Þjóðviljinn - 02.08.1985, Síða 2
SPARTA
LAUGAVEGI49, SÍMI23610
Adidas hettupeysur,
nr; 140-176 09 4-8,
3litir.
Patrick professional. Nr. 39—46.
Kr. 1.978,-
TRX Runner hlaupaskór. Nr.
38-46. Kr. 1.407,-
Henson glansgallar,
nr. 22-40,
kr. 2747-3111, margirlitir.
Stockholm GT. Nr. 8—8 1/2 og
9. Kr. 1.543,-
Markmannsbúningar,
öll nr. frá 140, treyjur, siðbuxur,
stuttbuxur.
Don Cano bómullargallar,
nr. 6—12 og xs-s-m,
kr. 2112-2822.
Krðnzle markmannshanskar,
týpa 7181, nr. 7—11, kr. 1134.
Rucanor m/frönskum lás, bláir
og. grálr. Nr. 26—38. Frá kr. S99
til 842,-
Adidas trimmgallar
í stærðum frá 101,
ótal tegundir.
Frjálsiþróttaskór, ýmsar teg-
undlr. Nr. 36-47.
Týpa 7180, nr. 7-11, kr.
einnig 4 aörar týpur.
Póstsendum.
SPORTVÖRUVERSLUNIN
Laugavegur 49, simi 23610.
Henson regngallar
í öllum stærðum.
FRÉTTIR
Alþýðuhúsið nýja á Akureyri er glæsileg bygging eins og sjá má. Verkalýðsfé-
lög á ^kureyri hafa þar aðsetur, einnig Alþýðubankinn og Samvinnuferðir-
'Landsyn. Ljósm. sj.
Akureyri
Alþýðuhúsið
vígt
2800 fermetrar á fimm hœðum
Nýja verkalýðshúsið á Akur-
eyri var vígt formlega síð-
astliðinn föstudag, þann 26. júlí.
Húsið, sem er hannað af
Teiknistofunni s.f., er fimm hæða
og heildarflatarmál þess er tæpir
2800 fermetrar. Við vígsluna var
húsinu gefið nafnið Alþýðuhúsið,
og þar munu hafa aðstöðu ýmis
verkalýðsfélög, Alþýðubankinn
og einnig verður eitthvað af hús-
næðinu leigt einkaaðilum til veit-
inga- og verslunarreksturs.
Við vígsluna töluðu meðal
annara, formaður verkalýðsfél-
1
agsins Einingar, Jón Helgason,
en hann var einnig formaður
framkvæmdanefndar við bygg-
ingu hússins. Guðjón Jónsson
formaður Málmiðnaðarfélagsins
flutti kveðju frá A.S.Í. og einnig
flutti ræðu Ólafur Aðalsteinsson,
aldraður verkamaður sem var
einmitt ræðumaður þegar Eining
eignaðist sitt fyrsta húsnæði fyrir
55 árum. Alþýðuhúsið stendur
við Skipagötu 14 og á efstu hæð
mun í framtíðinni verða rekið
veitingahús, en þaðan er gott út-
sýni yfir bæinn.
-vd
Dagvistun
Yfirlýsing foreldra
Foreldrar barna á Hagaborg telja einkennilegt verð-
mœtamat að starfsfólk barnaheimila skuli illa launað
Borist hefur yfirlýsing frá for-
eldrum barna á dagheimilinu
Hagaborg, þar sem er lýst mikl-
um áhyggjum vegna fyrirhug-
aðra lokanna þar. í yfirlýsing-
unni er skorað á yfirvöld að leysa
málin á varanlegan hátt og segir
þar meðal annars:
Foreldrum finnst það ein-
kennilegt verðmætamat, að störf
þeirra sem fást við umhirðu
barna skuli vera svona illa metin.
Þessi má verður að leysa á
varanlegan hátt með því að meta
þessi störf til hærri launa.
Að lokum er bent á það ástand
sem skapast, þegar foreldri sér
eitt um uppeldi og umönnun
barna, jafnframt því að afla tekna
fyrir heimilið, en þannig er ein-
mitt ástatt fyrir meiri hluta for-
eldra sem eiga börn á Hagaborg.
-vd
Laxeldi
Enduriieimtur góðar
á hafbeitarlaxi
„Við erum nokkuð bjartsýnir
með cndurheimtur í hafbeitarlax-
inum, það fer að nálgast 2000
laxa sem við erum búnir að ná
upp og við gerum okkur vonir um
að fá upp 5-6000 laxa, sagði
starfsmaður hjá Pólarlaxi í sam-
tali við Þjóðviljann í gær.
Laxeldisstöðvar víða um land
eru nú byrjaðar að taka upp lax
úr sjógirðingum sínum og eru al-
mennt nokkuð bjartsýnir á
heimtur úr hafi. Laxeldisstöðin í
Kollafirði er nú búin að taka upp
eina 2500 laxa úr girðingum sín-
um. Þeir settu 180.000 seiði í haf
og segjast gera sig ánægða með
að fá 5-12% af því til baka.
Þeir hjá Vogalax eru búnir að
fá upp um 2000 laxa og gera ráð
fyrir að fá 10% til baka af því sem
þeir settu í sjóð. Isnó í Keldu-
hverfi slepptu í fyrra 20.000 laxa-
seiðum í sjó og hafa nú fengið
tæplega 450 laxa úr sjó.
IH
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 2. ágúst 1985