Þjóðviljinn - 13.07.1985, Side 1

Þjóðviljinn - 13.07.1985, Side 1
1.3! DiOÐVIUINN SUNNUDAGS- BLAÐ MENNING Rannsóknarfé Stórupphæðir til útlanda Erlendir auðhringirfá stórfé til rannsóknafrá Islenska Alfélaginu, Járnblendinu og Kísiliðjunni. Féðrennur alltúrlandi. Greiðslur ársins 1983 jafngilda 158,4 miljónum á verðlagi 1985. Aárinu 1983 greiddu þrjú ís- lensk fyrirtæki 93,5 miljónir króna til auðhringanna Alusu- isse, Elkem og John Mansville Corporation, sem átti að verja til rannsókna. Þetta jafngildir næst- um 160 miljónum á verðlagi árs- ins 1985. Allir þessir peningar fóru úr landi, þrátt fyrir að fjár- þurrð torveldi mjög hagnýtar rannsóknir innanlands. „Þetta er það fé sem vantar til rannsókna og þróunarstarfsemi á Islandi,“ sagði Hörður Jónsson, hjá Iðn- tæknistofnun í spjalli við Þjóð- viljann. f samningum sem íslenska Álfélagið, Járnblendið og Kísil- iðjan gera við erlendu auðhring- ana Alusuisse, Elkem og John Mansville Corporation er ákvæði sem gerir hinum íslensku dóttur- fyrirtækjum skylt að greiða auðhringunum ákveðna prósentu af veltu fyrir þá tækniþekkingu sem þeir láta í té. Sem fyrr segir námu þessar rannsóknagreiðslur til útlanda 93,5 miljónum króna árið 1983. Til samanburðar má nefna að sama ár var fjárveiting íslenska ríkisins til Orkustofnunar 67,5 miljónir og til Iðntæknistofnunar 15,7 miljónir. Ýmsir vísindamenn sem Þjóð- viljinn hafði tal af töldu blóðugt að slíkar upphæðir færu úr landi til að styrkja rannsóknir erlendra vísindamanna, meðan sáriega skorti fé til þessara hluta hér- lendis. -pv Hvalveiðiráðstefnan Sendiheira skýrir rangt frá Kafli úr Hafró-skýrslu um veiðar áfriðuðum hvölumfelldurniðuríþýðingu. Ráðstefnan hefst á mánudag, - Halldór utan Lundún- Sendiherrann hélt því fram, sam- Sendiherra Islands í um, Einar Benediktsson, hélt fram röngum staðhæfingum í við- tölum við breska fjölmiðla sem leituðu upplýsinga um hval- veiðar íslendinga. En um þær hafa farið fram deilur í Bretlandi. Bandaríkjaþing Ósigur Reagans Washington - Ronald Reagan beið meiriháttar ósigur í gær þeg- ar öldungadeild bandaríska þing- sins samþykkti með 80 atkvæðum gegn 12 að herða mjög á refsiað- gerðum gegn kynþáttastefnu stjórnarinnar í Suður-Afríku. Um þetta og fleira af erlendum vettvangi má lesa á erlendri fréttasíðu blaðsins í dag. Sjá erlendar fréttir á bls. 7 kvæmt frétt Morgunblaðsins gær, að ekki ætti við nein rök að styðjast að Islendingar hyggðust veiða, tvær alfriðaðar hvalateg- undir, hnúfubak og steypireyði. Þetta stangast á við skýrslu Hafrannsóknastofnunarinnar um fyrirhugaðar rannsóknir. Þar er gert ráð fyrir, að tekin verði til nánari athugunar „lítilsháttar veiði á hnúfubak og steypireyði á síðari hluta rannsóknatímabil- sins“, út frá mati á stöðu stofn- anna. Þessi hluti skýrslunnar hef- ur ekki verið dreginn til baka. Hins vegar var hann felldur niður úr enskri þýðingu skýrslunnar, samkvæmt upplýsingum Þjóð- viljans. Alþjóða hvalveiðiráðið kemur saman í Bornemouth á suður- strönd Englands á mánudag, og er héðan frítt föruneyti með sjáv- arútvegsráðherra í broddi fylk- ingar. Vísindanefndin hefur lok- ið störfum og samið skýrslu sína til ráðsins. Islenski fulltrúinn í nefndinni, Jóhann Sigurjónsson, vildi