Þjóðviljinn - 20.08.1985, Page 13
Greiðslukreppan kemur harðast niður á þeim fátæku - og Fidel segir: „Það eru hinir sem skulda okkur".
raun og veru hafa jákvæð áhrif á
ástandið á Vesturlöndum, því að
Rómanska Ameríka mun þá hafa
úr 360 miljörðum dollra að spila
(en sú er skuldarupphæðin
santanlögð) og sá kaupmáttur
mun skapa mikla vinnu í verk-
smiðjum Vesturlanda.
* Það er hvort sent er ekki hægt
að greiða skuldirnar vegna þess
að Reagan og hans lið hefur lagað
viðskiptakjör eftir sínu höfði og
kornið á háum vöxtum til að
„Þriðji heimurinn" verði áfram
fátækur.
* Auk þes má því ekki gleyma,
að ýmis helstu trúarbröðg heints
líta hornauga háa vexti.
Caxtro hefur óspart verið
gagnrýndur fyrir þessa ræðu.
Menn segja að hún sé óraunsæ
nteð öllu. Castro er líka minntur
á það, að hann skuidi sjálfur So-
vétríkjunum 32 miljarði dollara
eða sem því svarar.
Milli tveggja
elda '
Margir leiðtogar í álfunni er
grarnir Fidel Castro fyrir ofan-
greindar kenningar. En þeir eru
milli tveggja elda. Annarsvegar
eiga þeir erfitt með að mótmæla
því, að háir vextir og strangir
greiðsluskilmálar séu í sjálfu sér
mikil hindrun á vegi efnahags-
legrar viðreisnar. Um leið vita
þeir, að ef þeir tækju undir kenn-
ingu Castros, um að menn skuli
ekki borga, þá er úti urn aðgang
þeirra að fjármálakerfi Vestur-
Skuldir Rómönsku Ameríku
Að borga eða borga
Kreppuráðstafanir gera hina ríku ríkari ogfátækufátœkari.
Fidel Castro segir: „við borgum ekki“ - aðrir tvístígandi
Lönd Rómönsku Ameríku
skulda nú 360 miljarði doilara
og skuldabyrði þessi kemur
harðast niður á þeim fátæku,
meðan hinir ríku hafa allt sitt á
þurru. Ráðamenn þessara
ríkja hafa hveraf öðrum leitað
leiða til að létta skuldabyrð-
arnar og sumir þeirra að
minnsta kosti hafa heyrt með
nokkurri samúð á hugmyndir,
sem Fidel Castro Kúbuleiðtogi
reifaði á ráðstefnu um þessi
skuldamál sem hann boðaði til
í Havana nú í mánuðinum. En
Fidel segir að hvorki geti ríki
Rómönsku Ameríku greitt
þessar skuldir né heldur beri
þeim skyida til þess.
Óhagstæð viðskiptakjör við
iðnríkin, spilling í stjórnarfari,
vanhugsaðar fjárfestingar - allt
hefur þetta sameinast um að
hlaða upp skuldum í löndum
Rómönsku Ameríku. Það var
árið 1982 að menn fóru verulega
að ugga að sér um þessa þróun
þegar það kom í ljós, að þrátt
fyrir allan sinn nýfengna olíuauð
rambaði Mexíkó á barmi gjaldþ-
rots. Sú kreppa sem þá greip um
sig víða hefur leitt til þess að
framleiðsla á mannsbarn hvert í
þessum heimshluta er nú minni
en hún var 1977.
Ráðstafanir sem
duga skammt
Stjórnir ríkja Rómönsku Am-
eríku hafa hver um sig átt í við-
ræðum við Alþjóðagjaldeyris-
sjóðinn, sem gerir til þeirra
strangar kröfur um „efna-
hagsráðstafanir“ sem eiga að
draga úr innflutningi og ríkisút-
gjöldum en efla útflutning og þar
með rétta við fjárhaginn og draga
úr skuldum. Þessar ráðstafanir
eru allar á sama veg: laun eru
fryst (eins og tilkynnt var í Arg-
entínu fyrir skemmstu), útgjöld
til félagslegra þarfa hafa verið
skorin niður og verð hefur hækk-
að á lífsnauðsynjum almennings,
þegar hætt er þeim niður-
greiðslum sem eru alþjóðlegum
fjármalamönnum þyrnir í aug-
um. Allt verður þetta fyrst og síð-
ast til þess að hinir fátækari verða
fátækari. Það eru þeir sem bera
byrðarnar.
Að vísu reyna sumir ráðamenn
að sýna þokkalegt fordæmi á
krepputímum - það er til dæmis
haft fyrir satt að fjármálaráðherr-
ann í Chile hjóli í vinnuna og frá-
farandi forseti Perú hafði komið
opinberum launum sínum niður í
svo sem tíu þúsund krónur á mán-
uði. Þetta breytir því samt ekki,
að yfirstéttir þessara ríkja halda
áfram að safna miklum auði er-
lendis. Fjárflótti frá Rómönsku
Ameríku hefur að sögn banka-
manna numið um 55 miljörðum
dollara á árunum 1978-1983.
Ráðherra einn í Venezúelastjórn
heldur því fram að á síðastliðnum
fimm árurn hafi verið komið úr
landi peningum sem svari til
þeirra 35 miljarða dollara sem
landið skuldar. Mest af þessu fé
fer til Bandaríkjanna. Og ástæð-
an fyrir því að hinir ríku flýja með
auð sinn í stað þess að nota hann
til uppbyggingar í eigin landi er
sú, að þeir óttast afleiðingar
þeirrar þróunar, sem gerir hina
fátæku fátækari í heimshluta sem
löngu er illræmdur einmitt fyrir
það mikla djúp sem staðfest er
milli yfirstétta og öreiga.
Boðskapur Castros
Því var það líka, að þótt
„ábyrgir" leiðtogar í Rómönsku
Ameríku létu ekki sjá sig á ráð-
stefnu, sem Fidel Castro hélt fyrir
skemmstu um skuldir álfunnar,
þá fóru orð hans víða. En hann
sagði á þessa leið:
* Rómanska Ameríka hefur
siðferðilegan rétt til þess að segja
upp skuldum. vegna þess að
Bandaríkin og Evrópuríki hafa
arðrænt þessa álfu um aldir og
„þeir skulda okkur“.
* Ronald Reagan mun hvort
sem er ekki nota afborgarnir af
skuldum til annars en að eyða
þeim í stjörnustríð og aðra vit-
leysu.
* Ef „við borgum ekki“ stefnan
verður tekin upp, þá ntun hún í
ekki
landa, sem skiptir miklu máli
fyrir öll þeirra utanríkisviðskipti.
Þeir vita einnig, að ekki munu
Sovétríkin hafa nein efni á því að
styðja við bakið á þeim í
fjármála- og viðskiptastríði við
Norður-Ameríku og Evrópu í
sama mæli og Castro hefur verið
hjálpað - fyrir nú utan það, að sá
kostur er flestum þeirra lokaður^^^
fyrirfram af pólitískum ástæðum. wT
Alan Garcia hinn nýi forseti Perú: við borgum ekki nema sem svarar 10% af
útflutningsverðmætinu.
Þriðjudagur 20. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17