Þjóðviljinn - 27.09.1985, Side 15
ÍÞRÓTTIR
Handbolti
Völsungar
öflugir?
Völsungar frá Húsavík senda
lið til keppni á íslandsmótinu í
handknattleik í vetur - i fyrsta
sinn í tíu ár. Þeir gætu átt eftir að
koma á óvart en í liði þeirra eru
tveir fyrrverandi landsliðsmenn,
Pálmi Pálmason og Arnar Guð-
laugsson, sem lengi léku með
Fram í 1. deildinni. Völsungar
leika heimaleiki sína í vetur í hinu
glæsilega íþróttahúsi að Laugum
- 12 leiki, því 3. deildin skiptist
ekki í riðla að þessu sinni heidur
leika liðin 13 öll í einni deild sem
þýðir 24 leikir á lið!
Fyrsta umferð deildarinnar
verður leikin um helgina. í kvöld
mætast Týr-ÍA, Völsungur-Þór
Ak. og Reynir S.-Fylkir. A morg-
un leika síðan ÍH-Skallagrímur,
Ögri-ÍBK og Njarðvík-
Hveragerði. Selfyssingar sitja hjá
í fyrstu umferð.
-VS
Júdó
Japani
vann
95 kg
flokk
Hitoshi Sugai frá Japan sigraði
Ha Hyung-Joo í æsispennandi
úrslitaglímu í 95 kg flokki á
heimsmeistaramótinu í júdó sem
hófst í Seoul í Suður-Kóreu í gær.
Gunther Neureuther frá
V.Þýskalandi og Robert Van Der
Walle frá Belgíu deildu með sér
bronsinu.
Bjarni Friðriksson var meðal
keppenda en komst ekki í undan-
úrslit.
-VS/Reuter
Marita Koch er sigurstrangleg í
200 m hlaupinu á heimsleikun-
um.
Frjálsar
Sterkt lið
Austur-
Þjóðverja
Austur-Þjóðverjar hafa til-
kynnt lið sitt fyrir Heims-
leikana í frjálsum íþróttum
sem fram fara í Ástralíu i
næsta mánuði. Það er geysi-
sterkt einsog við var að búast,
margir heimsmethafar og
heimsmeistarar, á meðan t.d.
Evrópuúrvalið verður án fjöl-
margra af sterkustu frjáls-
íþróttamönnum heims.
í liði A. Þjóðverja eru m.a.
heimsmethafarnir Sabine
Busch (400 m grindahlaup),
Heike Drechsler (langstökk),
Petra Felke (spjótkast), Uwe
Hohn (spjótkast) og Ulf Tim-
mermann (kúluvarp). Þá eru
heimsmeistararnir í sprett-
hlaupum, Marlies Göhr (100
m) og Marita Koch (200 m)
einnig í liðinu.
Búast má við að Sovétmenn
og Bandaríkjamenn verði
einnig með sín sterkustu lið og
þessi þrjú stórveldi í frjálsum
íþróttum berjast örugglega
um sigurinn.
-VS/Reuter
Knattspyrna
Knattspyrna
Staðfest með Mexíkó
Guillermo Canedo, forseti
skipulagsnefndar heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu, stað-
festi í gær að keppnin færi fram á
tilsettum tíma í Mexíkó á næsta
ári þrátt fyrir hina hrikalegu
jarðskjálfta þar í síðustu viku.
Hann er nýkominn af fundi hjá
Alþjóða Knattspyrnusamband-
inu FIFA í Zúrich og sagði að
FIFA hefði lagt blessun sína yfir
þessa ákvörðun. Skipuleggjend-
ur keppninnar voru fljótir að til-
Guðrún líka
til Giugliano
Tvær íslenskar stúlkur, Bryn-
dís Valsdóttir og Guðrún Sæ-
mundsdóttir, leika í vetur með
ítalska 1. deildarfélaginu Giugli-
ano frá Napolí.
