Þjóðviljinn - 16.06.1985, Page 17
Vigdís verður
heiðursdoktor
Forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, dvelur í Frakklandi
dagana 18. til 25. júní n.k. í
einkaerindum. Förinni er heitið
til Parísar, Grenoble og Lyon.
í Grenoble verður Vigdís Fiiin-
bogadóttir forseti sæmd heiðurs-
doktorsnafnbót við háskólann,
l’Université de Grenoble, en hún
stundaði þar nám í tvo vetur á
Frakklandsárum sínum.
Forseti íslands verður einnig
viðstödd tónleika Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í Grenoble 20.
júní og í Lyon 21. júní, en dvelur
síðan nokkra daga í París.
í fylgd með forseta íslands
verður Vigdís Bjarnadóttir
deildarstjóri á forsetaskrifstof-
unni.
Reykjavík
14. júní 1985
Vigdís
Finnbogadóttir
forseti
íslands.
Ferðafélag
íslands
Dagsferðir:
1. 15. júní kl. 13.00 - Viðey -
Verðkr. 100.00 Fararstjóri: Lýð-
ur Björnsson.
2. 16. júní, kl. 10.00 Sel-
vogsgatan - Herdísarvík - gömul
gönguleið. Fararstjóri: Sigurður
Kristjánsson. Verð kr. 400.00.
3. 16. júní, kl. 13.00 Eldborgin
- Geitahlíð - Herdísarvík. Farar-
stjóri: Pórunn Þórðardóttir.
Verð kr. 400.00.
4. 17. júní, kl. 13.00 Selatangar
- Grindavík. Selatangar eru
gömul verstöð milli Grindavíkur
og Krýsuvíkur. Allmiklar ver-
búðarústir eru þar. Þarna er stór-
brotið umhverfi og má einkum
nefna Katlahraun vestan við
Tangana. Fararstjóri: Hjálmar
Guðmundsson. Verð kr. 400.00
5. Miðvikudag 19. júní er kvöld-
ferð kl. 20.00. Ekið að Skeggja-
stöðum í Mosfellssveit, gengið
þaðan að Hrafnhólum og áfram í
Þverárdal. Verð kr. 250.00.
Brottför í allar ferðirnar frá
Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Farmiðar við bíl. Frítt
fyrir börn í fylgd fullorðinna.
MFÍK
Heims-
gangan
Föstudaginn 21. júní nk. fer
fram frumæfing Heimsgöngunn-
ar, þegar gengið verður frá Þing-
völlum til Reykjavíkur. Markmið
heimsgöngunnar er .að tengja
fólk um heim allan í boðgöngu og
hátíð, svo að það megi boða þá
göfugu stefnu að varðveita heim-
inn, það líf, sem í honum býr og
þá menningu, sem jarðarbúar
hafa skapað.
Menningar- og friðarsamtök
lýsa yfir stuðningi sínum við þetta
lofsverða framtak aðstandenda
Sólstöðugöngunnar til að bæta
samskipti fólks í heiminum og
hamla gegn þeim öflum, sem vilja
plánetu okkarfeiga. Félagskonur
eru hvattar til að taka þátt í göng-
unni og njóta þeirrar fjölbreyttu
og skemmtilegu dagskrár, sem
boðið er upp á um leið og þær
leggja lóð sitt á vogarskálar friðar
og lífs.
Menningar- og friðarsamtök
íslenskra kvenna.
Ferðaáfangar mega ekki vera
of langir - þá þreytast
farþegar, sérstaklega börnin.
Eftir 5til lOmínútnastanságóðum
staö er lundin létt. Minnumst
þess að reykingar í bílnum geta
m.a. orsakað bílveiki.
«I%F
UMFERÐAR
PEKING
ENDURFUNDIR
ÁIÁGUVBXH
Nú er kominn tími til að endurnýja kynnin við
Pekingendur, því nú er þessi gómsæti hátíðar-
matur á ótrúlega lágu verði, aðeins um kr. 295 kg
' og hækkaði ekkert um síðustu mánaðamót.
Til að gera þessa endurfundi sem eftirminni-
legasta fylgja hér matreiðsluuppskriftir þriggja
meistara.
MATREÐSLUUPPSKRIFTIR MEISTARANNA
PEKINGÖND MEÐ PÚRT-
VÍNSLEGNUM PERUM
Hilmar B Jónsson
Fyrir 2-3.
