Þjóðviljinn - 05.07.1985, Side 4
LEIÐARI
Davíð hundsar lýðræðið
Þaö verðursífellt meira áberandi hvernig Da-
víð Oddsson reynir að stjórna Reykjavíkurborg
án þess að hlusta neitt á hvað aðrir hafa að
segja. Það virðist einfaldlega að í hans augum
hafi enginn vit á neinu nema hann, og það sýn-
ist ganga einnig yfir hina borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins. Þessar einræðislegu tilhneig-
ingar borgarstjóra koma fram í því, að sífellt er
reynt að keyra í gegn mál, án þess að lýðræðis-
lega kjörnir borgarfulltrúar fái nokkurt tækifæri
til að ræða þau og segja á þeim skoðanir sínar,
- hvað þá almennir borgarar.
Þessi aðferð er einkum viðhöfð þegar um er
að ræða mál sem eru umdeild meðal borgar-
búa. Þá er reynt að fela þau og afgreiða framhjá
hinum lýðræðislega kjörnu fulltrúum. Þetta
laumuspil hefur birst einkar vel í tengslum við
hugmyndir borgarstjóra um eigendaskipti á
Hafnarbúðum, þar sem langlegudeild fyrir aldr-
aða sjúklinga er til húsa. Starfsfólkið í Hafnar-
búðum hafði engar spurnir af þeim áætlunum
fyrren það las um afstöðu borgarstjóra í blöðun-
um. Enginn leitaði heldurskoðanasjúklinganna
eða aðstandenda þeirra. Samkvæmt borgar-
stjóranum er mátturinn og dýrðin alfarið hans
og þá skiptir auðvitað litlu þó borgarbúar kunni
að hafa aðrar skoðanir.
Þegar svo starfsmenn Hafnarbúða boðuðu til
fundar, meðal annars með borgarstjóra, þá var
hann sjálfum sér samkvæmur og virti þá ekki
viðlits. Þess í stað fór hann að veiða lax. Kann-
ski heitir þetta stjórnviska á máli Sjálfstæðis-
flokksins en meðal venjulegs fólks er þetta kall-
að pólitískt hugleysi.
Þetta er hins vegar ekki eina dæmið um
andúð borgarstjórans í Reykjavík á lýðræðis-
legum starfsháttum og ótta hans við málefna-
legar umræður. Þau eru fjölmörg. Nýjasta
dæmið er líklegast stofnun nýja einkaskólans,
Tjarnarskólans, þar sem börn hinna betur meg-
andi eiga að fá sína menntun. Þar var um mjög
umdeilt mál að ræða, og einsog fyrri daginn
lagði borgarstjóri ekki í málefnalega umræðu
um það. Þess í stað notfærði hann sér reynslu
sína af laumuspili og tókst að fara með stofnun
Tjarnarskólans á bak við hvern einasta aðila í
borgarkerfinu sem málið varðaði.
Þannig voru eigendum hins nýja einkaskóla
leyfð ókeypis afnot af gamla Miðbæjarskólan-
um án þess að fræðsluráð, sem málið heyrir þó
beint undir, fengi af því nokkurn pata. Samt er
það fræðsluráð sem tekur ákvörðun um hvort
veita skuli öðrum afnot af skólahúsnæði, og
hefur meðal annars áður neitað að leyfa skólum
einkaaðila not af húsnæði borgarinnar. Davíð
lét heldur ekki borgarráð vita af ákvörðun sinni,
og hugðist ekki einu sinni láta málið koma fyrir
borgarstjórn. Þannig átti líka að fara á bak við
kjörna borgarfulltrúa minnihlutaflokkanna.
Sama gerðist með málefni Bæjarútgerðar
Reykjavíkur. Á bak við tjöldin hefur Davíð Odds-
son tekið þá ákvörðun að leggja Bæjarútgerð-
ina í hendur (sbirninum, sem er fjölskyldufyrir-
tæki í höndum nafntogaðra Sjálfstæðismanna.
Allir vita, að ísbörninn á í fjárhagserfiðleikum,
og með því að bræða fyrirtækið saman við BÚR
átti að bjarga því úr kröggum. Borgarstjóri tók
ákvörðun um að byrja undirbúning að samrun-
anum án þess að láta nokkurn mann vita. Borg-
arráð, borgarstjórn og útgerðarráð fengu fyrstu
fréttir af fyrirætlaninni úr Morgunblaðinu. Hann
lagði einfaldlega ekki í málefnalega umræðu
um það inni í stofnunum borgarinnar.
