Þjóðviljinn - 26.07.1985, Page 14
MYNDLIST
Gallerí Slunkarlki
Svala Jónsdóttir sýnir Ijós-
mvndir í Gallerí Slunkaríki
á Isafirði. Svala hefuráður
einkum sýntgrafíkmyndir.
Akureyri
22 ungir myndlistarmenn
sýna málverk, teikningar,
skúlptúra, textíl, grafík og
keramík í íþróttaskemm-
unni við T ryggvabraut á
Akureyri.
Kjarvalsstaðir
I Kjarvalssal stendur yfir
sýning á verkum Jóhann-
esarS. Kjarvalsog erhún
opindaglegakl. 14-22til
júlíloka. I vestursal stendur
hins vegar yfir Ijósmynda-
sýning rússneska lista-
mannsins Vladimir Sichov.
Þareru 330 Ijósmyndiraf
um 170 íslenskum lista-
mönnum. Jafnframt er
sýnd þar hálftíma kvik-
mynd um íslenska menn-
ingu er tveir frægir banda-
rískir kvikmyndagerðar-
menn hafa gert. Sýning-
unni lýkur 28. júlí.
Oddi
Listasafn Háskóla (slands
sýnir nú verk sín í glæsi-
legum húsakynnum á efstu
hæðOdda, nýbyggingar
hugvísindadeildar. Opið
daglegakl. 13.30-17.
Ókeypisaðgangur.
TÓNLIST
Söngtónleikar
Þuríður Baldursdóttir alt-
söngkonaog Kristinn örn
Kristinsson píanóleikari
halda tónleika í grunnskól-
anum á Kópaskeri sunnu-
daginn28. júlikl. 17.00ogí
Miklagarði á Vopnafirði
mánudaginn 29. júlí kl.
21.00.
Á efnisskránni eru íslensk
sönglög í meirihluta en
einnig lög eftir Grieg og
Dvorak og óperulög eftir
Hándel.
Selfoss
(Safnahúsinu á Selfossi
stendur yf ir sýning á 32
myndum sem Listasafn
Árnesinga hefur keypt eða
verið færl að gjöf á síð-
astliðnum árum. Sýningin
eropinkl. 14-16virkadaga
og 14-18 um helgar. Að-
gangurerókeypis.
Hveragerði
Dagana 24. júlí til 6. ágúst
sýnirGunnarí. Guðjóns-
son málverk í Eden í Hver-
agerði. Á sýningunni eru
landslagsmyndirog sitt-
hvað fleira.
Hafnarfjörður
Pétur Þór Gunnarsson
opnar sýningu á verkum
sínum í Hafnarborg,
Strandgötu34, Hafnarfirði.
Pótur Þór sýnir 55 myndir
aðallega pastel og akrýl.
Sýningin stendurtil 11. ág-
ústogeropin14.00til
19.00 virkadagaog 10.00-
22.00 um helgar.
Norrænahúsið
NústenduryfiriNorræna
húsinu sýning á Ijósmynd-
um eftir sænska skáldið
AugustStrindberg. Elstu
Ijósmyndirnar eru frá árinu
1886. Sýningin er opin á
venjulegum opnunarlíma
Norrænahússins.
Gallerí Langbrók
(Gallerí Langbrók sýnir
Aðalheiður Skarphéðins-
dóttirtextílhönnuður mynd-
verk og slæður. Opið virka
dagakl. 12-18og14-18
umhelgar.
CaféGestur
Þormóður Karlsson og
IngaS. Friðjónsdóttirsýna
verk sínáCaféGesti,
Laugavegi 28. Sýningin
stendurtil9. ágúst.
Gallerí Borg
Nú stendur yfir sumarsýn-
ingíGalleríBorgvið
Austurvöll. Þargefurað líta
um 100verkeftiralla
helstu listamenn þjóðar-
innar. Sýningin er opin kl.
12-18allavirkadaga.
Langholtsvegur 111
Um þessar mundir stendur
yfir hjá Islenskum húsbún-
aði að Langholtsvegi 111
sýning á verkum 5 nem-
enda við textíldeíld MHÍ.
Sýnendur eru Björk Magn-
úsdóttir, FjólaÁrnadóttir,
Ingiríður Oskarsdóttir,
Hrafnhildur Sigurðardóttir
og Kristrún Ágústsdóttir.
Asmundarsafn
Opnuð hefur verið í Ás-
mundarsafni ný sýning er
nefnist Konan í list Ás-
mundar Sveinssonar. Opið
alladaga kl. 10-17.
