Þjóðviljinn - 20.08.1985, Blaðsíða 14
FLÓAMARKAPURINN
Langar þíg í
fallegan, þrifalegan og vel upp alinn
kettling? Ef svo er, þá færðu hann
gefins í Garðastræti 36, kjallara, eftir
kl. 20 á kvöldin.
Vantar þig rúm?
Hef til sölu 110 cm breitt, vel með
farið fururúm. Verð eftir samkomu-
lagi. Er í Garðastræti 36, kjallara.
Prjónakonur
Óska eftir að komast í samband við
prjónakonur. Nauðsynlegt að vélarn-
ar gefi kost á hringprjóni. Upplýsingar
í síma 28938 eftir kl. 7.
Geymsluhúsnæði
Geymsluhúsnæði til leigu. Upplýs-
ingar í síma 84394 eða 667029.
Jurtalitun - tapað - fundið
Sá eða sú sem auglýsti eftir áhuga-
sömum nemendum í jurtalitun í Fló-
amarkaðnum, snemma sumars:
Vinsamlega hafðu samband við mig,
Margréti í síma 32185.
Sumarbústaður tii sölu
Til sölu 35-40 fm sumarbústaður á
Vatnsleysuströnd. Eignarland, stutt
frá sjó. Verðhugmynd 400-450 þús.
Ýmis skipti koma til greina. Sími
29190 milli kl. 10 og 13.
Húsnæði óskast.
Óskum eftir 3-5 herb. íbúð. Við förum
að sjálfsögðu vel með það sem okkur
er trúað fyrir. Meðmæli ef óskað er.
Sími 76021.
Fyrir þá sem vantar
útidyrahurð
Ef þú ert að byggja og þig vantar úti-
dyrahurð, til bráðabirgða, þá máttu
sækja hana og lyklana í Birkihlíð 7,
sími 81388.
Til leigu.
Herbergi til leigu fyrir geymslu á hús-
gögnum eða hreinlegri vörum. Raka-
laust og bjart. Uppiýsingar í síma
81455.
Lítil Ásta í
Laugarneshverfi
Er einhver dagmamma sem vill
passa mig í vetur, bráðum 1 árs telpu-
hnokka. Síminn hjá mömmu er
35899.
Bíll og vél
Renult 4 vél árgerð 75 til sölu. Las-
burða boddý fylgir. Uppl. í síma
35899.
Góð íbúð á góðum stað
Erum að leita að íbúð til tveggja ára
gegn sanngjarnri leigu. Erum ung
hjón, bæði í námi og vinnum með
náminu. Erum reiðubúin til að dytta
að húsnæðinu ef þörf krefur. Upplýs-
ingar í síma 29714 á kvöldin.
Tauþrykk - taumálun
Kvöldnámskeið verða í september og
október. Innritun í síma 77393 á
kvöldin og81699ádaginn, Steinunn.
Til sölu
Til sölu 1 árs unglingasvefnsófi á kr.
4.000.- (nývirði 10.000.-) og eldri
svefnsófi á kr. 900.-. Einnig Lundia-
fataskápar, 1 x2,10 á kr. 7.000.- (ný-
virði kr. 15.000.-). Upplýsingar í síma
36318 í allan dag.
Barnavagn
Silver-Cross barnavagn, vel með far-
inn, til sölu á kr. 5.000.-. Sími 10730.
Eldavél til sölu
Gömul Rafha eldavél til sölu fyrir lítið
(kr. 3.000.-). Upplýsingar í síma
14721.
B«rn»r«i#hjó4 óskast
Tvíhjól fyrir 6-8 ára dreng (18-20“)
óskast keypt. Upplýsingar í síma 99-
6153 og 99-6175 milli kl. 14 og 17.
Hjónarúm tii sölu
Gamalt hjónarúm til sölu. Er með
lausum höfðagafli. Verð kr. 3.000.-.
Til sýnis að Prestbakka 11 f.h.
Dagmamma, hjálp
Mig bráðvantar dagmömmu eftir há-
degi í vetur. Ég er rúmlega 10 mán-
aða snáði í vesturbænum og vil að
pabbi og mamma geti haldið áfram
að læra. Sími 22439.
