Þjóðviljinn - 16.06.1985, Qupperneq 24
Dagskrá hátíðahaldanna
Dagskrá hátíöarhaldanna í
Reykjavík hefst kl. 10.00 er
forseti borgarstjórnar leggur
blómsveig frá Reykvíkingum
á leiði Jóns Sigurðssonar í
Kirkjugarðinum við Suður-
götu, en síðan hefjast hátíðar-
höldin við Austurvöll. Forsæt-
isráðherraflyturávarp, For-
seti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir leggur blómsveig að
styttu Jóns Sigurðssonar, en
að athöfninni lokinni er
guðsþjónusta í Dómkirkjunni.
Eftirhádegiðeru
skemmtiatriði og leikir í Hall-
argarðinum, við útitaflið og í
Hljómskálagarðinum, en
skrúðgangaferfráHlemmikl.
14.20. Komið verður niður í
bækl. 14.30enþáverða
skemmtiatriði á Lækjartorgi
og í Lækjargötu. Dagskráin í
bænum er eftirfarandi:
Kl. 14.30 Leikþáttur fyrir börn
á Lækjartorgi. Randver Þor-
láksson, Sigurður Sigurjóns-
son og Örn Árnason.
Kl. 14.50 Bjössi bolla og Jón
Páll á Lækjartorgi.
Kl. 15.00 Sultuleikhúsið flytur
sýninguna „Hunangsmáni"
í Lækjargötu, á Lækjartorgi
og í Bankastræti. Sýningin
fjallar um prins og prinsessu
á brúðkaupsferðalagi, með
þeim eru ýmsir skemmtikraft-
ar og að sjálfsögðu lífverðir.
Á vegi þeirra verður dreki
sem hyggst ræna brúðhjón-
unum en þau þekkja tröll sem
geta hjálpað.
Kl. 15.45 Reiðsýning. Félagar
úr Félagi tamningamanna
sýna hesta sína í Lækjargötu.
Kl. 15.45 Tóti trúður skemmtir
á Lækjartorgi.
17. JUNI
Á ÁRI ÆSKUNNAR
A ótrúlega skömmum tíma hefur Island breyst
úr fátæku landi með fábreytta atvinnuhætti
í velferðarþjóðfélag.
Þessi breyting er verk margra þjóðholira aíla.
Samvinnumenn eru stoltir af að hafa átt nokkurn
þátt í þessari breytingu.
*
A þjóðhátíðardegi á ári æskunnar senda
samvinnumenn æskufólki sem og öðrum §
m
landsmönnum þjóðhátíðarkveðjur. í
Kl. 16.00 Leikþáttur fyrir börn
endurtekinn á Lækjartorgi.
Kl. 16.30 Stjúpsystur
skemmta á Lækjartorgi.
Kl. 16.45 „Hunangsmáninn“
endurtekinn.
Kl. 17.00 Félagar úr Vélflugfé-
lagi íslands fljúga flugvélum
sínum yfir borgina.
Þá verða bátar frá siglinga-
klúbbnum við Suðurenda Tjarn-
arinnar og mini-golf í Hallargarð-
inum allan daginn.
Um kvöldið verður dansað í
miðbænum frá 19.30-23.30 og
leika hljómsveitir Magnúsar
Kjartanssonar, Riksaw og Létt-
sveit Ríkisútvarpsins. Þá verður
kvöldskemmtun í Laugardalshöll
þar sem fram koma hljóm-
sveitirnar Mezzoforte, Grafik,
Gipsy og Megas og kostar 100 kr.
miðinn. Einnig verður sérstök
dagskrá fyrir eldri borgara kl.
15.00 í Gerðubergi og á Kjarvals-
stöðum verður þjóðdansafélagið
sem dans- og búningasýningu kl.
16.00 og íslenska hljómsveitin
leikur. Reykjavíkurmót verður í
sundi í Laugardalslaug kl. 15.00
og knattspyrna í Laugardal. Úr-
valslið drengja (Reykjavík -
landið) leikur kl. 16.00 og úrval-
slið kvenna (Reykjavík - landið)
kl. 17.15. Þá verða sjúkrastofn-
anir heimsóttar og frá 14.30-17.
er sýning á bílum Fornbíla-
klúbbsins í Kolaportinu.
f Kópavogi hefjast hátíðahöld-
in kl. 10.00 þegar Skólahljóm-
sveit Kópavogs leikur við Kópa-
vogshælið. Skrúðgangan leggur
af stað frá Menntaskólanum kl.
13.30 á Rútstún og þar leikur
Hornaflokkur Kópavogs. Kl.
14.00 hefst hátíðardagskrá á
Rútstúni. Þarverða ræður,skóla-
kór Kársness syngur, Big Band
leikur, Bjössi bolla skemmtir og
einnig verða íþróttaleikir, fall-
hlífarstökk og fleira. Milli 17-19
verður svo diskótek.
Þjóðhátíðardagskráin á Sei-
tjarnarnesi hefst kl. 13.15 með
því að safnast verður saman til
skrúðgöngu við dæluhús Hita-
veitunnar. Kl. 13.30 verður
gengið af stað og verður stað-
næmst við Hús aldraðra og leikin
lög, en síðar haldið að Mýrar-
húsaskóla þar sem hátíðin hefst
kl. 14.00. Flutt verða skemmti-
atriði og ávarp fjallkonu, en
Guðrún Þorbergsdóttir flytur
hátíðarræðu. Lúðrasveit Sel-
tjarnarness leikur fyrir skrúð-
göngu og á milli atriða. Kaffisala
verður í félagsheimili Seltjarnar-
ness á vegum Björgunarsveitar-
innar Alberts kl. 15.00.
Garðbæingar hefja dagskrána
með siglingakeppni kl. 10.00 við
Arnarvog og víðavangshlaupi á
íþróttavellinum, en kl. 14.00
hefst dagskrá við Kirkjuhvol.
Gengið verður í skrúðgöngu að
Garðaskóla, þar sem hátíðin
hefst kl. 14.45. Þar verða
skemmtiatriði og leikir, en forseti
bæjarstjórnar, Sigurður Sigur-
jónsson setur hátíðina. Kaffisala
verður í Garðaskóla, en í íþrótta-
húsinu Ásgarði hefst dagskrá kl.
16.15. Þar leikur m.a. norsk ung-
lingahljómsveit, leikarar
skemmta og hljómsveitirnar Rik-
shaw og Hrókar leika.
Kl. 20.00 um kvöldið verður
diskótek fyrir alla bæjarbúa í
Garðalundi frá kl. 20.00 til kl.
23.30.
í Mosfellssveitinni hefst hátíð-
ardagskráin á mánudag með
íþróttamóti við Varmá kl. 10, kl.
11 er barnasamkoma í Lágafells-
SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
Framhald á 11. síðu.