Þjóðviljinn - 16.06.1985, Qupperneq 19

Þjóðviljinn - 16.06.1985, Qupperneq 19
fegurð og nytsemi í tilefni 150 ára afmœlis tímaritsins Fjölnis landsrœkt, og er hönum oftast ofaukið í mannligu félagi. Jónas En það var fleira merkilegt í Fjölni. í þriðja árganginum 1837 birtist einhver áhrifamesti og vandaðasti ritdómur íslands- sögunnar. Jónas Hallgrímsson skrifar þar um Rímur af Tristrani og Indíönu eftir vinsælasta skáld á íslandi um þessar mundir, Sigurð Breiðfjörð. Jónas var ekkert að skafa utanaf hlutunum, heldur byrjar ritdóminn með þessum orðum: Eíns og rímur (á íslandi) eru kveðnar, og hafa verið kveðnar allt að þessu, þá eru þœrflestall- ar þjóðinni til mínkunar - það er ekkji til neíns að leina því - og þar á ofan koma þœr tölu- verðu illu til leiðar: eíða og spilla tilfinníngunni á því, sem fagurt er og skáldlegt og sómir sjer vel í góðum kveðskap, og taka sjer lil þjónustu „gáfur“ og krapta margra manna, er hefðu gjetað gjert eítthvað þarfara - orkt eítthvað skárra, eða þá að minnsta kosti prjónað meín- lausann duggra-sokk, meðan þeír voru að „gullinkamba“ og ,fimbulfamba“ til ævarandi spotts og athláturs um alla ver- öldina. Jónas fer mjög nákvæmlega í rím- urnar og galla þeirra og satt best að segja stendur ekki steinn yfir steini hjá aumingja Breiðfjörð. Það má kannski segja að Jónas hafi verið full harðorður, t.d. hafði Sigurður Breiðfjörð ort betri rímur en þessar. En Jónas var ekki að klekkja á Sigurði per- sónulega heldur bók- menntagreininni í heild og í því efni ræðst hann á garðinn þar sem hann er hæstur, þegar hann tekur fyrir það rímnaskáld sem vinsæl- ast var á íslandi. En þessi ritdómur varð ekki til að auka vinsældir Fjölnis á ís- landi. Vinir Sigurðar og aðdá- endur urðu æfir af reiði og skömm- unum rigndi yfir Fjölni. Al- mennt á Islandi hefur líka rit- dómurinn orðið til þess að efla mjög andstöðuna við Fjölni, bæði meðal leikra og lærðra. En Sigurður Breiðfjörð bar ekki sitt barr eftir útreiðina hjá Jónasi og andaðist stuttu síðar í mikilli eymd. Pegar til lengri tíma er litið hafði ritdómurinn gífurleg áhrif og átti hvað mestan þátt í að ann- ar skáldskapur tók að dafna á kostnað rímnanna og varla hefur skeleggari og djarfari ritdómur verið skrifaður. Hallar undan fœti Eins og áður sagði gaf Tómas Sæmundsson einn út árið 1839 en síðan kom Fjölnir ekki út fyrr en 1843. Þá gefinn út af „Nokkrum íslendingum“, - Fjölnisfélagið var orðið til. Eftir það dofnar mjög yfir tímaritinu og það sem gefur þeim þremur ársritum sem eftir komu gildi, eru kvæði Jónas- ar Hallgrímssonar. Hann yrkir mörg sín helstu kvæði á þessum árum og birti jafnan í Fjölni. En hvað olli þessari skyndilegu deyfð? Það er sennilega einkum tvennt, fyrir utan dauða Tómasar Sæmundssonar sem var drif- fjöðurin í öllu starfi Fjölnis með- an hans naut við. Hið fyrra er Jón Sigurðsson og stofnun hans á Nýjum Félagsritum. Pað sem einkum olli því að af samstarfi Jóns og Fjölnismanna varð ekki í tímaritsútgáfu var ágreiningur um þingstaðinn og um nafn tíma- ritsins. Annars voru þeir sam- huga í þjóðfrelsismálum að