Þjóðviljinn - 20.08.1985, Blaðsíða 2
___________FRÉTTIR
Orkustofnun
Nóg til af vatni
Sigurjón Rist: Enginn skortur á neysluvatni og nóg til
rafmagnsframleiðslu síðar í vetur
„Vatnsskorturinn er ekkert al-
varlegur og þurfa menn hvorki að
óttast skort á drykkjarvatni né
vatni til framleiðslu rafmagns í
vetur,” sagði Sigurjón Rist hjá
Orkustofnun er Þjóðviljinn innti
hann álits á fréttum um mikinn
vatnsskort hér SV-Iands.
„Þórisvatn er nú sneisafullt og
vatnsgeymar til neyslu verða allir
fullir í haust.”
Sigurjón sagöi enn fremur að
öll lón á Þjórsársvæðinu verði full
þegar vetur gengi í garð. „Að vísu
er vatnsskortur í Borgarfirði.
Engu að síður er hægt að hafa háa
vatnsstöðu í Skorradalsvatni þeg-
ar í haust,” sagði Sigurjón.
„Fjórir síðustu mánuðir hafa
gefið lítið vatn á Suðurlandi en
það er ekki svo hættulegt því 2-3
ár þurfa að fara saman til þess að
skortur verði á drykkjarvatni.
Það er einnig heppilegt fyrir okk-
ur að við notumst við grunnvatns-
geyma. Yfirborðsvatn er horfið,
það er rétt, en við búum við lind-
arennsli og það er miklu trygg-
ara.”
„Það er staðreynd að þegar
mikið vatn er á suð-vesturlandi er
lítið vatn á norð-austur-landi og
öfugt, þannig að landið í heild
verður aldrei vatnslaust. Lands-
fjórðungarnir geta hjálpast að,
sagði Sigurjón að lokum. -SA
Stoltir og kátir taka verðlaunahafar við viðurkenningaskjali úr hendi Davíðs Oddssonar borgarstjóra. Ljósm. t.ÓI.
Reykjavík
LálandíFossvogi fegursta gatan
Mýlega veitti Fegrunarnefnd
umhverfismálaráðs viður-
kenningu fyrir fagurt og snyrti-
legt umhverfi. Það voru bæði fyr-
irtæki og einstaklingar sem fengu
viðurkenningu.
Fegrunarnefnd umhverfismál-
aráðs veitir á hverju ári viður-
kenningu fyrir fagurt og snyrti-
legt umhverfi. Formaður nefnd-
arinnar er Hulda Valtýsdóttir.
Að þessu sinni varð gatan Lá-
land neðst í Fossvoginum fyrir
valinu sem fegursta gata Reykja-
víkur. Lóðirnar við þessa götu
eru taldar sérstaklega vel hirtar
og fallegar. íbúarnir hafa rétt á
að halda viðurkenningarskjalinu
í 10 ár. Fyrirtæki Rafmagnsveitu
Reykjavíkur Suðurlandsbraut 34
fengu viðurkenningu fyrir virð-
ingarvert framtak hvað varðar
hönnun mannvirkja og umhverf-
is.
Kirkjugarðar Reykjavíkur
fengu viðurkenningu fyrir sér-
staklega fallegan og vandaðan
frágang við nýju Kapelluna í
Fossvogskirkj ugarði.
Verslunin Kompaní Laugavegi
42 fékk viðurkenningu fyrir
smekklegt umhverfi við verslun-
argötu. Hönnunin á þessu litla
svæði í eldri hluta borgarinnar er
talið vel af hendi leyst og öðrum
til eftirbreytni.
Höggmyndagarður við Lista-
safn Einars Jónssonar fékk viður-
kenningu fyrir nýmótun garðs
sem mun auðga mannlífið. Að-
sóknin í garðinn er stöðugt að
aukast, enda er hann einstaklega
fallegur.
Rauði krossinn við Nóatún 21
fékk líka viðurkenningu. Um-
hverfið er sérstaklega mótað eftir
þörfum hreyfihamlaðra. IBM
Skaftahlíð 24 hlaut viðurkenn-
ingu fyrir snyrtilegt umhverfi þar
sem lýsing og bekkir setja
skemmtilegan svip á lóðina.
