Þjóðviljinn - 05.07.1985, Síða 3
FRETTIR
Fiskeldi
100 miljóna missir
150þúsund seiðiflutt út ígœr. Verðmœtið erl2 miljónir króna.
Hefði tífaldast í verði efseiðin hefðu verið alin upp ísláturstœrð.
Olafur Skúlason: Við neyðumsttil að selja seiðin afþvíviðfáum enga
lánafyrirgreiðslu. Ótrúleg skammsýniyfirvalda.
Blóðugt aðfá ekki lán nema íslagtogi við útlendinga.
Borgarstjórn
Meiri-
hluti
með
Hafnar-
búðum
Davíð að missa tökin á
hjörðinni. Aukafundur
efborgarráð vill selja
Eftir fund borgarstjórnar í gær
er Ijóst að meirihluti borgarfull-
trúa er á móti því, að Hafnarbúð-
ir verði seldar ríkinu, Landa-
kotsspítala til afnota.
Allir fulltrúar minnihluta-
flokkanna í borgarstjórn stóðu að
tillögu gegn sölunni, og í umræð-
um ítrekuðu sjálfstæðismennirnir
Páll Gíslason og Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson andstöðu sína við
sölu. Tillögu minnihlutamanna
var vísað til borgarráðs með at-
kvæðum meirihlutans á þeim for-
sendum að málið sé ekki enn út-
rætt þar. Borgarfulltrúar minni-
hlutaflokkanna lögðu þá fram
bókun þarsem tilkynnt er, að þeir
óski aukafundar í borgarstjórn
um sölu Hafnarbúða ef slíkt verð-
ur samþykkt í borgarráði á þeim
tíma sem borgarstjóri er í sumar-
fríi.
Davíð Oddsson lýsti ekki
beinni afstöðu til eigin samnings
við fjármálaráðherra um Hafnar-
búðir, en tjáði borgarfulltrúum
að í raun mundu engar breytingar
verða við eigendaskiptin, nema
að borgin yrði 55 miljónum króna
ríkari. -m
Einkabarnaskólinn
Fjórfalt
dýrari en
Versló
Skólagjöld í Verslunarskólan-
um á næsta skólári eru 7400 krón-
ur á nemanda, fyrir allan vetur-
inn. Framhaldsskólanemi í
Versló borgar þarmeð um fjórum
sinnum lægri skólagjöld en
grunnskólanemi í nýja einka-
skólanum, Tjarnarskóla. Þar á
skólaárið að kosta 28.500 krónur.
Vond villa slæddist inní frétt í
blaðinu í gær þarsem skólagjöld í
nýja einkaskólanum voru borin
saman við gjöld í Landakotsskóla
og ísaksskóla. f fréttinni stóð að
skólagjöld í ísaksskóla væru 3700
krónur á mánuði. Það er rangt, -
þau voru á síðasta skólaári 3700
krónur fyrir allan veturinn. í nýja
skólanum eru hinsvegar skóla-
gjöldin miðuð við mánuðinn,
3167 krónur.
- m
Ragnar
Gríðarlegar umræður urðu á
borgarstjórnarfundi um stofnun
nýja einkagrunnskólans í Reykja-
vík og þátt borgarstjóra og Ragn-
ars Júlíussonar formanns
fræðsluráðs í málinu. Fulltrúar
allra minnihlutaflokkanna í borg-
arstjórn töldu málsmeðferð hjá
Davíð og Ragnari fráleita og und-
ruðust þá leynd sem hvílt hefur
yfir stofnun Tjarnarskóla.
í ræðu Þorbjarnar Brodda-
sonar kom fram að í október á
síðasta ári hafnaði fræðsluráð ósk
þúsund regnbogasil-
ungsseiði sem eru 90
grömm að þyngd var lestað í nor-
ska skipið Gabler, í gærkvöldi í
eldistöð Laxalóns í Hvammsvík í
Hvalfirði. Þetta er hluti af stórri
sölu fyrirtækisins til Noregs, -
eða alls 300 þúsund regnbogaseiði
Megas
Það má segja, að þetta sé í
fyrsta sinn, sem ég fer í alvöru
hljómleikaför um landið og það
er reyndar löngu orðið tímabært.