Kettlingur fæst gefins
5 mánaða bröndóttur kettlingur fæst
gefins. Kettlingurinn er fress og mjög
fallegur, vel vaninn og sérstaklega
Ijúfur í allri umgengni. Sími 16136.
ísskápur
ísskápur til sölu. Upplýsingar í síma
44482.
Húsnæöi óskast
Vill einhver vera svo góður að leigja
skólastúlku utan af landi litla íbúð eða
herbergi m/aögangi að baði í Reykja-
vík í vetur. Vinsamlegast hringið í
síma 95-1956.
Geymsluhúsnæði
Til leigu upphitað geymsluherbergi í
kjallara í Vesturbænum. Leigist í 6-12
mánuði. Upplýsingar í síma 21079 í
dag og næstu daga.
Fataskápur tii sölu
Lítill, vel með farinn fataskápur til
sölu. Er með hillum og fatahengi.
Selst ódýrt. Upplýsingar í síma 81687
eftir kl. 16 flesta daga,
íbúð óskast
Okkur vantar 4-5 herbergja íbúð
strax, helst í miðbæ. Upplýsingar í
síma 74380 eftir kl. 19.
Þvottavél til söiu
Alda þvottavél, 3ja ára til sölu á góðu
verði. Upplýsingar í síma 21792 eftir
kl. 17.
Eldavél og hluti úr
eldhúsinnréttingu
Vill einhver hirða gamla eldavél og
hluta úr eldhúsinnréttingu. Sími
24428.
Barnagæsla
Barngóð stúlka eða kona óskast til að
gæta 2ja ungra barna og sjá um létt
heimilisverk frá kl. 5-10 fimm daga
vikunnar. Upplýsingar í síma 82527,
Helga.
Vinnustofa - stúdíó
Myndlistarmaður óskar eftir húsnæði
í Reykjavík eða Kópavogi sem hent-
að gæti sem vinnustofa (ca 40-80
fm). Upplýsingar í síma 44605 á
morgnana eða kvöldin eftir kl. 7.30.
Ný poppkornsvél
til heimilisnotkunar til sölu. Upplýs-
ingar í síma 16471 eftir kl. 18.
Barnavagn til sölu
Hlýr og góður barnavagn, Odder
(danskur). Verð kr. 8.000.-. Sími
39584.
Herbergi til leigu
2 herbergi til leigu strax. Gardínur og
einhver húsgögn geta fylgt. Aðeins
reglusamt fólk kemur til greina. Til-
boð í pósthólf 8711-128.
Kynningarfundur
Borgarskipulag Reykjavíkur minnir á kynningarfund á
skipulagstillögu Skúlagötusvæðis, fimmtudaginn 22.
ágúst kl. 20.00 í Risinu, Hverfisgötu 105.
Eigendum fasteigna í hverfinu og íbúum þess er sér-
staklega boðið á fundinn.
Herbergi óskast
Mig vantar herbergi til leigu í vetur. Þarf að hafa að-
gang að snyrtingu. Góðri umgengni heitið. Mun líklega
sækja nám í Háskólanum í vetur. Vinsamlegast hring-
ið í Garðar á ritstjórn Þjóðviljans.
_______________HtiMUglNN_______________
Tíllögur um bætta
sambúð og deilur
um mannrétdndi
Viðtal við aðalritara utanríkisráðuneytis Sovétríkjanna, sem heimsótti
Geir Hallgrímsson
Utanríkisráðuneyti Sovétríkj-
anna er ekkert venjulegt ráðu-
neyti og slíkt ráðuneyti þarf á
óvenjulegum forystumanni að
halda, sagði Júrí Fokín, aðal-
ritari sovéska utanríkisráðu-
neytisins, er hann var spurður
um ráðherraskiptin þar
eystra. Hann sagði einnig að
það væri yfirsjón ef menn not-
færðu sér ekki gífurlega þekk-
ingu Gromikos, nýkjörins
forseta, og næmi hans á utan-
ríkismál áfram, endasæti
hann í stjórnmálanefnd og
hefði þar með möguleika á að
segja sitt um mótun utanríkis-
stefnu.
