mikill viðbúnaður á vell-
inum en Halldór flugmaður fór
mjög rólega í aðflugið og rann
flugvélin mjúklega eftir brautinni
en seig svo niður á nefið að lok-
um. Þetta var kl. 15.50 síðdegis í
gær.
Þess skal að lokum getið að á
föstudaginn var hlekktist annarri
lítilli vél á á Reykjavíkurflugvelli.
Nefhjól brotnaði í lendingu.
-GFr
Jan Mayen-gosið:
„Eins og
ómerkileg
þrettánda-
brenna“
„Við sáum lítið og ómerkilegt
gos í norðurendanum og rann
hraun til sjávar frá stuttri
sprungu en þó var hraunrennsli
mjög lítið. Smávegis bar á ösku“.
Þetta sagði Eysteinn Tryggva-
son jarðfræðingur í samtali við
Þjóðviljann er hann kom úr 8
tíma flugi til Jan Mayen í gær-
kvöldi ásamt nokkrum öðrum
jarðvísindamönnum. Fréttamað-
ur sem var með vélinni sagði að
þetta hefði verið eins og ómerki-
leg þrettándabrenna.
Eldfjallið á Jan Mayen heitir
Bjarnarfell (Beerenberg) og gaus
það síðast 1970. Stóð það gos í
jnokkra mánuði. Fjallið er 2340
metrar á hæð. Á eynni eru 25
manns sem gæta þar hernaðar-
mannvirkja og stunda veður-
athuganir. Þeir voru í engri hættu
enda gosið hinum megin á hinni
377 ferkm. eyju.
-GFr
Skák
Margeir
vann Larsen
Margeir Pétursson gerði sér
lítið fyrir og sigraði danska stór-
meistarann Bent Larsen í 1. um-
ferð á svæðamóti sem hófst í
Gauksdal í Noregi um helgina.
Þetta er í annað sinn sem Margeir
vinmir Larsen f jafnmörgum
skákum.
Auk Margeirs taka þeir Helgi
Ólafsson og Jóhann Hjartarson
þátt í mótinu og gerðu þeir fé-
lagar stutt jafntefli í 1. umferð.
í 2. umferð, sem tefld var í gær-
kvöldi gerðu þeir Margeir og
Helgi jafntefli en skák Jóhanns
fór í bið. Margeir var efstur á
mótinu áður en biðskákir voru
tefldar í gærkvöldi.
-lg-