Þjóðviljinn - 16.06.1985, Síða 10

Þjóðviljinn - 16.06.1985, Síða 10
- Loftskeytastöðin við Rauðará. Fyrir róttum 80 árum barst í fyrsta skipti skeyti til Islands um þessa stöð. mikla athygli í Reykjavík. Á- kvörðuninni um sæsímann varð þó ekki haggað þrátt fyrir það að bændur fjölmenntu til Reykja- víkur til að mótmæla honum. Fundur þeirra skoraði á þing og stjórn að sinna frekar tilboðum loftskeytafélaga um loftskeyta- samband milli íslands og útlanda og innan lands. Goðafoss fyrstur með tœki Marconistöðin var starfrækt fram í október 1906 er hún var lögð niður. Árið 1911 var uppi ráðagerð um þráðlaust samband við Vestmannaeyjar en ekki varð af þeirri framkvæmd og var þá lagður sæsímastrengur á vegum einkaaðila, sem fengu einkarétt um sinn, en ríkið yfirtók þó fyrir- tækið innan fárra ára. Eftir Titanic-slysið 1913 vakn- aði áhugi fyrir skiparadíói í Reykjavík eða nágrenni. Alþingi fól ráðherra að koma upp stöð- inni en ekkert gerðist í málinu fyrr en 1915. Þar ár komu fyrstu skip Eimskipafélags íslands, Gullfoss og Goðafoss, til landsins með radíótæki innanborðs. Þegar Goðafoss kom til lands- ins í júnímánuði 1915 var hann fyrsta íslenska skipið sem var Símstöðvarfólk á Seyðisfirði snemma á öldinni. I fremstu röð f.v.: Brynjólfur Eiríksson, Ida Jensen, Sigurveig Guttormsdóttir, Ragnhildur Guðmundsdóttir (aðeins fyrir aftan), Ágústa Faarberg, Brynhildur Haraldsdóttir og Snorri Lárus- son. I efri röðum f.v.: Nielsen, Andersen, Christiani símstöðvarstjóri (lengst t.v. efst), Solveig Jónsdóttir, Gísli Lárusson, Áslaug Árnadóttir, Emil Jónasson, Þórarinn Kristjánsson, Jónas Lilliendahl, Árni Kristjánsson og Þorsteinn Gísla- son. Sá síðastnefndi smíðaði loftskeytastöð 1912 og var hún eina loftskeyta- stöðin á landinu þar til loftskeytastöðin á Melunum í Reykjavík var tekin í notkun 1918. Loftnet stöðvarinnar var 200 metra langt á tveim 77 metra háum stálmöstrum. Árið 1924 var einnig settur upp 2 kw neistasendir, að mestu smíðaður á verkstæði Landsímans og ætl- aður til viðskipta við skip. Auk þessarar stöðvar voru settar upp smærri radíóstöðvar á ísafirði, Siglufirði, Seyðisfirði, Vestmannaeyjum, Flatey á Breiðafirði, Hesteyri og seinna í tók til starfa, fyrst óformlega, 10. október 1930 með tilraunasend- ingum og síðan 21. desember sama ár með fastri dagskrá. Ríkisútvarpið var frá byrjun undir stjórn fimm manna út- varpsráðs og útvarpsstjóra. Áður en Ríkisútvarpið tók til starfa hafði um nokkurt skeið starfað í Reykjavík ófullkomin útvarps- stöð sem sendi út helstu fréttir. Árið 1934-35 var komið á radí- ósambandi milli Reykjavíkur og Saga Loftskeyti með leynd 80 ár frá því að ísland komstí loffskeytasambaná við útlönd og 70 árfrá því að fyrsta íslenska skipið fékk loftskeytatceki Snemmsumars 1905 sendi Marconifélagið í London fulltrúa sinn, W. Densham, með leynd hing- að til lands með Lauru. Hann hafði í farangri sínum radíómóttakara. Um þetta leyti stóð slagurinn um það hvort koma ætti upp þráð- lausu sambandi við útlönd eða leggja sæsíma til landsins. Svo vildi til að með sama skipi kom Hannes Hafstein ráðherra sem samninginn við Mikla nor- ræna símafélagið um lagningu sæ- símans. Mun hann ekki hafa haft minnsta grun um að samfarþegi hans, Densham, væri útsendari Marconifélagsins og væri að smygla loftskeytatækjum inn í landið. Þegar eftir komuna til Reykjavíkur hóf Densham að reisa loftskeytastöð skammt innan við bæinn hjá Rauðará. Hinn 26. júní 1905 var