Þjóðviljinn - 18.09.1985, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 18.09.1985, Qupperneq 1
Stjórnarflokkarnir Baríst hart um ByggðabitHnginn Ennfrestað að ráða íforstjórastól Byggðastofnunar.Eggert Haukdal á bandi Fram- sóknarmanna. Mikil reiði íSjálfstœð isflokknum. Óvirðing ígarð starfsfólks átalin Innbyrðis átök fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins í stjórn Byggða- stofnunar og átök milli stjórnarf- lokkanna á fyrsta stjórnarfundi hinnar nýju stofnunar í gær komu í enn eitt skiptið í veg fyrir að hægt væri að ganga frá ráðningu í embætti forstjóra Byggðastofn- unar. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans að afloknum þingflokks- fundi Sjálfstæðismanna seint í gærkvöldi þar sem hart var deilt, mun Eggert Haukdal hafa lýst því yfir að hann stæði með fulltrúum Framsóknarflokksins að ráðn- ingu Bjarna Einarssonar í for- stjóraembættið. Ekki tókst að ná sambandi við Eggert í gærkvöldi. Einsog Þjóðviljinn skýrði frá í gær ríkir mikil óánægja meðal starfsfólks Framkvæmdastofnun- ar, sem öllu hefur verið sagt upp störfum, að ekki skuli enn vera búið að ganga frá ráðningum að hinni nýju Byggðastofnun. Upp- sagnarfrestur starfsfólksins er að renna út. Á stjórnarfundi Byggðastofn- unar í gær átaldi Geir Gunnars- son þau vinnubrögð stjórnar- flokkanna að draga þessi mál á langinn, og þá ‘framkomu sem starfsfólkinu væri sýnd. Einnig lagði Geir fram tillögu á fundin- um um að stjórnin stefni að því að Byggðastofnun verði flutt til Ak- ureyrar svo fljótt sem við verður komið, reynist ekki á því sérstak- ir meinbugir að undangenginni athugun. Sjálfstæðismenn lögðu til að allri afgreiðslu mála yrði frestað vegna hinnar óvæntu uppákomu og hefur nýr fundur verið boðað- ur í stjórninni á föstudag. Ljóst er að einungis einn for- stjóri verður ráðinn að stofnun- inni en heimildarmaður Þjóðvilj- ans sagði að afloknum þing- flokksfundi Sjálfstæðismanna í gærkvöldi að menn kyngdu því ekki þegjandi að Framsóknar- menn fengju þá stöðu. Einn þing- manna Framsóknarflokksins sagði hinsvegar í samtali við Þjóðviljann í gær að flokkurinn mundi ekki gefa eftir forstjóra- stólinn. ÖS/gg Hornafjörður Sá stærsti veiddist Stærsti steinbítur á íslandsmiðum í snurvoð eystra. 119 cmlangurá þrítugsaldri Æskan á Hornafirði veiddi 119 cm steinbit á dögunum og var djöfsi 16 kfló á þyngd og talinn vera á þrítugsaldri. Að þvi er hermir í Eystra homi, sem gefið er út á Höfti, er steinbítur þessi sá stærsti sem veiðst hefur hér við land. Sá sem næst komst þessum, veiddist í Faxaflóa 1961 og var 116 cm langur. Steinbítur verður yfirleitt um 74 cm langur um tvítugsaldur. Æskan fékk steinbítinn stóra á snurvoð á Bótinni vesta undir Papey, segir í Eystra horni. -óg Matarskattur Létu undan í gærkvöldi varð ljóst að ríkis- stjórnin gafst upp á áformum um að leggja á sérstakan matarskatt, söluskatt á matvæli, til að fylla uppí fjárlagagötin. Áformin mættu strax tortryggni meðal ó- breyttra stjórnarliða og viðbrögð forystumanna verkalýðssamtaka voru öll á einn veg. Sjá viðtal við Ásmund Stef- ánsson og við nokkra þing- menn Framsóknarflokks- ins bls 3. Undirbúningur fyrir listahátíð kvenna stendur nú sem hæst, þessi mynd var tekin niðrí Iðnó í gær þar sem verið var að æfa dagskrá úr verkum Jakobínu Sigurðardóttur. Það eru þau Margrét Ólafsdóttir, Valgerður Dan, Bríet Héðinsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson sem þarna eru að æfa, en auk þeirra koma fram Hanna María Karlsdóttir, Ingibjörg Marteinsdóttir, söngkona og Jórunn Viðar tónskáld. Bríet hefur tekið dagskrána saman og hefur umsjón með henni, en frumsýningin verður n.k. sunnudag í Gerðubergi. Er þetta jafnframt framlag LR til listahátíðarinnar. Mynd. Einar Ól. MENNING LANDIÐ Grænfriðungar Vigdís brosti Madrid — Þegar Vigdís Finnbog- adóttir forseti íslands heimsótti hið þekkta Prado safn í Madrid í gær höfðu umhverfisverndar- sinnar úr grænfriðungum komið fyrir 10 metra löngum uppblásn- um plasthval úti fyrir safninu. Að sögn fréttamanns Reuters virti Vigdís hvalinn fyrir sér og brosti. Grænfriðungar sögðu að til- gangur þeirra væri að sýna Vig- dísi að hvalir ættu ekki heima á söfnum. í plaggi sem samtökin dreifðu var minnt á að íslending- ar hefðu undirritað samkomulag árið 1982 um bann við hval- veiðum en að á þessu ári hefðu þeir ákveðið að halda veiðunum áfram í vísindaskyni. -ÞH/reuter Iðnaður Smátt er árangurs- ríkt Olav Grueforstjóri danska Iðnlánasjóðsins: Smáar einingar í iðnaði hafa orsakað meiri vöxt í dönsku efnahagslífi en í öðrum iðnríkjum Það er uppgangur í dönsku efnahagslífi sem stendur og það á sinn þátt í því, að lögð hefur verið áhersla á að byggja upp og styðja við bakið á smáiðnaði ýmis kon- ar. Það felst ákveðinn styrkur í að byggja á smáiðnaði, sagði Olav Grue forstjóri danska Iðnlána- sjóðsins m.a. á fundi með blaða- irönnum í gær. Olav Grue er hér á landi í boði Iðnla.'asjóðs íslands í tilefni af því að n,< eru 50 ár síðan hann var stofnaður. Grue hélt fyrirlestur í Átthagasal Hótel Sögu í gær undir heitinu „Fjármögnun og þróun iðnaðar í Danmörku." Grue er gjörkunnugur dönsku atvinnulífi. Áður en hann gerðist forstjóri Iðnlánasjóðsins árið 1981 hafði hann verið forstjóri m.a. Burmeister og Wain og Bang&Olufsen. Danski Iðnlánasjóðurinn hef- ur lagt sérstaka áherslu á að styðja við bakið á einstaklingum sem vilja koma sér upp atvinnu- rekstri í smáum stíl og veitir til þess hagstæð lán. Nú er enda svo komið í Danmörku, að viðskipta- vinir sjóðsins hafa vaxið úr 2300 árið 1982 í rúmlega 4000 í ár. í Danmörku eru nú u.þ.b. 7000 fyrirtæki með fimm manns á launum eða fleiri. Grue sagði í erindi sínu í gær að danskur iðnaður byggður upp á smáum einingum hefði reynst ár- angursríkur og sveigjanlegur þannig að uppgangur í dönskum iðnaði væri mun meiri en í öðrum iðnríkjum. gg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.