Þjóðviljinn - 18.09.1985, Síða 4

Þjóðviljinn - 18.09.1985, Síða 4
LEIÐAR! Nú hafa samningar tekist í bónusdeilunni, og verkfalli sem var í gangi í fjölmörgum frystihús- um um allt landiö aflýst. Auövitaö er þaö rétt, aö þær sanngjörnu og réttlátu kröfur sem settar voru fram náðust ekki í höfn nema aö litlu leyti. Samt sem áöur fólst í verkfallinu viss áfanga- sigur. Þaö tókst meö sameinuðum aögeröum að ná fram kjarabótum, og það er að veröa nokkuð langt síðan íslensk verkalýðshreyfing hefur meö því aö beita afli sínu náö fram ein- hverju sem ekki er rifið strax af fólki aftur. Aö því leyti má segja aö árangur þessarar deilu sé verulegur. En auövitaö er málinu fráleitt lokiö. Baráttan mun halda áfram. Það eitt aö í þessari hrinu tókst aö ná árangri, þó lítill væri, er jákvætt í sjálfu sér. Það sýnir, aö það má ná árangri meö samvinnu og samstöðu. Þaö eitt aö þaö var samstaðan sem knúöi fram kjarabætur mun veröa öllum hvatning til þess að halda málinu vakandi, til aö freista þess aö ná málinu enn lengra í næstu lotu. Því samningarnir núna eru enginn endapunktur, þeir marka ekkert nema lok einnar lotu í löngu stríði, og sá lotusigur sem vannst nú ætti aö veröa öllum einsog vítamín- sprauta. Áfangasigurinn sem er í höfn sýnir nefnilega aö samstilltar aðgerðir skila árangri. Það er hinn raunverulegi stóri sigur þessa ver- kfalls. Framkvæmd verkfallsins var gagnrýnd af Áfangasigur ýmsum, og þaö kann vel aö vera að henni hafi í upphafi verið eitthvaö áfátt. Þá er aö læra af því. Einsog mennirnir, þá eru verk þeirra ófullkomin og alltaf má betur gera. Hitt er þó aö sönnu rétt, aö áöur en verkfallið hófst gerðist fremur sjald- gæfur atburður. Formaöur Verkamannasam- bandsins fór um landið og hélt vinnustaðafundi á þrjátíu stööum til aö stappa stálinu í fólk og meta stöðuna. Fágætur var þessi atburður aö því leytinu að þaö gerist alltof sjaldan aö for- ystumenn verkalýðshreyfingarinnar fari út til fólksins, skeiði landsbyggöina, til aö komast íj snertingu viö þaö hjarta sem þar slær. Þetta hefur Guðmundur J. Guðmundsson sjálfur gagnrýnt í riti og ræöu, og fundaherferð hans fyrir upphaf verkfallsins skipti áreiöanlega miklu fyrir samstöðuna sem náöist um allt land. Þettaj fordæmi mættu menn gjarnan hafa bak viö' eyrað næst þegar kjaradeilur eru í uppsiglingu. Þaö er nefnilega staðreynd, aö það er einangr- unin fyrst og fremst sem oft og tíðum dregur mjög úr baráttukjarki fólks úti um landið. Þaö skortir tengslin viö stéttarsystkin sín í öörum stööum, sem er jafn óánægt og óhresst meö hin hraklegu kjör sem fiskverkafólki er boðið upp á. Það var reynt meö ærnu erfiði að bregöa fæti fyrir bónusverkafólk í nýafstöönum deilum. En samstaöan hélt, og virtist meira aö segja vera að eflast sums staöar um landið þegar verkfall- inu lauk. Hitt er þó einnig rétt, aö meðai fisk- verkafólks eru skiptar skoöanir um hvaöa stefnu beri aö taka í bónusmálum. Vísindalegar kannanir hafa sýnt án alls vafa, að bónusvinnan hefur ótrúlega slítandi áhrif á fólkiö, auk þess sem bónusinn er í eðli sínu sundrandi fyrir sam- starf á vinnustað, og hefur oftlega verið nefndur sem sökudólgur þegar rætt er um vondan mór- al. Þjóöviljinn hefur margsinnis lýst þeirri skoðun, aö þaö beri í framtíðinni aö vinna aö því að hækka kaupið nógu mikið til aö fólk veröi ekki lengur háð bónusþrælkuninni um framfæri, og bónusinn veröi þá smám saman lagður af. Bónussamningarnir núna miöa ekki í þá átt, því miður. En þeir eru þó góðir aö því leytinu, að upp er tekinn fastur bónus fyrir hvert frystihús, og öllum ber saman um aö stress og samkeppni milli manna muni stórlega