Þjóðviljinn - 07.02.1985, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 07.02.1985, Qupperneq 15
HREYSTI & FEGURÐ ysluvenjur pilluáts skammt. Ég sé ekki að ástæða sé til slíkrar neyslu. Breytt tollalög Hvað er helst að gera til þess að breyta neysluvertjum okkar? I fyrsta lagi tel ég að það þyrfti að breyta tollalögunum og fella niður tolla og vörugjald af græn- meti. Jafnframt þyrfti að auka á fjölbreytni þess grænmetis sem er á boðstólum. Fjölbreytt fæði er skilyrði þess að við fáum öll víta- mín og steinefni sem líkaminn þarfnast og grænmetið er mikil- vægt, bæði fyrir vítamín, stei- nefni og trefjar. Þá þarf að fræða fólk um mataræð með skipu- lögðum hætti. Jafnframt þarf að auka rannsóknir á þessu sviði, því matarvenjur og aðstæður eru misjafnar á milli landa og erfitt er fyrir okkur að styðjast við er- lendar rannsóknir. Til dæmis var neysla skráð í 2 daga hjá þeim fjölskyldum á höfuborgarsvæð- inu sem tóku þátt í könnun Manneldisráðs, en matarvenj- urnar geta verið misjafnar bæði eftir vikudögum, árstíðum, landshlutum og þjóðfélagshóp- um. Því þurfum við áreiðanlegri vitneskju til þess að byggja ráðleggingar um neyslu á. Við teljum t.d. að íslenskar konur fái ekki nægilegt járn, en til þess að geta gefið réttar leiðbeiningar þarf frekari rannsóknir. Rann- sóknir og fræðsla af þessu tagi falla undir fyrirbyggjandi heilsu- gæslu og ættu því að skila sér aft- ur margfalt í minni tilkostnaði í heilbrigðiskerfinu. Offitan er heilbrigðis- vandamál Nú eiga margir við offitu að stríða, og megrunarkúrarnir blómstra, ekki síst í skammdeg- inu. Hvað segir nœringarfrœðin um þennan vanda? Jú, það eru til megrunarpillur og megrunarvökvar og megrun- arkex. Slík efni eru aldrei megr- andi í sjálfum sér. Fitan í líkam- anum ákvarðast af því hvað við borðum mikið og hvað við hreyfum okkur mikið. Margir megrunarkúrar byggj- ast á einhæfu fæði. Menn geta ekki lifað þannig til lengdar, og þótt þeim hafi tekist að grenna sig með þessum hætti, þá sækir í sama farið aftur. Megrunarkúr ætti að vera á eðlilegu fæði. Menn ættu bara að borða minna. Til eru þeir megrunarkúrar sem byggja á kolvetnissnauðri fæðu. Til dæmis að borða ekki brauð og kartöflur. Kolvetnis- snautt fæði verður til þess að glykogen í líkamanum brotnar niður og líkaminn missir vatn (og þar með þunga) sem hann bindur síðan á ný þegar fæðusamsetning- in verður eðlileg. Slíki kúrar eru ekki ráðlegir. Mönnum væri nær að taka tillit til ráðlegginga um minni fitu- og sykurneyslu. Offita er heiíbrigðisvandamál hér sem annars staðar, og það vantar faglega hjálp handa fólki til að ráða við þennan vanda. Það þarf að koma til næringarfæðileg þekking, aðstoð við hreyfingu og líkamsrækt og síðast en ekki síst sálfræðileg aðstoð. Áfengi og tóbak Hvað með áfengisneyslu og reykingar? Valda þessi efni efna- skorti í líkamanum? Það er jú þekkt á meðal áfeng- issjúklinga að þá skortir vítamín, einkum B-vítamín. Þetta stafar bæði af takmörkuðu og einhæfu mataræði og af of mikilli drykkju. Mér er ekki kunnugt um að reykingar orsaki