Þjóðviljinn - 01.05.1985, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 01.05.1985, Blaðsíða 4
1. MAÍ Avarp Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga 1. maí 1. maí er helgaður samstöðu verkafólks og réttlæti. Það er vlð hæfl á hátíðisdegl verka- lýðslns ( ár að beina augum okkar til þeidökkra verka- manna í Suður-Afríku. Þeir heyja um þessar mundir harða baráttu fyrir mannréttindum og réttlæti. Hvergi er önnur elns þörf á alþjóðlegu átaki til að losa heiminn við yfirvofandi stríðsógnun og afmá af jörð- unni kerfi, þar sem mannréttindi og réttvísi eru fótum troðin. Baráttan í Suð- ur-Afríku sýnir einnig svo ekki verður um vlllst, hve áhrifa- mlkll sterk og óháð verka- lýðshreyfing er í vörn fyrir mannréttindum og réttinda- málum verkafólks. Ástandið í Suður-Afríku nálg- ast nú suðupunkt. Tuttugu og fimm árum eftir að fjöldamorðin f Sharpeville áttu sér stað eru enn við h'ði takmarkanir á ferðafrelsi og löggjöf Apartheid sem við- heldur misrétti og stjóm hvíta minnihlutans í landinu stendur óhögguð. 21. mars í ár endurtóku atburðirnir í Sharpeville sig, þeg- ar lögregla Suður-Afríku hóf skothríð á saklaust fólk og drap 19 manns að sögn yfirvalda. Sjón- arvottar halda því fram, að fjöm- tíu manns hafi verið drepnir. Alls hefur lögregla drepið um 240 svertingja á síðustu tíu mánuð- um. Þúsundir hafa særst í átökum við lögregluna og um ellefu hundmð manns hafa verið hand- teknir. Eitt helsta bitbein kúgunar- stjómar S-Afríku er þarlend verkalýðshreyfing þeldökkra. Á s.l. ári hóf Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga herferð um allan heim til að fá leysta úr haldi nokkra forystumenn verka- fólks í S-Afríku, þ.á.m. Pirochaw Camy, framkvæmdastjóra Verkalýðsráðs S-Afríku, og Chris Dlamini, forseta Sambands Verkalýðsféiaga S-Afríku. Þetta em tvö öflugustu sambönd frjálsrar verkalýðshreyfingar í landinu. Um þessar mundir er tuttugu og einn félagi verka- lýðsfélaga í haldi. Andstaðan gegn kynþáttamis- rétti fer dagvaxandi í S-Áfríku. Á alþjóðavettvangi fær þessi and- staða aukinn byr. Viðbrögð stjórnvalda eru í fyrsta lagi að leggja til umbætur sem dæmdar em til að mistakast, þar sem ekki er hreyft við undirrót misréttis- ins. í öðm lagi beita þau morð- um, ofbeldi, handtökum og of- sóknum. Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga hefur farið þess á leit við öryggisráð S.Þ. að það beiti S-Afríkustjóm refsiaðgerð- um. Sett verði olíusölubann á landið auk sölubanns á vömm til kjamorkuframleiðslu. Þá er lagt til að bannað verði að selja S- Afríkustjóm hátæknivömr, sem nota má í hemaðariegum til- gangi. Brýnt er að aðildarfélög Al- þjóðasambands frjálsra verka- lýðsfélaga beiti stjómvöld í löndum sínum auknum þrýstingi, sérstaklega hvað varðar viðskipti og fjárfestingu í Suður-Afríku. Auka þarf refsiaðgerðir þar sem þær koma að mestu gagni í bar- áttunni að Apartheid stefnu stjómvalda. Einnig ber að styðja enn frekar eigin áætlun Alþjóða- sambands frjálsra verkalýðsfé- laga til hjálpar sjálfstæðri verka- lýðshreyfingu svertingja í Suður- Afríku. í 1. maí ávarpi Alþjóðasam- bands frjálsra verkalýðsfélaga á síðasta ári var minnt á verkafólk, sem býr við harðstjóm alræðis- þjóðfélaga. Jafnframt var áhersla lögð á hugsjónir frelsis og réttindi verkalýðsfélaga. Sambandið lítur svo á, að óháð verkalýðshreyfing hafi verið mestur aflvaki og burð- arás mannréttinda í heiminum. Lýsandi dæmi um þetta er sjálf- stæðverkalýðshreyfingþeldöickra í S-Afríku. Félagar em nú um hálf milljón. Með fádæma hug- rekki, fómum og tryggð við hug- sjónir frjálsrar verkalýðshreyf- ingar hafa samtök þeldökks verkafólks orðið áhrifamikið bar- áttutæki gegn kúgun svarta meiri- hlutans í landinu. Þau hafa barist fyrir frelsi, réttlæti og afnámi Ap- artheid, og þannig reynt að koma í veg fyrir blóðbað, sem óum- flýjanlegt er, ef staðið verður til lengdar gegn grundvallanréttind-. um meirihlutans. Á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks senda aðildarsam- bönd Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsféiaga um allan heim - alls 141 samband í 98 löndum með 82 milljónir verkamanna að baki - þeldökkum verkamönnum í Suður-Afríku baráttu- og sam- stöðukveðjur. Þeir heyja harða baráttu fyrir þeim markmiðum, sem eru einkunnarorð Alþjóða- sambands frjálsra verkalýðsfé- laga: Brauð, friður og frelsi. 1. maí kaffi Svalanna Hótel Sögu kl. 14.00 Hlaðin borð af kræsingum. Stórkostlegt happdrætti, ferðavinningarog boð á veitingahús, leikföng og margt fleira. “ Tískusýningar kl. 14.30 og 15.30. Sýnd verða fötfrá eftirfarandi verslunum: Dömugarðinum, Öndum og höndum, Bernharð Laxdal, aukþess sólgleraugu frá Linsunni. Snyrtivörur frá Lauru Biagotti, snyrtaf snyrtistofunniMandý, Laugavegi 15. Svölukaffi svíkur engan. Allur ágóöi rennur til líknarmála. SVÖLURNAR, félag fyrrverandi og núverandi flugfreyja. Bandalag starfsmanna ríkis og bœja sendir félagsmönnum sínum og öllum launa- mönnum baráttukveðjur á hátíðisdegi launa- fólks. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 1. maf 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.