Þjóðviljinn - 05.07.1985, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 05.07.1985, Blaðsíða 8
GLÆTAN Julian Lennon Uppá eigin spýtur Fer mínar eigin leiðir en er hreykinn af skyldleikanum Þegar Julian Lennon varfimm ára gaf pabbi hans honum trommur. Þegar hann var el I - efuára fekk Juliansinnfyrsta gítar, líka gjöf frá pabba. En mörgum árum áður hafði Ju- lian fengið sína fyrstu og bestu gjöf frá föður sínum, ástátónlistinniog söngrödd. Skyidleiki feð- ganna er auðheyrður öllum þeim sem hafa hlustað á fyrstu plötu Julians „Valotte". Svo ekki sé minnst á myndband plötunnar þar sem fölt og fín- gert andlit Julians undirstrikar enn betur skyldleikann við John Lennon. En skyldleikinn eða það sem mörgum finnst vera endurómur út yfir gröf og dauða er stærsta vandamál Julians. „Það er erfitt að vita að faðir manns var mjög þekktur og mörgum svo mikil- vægur“ eru orð Julians um þá tog- streitu að vera að gefa út sína fyrstu plötu og vera sonur þekkts tónlistarmanns. „Það er erfitt að feta í fótspor hans og fara samt eigin leiðir“. „Valotte“ þykir alvarleg plata og innhverf en það sem þykir mest sláandi er hvað söngrödd Julians og útsetningar á lögunum minna á látinn Bítla-pabba. En Julian syngur ekki um sömu hluti. Lögin hans eru oft einföld og fjalla um framandleika og ást- arsorgir táninga. „Auðvitað hef ég orðið fyrir áhrifum" segir Julian -„hvernig væri annað hægt“. En Phil Ram- one framleiðandi og upptöku- stjóri plötunnar segir að hugsan- leg stæling eða eftirlíking sé ó- meðvituð. Staðreyndin er sú að það lá við að platan -yrði ekki tekin upp einmitt vegna þessara fjölskyldutengsla. Fjölmörg plötufyrirtæki neituðu að gefa út plötuna af ótta við að vera ásök- uö um að leggjast á ná Johns. Að vera sonur bítils En Julian tókst að sannfæra Ramone og samningur var gerð- ur við bandaríska fyrirtækið Atl- antic Records. Sagan segir að Ju- lian hafi verið svo feiminn í byrj- un að hann hafi neitað að syngja nema ljósin væru slökkt. Ram- one hressti upp á þessa alvarlegu og allt að því dapurlegu plötu með nokkrum blúslögum og mót- mælasöngvum gegn stríði og of- beldi. Það kemur varla nokkrum á óvart að Julian líti heiminn dökkum augum. Þó að kímnigáfa hans sé sögð í góðu lagi hefur hann fengið sinn skerf af sálar- kreppum. Hann fæddist í Liver- pool sama mánuð og „Please please me“ komst í fyrsta sæti vinsældalistanna, fyrsta plata bítlanna sem komst svo langt. - Ekki passaði tilvist hans sem smábarns inní ímyndina af átrún- aðargoðum táninga. Foreldrar hans skildu þegar hann var fimm ára. Eftir það hittust þeir feðgar öðruhverju um helgar en það samband varð enn slitróttara eftir að John giftist Yoko og fluttist til New York. Þeir hittust þó stund- um og glömruðu saman á gítar aðallega blús og lög eftir John. Samband þeirra varð aftur nán- ara eftir að Julian fór að semja lög en í desember 1980 þegar Ju- lian var 17 ára, var John myrtur . Nútíðin „Mig langaði til að brjóta allt og bramla" segir Julian um þetta tímabil. Hann var þá hættur í skóla, bjó með nokkrum vinum sínum og vann fyrir sér sem þjónn. Það eru í gangi ýmsar sögusagnir um að hann hafi lifað villtu lífi en Julian segist aldrei hafa misst stjórn á Iífi sínu - er nokkuð óeðlilegt við að skreppa á krá og fá sér einn andskotans bj ór - það gera allir í London - og hvað með það? Núna býr hann í London ásamt vinkonu sinni í lítilli ibúð sem hann á. Hann nýtur þess að vera sjálfstæður