skort á vítamín- um eða steinefnum. En þær eru ekki minna skaðlegar fyrir það. Margir telja að leyfa ætti bjór frekar en sterka drykki vegna þess að hann hafi meira næringar- gildi. Það má segja að af tvennu illu sé það æskilegra fyrir drykkjusjúklinga að drekka bjór en brennd vín, en þessi röksemd gildir ekki ef átt er við að hún skipti máli um næringarefnaupp- töku íslendinga almennt. Heyrst hefur að við neytum of mikils af salti og að það sé skað- legt fyrir líkamann. Hvað hefur þú um saltneysluna að segja? Jú, það er rétt að of mikil saltneysia er talin varhugaverð fyrir þá sem eru með háan blóð- þrýsting. Saltið, sem er natríum- klóríð, getur haft áhrif á blóð- þrýstinginn. Til eru á markaðn- um saltblöndur sem eru kalíum- klóríð að hluta til og hafa minni áhrif. Kalíumsaltið hefur þann galla að vera svolítið beiskt á bragðið. Heyrst hefur að fitusýrur í lýsi séu hollarfyrir hjarta og æðar. Er lýsisneyslan œskileg þess vegna? Jú, rannsóknir benda til þess að fitusýrur í lýsi hafi góð áhrif á hjartað og dragi jafnvel úr hættu á hjarta- og æðasjúkdómum. Lýsisneyslan er því æskileg, en þó fyrst og fremst vegna D-vítamíns, sem við fáum ekki í nægu magni öðru vísi. Annars er hæfileg hreyfing einnig holl fyrir hjartað og starfsemi líkamans. En fjölvítamíntöflur, eru þœr ekki jafn góðar? Jú, það er hægt að fá hæfilegan Jón Gíslason næringafræðingar: Offita er heilbrigðisvandamál sem ræðst fyrst og fremst af því hvað við borðum mikið og hversu mikið við hreyfum okkur. skammt af D-vítamíni úr þeim líka, auk annarra efna. Svo eru einnig drykkir eins og Sanasol og Frískamín sem innihalda D- vítamín. En menn ættu semsagt að fylgja ráðlögðum skammti þegar þeir taka vítamíntöflur. -ólg. Sendist í póstkröfu, póstkröfugjald. Matreiðslubókin Jurtafæði Bók ætluð þeim er vilja reyna fyrir sér í matreiðslu jurtafæðis. Greint er frá meðhöndlun, suðutíma og öðru því sem nauðsynlegt er að vita til að matreiða á einfaldan hátt Ijúffenga rétti úr hráefnum úr jurtaríkinu. Fjöldi uppskrifta er í bókinni. Aðalréttir úr baunum, grjónum og grænmeti. Brauðgerð, kökuuppskriftir, salöt, eftirréttir, súpur, sósur, drykkir o.fl. Oll mat- reiðslan miðuð við að fæðan haldi næringarefnum og hollustu sinni sem best. Nafn.... Heimili. UtanásKrift: Kornmarkaðurinn Skólavörðustíg 21 A THE LUN Blóma- fræflar HONEYBEE POLLEN „HIN FULLKOMNA FÆÐA” ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Hvað er „The President’s Lunch ? Það er náttúrufæða, salt og sykurlaus, sem inniheldur 260 mg af hinum frábæru „High Desert", blómafræflum. Auk þess hafra- mjöl, hnetusmjör, sólblómafræ, rúsínur, lecithin. The President’s Lunch er góður skyndi- biti sem gefur góða magafylli og aukinn kraft til að sinna verkefnum dagsins. Sé þyngdin vandamál reyndu þá The Presi- dent’s Lunch í staðinn fyrir aukabita og jafnvel í staðinn fyrir aðra máltíð dagsins. Inniheldur aðeins 153 kalóríur. Munið okkar vinsælu blómafræfla. SOLUSAMTOKIN HF. Laugavegi 178 Sími 23833 og 83350

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.