Þjóðviljinn - 05.07.1985, Page 9
Akureyri
Texti: Óttar Einarsson
Hundadagahátíð í næshi viku
Haraldur lngi Haraldssonframkvœmdastjóri hátíðarinnar:
Viljum skapafjölbreyttari og líflegri bœjarbrag
Hundadagahátíð á Akureyri
8.-14. júlí er meiriháttar hátíð,
vikudagana 8.-12. júlí verður
tjölbrcytt dagskrá uppákoma,
íþrótta- og menningaratriði. Um
helgina verður svo þrumu-karni-
valstemmning.
Þannig er komist að orði í
kynningarbæklingi sem fram-
kvæmdanefnd Hundadagahátíð-
ar 1985 á Akureyri hefur sent frá
sér. Bæklingur þessi verður bor-
inn út í hvert hús á Akureyri og
liggur auk þess frammi í sjopp-
um, á hótelum og bensínstöðvum
fyrir gesti og gangandi. Blm.
ÞJÓÐVILJANS á Akureyri náði
tali af framkvæmdastjóra hátíð-
arinnar, Haraldi Inga Haralds-
syni, sem mitt í önn dagsins gaf
sér tíma til þess að fræða lesendur
um Hundadagahátíð á Akureyri
1985.
Síríus er
heillastjarna
hátíðarinnar
Fyrst langar mig til þess að
skýra aðeins út nafn hátíðar-
innnar - en hún er nefnd eftir
stjörnunni Síríus - sem stundum
er kölluð hundastjarna - og
hundadagar eru heitnir eftir.
Stjarna þessi hefur verið
mannkyninu að góðu kunn frá
örófi alda. Hún sést allsstaðar að
úr heiminum og var löngum
leiðarstjarna farmanna og veg-
farenda. Ótal þjóðsögur og sagn-
ir eru til tengdar stjörnunni Síríus
og samkvæmt þeim hefur hún oft
þau áhrif á mannfólkið að það
sleppur fram af sér beislinu, fer í
annan ham og tekur upp á alls-
konar kúnstum. Á íslandi er Sírí-
us hásumarstjarna og að öllu
þessu samankomnu fannst okkur
tilvalið að kalla hátíðina Hunda-
dagahátíð 1985.
Gleðin sitji
í fyrirrúmi
Við sem að hátíðinni stöndum
erum einfaldlega áhugafólk um
glaðværð og manneskjulegheit.
Tilgangur hátíðarinnnar er því
fyrst og fremst sá að freista þess að
skapa eilítið fjölbreyttari og líf-
legri bæjarbrag - fá fólk til þess
að skríða út úr skel hvunndags-
ins, sleppa fram af sér beislinu -
innan löglegra og hóflegra marka
- og gleðjast með glöðum. Við
álítum að oft sé þörf en nú sé
nauðsyn á þessum síðustu og
allraverstu tímum.
Við viljum einnig afsanna það
fyrir gestum og gangandi - já
reyndar öllum landslýð - að Ak-
ureyringar séu jafn þurrpumpu-
legir og smáborgaralegir eins og
stundum hefur verið haldið fram
fyrir sunnan! Nú, við leggjum
auðvitað áherslu á að hafa sem
fjölbreyttasta og frumlegasta
dagskrá en viljum jafnframt
vekja athygli á því að það er ekki
meiningin að fólk komi á hátíð
þessa tii þess eins að láta aðra
mata sig á skemmtiefni - heldur
til þess að skemmta sér og öðrum
með allskyns uppátækjum.
Skemmtiatriðin eru jú til
skemmtunar en þau eru einnig og
ekki síður til þess að ýta við fólki
og koma því sjálfu af stað.
Meiriháttar
dagskrá
Mánudaginn 8. júlí byrjum við
á því að sleppa silungi og laxi í
tjörnina við Drottinngarbraut og
verða veiðileyfi seld meðan á há-
tíðinni stendur. Þriðjudaginn 9.