í fyrsta skipti á ævinni. Það var platan „Valotte" sem gerði honum kleyft að öðlast þetta sjálfstæði. Þegar hann er ekki að semja lög rúntar hann um sveitir Englands. Auðæfi föður hans sem eru metin á 150 milljón- ir Bandaríkjadala koma honum lítið við ennþá. Við 26 ára aldur mun hann erfa 250 þúsund bandaríkjadali úr sjóði sem hann og hálfbróðir hans Sean skipta með sér. Hvort hann erfir eitthvað meira er algjörlega undir Yoko komið. „Okkur kem- ur þokkalega saman“, segir Ju- lian um sig og Yoko „en hún heldur ennþá að ég hafi bara áhuga á peningunum. Platan mín er skref í þá átt að sýna henni að ég get gert hluti án hennar hjálp- ar eða annarra“. Julian er ekki bara sonur Johns Um fyrstu plötuna sína segir Julian að lögin eða textarnir hafi verið of persónuleg í byrjun. „Það var næstum eins og eintal sálarinnar" segir Julian um leið og hann hellir sér kaffi í bolla. „Eg hugsaði með mér að ef þetta á að verða plata verð ég að draga mig sjálfan aðeins út úr lögunum. Annars get ég alveg eins skrifað sjálfsævisögu. Textarnir verða að vera það almennir að fólk geti séð sjálft sig í lögum mínum án þess að vera akkúrat í sömum kring- umstæðum og ég er. Það sem ég á við er að fólk geti séð í lögunum lýsingu á mínum hugrenningum og samböndum og einnig hlustað á lagið sem lag um sitt eigið ást- arsamband eða sálarástand. Ég hafði enga hugmynd um hverjar viðtökurnar yrðu en ég vissi að margir myndu hlusta bara fyrir forvitnissakir. Ég er feginn að hlutirnir eru aðeins að breytast. Fólk er farið að hlusta á mig sem Julian ekki bara sem son Johns. Auðvitað hvílir skuggi pabba yfir mér, andi pabba svífur yfir okkur öllum. En það er ekki eitthvað sem ég vil endilega losa við mig. Ég fer mínar eigin leiðir og ef það kemur fram einhver skyldleiki í tónlistinni eða á öðr- um sviðum er það gott, ég er hreykinn af þeim skyldleika.“ Eða eins og segir í einu laga Ju- lians „Well, I don’t know“: Ég ligg í rúminu, lít upp og finn návist dauðans, ég heyri til þín, heyrir þú til mín? Pað er dálítið sem égþarfað spyrjaþig um. Ertu grein á mínum fjölskyldumeiði, ertu hluti af mér? Tíminn verður að leiða í ljós hvort Julian stígur skrefið til fulls og skapar sinn eigin stíl og eignast eigin aðdáendur. - Vinsældalistar Þjóöviljans Fellahellir (-) 1. You’re my heart, you’re my soul - Modern Talking (4) 2. Icing on the cake - Stephan TinTin Duffy (-) 3. In my house - Mary Jane girls (-) 4. Raspberry beret - Prince (-) 5. History- Mai Tai (-) 6. Frankie - Sister Sledge (-) 7. You must be an angel - Madonna (-) 8. Móðurást - Possibillies (-) 9. Animal instinct - Commodores (7) 10. Celebrate youth - Rick Springfield Rás 2 (1) 1. Icing on the cake -Stephan TinTin Duffy (2) 2. A view to a kill - Duran Duran (5) 3. Get it on - Power Station (6) 4. Celebrate youth - Rick Springfield (3) 5. Raspberry beret - Prince (-) 6. Frankie - Sister Sledge (4) 7. Axel F - Harold Faltermeyer (8) 8. Left, right - Drýsill (10) 9. Kitty - Oxsmá (7) 10. Móðurást - Possibillies Grammið (1) 1. Kona - Bubbi Morthens (2) 2. Rip, Rap, Rup - Oxsmá (7) 3. Those who do not - Psycic TV (-) 4. Brother in Arins - Dire Straits (6) 5. Hatful of Hollow - The Smiths (-) 6. Jeffrey Lee Pierce - Wildewind (5) 7. Violent femmes - Violent Femmes (4) 8. Meat is murder - The Smiths (8) 9. More places forever - David Thomas (-) 10. Talking Heads - Little Creatures.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.