ekki láta uppskátt um efni skýrslunnar við fjölmiðla fyrren ráðið fengi hana í hendur. -m/ÖS Atli Rúnar: Æ, hvað heitir nú aftur gatan milli alþingis- hússins og dómkirkjunnar? Hildur: Hvort á ég nú að veðja á Hrafn eða Lárus Ými? Er Hjörieifur skegglaus? Sumargetraun Þjóðviljans hefur göngu sína Isunnudagsblaði Þjóðviljans hcfst nú sumargetraun sem standa mun í 16 vikur. Þar munu leiða saman hesta sína 16 einstak- lingar og keppa tvcir og tveir í einu. Sá sem vinnur í hvert sinn kemst í undanúrslit og að lokum munu tveir keppa til útslita og eru verðlaun boði fyrir þá. Jafnframt er ætlunin að lesendur blaðsins geti spreytt sig á spurningunum sem ætlunin er að hafa sem fjöl- breytilegastar. í fyrstu lotu kepptu þau Atli Rúnar Halldórsson fréttamaður og Hildur Finnsdóttir prófarka- lesari og geta menn séð á bls. 6 hvernig þeirri viðureign lyktaði, og hvernig þau svöruðu spurning- unni um skeggið á Hjörleifi, Svavari, Jóni Baldvin og Þor- steini. Góða skemmtun. -Glr Laugarnes Undirskriftirnar Kjaradómur hrifu í gær voru lagðir fram í borg- arráði undirskriftalistarnir gegn bráðaframkvæmdum við trukka- veginn á Laugarnestanga. Borg- arráð samþykkti einhuga að verða við tilmælum undirskrift- armanna og frestaði öilum fram- kvæindum á Laugarnesi þartil heildarskipulag lægi fyrir. Málinu var að öðru leyti vísað til umhverfismálaráðs. Er því ljóst að hinn umdeildi vegur verður ekki lagður við útivistar- svæði og fornminjar á Laugarnesi á þessu ári. -m BHMR fékk 5% hækkun Kjaradómur ósammála Alberti. BHMR telurþurfa 9% tilaðná hœkkuná almennum markaði. Dómurinngildirfrál.júlí. jafns við síðustu Kjaradóms- hækkun BIIMR. Meirihluti Kjaradóms taldi að BHMR ætti að fá hækkun strax, „ella yrði sú leiðrétting sem gerð var á kjörum félagsmanna BHMR í apríl sl. að engu gerð” einsog stendur í forsendum dómsins. Úrskurður Kjaradóms gildir frá 1. júlí, en samningar annarra verkalýðsfélaga tóku yf- Kjaradómur úrskurðaði í gær í deilu ríkisins og BHMR um launahækkun eftir samninga ASÍ, BSRB og fleiri. Niðurstaðan var að BHMR-arar fá 5% strax, en BHMR lítur svo á að 9% séu nær lagi til að ná uppí hina samn- ingana. Fjármálaráðherra hafði hinsvegar neitað upphafshækkun á þeim forsendum að hækkunin hjá ASÍ og BSRB hefði verið til irleitt gildi frá 1. júní. Hækkun í haust verður söm og hjá öðrum félögum. í ályktun frá BHMR áskilur stjórn bandalagsins sér allan rétt til að krefjast nýrrar meðferðar í Kjaradómi fari svo sem stjórnin segir horfa, að launahækkunin vegi hvergi nærri til jafns við al- menna launahækkun hjá ASÍ/ BSRB. -m Skák Margeir tapaði Margeir Pétursson tapaði í gærkvöldi skák sinni í níundu um- ferð við ungverska stór- meistarann Sax. Þeir tefldu fyrstu 45 leikina mjög hratt en hægðu svo á og seig þá á ógæfuhliðina hjá Margeiri. Sovéski stórmeistarinn Vag- anjan heldur enn forystunni á millisvæðamótinu í Biel. Hann gerði í gær jafntefli við Torre og hefur nú 7 vinninga. Van der Wiel vann Polugajevskí í gær og fór upp í annað sætið við sigurinn með 6Ý2 vinning. Sokoloff hefur sex vinninga og Seirawan 5Vi. Margeir Pétursson er nú í fjórt- ánda sæti með 3 vinninga og bið- skák. -pv

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.