Að lokum var veitt viður-
kenning fyrir snyrtilegan frágang
og þægilega aðkomu að Borgar-
túni 17. Það er von þeirra er að
viðurkenningunum standa að
þetta hvetji fólk enn frekar til að
huga vel að umhverfi sínu svo
borgin okkar verði enn fegurri.
SA
Hvar stendur Steingrímur í
kjötstríðinu milli Alberts og
Geirs? Beggja vegna
beinsins!
Leikbrúðuland
íslensk
tröll til
Suður-
Evrópu
I morgun lagði Leikbrúðuland
af stað í leikferð til Suður-Evrópu
þar sem „Tröllaleikir“ verða
sýndir á alþjóðlegum brúðu-
leikhúshátíðum.
f Júgóslavíu verður sýnt á
þremur stöðum og meðal annars
tekur Leikbrúðuland þátt í brúð-
uleikhúshátíð alþjóðasamtaka
esperantista. Þaðan verður hald-
ið til Rómaborgar á brúðuleik-
húsmót tileinkað Eþíópíu og Afr-
íku og rennur ágóði af sýningum
til hjálparstarfsins þar.
í Charlevile-Mezieres í Frakk-
landi tekur Leikbrúðuland þátt í
leikhúshátíð heimsálfanna fimm
þar sem verða yfir 100 sýningar
hvaðanæva að. -aró
Óshlíðarvegur
Grjóthrun
í fyrrinótt
Aðfararnótt mánudags varð
grjóthrun á Óshlíðarvegi, en Ós-
hlíðarvegur er vegurinn sem
liggur milli ísafyarðar og Bolung-
arvíkur.
Að sögn Kristins Jónssonar
rekstrarstjóra hjá vegagerð ísa-
fjarðar var þetta nokkuð stór
skriða ofan úr klettum. Vegurinn
lokaðist ekki alveg, en engan
mann sakaði. Kristinn sagði að
erfitt væri að vera með einhverjar
fyrirbyggjandi framkvæmdir því
aldrei er hægt að vita hvar grjót-
hrun verður næst. Nokkrar fram-
kvæmdir eru nú við Óshlíðarveg-
inn en samkvæmt heimildum
Þjóðviljans vantar fjármagn til
þess að hægt sé að fara út í ein-
hverjar stórframkvæmdir til að
koma í veg fyrir hrun úr fjallinu.
SA
Hór sóst sá hinn bleiki fararskjóti með grænni torfu sem bræðurnir Svavar og
Daníel hafa grætt upp.
Verslanir
Varið ykkur á
útsölunum
Bifreiðaundur
Bleikur bíll
með grænni
torfu
Óhætt er fullyrða að engin bif-
reið hefur vakið meiri athygli hér
á Grundarfirði en bifreið bræðr-
anna Svavars og Daníels Sig-
mundssona, sem er Trabant bif-
reið af óvissri árgerð. Bíllinn er
glaðlega bleikur á lit og á toppn-
um er græn torfa, seifi að sögn
þeirra bræðra er til merkis um
alþýðlegan uppruna bílsins en ber
ekki að skilja sem svo að bifreiða-
tegundin sé komin undir græna
torfu.
- Við erum að hugsa um að
gróðursetja blóm næsta sumar,
sagði Svavar við tíðindamann
Þjóðviljans, en Daníel kvað
meiri líkur á að kartöflur yrðu
fyrir valinu. - Rósant
Nú eru útsölur í fullum gangi. í
frétt frá Neytendafélagi Reykja-
víkur og nágrennis kemur fram
að samkvæmt reglugerð eru
verslunareigendur skyldugir til
að merkja tilboðsvöru með
upphaflegu verði ásamt tilboð-
sverðinu. Þetta er nauðsynlegt til
þess að neytendur geti gert sér
grein fyrir því tilboði sem verið er
að gera þeim. Því miður kemur
oft fyrir að upphaflega verðið
vantar en eins og segir í frétt frá
Neytendafélaginu þá þurfa þeir
kaupmenn sem eru raunverulega
að gera viðskiptavinum sfnum
gott tilboð ekki að fara í felur
með upphaflegt verð vörunnar.
Verslunarmenn eru hvattir til
að fara eftir þessum reglum og
neytendur til þess að kvarta við
seljendur ef upphaflega verðið
vantar.
-SA
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 20. ágúst 1985