Bryndís lék með liðinu á síð-
asta keppnistímabili og gekk vel.
Körfubolti
Njarðvík
meistari
íslandsmeistarar Njarðvíkinga
sigruðu bikarmeistara Hauka 66-
59 í úrslitaleik Reykjanessmóts-
ins í körfuknattleik í gærkvöldi.
Staðan í hálfleik var 41-34 Hauk-
um í vil. ívar Webster skoraði 31
stig fyrir Hauka en Valur Ingi-
mundarson 14 fyrir Njarðvík.
Njarðvík fékk því 10 stig, Haukar
8, Keflavík 6, Grindavík 4,
Breiðablik 2 og Reynir ekkert.
Kristín Briem, sem er úr Val eins
og hinar tvær, var einnig hjá fé-
laginu en fékk lítið að leika og er
hætt. Guðrún var einn af máttar-
stólpum Valsliðsins sl. sumar og
mikið áfall fyrir það að missa
hana. Giugliano var í fallbaráttu
á síðasta keppnistímabili en tókst
naumlega að halda sæti sínu í 1.
deildinni. -VS
Guðrún Sæmundsdóttir.
Knattspyrna
kynna eftir skjálftana að engir
vallanna 12 sem nota á næsta
sumar hefðu orðið fyrir skemmd-
um og fréttamenn hafa staðfest
það.
-VS/Reuter
Rushí
leikbann
Ian Rush, markamaskínan frá
Liverpool, var í gær dæmdur í
eins leiks keppnisbann með
velska landsliðinu af Alþjóða
knattspyrnusambandinu. Hann
var bókaður í báðum leikjum
Wales og Skotlands í undan-
keppni HM.
En FIFA staðfesti jafnframt að
þar sem Wales hefði lokið
leikjum sínum í undankeppni
HM geti Rush tekið út bannið í
næsta vináttulandsleik. Það verð-
ur líklega gegn Ungverjum eftir
þrjár vikur. -VS/Reuter
Franz „Keisari" Beckenbauer
virðist eiga vísa atvinnu næstu
þrjú árin.
V. Þýskaland
Becken-
bauer
áfram
Samningur vestur-þýska
knattspyrnusambandsins við
Franz Beckenbauer landsliðs-
einvald hefur verið fram-
lengdur til ársins 1988.
Gengið var frá þessu strax
eftir jafntefli Svía og Vestur-
Þjóðverja í fyrrakvöld en með
því tryggðu Vestur-Þjóðverj-
ar sér sæti í lokakeppni HM í
Mexíkó á næsta ári.
Beckenbauer stýrir því
landsliðinu í úrslitum Evrópu-
keppninnar sem fram fer í
Vestur-Þýskalandi 1988, að
öllu óbreyttu, en hann hefur
gefið í skyn að lengur vilji
hann alls ekki lengur starfa.
Hermann Neuberger, for
maður vestur-þýska knatt-
spyrnusambandsins, sagði að í
raun hefði verið búið að ganga
svo frá málum að Beckenbau-
er yrði áfram með landsliðið
en beðið hefði verið eftir því
að sæti í Mexíkó væri tryggt
áður en þetta yrði gert form-
lega.
-VS/Reuter
Körfubolti
lan Rush sleppur vel
út í vlnáttulandsleik!
■ tekur bannið
Haukakaninn kemur
Æfir með Haukumfyrir Evrópuleikina
Handbolti
Stadan
i 1. deild karla í handknattleik eftir
leikina í fyrrakvöld:
Vikingur...........2 2 0 0 54-29 4
Valur..............2 2 0 0 48-41 4
Stjarnan...........2 1 1 0 39-36 3
FH.................2 1 0 1 51-50 2
KR.................1 0 1 0 18-18 1
Fram...............2 0 0 2 38-46 0
KA.................1 0 0 1 14-23 0
Þróttur............2 0 0 2 42-61 0
Markahæstir:
ValdimarGrímsson, Val...........22
Þorgils Óttar Mathiesen FH......16
Konráð Jónsson, Þrótti..........14
HermundurSigmundsson, Stjörnunni ...12
SteinarBirgisson, Víkingi....12
Fjórir leikir verða leiknir í 1.
deild um helgina. FH og KR leika
í Hafnarfirði kl. 14 á morgun,
iaugardag, og á sama tíma hefst
leikur Þróttar og KA í Seljaskóla.