Ég verð með lög af mínuin fyrri
plötum og svo er auðvitað nýtt
efni í bland og ég hef alla trú á að
þetta verði mjög skemmtilegt.
Svo mælti Megas aðspurður um
fyrirhugaða hljómleikaför sína,
sem hefst í Röst á Hellissandi í
kvöld.
Megas hefur að undanförnu
komið fram á höfuðborgarsvæð-
inu, hann spilaði sautjánda júní í
Laugardalshöll, þar sem Bubbi
Morthens var gestur hans á svið-
inu við góðar undirtektir og svo
tróð hann upp á hestamannamót-
inu á Víðivöllum ásamt Stuð-
mönnum og Upplyftingu.
nokkurra sálfræðinga um að fá að
setja upp sálfræðiþjónustu fyrir
skólabörn á einkagrundvelli. Er-
indinu var þá hafnað með öllum
greiddum atkvæðum, á þeim for-
sendum, að „það sé ekki æskilegt
að starfsmenn skóla setji upp
einkastarfsemi innan veggja hins
almenna skóla sem gegni sama
hlutverki og skólanum ber að
sinna“.
Sjálfstæðisflokkurinn í borgar-
stjórn felldi tillögu frá öllum
minnihlutaflokkunum um að
og 50 þúsund laxaseiði. Heildar-
verðmæti allra farmanna er talið
vera um 12 miljónir króna.
- Talsmenn stöðvarinnar segj-
ast þurfa að selja, vegna þess að
þeir fái ekki eðlilega fyrirgreiðslu
til að kaupa og byggja fleiri flot-
En nú ætlar hann að heilsa upp
á landsbyggðina með sveinunt
sínum, þeirn Ásgeiri Óskarssyni,
Björgvin Gíslasyni, Haraldi Þor-
steinssyni og Jens Hanssyni.
Sem fyrr segir hefja þeir ferð-
ina í Röst í kvöld og spila síðan á
hverju kvöldi til 14. júlí. Þeir
verða í Bifröst á Suðárkróki laug-
ardag, Samkomuhúsinu á Akur-
Eins og komið hefur fram í
fréttum ríkir ágreiningur á
ekkert húsnæði skuli látið af
hendi við Tjarnarskóla að sinni,
þar sem „stofnun hans er í full-
kominni mótsögn við þann anda
framfara, frelsis og jafnréttis“
sem ríkt hefur í fræðslumálum á
þessari öld.
í tillögunni var því einnig beint
til menntamálaráðuneytisins að
láta ekki henda öðru sinni það
frumhlaup að bera nýja tegund
grunnskóla án samráðs við
fræðsluráð í umdæminu.
-m
kvíar til framhaldseldis. Verð-
mætið hefði jafnvel tífaldast ef
fiskurinn hefði fengið að vaxa
upp í sláturstærð.
„Við neyðumst til að selja
þetta úr landi vegna þess að við
fáum enga fyrirgreiðlsu í lána-
stofnunum,“ sagði Ólafur Skúla-
eyri sunnudag 7. júlí, Skjól-
brekku Mývatnssveit mánudag 8.
júlí, Herðubreið á Seyðisfirði 9.
júlí, Sindrabæ í Höfn miðvikudag
10. júlí, Hvóli Hvolsvelli 11. júlí,
Hótel Akranesi 12. júlí, Sam-
komuhúsinu Vestmannaeyjum
laugardag 13. júlí og lokaáfangi
verður svo Garður Gerðahreppi
sunnudag 14. júlí. -gg
milli Félagsstofnunar stúdenta og
stúdenta vegna hækkunar húsa-
leigu á Hjónagörðum. A miðviku-
dagskvöld funduðu stjórn FS og
hjónagarðsbúar um ágreining-
inn, einnig funduðu stúdentar
með leigjendasamtökunum.