Efni:
1 pekingönd
3 stórar perur
1 appelsína
2 dl púrtvin
salt og pipar
Sósa:
Innmaturinn úr öndinni
1 gulrót
1 laukur
6-10 þurrkuð einiber
2 dl vatn
óbráðið smjör
Afhýðið perurnar, kjarnið og
skerið í báta. Leggið í djúpa
skál og hellið púrtvíninu yfir.
Látið standa í 3-4 tíma.
Snúið við öðru hverju.
Skerið laukinn og gulrótina í
bita og setjið í steikingar-
skúffu ásamt innmatnum.
Afhýðið appelsínuna og
skerið í bita.
Hreinsið öndina og þerrið
vel. Setjið perurnar ásamt
appelsínubátunum innaní
öndina og bindið hana upp.
Geymið safann af perunum.
Nuddið salti og pipar vel inn í
haminn á öndinni og leggið
hana síðan ofan á innmatinn í
steikarskúffunni. Setjið önd-
ina inn í 250°C heitan ofn og
steikið þar til öndin er orðin
fallega brún. Penslið af og til
með feitinni sem af drýpur.
Lækkið hitann niður í 150°C
og steikið í um 45 mín. I allt.
Þá er fitunni hellt úr steikar-
skúffunni og púrtvíninu hellt í
skúffuna með öndinni ásamt
vatninu. Sjóðið í 15 mín. í við-
bót. Þá er soðið sigtað í
pönnu, einiberjunum bætt útí
og soðið niður þar til orðið
er hæfilega bragðsterkt.
Óbráðnu smjörinu er hrært út
í sósuna. Eftir það má sósan
ekki sjóða.
Öndin er tekin úr ofninum,
bandið fjarlægt og perurnar
og appelsínubátarnir fjar-
lægðir með skeið og borið
fram með öndinni ásamt t.d.
sykurbrúnuðum kartöflum og
léttsoðnu selleríi.
APPELSÍNUÖND
Úlfar Eysteinsson
Pekinganda krydd: (fyrir ca.
4 — 5 endur).
1 bolli sykur
1 bolli salt
(Sama kornastærð afsykri og
salti, annars minna salt)
1/2 bolli kjúklingakrydd
(Eurospice, Lederhausen)
1 matsk. paprikuduft
Matreiðsla:
Kryddið öndina og setjið inn í
190°C heitan ofn. Steikið i 15
mín. með bringuna upp,
snúið öndinni við og steikið í
15 mín. Hellið fitunni af og
geymið fyrir sósuna, kryddið
öndina aftur og steikið í 30
mín. (miðastvið1900gr önd).
Sósa:
Brúnið innmatinn og væng-
endana ásamt niðurskornum
lauk og gulrót, hellið vatni yfir
og sjóðið. Rífið appelsinu-
börk og kreistið appelsínu útí
soðið eftir að hafa sigtað það.
Búið til smjörbollu úr andafit-
unni (hveiti + andafita) bætið
sósulit og kjötkrafti útí.
Ef ekki er nóg appelsínu-
bragð af sósunni má bæta
hana með sykurlausu Egils
appelsíni.
PEKINGÖND MEÐ RIFS-
BERJASÓSU
Skúli Hansen
Efni:
1 stk Pekingönd
1 stk laukur
1 stk gulrót
2 stönglar sellerí
2—3 lárviðarlauf
heill pipar 5. .6 korn
maizena sósujafnari
Matreiðsla:
Úrbeinið fuglinn, losið lærin
og bringuna frá beininu,
hreinsið fituna vel frá. Kryddið
með salti og nýmöluðum
pipar og brúnið rólega I
smjörlíki á báðum hliðum.
Færið upp úr og geymið.
Sósa:
Smjörlíki er brætt í potti og
beinin höggvin niður og
brúnuð vel ásamt öllu ferska
grænmetinu. Kryddið með
salti og nýmöluðum pipar og
lárviðarlaufum. Bætið vatni í
pottinn og sjóðið í 30-40
mín. Sigtið soðið og jafnið
sósuna með maizena sósu-
jafnara. Bragðbætið sósuna
með salti og pipar, 3ja kryddi,
örlitlu af ,,sage“ eða „ört
seasoning“ lítið eitt af kjöt-
krafti. Að lokum er bætt í sós-
una rifs- eða títuberjasultu og
portvíni. Andarbringan og
lærin eru nú sett út í sósuna
og soðin rólega í 15-20
mínútur.
ísfugl
Fuglasláturhúsið
Varmá Reykjavegi 36 Mosfellssveit
Sími: 666103
Væri ekki þjóðhátíðardagurinn tilvalinn til Peking endurfunda?