minnka. Þaö eitt er heillaspor. Menn skulu ekki horfa framhjá því, að það eitt aö sameiginlegar aögeröir leiddu til undanhalds atvinnurekenda er stórsigur í sjálfu sér. Það eitt aö samstaöan og samheldnin héldu var einnig sigur. Verkfallið var á vissan hátt prófsteinn: Það sýndi að fólk er aö veröa reiðubúið til aö leggja út í aðgerðir til að ná fram kjarabótum. Þaö er reiöubúið til aö vinna saman - til að standa saman. Meö því er lagður grundvöllur fyrir veturinn. Bónusverkfallið ætti aö veröa öllum hvatning til baráttu, því það sýndi aö með samstöðunni næst árangur. - ÖS KUPPT OG SKORBÐ Kerfið Fyrir áratug eða svo bar mikið á umræðu um „kerfið“ , „báknið" og hvernig ætti að bregðast við óeðlilegri útþenslu þess, tilhneig- ingu þess til að þenjast út, án þess að þjóðfélagsþegnar fyndu fyrir bættri þjónustu, léttara lífi. Áhyggjur manna fóru vaxandi vegna skriffinnskunnar sem of- tátíðum var og er yfirþyrmandi. Vinstri menn og hægri menn deildu þessum áhyggjum hver með öðrum og ræddu og reifuðu meðan „kerfið" lullaði áfram með sínum vexti. Nýfrjálshyggja — „Nýliberal- sisminn“ Fram eftir öldinni hefur hins vegar verið visst samkomulag um að byggja upp velferðarkerfi, — þó hægri menn hafi alltaf haft horn síðu félagslegra umbóta- mála, hafa þeir ævinlega um síðir gefið sig; tryggingum, heil- brigðisgæslu, skólamálum, dag- vistarmálum og þar fram eftir götum, þartil komið var velferð- arþjóðfélag. Þegar þenslan í efnahagslífinu eftir stríð tók að hægja á sér, urðu umræðurnar um „kerfið" æ háværari. Pólitískt voru hægri mennirnir og flokkarnir fljótari að bregðast við; þeir dustuðu einfaldlega ryk- ið af gamalli hugmyndafræði uppvaxandi borgarastéttar frá síðustu öld sem stóð í stríði við aðalinn ogskýrði upp frjálshyggj- una, nýliberalismann. Guðfeð- urnir voru menn eins og Fried- man og Haeyk og þeir sem fjárm- ögnuðu áróðurinn til að byrja með voru Verslunarráð heimsins og viðskiptajöfrar, (þeir sem græða á vexti og viðgangi hug- myndafræðinnar). Og upp risu spámenn, einsog Hannes Hólms- teinn hér á landi. Til að byrja með var hlegið að spámönnunum en áður en varði varð hugmynda- heimur þeirra að stefnuskrá og starfsháttum stórra stjórnmál- flokka og ríkisstjórna. Einnig hérlendis. Frjalshyggju hafnað Nú hefur það verið að gerast gleðilegt að frjálshyggju sem hugmyndafræði og flokkum sem henni hampa er hafnað hvar- vetna sem því verður við komið. Þetta sést glöggt af kosningaúr- slitum í Evrópu að undanförnu og skoðanakannanir benda til hins sama. Þó frjálshyggjan hafi þannig látið undan er oftar en ekki svo ástatt að vinstri menn hafa ekki almennilega náð vopnum. Þeir eru auðvitað sjálfir með efa- semdir um „kerfið", þeir vilja finna betri leiðir í átt til betra þjóðfélags. Slík er framvinda sögunnar. Velferðar gætt Ofstækið í hægri mönnum hef- ur verið slíkt að vinstri menn hafa oft talið sig vera nauyðbeygða til að verja „allt kerfið" þó einstaka þættir þess valdi þeim að sjálf- sögðu hugarvfli og að þeir hafi efasemdir um ýmsa starfsrækslu ríkisins. Sumir hafa gengið svo langt í þessu efni, að þeir hafa sett jafnaðarmerki milli velferðar al- mennt og „kerfisins“. Guðsélof eru samt ekki margir í þeim vulg- aribus og nú má sjá mörg teikn þess að öðruvísi pólitík sé uppi meðal vinstri manna, öðruvísi andsvar við frjálshyggjunni. Þannig finnst mönnum svo dæmi sé tekið ekki lengur sjálfsagt að Bifreiðaeftirlit ríkisins sjái um skrifræðisbákn og skoðun bif- reiða í Reykjavík, ef bifreiða- verkstæði geta gert sjálf jafn vel eða betur. Það er með öðrum orðum ekki óaðskiljanlegur hluti velferðarþjóðfélags að ríkið