Þannig mætti telja fjölmörg dæmi um ein-
ræðið í borgarstjórn Reykjavíkur. Lýðræðið er
hundsað, og fulltrúar stjórnarandstöðunnar eru
látnir standa andspænis gerðum hlut.
Það er aðal góðra stjórnenda að kunna að
hlusta á fólk og heyja sér góð ráð, jafnvel þó þau
komi frá pólitískum andstæðingum. Þá list kann
hins vegar Davíð Oddsson ekki. Það er svo
sjaldan sem hann þorir að hlusta. -ÖS
KLIPPT OG SKORIÐ
Fyrsti stjórn-
málamaðurinn
í gær var þjóðhátíðardagur
Bandaríkjanna og Morgunblaðið
kvaddi með mikilli kurt sendi-
herrann Brement í leiðara og
með viðtali.
Sendiherrahjónin eru um
margt óvenjulegir fulltrúar hinn-
ar voldugu þjóðar í vestri og trú-
lega er Brement sá fyrsti frá
stofnun lýðveldis á íslandi sem
almennt er þekktur með nafni
hér á landi. Hann er líka stundum
kallaður fyrsti stjórnmálamaður-
inn í sendiherrastóli á íslandi.
Það kemur til af því að hann hef-
ur haft meiri afskipti af íslensku
stjórnmálalífi og menningarlífi
heldur en nokkur annar sendi-
maður þjóðar hérlendis.
Óeðlileg
afskipti
Brement sendiherra hefur á
stundum orðið á mistök í sam-
skiptum við íslendinga. Hann
hefur brotið óskráðar reglur
allra sendimanna, með því að
lýsa yfir persónupólitískri andúð
sinni á nafngreindum stjórnmála-
mönnum. Það gerði hann þegar
hann lýsti því yfir að hann kærði
sig ekki um að Ólafur Ragnar
Grímsson eða Svavar Gestsson
yrðu forsætisráðherrar á íslandi.
Og í viðtalinu við Morgunblað-
ið í gær verður honum hvað eftir
annað á í messunni í þessu efni.
Alþýðu-
bandalagið
þröskuldur
í Morgunblaðinu segir svo:
„Brement rifjar upp hinar erfiðu
deilur um nýju flugstöðina í Kefl-
avík, sem tókst að-leysa farsællega
eftir að Alþýðubandalagið fór úr
ríkisstjórn“. Nú er það Alþýðu-
bandalaginu að sjálfsögðu til lofs
og dýrðar að sendiherra Banda-
ríkjanna lýsi því sem eina útverði
sjálfstæðs Islands, og eina
flokknum, sem vildi koma í veg
fyrir gífurlegar erlendar lántökur
vegna alltof stórrar flugstöðvar.
En það er hins vegar brot á dip-
lomatiskri framkomu sendiherra
að gefa svona yfirlýsirigar
gagnvart einstaka stjórnmála-
flokkum eða einstaklingum.
Um margt gætir meiri víðsýni í
máli Brements sendiherra en fólk
á almennt að venjast frá banda-
rískum stjórnmálamönnum á
vegum Reagan-stjórnarinnar.
Hins vegar gætir slíkrar og
þvíumlíkrar þröngsýni í spurn-
ingum og umfjöllun blaðamanns
Morgunblaðsins í viðtalinu, að
rúmast hvergi annars staðar en í
músarholu.
Þannig er t.d. spurt: „Er þetta
vináttusamband ritstjóra komm-
únistablaðs og sendiherra Banda-
ríkjanna ekki einstakt í banda-
rísku utanríkisþjónustunni? “
Að sjálfsögðu svarar sendiher-
rann ekki spurningu svo lítilla
sanda svo blaðamaðurinn þarf að
dikta upp viðbrögð. Spurningin
lýsir merkilegu hugarfari fyrir nú
utan huglægar nafngiftir á víð-
sýnu blaði einsog Þjóðviljanum.
Moggamennirnir upplifa sig í
skotgröfunum og skilja ekkert í
því að fólk andstæðra skoðana
geti ræðst við.