Þjóðviljinn hafði samband við
Olaf Örn Ólafsson einn af fulltrú-
um hjónagarðsbúa og spurði
hann hvað hefði komið fram á
þeim fundi.
„Það kom eiginlega ekki neitt
út úr fundinum með stjórn FS.
Þeir eru ekki til viðræðu um að
hvika frá þessari upphæð sem
þeir hafa sett upp. Stjórn FS lagði
fram skjöl til að sýna hver væri
forsenda hækkunarinnar og telj-
um við forsendur þeirra óeðli-
legar. Stjórn FS segir að stofnun-
in hafi verið rekin með tapi und-
anfarin ár, en við teljum út frá
son framkvæmdastjóri þegar
Þjóðviljinn leitaði álits hans.
„Þetta er ótrúleg skantmsýni af
yfirvöldum, - og það er blóðugt
að fá engin lán til fiskeldis nema
vera í slagtogi við útlendinga".
Þingeyri
Refsi-
burt
1. ágúst
Deilt um línurit í
frystihúsinu. Gallarí
vinnu hverrar konu
hengdirupp.
Samkomulag hefur tekist með
fiskverkunarkonunum tólf á
Þingeyri og stjórnendum frysti-
hússins um að refsibónusinn svo-
kallaði falli burt frá og með 1.
ágúst.
Hins vegar er ekki allt fallið í
ljúfa löð í frystihúsinu. Fiskverk-
unarkonur munu vera mjög óá-
nægðar með línurit sem hengt er
upp fyrir framan andlit hverrar
konu, þar sem gallar í vinnslu
þeirra eru skráðir. Þetta hefur
mjög slæm áhrif á sálina sagði
Málfríður Vagnsdóttir ein þeirra.
Þar sem þetta væri fyrir allra
augum. Þegar fiskverkakonurnar
komu til vinnu eftir verkfallið
höfðu þær orð bæði trúnaðar-
manna og frá Alþýðusambandi
Vestfjarða að þessir aðilar viður-
kenndu ekki línuritin og töldu
konurnar að þær væru í fullum
rétti til þess að taka þau niður.
Verkstjórar og stjórnendur fryst-
ihússins brugðust hins vegar illa
við því að sögn Málfríðar og
munu línuritin enn hanga uppi.
okkar forsendunt að hún hafi ver-
ið á núlli, eins og var alltaf ætlun-
in.
Við funduðum síðan með
leigjendasamtökunum og kom þá
fram að FS er ekki stætt á þessum
skamma uppsagnartíma sem þeir
hafa sett okkur. Hjónagarðsbúar
heyra undir húsaleigulög, þannig
að þeir sem hafa búið hér í vetur
hafa 3 mánaða uppsagnarfrest,
en þeir sem hafa búið lengur en
eitt ár hafa 6 mánaða frest. Á
fundinum var skipuð nefnd, sem
á að fara ofan í saumana á þessu
máli, stúdentar eiga 2 fulltrúa
ásamt fulltrúum úr leigjendasam-
tökunum. Við kyngjum þessari
hækkun ekki þegjandi og hljóða-
laust og borgum okkar 4000
krónur þangað til annað kemur í
Ijós frá nefndinni,“ sagði Ólafur
Orn Ólafsson að lokum.
- sp
og Davíð fá ákúrur
Miklar umrœður um einkaskólann íborgarstjórn. Frœðsluráð hafn-
aði einkabissness sálfrœðinga ískólum ífyrrahaust, -nú eralltílagi
-óg/ÖS
Tel bæði rétt og skynsamlegt að byrja á Hellissandi.
Tónlistarviðburður
í hljómleikaför
-pv
Við borgum ekki hækkunina
Ólafur Örn Ólafsson forsvarsmaður hjónagarðsbúa: FS er ekki stœtt á
hœkkuninni. FS brýtur húsaleigulögin
Föstudagur 5. júlí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3