Ásgrfmssafn
Sumarsýning stendur yfir.
Opið daglega nema
laugardagakl. 13.30-16.
Nýlistasafnið
Hollendingurinn Coos
Overbeeke sýnir aflöng
verk í Nýlistasafninu að
Vatnsstíg 3B. Sýningin er
opinfrákl. 16.00 til 22.00
virkadagaog 14.00 til
22.00 umhelgar.
Gallerí Salurinn
Þarstenduryfirsýningá
teikningum aðstandenda
gallerísins undir yfirskrift-
inni „Kynlíf íslenskra karl-
manna" þótt samhengið sé
engan veginn Ijóst. Opið kl.
13.00-18.00 nema mánu-
daga til fimmtudaga eropið
kl. 13.00-22.00. Sýning-
unnilýkur7. ágúst.
Reykjavíkurmót
Fjördagurinn eða Reykja-
víkurmót barnanna verður í
Hljómskálagarði sunnu-
daginn 28. júlí kl. 13.00-
17.00. Kepptverðurí
íþróttagreinum og boðið
upp á ýmis skemmtiatriði.
Aðgangseyrirerenginn.
Fyrirlestur
Dr. Göran Strindberg flytur
erindi um Strindberg og
myndlist hans og sýnir lit-
skyggnuraf málverkum
Strindbergs í Norræna
húsinu sunnudaginn 28.
júlikl. 20.30.
Sædýrasafnið
Saedýrasafnið í Hafnarfirði
eropið alladagakl. 10-19.
Háhyrningnum er gefið á
klukkutíma fresti um helgar
kl. 13-17.
Þjóðminjasafnið
Með silfurbjarta nál heitir
sýning sem opnuð hefur
verið í bogasal Þjóðminja-
safnsins og fjallar hún um
fslenskar hannyrðakonur
og handverk þeirra. Opið
daglegakl. 13.30-16.
Torfhleðsla
Laugardag og sunnudag
heldur T ryggvi Hansen
torfhleðslunámskeið við
nýja leikskólann Sælutröð
(vegurinn út á Reykjavikur-
flugvöll). Mæting kl. 13.00
báða dagana og unnið til
kvölds. Námskeiðið kostar
100kr.ádag.
Hljómskálagarður
Rokktónleikar verða i
Hljómskálagarðinum á
sunnudagkl. 13.30-17.30.
Milli 8 og 10 hljómsveitir
leika undir kjörorði árs
æskunnar: Þátttaka, þró-
un.friður.
Lækjartorg
Hljómsveitirnar Fásinna og
Með Nöktum halda útitón-
leika á Lækjartorgi föstu-
daginn 26. júlí kl. 16.30.
Skálholt
Áþriðju hátíðarhelgi
sumartónleikanna í
Skálholtskirkju verða ein-
göngu flutt verk eftir Bach.
Álaugardagkl. 15.00
leikur Ketil Haugsand á
sembal, Goldberg-tilbrigði
Bachs. Kl. 17.00 samadag
flytja Ketil Haugsand og
Laurence Dreyfus heildar-
verk Bachs fyrir viola da
gambaog sembal. Kl.
15.00 á sunnudag verða
þeir tónleikar endurteknir.
Kl. 17.00ermessaþar
sem sr. Sigfinnur Þorleifs-
son prédikar. Áætlunarf-
erðir frá Umferðarmiðstöð
kl. 13.00 báðadagana.
LEIKLIST
GaukuráStöng
Ámánudögum, þriðju-
dögum og miðvikudögum
gefst nú fólki kostur á að
kaupa mat og er leiksýning
innifalin. Þrírnýútskrifaðir
leikarar sýna einþáttung-
innBjörninneftirTsékoff.
Stúdentaleikhúsið
Stúdentaleikhúsið sýnir
Draumleik eftir Strindberg
á sunnudögum, þriðju-
dögum og fimmtudögum.
Miðar eru seldir við inn-
ganginn en einnig er hægt
að panta þá í síma 17017.
Light Nights
Light Nights sýningarnar
eru hafnar i Tjarnarbíói en
þær eru einkum ætlaðar
fyrir erlenda ferðamenn.
Sýnt er á fimmtudags-,
föstudags-, laugardags-
og sunnudagskvöldum kl.
21.
Skorinn strengur. Mynd H.A.
Nómskeið
Torf-
hleðsla
Um helgina býðurTryggvi
Hansen upp á kennslu í torf-
hleðslu, elstu iðngrein menn-
ingarinnar, það er iðn garð-
lags og byggingar.