Andúðin á
Bandaríkjunum
Sendiherrann er spurður hvers
vegna hann haldi að andúðin sé
svo mikil á Bandaríkjunum í Evr-
ópu. „Það frelsi sem við Batida-
ríkjamenn búum við reynist svo
mörgum útlendingum svo sem í
velferðarríkjum Evrópu erfitt að
skilja og sætta sig við“.
Og þegar farið er nánar útí
þetta atriði heldur Brement að
andúðin á Bandaríkjunum hér-
lendis sé komin frá Svíum! „Þar í
landi höfum við ekki hlotið góða
kynningu um langt skeið".
Skrýtin þula atarna. Raunar er
það svo, að Svíar og þeirra túlkun
á bandarískri pólitík koma þessu
máli ekki við. Sú „andúð á
Bandaríkjamönnum" sem spurt
er um á sér tvennskonar forsend-
ur. Hin fyrri er svipuð hér og ann-
ars staðar í Evrópu. Hún tengist
herstöðvapólitík Bandaríkja-
manna, hernaðarhyggju þeirri
sem Brement sendiherra afneitar
- en birtist nú afar skýrt í vopna-
skaki Reagans forseta, og svo því
sem menningarmálaráðherra
Frakka hefur nefnt menningar-
heimsvaldastefnu.
Hvaða ísland?
En þegar þjóðir eins og Frakk-
ar, gamalt menningarstórveldi,
telja sig eiga í vök að verjast
menningarlega gegn banda-
rískum áhrifum, hvað má þá ekki
250 þúsund manna þjóð segja um
ÞJðÐViuiNN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviijans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson.
Ritatjórnarfulitrúi: Öskar Guðmundsson.
Fróttaatjóri: Valþór Hlöðversson.
Ðlaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, MörðurÁrnason, Páll Valsson, Sigríður Pétursdóttir, SævarGuð-
björnsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson.
LjÓ8myndlr: Einar ólason, Valdís Oskarsdóttir.
Útlit og hönnun: Filip Franksson, Svava Sigursveinsdóttir.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrif8tofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Augiýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsla: Jenny Borgedóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf HúnQörð.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Bílstjóri: ólöf Sigurðardóttir.
sömu áhrif og hersetu í ofanálag.
Skrýtið að menningarlega sinn-
aður maður eins og Brement
sendiherra skuli ekki átta sig á
þessu.
Hin síðari ástæðan fyrir „and-
amríkanismanum“ á íslandi er að
sjálfsögðu einmitt tengd herset-
unni beint. Það er hún sem hefur
öðru fremur leitt til þess að ísland
verði ekki það lýðveldi sem menn
létu sig dreyma um á Þingvöllum
1944 og fyrir það er hún sem hef-
ur sundrað þjóðinni í ýmsum
grundvallarmálum. Ef að er-
lendar herstöðvar hefðu ekki
vakið upp „andúð“ í þessu landi,
þá væru íslendingar þeir aum-
ingjar að þeir ættu ekki skilið að
vera til.
Einstæðir
fulltrúar
Þessi andúð sem verið er að
fjalla um í Morgunblaðinu,
beinist heldur ekki gagnvart
bandarísku þjóðinni, sem betur
fer í flestum tilfellum, heldur
gegn ákveðnum einkennum, til-
hneigingum og pólitískri stefnu
bandarískra stjórnvalda. Auðvit-
að hættir öllum til fordóma
gagnvart erlendum þjóðum og
ókunnugri menningu. En
mannleg samskipti og t.d. fjöl-
miðlar eiga að vinna gegn slíku.
Sendiherrahjónin bandarísku
eru um margt sjaldgæfir og ein-
stæðir fulltrúar. Og það þarf til að
mynda meiri háttar þröngsýni til
að virða ekki viðleitni þeirra til
að skilja íslenska menningu og
jafnvel miðla öðrum af henni.
Þannig er frú Pamela í þann veg-
inn að gefa út bók um ísland á
engilsaxnesku og Brement sendi-
herra hefur þýtt og gefið út ljóða-
þýðingar íslenskra góðskálda.
Það er m.a. þess vegna, að einnig
héðan úr skotgröfunum á „kom-
múnistablaðinu“, eru slíkir
sendimenn kvaddir kurteislega.
-óg
Utkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, slmi 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 30 kr.
Sunnudagsverö: 35 kr.
Askriftarverö á mánuði: 360 kr.
Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum
frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 5. júlí 1985