Fokín var hér til að ræða við
Geir Hallgrímsson utanríkisráð-
herra og menn úr hans ráðuneyti
um þau dagskrármál sem verða
ofarlega á baugi hjá ríkjunum á
næsta allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna. Hann sagði að Sovét-
menn héldu slíka kynningarfundi
með um 50 ríkjum og þetta væri í
þriðja sinn sem fulltrúi sovéska
utanríkisráðuneytisins kæmi til
íslands - hefði það komið fram á
fundi þeirra Geirs að á næsta ári
færi maður frá íslenska utanríkis-
ráðuneytinu til Moskvu. Þetta er
kerfi sem virkar vel og við erum
ánægðir, sagði Fokín.
Geimurinn og
kjarnorkuvopn
Hann sagði að í viðræðum
þeirra Geirs hefði hann lagt
áherslu á tvennt. Annars vegar
nýjar tillögur Sovétmanna um al-
þjóðlegt samstarf um geimrann-
sóknir, sem gera ráð fyrir því að í
geimnum fari ekki fram vígbún-
aðarkapphlaup. Þá er mælt með
alþjóðlegum geimstöðvum sem
gera líffræðilegar og veðurfræði-
legar athuganir, kanna gerð jarð-
laga og fleira. Mundu Sovétmenn
leggja fram ítarlegar tillögur á
þingi SÞ um sérstaka ráðstefnu
um þessi mál. Fokin vildi ekki
segja að þessari tillögu væri stefnt
beint gegn SDI („stjörnustríðsá-
ætlun“) Reagans, en altént
stefndi hún í allt aðra átt en hug-
myndir forsetans.
í annan stað var lögð áhersla á
það, að Sovétmenn hafa nú
stöðvað tilraunir með kjarnorku-
vopn frá og með 6. ágúst og
stendur það bann til áramóta og
Framhald af bls. 17 <
En hvað sem því líður: ýmis
merki eru um það, að boðskapur
Castros hafi haft viss áhrif, enda á
hann sér verulegan hljómgrunn
meðal almennings í þessum
heimshluta. Til dæmis að taka
réðist hinn nýi forseti Perú, sósí-
aldemókratinn Alan Garcia Per-
ez, af hörku á sameiginlegan óvin
þeirra Castros þegar hann tók við
embætti á dögunum: á Alþjóða
gjaldeyrissjóðinn sem „samsek-
an“ um skelfilegt efnahagsástand
í landinu. Það er og nokkuð í
anda Havannaráðstefnunnar að
forseti Perú hefur tilkynnt, að
hann muni, fyrstur ráðamanna í
álfunni, tengja beint saman af-
borganir af skuldum og útflutn-
lengur ef Bandaríkjamenn slást í
hópinn. Hugmyndin er sú, sagði
Fokin, að vopn sem ekki eru
gerðar tilraunir með úreldast
smám saman - og með þessu væri
hægt að byrja á að skera niður
kjarnorkuvígbúnað yfir höfuð.
Þá var rætt um það að í lok
mánaðarins hefst ráðstefna um
áhrif alþjóðlegs samnings um
bann við dreifingu kjarnorku-
vopna. í þeim efnum, sagði Fok-
in, eru Sovétríkin og Island á
sama máli og leggja ríkin, sem
svo margir aðrir, höfuðáhersla á
að styrkja samninginn með því að
fá fleiri ríki til að skrifa undir
hann. Það hafa nú 129 ríki gert.
Fokin vildi ekki mörgu spá um
fund þeirra Reagans og Gorbat-
sjofs í haust. Hann kvað varla
vera enn um að ræða þíðu í sam-
skiptum risaveldanna, en menn
væru þó farnir að tala saman aft-
ur.
Spurt var um þá kenningu
sumra sérfræðinga, að vegna
þess, hve eftirlitskerfi og stjórn-
kerfi kjarnorkuvopna eru við-
kvæm, hafi herstjórar risaveld-
anna vantrú á að hægt sé að svara
allsherjarkjarnorkuárás - það sé
því annaðhvort um að ræða að
vera fyrri til eða beita alls ekki
kjarnorkuvopnum. Fokín vísaði
þeirri kenningu á bug með tilvís-
un í nýleg ummæli sovésks mar-
skálks. Við munum geta svarað
fyrir okkur, sagði hann, hvað sem
hinir finna upp munum við finna
svar við því. MAD er semsagt í
gildi („Gagnkvæm trygging gjör-
eyðingar").