Torfhleðslunámskeiðið verður
haldið báða dagana við nýja leik-
slcólann Sælutröð sem liggur við
veginn út á Reykjavíkurflugvöll.
Námskeiðiðbyrjarkl. 13.00 báða
dagana, kaffitími kl. 17.00 og síð-
an unnið til kvölds. Markmið
námskeiðisins er að kunna þetta
handverk nógu vel til að geta
hlaðið að vild sinni heima hjá sér í
garði. Framhaldsnámskeið verð-
ur að viku liðinni á sama stað,
sama tíma.
-aró
Skálholt
Þriðju Sumartónleikar
Á morgun, laugardag, hefst
þriðja hátíðarhelgi Sumartón-
leika í Skálholtskirkju. Að
þessu sinni verða eingöngu
flutt verk eftir Jóhann Sebasti-
an Bach.
Kl. 15 á laugardag gefur að
heyra eitt mikilfenglegasta semb-
alverk tónlistarsögunnar, Gold-
berg-tilbrigðin. Tilbrigðin eru
samin á tíu ára tímabili og lauk
Bach við þau 1741, níu árum fyrir
andlát sitt. Það er Ketil Haugsand
frá Noregi sem leikur tilbrigðin.
Ketil Haugsand nam fyrst org-
elleik hjá Ludvig Nielsen og Ar-
ild Sandvold og píanóleik hjá
Hans Solum. 1968 lauk hann
prófi í orgelleik og píanókennar-
aprófi 1969. Sama ár kom hann
fyrst fram sem píanó- og sembal-
leikari. Árið 1973 lauk hann ein-
leikaraprófi á sembal við Tónlist-
arháskólann í Amsterdam þar
sem Gustav Leonhardt var kenn-
ari hans. Þar hlaut hann „Prix
d’exellence“ 1975. Hann vann til
verðlauna í alþjóðlegri sembal-
keppni í Paris 1979 og Brugge
1980. Hefur farið í tónleikaferðir
um flest Evrópulönd og Banda-
rikin, bæði sem einleikari á
sembal, orgelleikari og með
kammersveitum. Kennir á
Lœkjartorg
Úti-
tónleikar
Hljómplötuútgáfufyrirtækið
MJÖT stendur fyrir útitón-
leikum á Lækjartorgi föstu-
daginn 26. júlí nk. kl. 16.30 að
staðartíma. Þá koma til með
að leika hljómsveitirnar Fás-
inna og Með nöktum og
kynna þær efni af nýútkomn-
um hljómplötum sínum.
tónlistarnámskeiðinu í Þránd-
heimi og við tónlistarháskólann í
Osló.
Kl. 17 á laugardag verða flutt
heildarverk Bachs fyrir viola da
gamba og sembal. Hinn þekkti
bandaríski gömbuleikari Laur-
ence Dreyfus leikur verkin ásamt
Ketil Haugsand semballeikara.
Laurence Dreyfus nam selló-
Skálholtsdómkirkja.
leik við Julliardskólann og
gömbuleik hjá Wieland Kuijken í
Brussel. Frá 1977 hefur hann
haldið tónleika og komið fram í
útvarpi í Bandaríkjunum, Kana-
da og mörgum Evrópuríkjum.
Hann hefur tekið þátt í ýmsum
sumarhátíðum og leiðbeint á al-
þjóðlegum tónlistarnám-
skeiðum. Er með doktorspróf í
tónlistarfræðum og kennir tón-
listarsögu við Yale-háskóla.
Laurence vinnur að athugun á
gömbusónötum hans sem hann
gefur út í lok þessa árs.
Kl. 15 á sunnudag, dánardægri
Bachs, verður endurtekinn flutn-
ingur á verkum hans fyrir gömbu
og sembal.
Kl. 17 á sunnudaginn er síðan
messa þar sem sr. Sigfinnur Þor-
leifsson prestur við Borgarsjúkr-
ahúsið í Reykjavík prédikar, en
listamenn annast tónlistarflutn-
ing. Sóknarpresturinn í Skál-
holti, sr. Guðmundur Óli Ólafs-
son þjónar fyrir altari.
Áætlunarferðir eru báða dag-
ana í Skálholt og er farið kl. 13 frá
Umferðarmiðstöðinni í Reykja-
vík. Ókeypis aðgangur er að tón-
leikunum og er fólki ráðlagt að
koma tímanlega því að kirkjan
hefur verið þéttsetinn á fyrri tón-
leikum á hátíðinni.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 26. júlí 1985