júlí hefst að líkindum glæsilegasti
útimarkaður á íslandi og þótt
víðar væri leitað. Félagar úr Sigl-
ingaklúbbnum Nökkva sýna listir
sínar. Lyftingamenn munu setja
upp tjald á útisvæðinu við Sam-
komuhúsið. Þann dag og næstu
daga munu þeir þreyta ýmsar
aflraunir með tilheyrandi búk-
hljóðum og gefa öðrum kost á að
vinna til verðlauna. Lyftingajaxl-
arnir munu einnig standa fyrir
Akureyrarmóti í „sjómann". Sú
íþróttagrein hefur lengi verið ið-
kuð óformlega og skipulagslaust,
einkum á vínveitingastöðuin
bæjarins, en nú fæst loksins úr því
skorið hver er sterkastur. Mið-
vikudaginn 10. júlí verða ýmsar
uppákomur í göngugötu s.s úti-
skákmót o.fl.. Trillukarlar láta
að sér kveða - bj óða eflaust upp á
veiðiferð. Um kvöldið mun Mic-
hael John Clarke ásarnt norð-
lensku söngfólki rifja upp róm-
antískar stemmningar frá öldinni
sem leið á stórkostlegum tón-
leikum í Samkomuhúsinu.
Fimmtudaginn 11. júlí heldur úti-
markaðurinn áfram með uppák-
omum í göngugötu. Siglarar og
lyftingamenn láta að sér kveða.
Þá verða suðrænir gítartónleikar í
Samkomuhúsinu. Það er Einar
Einarsson frá Akureyri sem
plokkar strengina af mikilli inn-
Haraldur Ingi framkvasmdastjóri há-
tíðarinnar með hundadagahaus.
Ljósm.: Kristján G. Arngrímsson.
lifun. Bubbi Morthens verður í
Sjallanum um kvöldið og á Hótel
KEA láta hagyrðingar ljós sitt
skína.
Föstudaginn 12. júlíverðurúti-
markaður með tilheyrandi á fullu
gasi. Á íþróttasvæðinu fer fram
mjög sérstakur kappleikur þar
sem ÍBA og íA endurtaka bikar-
leikinn frá 1969 með svo til sömu
liðum og þá. Árið 1969 vann ÍBA
þennan leik með 3:2. Nú gefst
Akurnesingum kostur á að hefna
harma sinna, sextán árum síðar.
Um kvöldið verður dunandi tón-
list á útisvæðinu við Samkomu-
húsið og hátíðargestir stíga
trylltan dans þar og á veitinga-
húsum bæjarins.
Laugardaginn 13. júlí nær há-
tíðin sennilega hámarki sínu enda
byrja hundadagar einmitt þá. Á
útisvæðinu verður boðið upp á
fjölbreyttar veitingar og
skemmtiatriði. M.a. verða þar
háðir svokallaðir „fslandsleikar"
þar sem ýmsir stórsnillingar
keppa af alvöru og festu til veg-
legra verðlauna. Af keppnis-
greinum má nefna burtreiðar,
kassabílaróður, koddaslag og síð-
ast en ekki síst skriffinnsku og
nefndastörf sem er víst býsna arð-
vænleg íþróttagrein ef rétt er á
málum haldið. Um kvöldið verð-
ur allsherjar grímudansleikur á
skemmtistöðum bæjarins og úti-
svæðinu þar sem hátíðargestir fá
útrás fyrir dansástríðu sína, lita-
gleði og hugvit.
L
LANDSVIRKJUN
20ÁRA
ÖLLUM LANDSMÖNNUM BOÐIÐ I ORKUVERIN
í tilefni 20 ára afmælis Landsvirlcjunar
er öllum landsmönnum boðið að skoða
orkuver fyrirtækisins alla daga
frákl.13til 19, til 13. ágúst og taka
leiðsögumenn þar á móti gestum.
Ljósafossstöð, 15 MW, hóf framleiðslu 1937, 75 km frá Reykjavík.
írafossstöð, 48 MW, hóf framleiðslu 1953, 74 km frá Reykjavík.
Steingrímsstöð, 26 MW, hóf framleiðslu 1960, 79 km fró Reykjavík.
Búrfellsstöð, 210 MW, hóf framleiðslu 1969, 122 km frá Reykjavík.
Sigöldustöð, 150 MW, hóf framleiðslu 1977, 161 km frá Reykjavík.
Hrauneyjafossstöð, 210 MW, hóf framleiðslu 1981, 156 km frá Reykjavík.
Laxárvirkjun, 23 MW, hóf framleiðslu 1939, 76 km frá Akureyri.
í þessum orkuverum landsmanna eru framleidd
um 90% af heildarraforku íslendinga.
STARFSMENN LANDSVIRKJUNAR VONAST TIL AÐ FÁ
SEM FLESTA í HEIMSÓKN ÞESSAR SEX SUMARVIKUR.