tilkynnt að hann hefði móttekið loftskeyti frá Poldhu í Cornwall í 1850 km fjarlægð. ísland var komið í beint loftskeytasamband við önnur lönd og eru því liðin rétt 80 ár frá þeim atburði. Þess skal hér getið að þegar fyrstu loftskeytin voru send frá íslandi voru aðeins tvö ár liðin frá því að Marconi (1874-1937) hafði í fyrsta sinn tekist að senda þráð- laust skeyti yfir Atlantshafið. Það var sent frá St.Johns í Nýfundna- Iandi til móttökustöðvar í Cornwall. Marconiloftskeytastöðin á Rauðará vakti að vonum geysi- Frá Seyðisfirði. Næst er Gíslahús en fyrir aftan það sést I gaflinn á Stefánshúsi. Milli þessara húsa var í fyrsta sinn sent þráðlaust skeyti innanlands árið 1912. búið loftskeytatækjum. I þessum mánuði eru því 70 ár liðin frá þeim atburði. Við komu Foss- anna varð augljós þörfin fyrir loftskeytastöð í landi. Eina loft- skeytastöðin, sem til var, bæði til sendinga og móttöku, var tilraun- astöð er Þorsteinn Gíslason, síð- ar símstjóri á Seyðisfirði, hafði smíðað og náði hann sambandi við Goðafoss þegár hann var á siglingu til landsins út af Austfjörðum. Var þetta fyrsta loftskeytasamband milli skips og lands, en þremur árum áður höfðu þeir Þorsteinn og Frið- björn Aðalsteinsson, síðar stöðv- arstjóri loftskeytastöðvarinnar á Melunum við Reykjavík, sent loftskeyti milli Gíslahúss og Stef- ánshúss (Th.jónssonar) á Seyðis- firði. Tæki Þorsteins munu enn varðveitt. Radíóstöð ó Melunum í júlí 1916 gerði Einar Arnórs- son ráðherra samning við Marc- onifélagið í London um að reisa radíóstöð á Melunum við Reykjavík. Hinn 17. júní 1918 var svo Melastöðin tekin opin- berlega í notkun. Hún átti að annast viðskipti við skip á hafi úti og vera varasamband við útlönd ef sæsíminn bilaði. Rafmagn var þá ekki komið í Reykjavík og var radíóstöðin rekin með 15 hestafla díselrafstöð. Sendirinn var 5 kw, tengdur rafgeymum. í byrjun var þetta neistastöð en eftir fá ár var hún leyst af hólmi með lampa- tækjum. Grímsey, Flatey á Skjálfanda og Húsavík. Árið 1922 var ísafjarð- arstöðin flutt að Kirkjubæ á Síðu til þess að koma á sambandi við Reykjavíkurstöðina. Vest- mannaeyjar fengu skiparadíó 1921 og var það jafnframt vara- samband við Reykjavík. Allar þessar stöðvar voru til mikils ör- yggis fyrir strandferðaskipin og einnig fyrir stærri fiskiskip sem hvert af öðru voru búin fjarskipt- atækjum. Útvarps- sendlngar Samkvæmt lögum frá 1928 var gerður samningur við Marconifé- lagið í London um búnað og upp- setningu á útvarpsstöð í Reykja- vík í eigu ríkisins. Ríkisútvarpið útlanda. Sendistöðinni var valin staður á Vatnsendahæð. Hún var búin fjórum loftnetum, tvö fyrir 24 metra bylgjulengd til nota fyrir birtutíma, annað til viðskipta við England en hitt fyrir Danmörku. Hin tvö voru fyrir 33 m og 58 m bylgjulengdir, til nota í myrkri og ætluð fyrir bæði löndin. Þau eru byggð sem stefnuloftnet. Auk þess var reist fimmta loftnetið til útsendinga í allar áttir. Móttöku- stöðin var reist í Gufunesi. Sú bjartsýni, sem lýsti sér í byggingu stuttbylgjustöðvarinn- ar, þrátt fyrir efasemdir margra, hefur leitt til ótrúlegra framfara í símaþjónustu milli landanna og gefið góðan arð. Árið 1939 af- greiddi stöðin 15 þúsund samtöl en árið eftir voru þau orðin 41 þúsund talsins. GFr/Einar Vilhjálmsson. Goðafoss var fyrsta íslenska skipið sem hafði loftskeytatæki innanborðs. 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. júní 1985

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.