mestu leýti. Eftir að Fjölnisfé- lagið tók við vildi Jón breyta nafni ritsins, sennilega sökum þess að Fjölnir átti sér marga óvildarmenn á íslandi. Þeir Konráð, Jónas og Brynjólfur héldu líka fast í þá skoðun að Al- þingi skyldi endurreist á Þing- völlum. Að þeirra mati átti Al- þingi og hinn forni andi þjóðar- innar þar heima og myndi þjóð- inni farnast farsællega ef hún tæki þar þær ákvarðanir sem mestu réðu um framtíð hennar. Jón Sig- urðsson var ekki jafn rómantísk- ur í lund og þeir Fjölnismenn, - skynsemis- og rökhyggjumaður- inn vildi hafa þingið í Reykjavík. Ný félagsrit drógu því talsverðan kraft úr Fjölni, bæði úr þörfinni fyrir tímarit og meirihluti íslend- inga í Kaupmannahöfn fylkti sér með Jóni. Átök um áfengi Síðara atriðið eru gömul og ný sannindi um það hvernig átök og deilur í áfengismálum geta klofið bæði vinahópa sem heilar þjóðir. Árið 1843 gerðist það að fjöl- margir íslendingar í Kaupmanna- höfn stofnuðu bindindisfélög, meðal þeirra voru Brynjólfur og Konráð. Þessi félagsskapur náði mikilli útbreiðslu og stærsta greinin í 7. árgangi Fjölnis er um bindindisfélögin og m.a. birt lög þeirra þar sem segir meðal ann- ars: 2. gr. - ...1> Á íslandi má eng- inn fjelagsmaður bergja neinu, sem áfengt er, án lœknis ráði, nema því víni, sem klerkar skulu deila mönnum í altaris- göngu. 2> En erlendis er þar að auk leyfilegt, að drekka það öl, sem gjört er íþví landi, þar sem maður er þá, svo og meðal-glas af rínarvíni eða frakknesku rauðavíni í sólarhring. 3. gr. - Sjerhver fjelagsmaður skal æ gjöraslíkt, sem honum erlagið, til að leiða sem flesta vora landa til þessa fjelagsskapar. 4. gr. - Enginn af oss má hafa á boð- stólum nokkurn áfengan drykk, nema honum þyki sem manns líf muni við liggja. Jónas Hallgrímsson lét að vísu til- leiðast fyrir þrábeiðni félaga sinna að ganga í bindindisfélag, en það var meira í orði en í reynd og hann var þar skamma hríð. Hið stranga bindindi átti ekki við hann og hann gerði mikið grín að félögunum, bæði í bundnu og óbundnu máli. Hannes Pétursson skáld hefur sýnt fram á hvernig klofningur vinanna í áfengismál- inu leiddi til stöðugt meiri ein- angrunar Jónasar. Hann dvaldist æ meir með sjálfum sér, skáld- skapnum - og flöskunni. Það segir sig sjálft að þetta dró mikið úr samstöðu þeirra um Fjölni. Jónas deyr'svo 1845 og síðasta hefti Fjölnis er að mestu áður óbirt efni eftir hann. Brynjólfur Pétursson deyr fáum árum seinna og Konráð helgar sig merkum vísindastörfum sínum og dregur sig að mestu leyti út úr félagsmál- um og pólitísku stússi. Fjölnir varð því ekki langlíft tímarit, aðeins níu hefti, en hafði varanleg áhrif á sögu íslensku þjóðarinnar. Fjölnismenn áttu öðrum fremur þátt í að efla til mikilla muna þjóðernisvitund og sj álfstæðistilfinningu íslendinga, - að þeir ættu sér merkilega sögu og gætu ráðið sínum málum sjálf- ir eins og forfeður og -mæður þeirra. Þannig er saga Fjölnis ó- rjúfanlega tengd þeim atburði sem varð er ísland endurheimti frelsi sitt og sjálfstæði. Páll Valsson Sunnudagur 16. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.