Þjóðviljinn - 18.05.1985, Side 14
Jón Ingi
sýnir ó
Selfossi
í dag, laugardag, kl. 14 opnar
Jón Ingi Sigurmundsson mál-
verkasýningu í Safnahúsinu á Sel-
fossi. Þar sýnir hann 35 olíu-,
pastel- og vatnslitamyndir. Þetta
er önnur einkasýning Jóns Inga
en hann hefur tekið þátt í sam-
sýningum Myndlistarfélags Árn-
essýslu. Sýningin verður opin til
27. maí, virka daga frá kl. 15-22
og kl. 14-22 um helgar.
Tvennir
tónleikar
Tónlistarskólinn á Akureyri
heldur tvenna tónleika nú um
helgina. Þeir fyrri veröa ísal
skólans í dag, laugardag, kl.
17. Þar leikur Aöalheiöur
Matthíasdóttir á fiðlu við pían-
óundirleik Kristins Arnar Krist-
inssonar og Aðalheiðar Egg-
ertsdóttur. Auk þess leikur
Fanny T ryggvadóttir á þver-
flautuíeinuverki. Þettaeru
lokaprófstónleikar Aðalheiðar
og á efnisskránni eru verk eftir
Hándel, Beethoven, Pugnani,
Kreislerog CesarCui.
Síðari tónleikarnir verða á
morgun, sunnudag, kl. 20.30 í
Akureyrarkirkju. Þar leikur sin-
fóníuhljómsveit skólans en gestir
á tónleikunum verða Karlakór
Akureyrar og Karlakórinn
Geysir. Á efnisskránni er Fin-
landia eftir Sibelius, verk eftir
Grieg og Bizet auk þess sem
frumflutt verður nýtt tónverk
eftir einn af kennurum skólans,
Oliver Kentish. Þetta er 18. verk-
ið sem flutt er eftir hann á 7 ára
ferli við skólann. Stjórnendur
verða Michael J. Clarke og Oli-
ver Kentish. - ÞH
Símon og
Siegfried
Áfram halda þeir gítarl-
eikarnrnir Símon H. ívarsson og
Siegfried Kobilza á tónleikaför
sinni um landið. Næstu tónleikar
verða á morgun, sunnudag, kl. 17
í Grindavíkurkirkju, daginn eftir
kl. 20.30 verða þeir í Ytri-
Njarðvíkurkirkju, á þriðjudag-
inn kl. 20.30 á hótelinu í Borgar-
nesi og á miðvikudag kl. 20.30 í
grunnskólanum í Olafsvík. Á
efnisskránni eru m.a. verk eftir
Bach, Beethoven, de Falla og
Boccherini. - ÞH
Gítartónar
á Húsavík
Á morgun, sunnudag, kl. 20.30
heldur Þórarinn Sigurbergsson
gítarleikari einleikstónleika í
Húsavíkurkirkju. Á efnisskrá
tónleikanna verða m.a. verk eftir
meistara barokktímabilsins,
Bach og Scarlatti, og verk eftir
spænska tónskáldið Albeniz.
Átta strengjastúlkur með stjórnanda sírium, Jakob Hallgrímssyni.
Tónlistarskóli Seltjarnarness
Strengjasveitin
spilar í Neskirkju
Á mánudagskvöldið kl. 20.30
heldur Strengjasveit Tónlistar-
skólans á Seltjarnarnesi ásamt
Skólakór Seltjarnarness og nem-
endum úr Tónlistarskólannum
þar tónleika í Neskirkju
Tónleikarnir eru haldnir vegna
fyrirhugaðrar Noregsfarar
Strengjasveitarinnar, en hún ætl-
ar nú að endurgjalda heimsókn
„Veslefrikk Strykeorkester“ frá
Osló í fyrra.
Allir eru hjartanlega velkomn-
ir.
Heiðarsel í Jökuldalsheiði, var í byggð til haustsins 1948.
