Þjóðviljinn - 20.08.1985, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 20.08.1985, Blaðsíða 7
Svavar Gestsson flytur ávarp sitt undir lok ferðar f Biskupsbrekkum. Bóndinn á Rein til umfjöllunar. Greinilegt er að mannskapnum finnast dómar hins háa Alþingis frá byrjun 18. aldar heldur broslegir. Myndir - ÞH. Sumarferð ABR Ekið á vit fjögurra Jóna Vel heppnuð og stórfróðleg ferð um Hvalfjörð, Skagaog Borgarfjarðarhéruð Sumarferð Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík varfarin á laugardaginn í sæmileg- asta veðri og tókst með ágætum. Lagt var af stað f rá Umferðarmiðstöðinni kl. 8.30 og ekið upp í Kjós en við Maríuhöfn í Hvalfirði tók Magnús Þorgeirsson sagn- fræðingur á móti hópnum og sagði ferðalöngum frá fornleifauppgreftri sem átt hefur sér stað í þessari fornu höfn sem var ein af helstu höfnum landsins fram undir 1500. Áfram var farið um Hvalfjörð og að Saurbæ. Par var kirkjan skoðuð undir leiðsögn Jóns Ein- arssonar sóknarprests og síðan gengið út að Hallgrímssteini þar sem skáldið og presturinn Hall- grímur Pétursson sat löngum um miðja sautjándu öldina þegar hann þurfti að vera í næði. Þar sagði Árni Björnsson frá lífs- hlaupi Hallgríms og Steinunn Jó- hannesdóttir rakti feril Guðríðar Símonardóttur konu Hallgríms en hún er betur þekkt undir nafn- inu Tyrkja-Gudda. Frá Saurbæ var ekið áfram út Hvalfjarðarströnd og beygt inn á Akranesafleggjarann og síðan aftur inn á afleggjarann til Grundartanga. Þar var þó ekki stoppað heldur haldið rakleiðis að Rein undir Akrafjalli. Par fluttu þeir Kjartan Ólafsson og Árni Björnsson frásögn af Jóni kristsbónda Hreggviðssyni. Hafði Kjartan tekið saman fróð- legan pistil þar sem hann bar saman feril Jóns í meðförum Halldórs Laxness og eins og lífs- hlaup hans var í verunni, kryddað með lestri úr dómabókum. Við byggðasafnið í Görðum á Akranesi var snæddur hádegis- verður og Gunnlaugur Haralds- son safnvörður sagði frá safninu og Kútter Sigurfara sem stendur þar utan dyra. Með í förinni var Tryggvi Helgason sem var aldurs- forseti hópsins, 85 ára, og rifjaði hann upp vist sína á Sigurfara sumarið 1917. Meðan menn snæddu hádegisverð hlýddu þeir á Öddu Báru Sigfúsdóttur sem flutti aðalræðu ferðarinnar. Næst var ferðinni heitið að Leirá í Leirársveit þar sem margt stórmenna hefur setið og um skeið rekin fræg prentsmiðja. Enn var Kjartan Olafsson í aðal- hlutverki þegar hann sagði frá ýmsum þeim sem búið hafa á Leirá. Dvaldi hann einna lengst við skrautlegan feril Bauka-Jóns sem var sýslumaður á Leirá á 17. öld en var settur af þegtr hann varð uppvís að því að smygla tó- baki. En Jón hafði sambönd og lét vígja sig til prests og sfðar biskups á Hólum í Hjaltadal þótt enga hefði hann prests- menntunina. í Kirkjugarðinum að Leirá hvílir ma. Jón Thorodd- sen skáld og sagði Kjartan stutt- lega frá honum auíc þess sem sungið var ljóð Jóns, Ó, fögur er vor fósturjörð. Nú var ekið inn Svínadal, yfir Dragháls og sem leið liggur til Reykholts. Þar var aftur áð og rifu menn í sig nesti meðan Einar Karl Haraldsson sagði frá Sturl- ungum og Kjartan Ölafsson rakti sögur af ýmsum íbúum staðarins á síðari tímum. Úr Reykholtsdal var ekið yfir í Lundareykjadal og upp á Uxa- hryggi, áleiðis til Þingvalla. í Biskupsbrekkum var mættur séra Rögnvaldur Finnbogason sókn- arprestur á Staðastað og las hann upp úr Vídalínspostillu eftir að Árni Björnsson hafði greint nokkuð frá ferli Jóns Vídalíns biskups sem andaðist þarna í brekkunni. Þessari áningu lauk með því að Svavar Gestsson ávarpaði hópinn. Úr Biskupsbrekku var ekið rakleiðis til Þingvalla og áfram án viðkomu til Reykjavíkur en þangað kom hópurinn á tíunda tímanum um kvöldið, etv. nokk- uð stirður eftir langar setur í rútu- bílum en stórum fróðari um þau héruð sem um hafði verið ekið og íbúa þeirra á fyrri tímum. -ÞH Nestl snætt í grasinu og spáð í næsta áfangann. Þrlðjudagur 20. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.