Þjóðviljinn - 16.06.1985, Side 22

Þjóðviljinn - 16.06.1985, Side 22
Ómar Kristvinsson: Að vera svikinn um 350.000 krónur ergífurlegtáfall fyrirfjárhagfjölskyldu, þaö er merkilegt að almenningur geti ekki leitað til dómstólanna sór til hjálpar í svona mólum. Ljósmynd E.ÓI. Fjársvikamál Furðulegt dómskerfi 350 þúsundir sviknar út úríbúðakaupanda. Orðnar á aðra miljón í dag. Prjú áríkerfínu. Fyrstvísardómari málinu frá íSakadómi. FlaestiréttursegirSakadóm ekki geta það. Sakadómurdœmiraftur máiiðfráiSamidómariíbœðiskiptinfyrirSakadómi. Komiðafturtil Hœstaréttar. Á meðan taparfólkið meiru og meiru. Ómar Krisft/insson: íslensku réttarfari ekki treystandi eftir þessa reynslu „Hagsmuna hverra gæta ís- lenskir dómstólar þegar undir- réttur treystir sér ekki til að dæma í svona borðliggjandi máli eins og þessu? Öll rann- sókn máisins hefur verið þannig að Ijóst má vera að hagsmunir einhverra annarra en okkar hafa setið í fyrirrúmi,” sagði Ómar Kristvinsson í samtali við Þjóðviljann, en hann varð fyrir því að vera svikinn um 350.000 krónur í fasteignaviðskiptum fyrir þremur árum. Nýverið sýknaði Sakadómur Reykjavíkur Pétur Einarsson fyrrum fasteignasala af ákæru sem ríkissaksóknari lagði fram gegn honum vegna meintra svika í viðskiptum við Ómar og konu hans. Þau hjón höfðu með milli- göngu Péturs fest kaup á íbúð í Hafnarfirði. Breytingar á kaupsamningi - Eftir að kaupsamningur var gerður fórum við þess á leit við Pétur að gerðar yrðu breytingar á honum þar sem við vildum fella niður eina afborgun á árinu en hækka tvær aðrar greiðslur sam- svarandi. Pétur sagði að það væri ekkert mál og lagði til að við sam- þykktum þrjá víxla að sömu upp- hæð og þær þrjár greiðslur sem við vildum breyta og með sömu gjalddögum og getið var í kaupsamningi. Konan mín sam- þykkti víxlana og Pétur gaf þá síðan út og seldi í Útvegsbank- ann. Nokkrum dögum eftir að fyrsta greiðslan var fallin í gjalddaga samkvæmt upprunalega samn- ingnum, hringdi seljandi og spurðist fyrir um greiðsluna frá okkur. Við sögðum honum frá víxlunum. Við þá vildi hann ekk- ert kannast og sagði að Pétur hefði ekkert umboð frá sér til að taka við greiðslum frá okkur. Við töluðum við Pétur. Hann sagði að seljandinn og hann hefðu gert samkomulag um að hann tæki á móti greiðslum frá okkur og að þær yrðu lagðar inn á viðskiptareikning seljandans hjá fyrirtækinu Framtíðarhús sem Pétur rak og var að byggja einbýiishús fyrir seljandann. Við þetta samkomulag vildi seljand- inn ekkert kannast. Ómar og kona hans borguðu bæði víxlana sem voru innheimtir af Útvegsbankanum og einnig greiðslurnar til seljandans, og kærðu málið til Rannsóknar- lögreglu ríkisins. Ríkissak- sóknari gaf síðan út kæru á hend- ur Pétri Einarssyni þann 23. nóv- ember 1983. Þar var Pétri gefið að sök að hafa svikið fé út úr Óm- ari og konu hans, og til vara var hann ákærður fyrir fjárdrátt. Málið var dómtekið af Ár- manni Kristinssyni í Sakadómi Reykjavíkur þann 9. janúar 1984. í dómsorðum segir að þar sem málið sé ekki nægilega rannsakað sé því vísað frá. Ríkis- saksóknari kærir þennan frá- vísunardóm til Hæstaréttar 13. febrúar og heitir málið þá „Ríkis- saksóknari gegn Ármanni Krist- inssyni sakadómara og Pétri Ein- arssyni.” Hæstiréttur tók málið fyrir og kvað upp sinn úrskurð 2. mars. I greinargerð Hæstaréttar segir að ekki séu neinir þeir formgallar á ákærunni sem gefi tilefni til frá- vísunar og að mati Hæstaréttar sé búið að afla nægilegra gagna við frumrannsókn málsins til þess að hægt sé að taka það til dóms- meðferðar. Málið var dómtekið að nýju í Sakadómi Reykjavíkur af Ár- manni Kristinssyni og kvað hann upp sinn dóm 15. mars s.l., tæp- um tveimur árum eftir að málið hafði verið kært til Rannsóknar- lögreglunnar. Ármann sýknaði Pétur Einarsson af kæru Ríkis- saksóknara á þeim forsendum að málið hefði ekki verið nægilega rannsakað. Þessum dómi undir- réttar hefur nú verið áfrýjað til Hæstaréttar. Sami dómarinn - Pað sem vekur mestu furðu hjá mér er að sami dómarinn sem hafði greinilega brugðist þeirri skyldu sem á dómara er lögð um að honum beri að styrkja og auka við rannsókn mála að eigin frum- kvæði, skuli vera fenginn til að taka málið fyrir að nýju eftir úr- skurð Hæstaréttar. Eg get ekki séð að nein ný gögn hafi komið fram við seinni meðferð undir- réttar, sagði Ómar. Tveir koma til greina - Það er borðliggjandi í þessu máli að aðeins tveir menn koma til greina sem hinn seki, með þessum úrskurði Sakadóms er búið að ákveða að sækjandinn sé sá seki, sagði Ómar og bætti við að hann myndi bíða dóms Hæst- aréttar en hann gerði fastlega ráð fyrir að Hæstiréttur myndi vísa málinu frá á þeim forsendum að ekki sé búið að rannsaka það nægilega vel. - Óll rannsókn þessa máls hef- ur verið með endemum. Hvers vegna hefur bókhald fyrirtækis- ins Framtíðarhúss aldrei verið skoðað? Hvers vegna hefur Útvegsbankinn aldrei verið látinn gera grein fyrir inná hvaða reikning andvirði víxlanna fór? Mörg lykilvitni í þessu máli hafa aldrei verið yfirheyrð, t.d. Þor- valdur Lúðvíksson lögfræðingur sem var skrifaður fyrir fast- eignasölunni Húsamiðlun sem Pétur rak. - Það er engu líkara en hags- munir einhverra annarra en okk- ar sem urðum fyrir þessu tjóni hafi ráðið ferðinni í allri rann- sókn þessa máls, sagði Ómar Kristvinsson og bætti við að tjón- ið sem hann og kona hans hefðu orðið fyrir vegna þessa máls væri nú orðið hátt á aðra miljón króna. - Traust manns á íslensku rétt- arfari hlýtur að bresta við svona reynslu. Það hefur oft hvarflað að mér á meðan á öllu þessu hefur staðið, að nauðsynlegt sé að koma sér vel fyrir í einhverri klík- unni sem situr á veitinga- húsunum, t.d. á Borginni, þá þurfi maður ekkert að óttast þó maður lendi upp á kant við dóms- kerfið, sagði Ómar Kristvinsson. -SG 22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. júní 1985

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.