Jökuldalshelðin
Dagskrá um Jökuldalsheiðina
verður flutt í Norræna húsinu
laugardaginn 18. maí 1985 kl.
14.00. Þar mun Bjarni Vilhjálms-
son segja frá Halldóri Stefánssyni
og ritverki hans, Gunnar Valdim-
arsson lesa ljóð og Skjöidur
Eiríksson segja frá landkostum
heiðarinnar. Sýndar verða lit-
skyggnur þ.á m. af bæjum og bú-
endum og segir Auðunn H. Ein-
arsson stuttlega frá sumum
myndanna. Kaffiveitingar verða í
kaffistofu Norræna hússins. bsk
Tónlistarskólinn
Tónleikar ó laugardag
Lokaatriðið ó afmcelisdagskró Kópavogs
verðuríkirkjunni
Tónlistarskóli Kópavogs held-
urtónleika í Kópavogskirkju
laugardaginn 18. maíog
verða þeir fluttir í tilefni af þrí-
tugsafmæli kaupstaðarins.
Tónleikarnir eru lokaatriðið á
afmælishátíðinni í Kópavogi.
Efnisskrá: Hljómsveit skólans
leikur undir stjórn Þórhalls Birg-
issonar. Hún leikur t.d. fimm
þjóðlög í útsetningu Snorra Sig-
fúsar Birgissonar, - og fluttur
verður fyrsti þáttur úr flautukon-
sert eftir Leclair, einleikari er
Hallfríður Ólafsdóttir og þrjá
þætti úr Vatnasvítunni eftir
Hándel.
Þarna mun blokkflautusextett
leika barnalög eftir Bartók og
fluttur verður einleikur á píanó:
víkivaki eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson og Apríl úr Árs-
tíðunum opus 37 B eftir Tchaik-
ovsky og það er Kolbrún Jóns-
dóttir sem leikur.
Tónleikarnir hefjast kl. 16.00 á
laugardaginn.
Með nótur og píanista upp á vasann
Dagana 20.-21. maí verður verður í Norræna húsinu kl. möguleiki að bæta við örfáum
baritónsöngvarinn William Park- 10.00-13.00 báða dagana. söngvurum. Þeir sem vilja syngja
er með námskeið fyrir söngvara Þátttöku- og áheyrendagjald er fyrir Parker geta tekið nótur og
og söngnemendur. Námskeiðið hið sama, kr. 300,- á dag. Enn er píanista með sér. bsk
Vorblót '85
Tónlistarmenn
safna fé
I dag, laugardag, kl. 14 verða
haldnirtónleikar í Háskólabíói
undir nafninu Vorblót ’85. Þar
koma fram tónlistarmenn af
ýmsum stærðum og gerðum
og ætla með þessu að afla fjár
til kaupaáfélagsheimilifyrir
tónlistarmenn íReykjavík.
Félagsheimilið er við Vatnsstíg
3 og hefur áður verið sagt frá því
hér í blaðinu. Það hefur verið í
eigu SATT, samtaka alþýðutón-
skálda og tónlistarmanna, en um
síðustu áramót var ákveðið að
bjóða öðrum samtökum aðild að
húsinu og breyta því í félagsheim-
ili. Ákveðið var að safna hlutafé
að upphæð 4 miljónir króna og
hefur þegar verið safnað liðlega
helmingi þeirrar upphæðar en
stofnfundur nýja hlutafélagsins
verður haldinn nú í júní. Að
söfnuninni standa öll helstu félög
tónlistarmanna.
