Þjóðviljinn - 01.05.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 01.05.1985, Blaðsíða 3
Rætt við Ásmund Stefánsson forseta Alþýðusam- bandsins um kjarasamninga, verkalýðshreyf- ingunasem landsstjórnarafl, og sitthvað fleira Ertu ekki með þessu að segja að verkaJýðshreyfingin sé pólitísk samfylkingarsamtök? „Jú að vissu marki er hún það.” Þú ert sjálfur miðstjórnar- maður í Alþýðubandalaginu. Liggur ekki beint við að spyrja: Af hverju er forseti Alþýðusam- bandsins í Alþýðubandalaginu? „Það er mjög einfalt. Alþýðu- bandalagið er sá stjórnmála- flokkur sem stendur verkalýðs- hreyfingunni næst. Innan Al- þýðubandalagsins er líka stærstur hluti þess fólks sem vill einhverju fórna til að baráttumál verkalýðs- hreyfingarinnar fái framgang. í Alþýðubandalaginu er auðvitað mjög fjölskrúðugur hópur. Sumir leggja mesta áherslu á efnahags- legan og félagslegan jöfnuð, aðrir eru þar vegna afstöðu flokksins í utanríkismálum, enn aðrir telja að afstaða flokksins til umhverf- isverndarmála standi sér næst. Það er þess vegna ekkert eðli- legra en menn spyrji stundum hver annan: Af hverju ert þú hér? Hópurinn á þó það margt sam- eiginlegt að hann getur átt heima í sama stjórnmálaflokknum.” Það er haft eftir varaformanni flokksins í einu blaðanna á dög- unum að formaður Alþýðu- bandalagsins og forseti Alþýðu- sambandsins geti ekki talast við. Er eitthvað hæft í þessari fullyrð- ingu? „Það er ekkert launungarmál að okkur Svavar hefur greint á um ýmislegt. En ég held að við höfum báðir nægilegan félags- þroska til þess að geta talast við og ég hef ekki trú á að það sé þörf á miklum tilburðum af hálfu varaformannsins til að miðla mál- um. Það er svo annað mál að það er nokkuð sérkennilegt að nokkr- ir forystumenn Alþýðubanda- lagsins hafa verið að tjá sig um þessi mál í öðrum blöðum en Þjóðviljanum. Ég hef ekki séð neitt haft eftir varaformanni eða formanni framkvæmdastjórnar í Þjóðviljanum, sem ég hefði talið eðlilegri vettvang fyrir sjónarmið af þessu tagi.“ Að lokum: Hverskonar þjóðfé- lag kýstu að sjá fyrir þér í fram- tíðinni? „Þjóðfélag jafnaðar. í mínum augum er öryggi og jöfnuður í tekjum grundvallaratriði og for- senda lýðræðisþjóðfélags. Ef ein- staklingarnir búa ekki við jöfnuð, þá hafa þeir ekki sambærilegar aðstæður til þess að gera sig gild- andi, ná þroska og hafa áhrif. Til þess að af þessu geti orðið þurf- um við að tryggja öfluga atvinnu- uppbyggingu og standa þannig undir auknum tekjum og bættum lífskjörum. Jafnframt verðum við að sjá til þess að félagsleg viðhorf séu ráð- andi svo afrakstrinum sé skipt af sanngirni og tillitssemi sé ríkj- andi.“ hágé. The Smiths Kjarngóð og markviss □ The Smiths - Meat is Murder LP + Kassetta + CD-diskur. Nýjasta Smixhsplatan, Meat Is Murder, hefurfengið glæsilegar viðtökur hérlendis síðustu vikurnar. The Smiths hefur orðið umtalaðasta hljómsveitin í rokk- heiminum enda að mati gagnrýnenda sú athyglis- verðasta, sem komið hefur fram í langan tíma. „Fyrsta platan þeirra var góð en þessi er enn betri, meiri kraftur í tónlistinni, hljóðfæraleikur fjölbreyti- legri og textarnir jafnvel enn betri.