skoði alla bfla á götum Reykja- víkur. Það er framkvæmdaatriði sem alveg eins kann að vera jafn vel innt af hendi af bifreiðaverk- stæðum einsog eftirliti ríkisins. Gagnrýni á kerfið jafngildir að sjálfsögðu ekki aðför að vel- ferð-arþjóðfélaginu, — og hvern- ig í ósköpunum á kerfið að geta verið almennilegt ef það fær ekki aðhald og gagnrýni? Ný teikn Efasemdir á vinstri vængnum um skriffinnsku ríkisvaldsins og útþenslu kerfisins hafa ekki notið sín vegna ofstopans í frjálshyg- gjunni, einsog áður sagði. En á siðustu árum hafa gildi þjónustu rikisvaldsins og innihald kerfisins verið mjög til umræðu meðal vinstri manna. Gott dæmi um slíkar vanga- veltur sem hafa ekki notið sín m.a. vegna einkaskólaendaleysu Sjálfstæðisflokksins er umræðan um skólamálin. Kári Arnþórsson skólastjóri vitnar í DV-kjallara- grein í gær í Wolfgang Edelstein, sem spyr hvers vegna skólakerfið hafi setið eftir í þjóðfélagsb- reytinghum hér á landi. Hvers vegna ekki séu gerðar háleitari kröfur til skólanna, menntunar kennara, námsgagna osfrv. Kári minnir á, að þeir foreldrar sem nú eiga börn í skólum séu um þrít- ugsaldur og þar yfir. Þegar þessir foreldrar voru að alast upp var vitundarheimur barna án sjál- fsagðar hluta í núverandi um- hverfi: sjónvarps, vídeós, hljóm- flutningstækja, tölva og margs fleira. Þá þurfti ekki vinnuafl tveggja til að framfleyta fjöl- sky ldu, — það er breytt fj ölsky ld- umunstur, breyttir atvinnuhættir og þvíumlíkt. Kallar á öðruvísi skóla, meiri menntun osfrv. Klippari telur að umræðu af þess- um toga feli í sér vísi að því sem koma skal. Heilsuverndin Nú eru frjálshyggjugaukarnir að koma af stað einkarekstri í heilbrigðiskerfinu. Nú hefur ekki svo mikið sem einn maður lagt fram einhverjar tölur um að einkareksturinn feli í sér ein- hvern sparnað. Hann sparar heldur ekki krónu. Þetta er dæmi um hið gagnstæða: tilraun til að- farar að velferðarþjóðfélaginu. Forsenda þess er að allir hafa sama rétt og félagslegt öryggi til að fá bestu fáanlegu læknisaðstoð sem er fyrir hendi. Með einka- rekstrin-um er verið að hygla hin- um efnaðri — að sjálfsögðu á kostnað hinna efnaminni. Það breyttir því hins vegar ekki, að heilbrigðiskerfið er víða illa rekið og óhagkvæmt og því á að breyta. Og á hinn þáttinn ber að leggja mun meiri áherslu, einnig í sparnaðarskyni: heilsu- vernd. —óg DJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis og verkalýöshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphóöinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Öskar Guðmundsson. Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla- son, MörðurÁrnason, Páll Valsson, Sigríður Pótursdóttir, SævarGuð- björnsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson. Ljóamyndlr: Einar Ólason, Valdís Oskarsdóttír. Útlit og hönnun: Filip Franksson, Svava Sigursveinsdóttir. Handrita- og prófarkaleatur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Utbreiðslu8tjórl: Sigríður Pótursdóttir. Auglýslnga8tjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Clausen. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgrelðsla: Bára Sigurðardóttit, Kristín Pótursdóttir. Símavarsla: Jenny Borgedóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Husmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Bflstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Utkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Olga Verö * lausasölu: 35 kr. Sunnudagsverð: 40 kr. Áskrlftarverð á mánuði: 400 kr. Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 18. september 1985

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.