Þjóðviljinn - 07.02.1985, Page 16
HREYSTi & FEGURD
Hártískan 1985
Hártíska og förðun eru tengdar listgreinar eins og sjá má.á þessari mynd af. tveim módelum á sýningunni Hártískan 1985. Ljósm.: E.OI.
Hártískusýning Sambands
hargreiðslu- og hárskera-
meistara var haldin á Hótel
Sögu síðastliðið sunnudags-
kvöld.
Þar sýndu íslensku hár-
greiðslumeistararnir getu sína og
sérstakir gestir sýningarinnar
voru þau Keith Williamson og
Christina Bartlett frá Englandi,
en þau hafa undanfarið staðið hér
fyrir námskeiði á vegum
heildverslunar Hálfdáns Helga-
sonar. Torfi Geirmundsson hár-
greiðslumeistari frá Papillu var
kynnir sýningarinnar. I samtali
við blaðið sagði hann að nám-
skeið þeirra Williamson og Bart-
lett hefði komið að miklu gagni,
og hefði veri unnið námsefni á
íslensku upp úr námskeiðinu sem
ætti eftir að koma íslenskum hár-
greiðslunemum til góða. A sýn-
ingunni á Hótel Sögu komu fram
120 rnódel, og voru margar hár-
greiðslurnar nýstárlegar eins og
myndir þessar bera með sér.
Samband hárgreiðslu- og hár-
skerameistara hafa nýverið gerst
aðili að alþjóðasamtökum hár-
greiðslumanna (Confederation
International de Coiffure) og
munu 2 íslenskir fulltrúar fara á
ársþing samtakanna í París í þess-
um mánuði.
- ólg.
Slaughter on Tenth Avenue -
slátrun á 10. götu - stendur á
Ijósaskilti bak við þessa sérkenni-
legu hárgreiðslu frá Papillu. Ekki
er okkur kunnugt um hvort sam-
band er á milli hárgreiðslunnar og
textans. Ljósm.: E.ÓI.
stofunni Gresika. Ljósm.: E.ÓI,
Breski hárgreiðslumeistarinn Keith Williamson ásamt með módeli sínu,
sem var engin önnur en Unnur Steinsson, fyrrverandi fegurðardrottning
Islands. Ljósm.: E.OI.
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. febrúar 1985