“ Gunnlaugur Sigfússon - HP. „Kjarngóð og markviss." Þjóðviljinn. „Þetta er verulega góð hljómsveit, og þlatan sú besta i lanqan tíma “ Ám; Daníel - NT. □ The Smiths - Shakespears Sister 12“45 Glænýtt frá þessum þægilegu ensku piltum. Attur taanlegt □ The Smiths - Hatetul Of moiiow LP t Kassetta □ - The Smiths LP + kassetta u' - How Soon Is Now 12"45 □ - Wllliam It Was Really Nothing 12"45 o - Heaven Knows l'm Miserable Now 12"45 □ - What Difference Does It Make 12“45 □ - This Charming Man 12"45 □ - Hand In Glow 7“45 Nýjasta Gramm-útgáfan i*w« □ Hringurinn - Lárus Halldór Grímsson Fyrsta piata Larusar Grimssonar. Hún hefur að geyma tónlistina úr kvikmyndinni Hringurinn. Hugljúf og heillandi synþesæsertónlist, sem fengið hefur lofsamlega umsögn gagnrýnenda. Nýjar og athyglisverðar plötur □ Art of Noise - Who's Afraid7 Close Up 12"45 □ Cocteau Twins - Treasure - Aikea-Guinea 12"45 □ Einsturzende Neaubauten - Yu-Gung 12'45 o Fat’s Comet (K. Leblanc - Malcolm X) - Don t Forget That Beat 12 45 □ Jean Michei Jarre - Zoolook □ Jesus & Mary Chain - Never Understand ’2 "45 □ Killing Joke - Night Time □ Oku Onuora -t- AK7 - Pressure Drop (frábaert reggae) □ Pat Metheney Group - Falcon And The Snowman- First Circle □ Prince - Purple Rain □ Sex Pistols - Mim Album (áður óutgefið efm) □ This Mortal Coil - It'll End In Tears (m.a. songxona Cocteau) □ We Are The World □ Yello - Live/Claro Que Si/Solid Pleasure Eigum fyrirliggjandi úrval af alls konar tonlist: Blús, djass, „soul“, rokk, rokkabillý, „reggae11, afr- iku-popp o.s.frv.. Einnig bækur og blöð um tónlist og kvikmyndir Póstsendum samdægurs. gramm Laugavegi17 simi12040 1. maí Launafólk fram til baráttu fyrir bættum kjörum. Samtök kvenna á vinnumarkaði. Reykvísk alþýða Sýnum samstöðu og tökum þátt í aðgerðum dagsins. Við söfnumst saman á Hlemmi kl. 13.30 og leggjum af stað kl. 14.00 og göngum niður á Lækjartorg þar sem haldinn verður baráttufundur sem hefst kl. 14.30. Ræðumenn verða: Guðmundur Þ. Jónsson formaður Landssambands iðnverkafólks. Einar Ólafsson formaður Starfsmannafélags ríkis- stofnana. Ávarp flytur Kristinn Einarsson formaður I.N.S.Í. Fundarstjóri verður Björk Jónsdóttir Verkakvennafé- laginu Framsókn. Á fundinum mun sönghópurinn Hálft í hvoru flytja nokkurlög 1. maí nefndin. Sjómannafélags Reykjavíkur verður úthlutað frá og með 2. maí n.k. á skrifstofu félagsins Lindargötu 9. Orlofshús félagsins eru í Húsafelli og í Grímsnesi. Stjórnin með jjölda stórravinninga Búum öldmðum « 1 J »1 Hagnaði afhappdrætti DAS er varið tii velferð- armála aldraðra um allt land. Meðai annars stuðnings við byggingar dvalarheimiia aldr- aðra á sem flestum stöðum víðsvegar um landið. Hér sést yfír framkvæmdasvæði Sjómanna- dagsráðs og Happdrættis DAS í Hafnarfirði og Garðabæ. Helstu framkvæmdir er nú standa yfír eru að Ijúka að fullu við hjúkrunardeildina, þ.e. endurhæfíngardeild, meðferðarsundlaug og að laga lóð. Síðar taka svo við framkvæmdir við næsta smáhýsahverfí. ___HAPPDRÆTTI__________ Dvalarheimilis aldraðra sjómanna tftóé VÍÐSJÁ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.