Það er fjölskrúðugur hópur
sem kemur fram á tónleikunum í
dag. Jazzvakning sendir þangað
kvartett Kristjáns Magnússonar
píanóleikara sem auk hans er
skipaður þeim Þorleifi Gíslasyni
saxófónleikara, Árna Scheving
bassaleikara og Sveini Óla
Jónssyni slagverksleikara. Full-
trúar Musica Nova verða Sigurð-
ur I. Snorrason klarinettuleikari
og Anna Guðný Guðmundsdótt-
ir píanóleikari. Kvæðamannafé-
lagið Iðunn sendir nokkra félags-
menn á vettvang og Big band
Svansins mætir á svæðið. Þar
verður einnig Nýja strengja-
sveitin með Bernharð Wilkinsor
sem einleikara, Kór íslensku óp
erunnar og Blásarakvintet
Reykjavíkur, skipaður þeirr
Bernharði Wilkinson flautu-
leikara, Daða Kolbeinssyni óbó-
leikara, Einari Jóhannessyn:
klarinettleikara, Jóseph Ogni-
benen hornleikara og Hafsteini
Guðmundssyni fagottleikara. Fé-
lag íslenskra tónlistarmanna
sendir á vettvang píanóleikarana
Gísla Magnússon og Halldói
Haraldsson sem leika tví-
leiksverkið Scaramouche sem
þeir léku í siónvarpinu ekki alls
fyrir löngu. Öperudeild Félags ís-
lenskra leikara sendir hjónin
Sieglinde Kahmann og Sigurð
Björnsson söngvara sem syngja
við píanóundirleik Jóns Stefáns-
sonar sem jafnframt er kynnir
hátíðarinnar og síðast en ekki síst
bregða nokkrir félagar úr Félagi
harmonikkuunnenda á leik.
Eflaust munu einhverjjr sakna
framlags úr heimi dægurlagatón-
listarinnar. Fjarvera popparanna
á sér þá skýringu að tækjabúnað-
ur þeirra fer mjög á skjön við
aðra tónlistariðkan og var ekki
talið svara kostnaði að stafla upp
miklum græjum fyrir kannski 7
mínútur. Þess vegna ákváðu
popparar að halda sína eigin fjár-
öflunartónleika síðar í sumar eða
haust.
En þótt popparar séu fjarri
góðu gamni mun ekki skorta á
fjölbreytnina á tónleikunum í
Háskólabíói í dag. Því er lofað að
dagskráin verði af léttara taginu
og ættu flestir að finna þar
eitthvað við sitt hæfi samhliða þvf
að þeir styrkja fagurt málefni
með nærveru sinni.
- ÞH
Myndlist
í Hvassaleiti
Myndlistaklúbbur Hvassa-
leitis heldur málverkasýningu
í Hvassaleitisskóla dagana
19.-20. maí, frá kl. 14.00-
22.00.
Á sýningunni eru 153 málverk
auk teikninga sem félagarnir 24
hafa dregið á síðustu tveimur
árum.
Myndlistaklúbbur Hvassaleitis
hefur nú starfað í sjö ár og er
þetta þriðja samsýning hans.
Leiðbeinandi sl. 5 ár hefur ver-
ið Sigurður Þórir Sigurðsson
myndlistamaður. bsk
Tvennir
lokatónleikar
Á morgun og mánudag verða
tvennir tónleikar á vegum
Tónlistarskólans í Reykjavík.
Þeir fyrri verða í húsakynnum
skólans að Skipholti 33 á
morgun, sunnudag, kl. 17 en
þá leikur Sigurður Halldórs-
son á selló verk eftir Bach,
Beethoven, Peder Holm og
Brahms. Sigurður er að Ijúka
burtfararprófi frá skólanum en
með honum leikur Brynhildur
Ásgeirsdottir á píanó.
Síðari tónleikarnir eru í Nor-
ræna húsinu á mánudag kl. 20.30.
Þar fer fram síðari áfangi í ein-
söngvaraprófi Elísabetar Waage
mezzó-sópran söngkonu. Á efn-
isskránni eru verk eftir Edward
Grieg, Caldara, Atla Heimi
Sveinsson, Charles Ives, Fauré
og Mahler. Við píanóið er Jónas
Ingimundarson. - ÞH
Elísabet Waage mezzó-sópran.
Sigurður Halldórsson sellóleikari.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. maí 1985