Réttur hópa
og einstaklinga
Það kom fram í viðtali þessu,
að Fokin og Geir hefðu komið
inn á mannréttindamál og verið
„vægast sagt ósammála“. Blaða-
maður spurði út í þá afstöðu So-
vétmanna, að svara með tilvísun-
um til félagslegs öryggis þegar
spurt væri um rétt einstaklinga og
þá einkum andófsmanna. Fokín
svaraði á þessa Ieið:
Um þrennskonar
mannréttindabrot getur verið að
ræða. í fyrsta lagi brot á réttind-
um mikils fjölda fólks, eins og
gerist í Suður-Afríku. í annan
stað er það efnahagsleg mismun-
un eins og á sér stað með atvinnu-
leysi. í því sambandi spurði Fok-
ín: hvort skyldi skipta verkamann
ingstekjur viðkomandi lands.
Hann ætlar að takmarka afborg-
arnir og vaxtagreiðslur af 14 milj-
arða dollara skuldum Perúmanna
við 10% af útflutningstekjunum.
Hugmyndin um að tengja sam-
an útflutningstekjur og greiðslur
af skuldum er ekki ný, en forseti
Perú er semsagt hinn fyrsti sem
áræðir að hrinda henni í fram-
kvæmd. Önnur ríki eru að velta
því sama fyrir sér. Meðal þeirra
er Bolivía, sem neyddist í fyrra-
vor til að stöðva allar greiðslur af
erlendum lánum vegna þess að
ekki var lengur hægt að greiða
fyrir brýnustu nauðsynjar. Stór-
skuldarar eins og Brasilía og Arg-
entína eru að semja um endur-
skoðun á greiðslum sínum, en
forseti Argentínu, Raul Alfons-
meira máli að hafa vinnu eða at-
kvæðisrétt? í þriðja lagi væru svo
einstaklingar og þeirra réttur.
Það væri misskilningur að Sovét-
menn hefðu engan áhuga á slík-
um málum. Þeir vildu gjarna
senda vesturveldum lista yfir
menn sem sitja í fangelsum eða
verða fyrir öðrum kárínum vegna
agnúa kapítalismans. Rétt eins
og þeir fá að vestan lista yfir
Júrí Fokín: „menn eru famir að tala
saman“.
„andófsmenn sem þér kallið
svo“. Aftur á móti átti Fokfn ekki
önnur orð yfir andófsmenn en
„njósnarar, iðjuleysingjar og
andsovétingar“. Honum var
mjög í mun að vísa slíkum málum
frá, með því að halda þeim á lofti
væri verið að „spilla andrúmslofti
að óþörfu sem er bæði skaðlegt
og hættulegt", sagði hann.
Um alþjóðasamtökin Amnesti
International, sem berjast fyrir
rétti pólitískra fanga hvar sem er,
sagði Fokín að þau væru „ein-
hliða“ í starfsemi sinni og andso-
vésk. Þegar bent var á það að
Amnesty fengi að heyra slíkt úr
mörgum heimshornum, einnig
hér, þá svaraði Fokin: Það er
ykkar mál að eiga við þá hér. Við
bregðumst við þegar þeir áreita
okkur!
Aðalritari sovéska utanríkis-
embættisins gegnir í raun háu
embætti. Hann fer með samrým-
ingarverkefni bæði á sviði stjórn-
mála og innri stjórnsýslu ráðu-
neytisins og heyrir beint undir
utanríkisráðherra. ÁB
in, efast um að það þýði að bjóða
upp á minna en 30% af útflutn-
ingstekjum í skuldahítina. For-
seti Uruguav, Sanguinetti, hefur
hinsvegar reynt að semja um
20% hámark í viðræðum sínum
við erlenda banka.
Mexíkanir eru að reyna að
semja um betri greiðsluskilmála
við bandaríska banka og á dögun-
um viðhafði fjármálaráðherra
landsins svofelld ummæli:
„Sú lausn sem Castro býður
upp á kann að vera aðlaðandi frá
fræðilegu og tilfinningalegu sjón-
armiði, en hún bæri vott um
ábyrgðarleysi vegna hinna nei-
kvæðu áhrifa sem hún hefði á
framtíðarþróun í efnahagsmál-
um“...
ÁB tók santan.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 20. ágúst 1985