Kl. 15.15 mætast síðan þar Vík-
ingur og Fram. Á sunnudag lcika
Stjarnan og KA kl. 14 í Digranesi.
Stjaman sterkari
en KR náði jöfnu
Leikur KR og Stjörnunnar í
fyrrakvöld einkenndist af hörku-
baráttu frá upphafi til enda,
leikið fast og stundum gróft.
Stjarnan virkaði sterkari og hafði
ávallt frumkvæðið, þar til á loka-
mínútunum að liðið missti niður
þriggja marka forskot. Ólafur
Lárusson jafnaði fyrir KR, 18-18,
þegar hálf önnur mínúta var eftir
- Stjarnan missti boltann en
Brynjar Kvaran varði skot KR-
inga þegar 40 sek. voru eftir og
síðan fjaraði leikurinn út í auka-
köstum.
KR-liðið var jafnt, Haukur
Geirmundsson sterkur í horninu
og skoraði mörk sín af öryggi, og
Ragnar var einnig góður. Línu-
spilið er gott og gaf af sér 7 mörk.
Stjörnuliðið er alger andstæða -
mesta stórskyttulið 1. deildarinn-
ar í dag. Allt byggist upp á Her-
mundi, Gylfa og Hannesi
Leifssyni, en línuspil er árangurs-
lítið. Gylfi var jafnsterkastur
Garðbæinga, í sókn og vörn.
-gsm
Seljaskóla 25. sept.
KR-Stjarnan 18-18 (6-8)
2-2, 3-5, 6-8 - 10-11, 13-17, 15-18,
18-18.
Mörk KR: Haukur Geirmundsson 5,
Ragnar Hermannsson 4, Ólafur Lár-
usson 4, Jóhannes Stefánsson 3(1),
Bjarni Ólafsson 1 og Björn Pétursson
1.
Mörk Stjörnunnar: Hermundur
Sigmundsson 7(3v), Gylfi Birgisson 5,
Einar Einarsson 2, Sigurjón Guð-
mundsson 2, Skúli Gunnsteinsson 2.
Dómarar: Rögnvaldur Eriingsson
og Gunnar Kjartansson - frekar slakir.
Maður leiksins: Gylfi Birgisson,
Stjörnunni.
Bandaríkjamaðurinn Mike
Schieb er væntanlegur hingað til
lands nú um helgina til æfinga
með Haukunum fyrir Evrópu-
keppni bikarhafa í körfuknatt-
leik.
Schieb fékk mjög góð með-
mæli frá Jim Dooley, fyrrum
þjálfara ÍR, sem tók að sér að
finna góðan mann fyrir Hauka.
Að hans mati er Schieb sennilega
besti körfuknattleiksmaður sem
gengið hefur til liðs við íslenskt
lið.
Haukar mæta Táby Basket frá
Svíþjóð annan laugardag, 5. okt-
óber, í Hafnarfirði en síðari
leikur liðanna fer fram í Svíþjóð
viku síðar. Með Táby leikur m.a.
Bandaríkjamaðurinn Larry Ro-
binson sem nú er sænskur ríkis-
borgari. Hann var á sínum tíma
til reynslu hjá bandarískum
NB A-liðum og hefur verið valinn
besti leikmaður sænsku úrvals-
deildarinnar. Annar Bandaríkja-
maður, John Curley, leikur líka
með liðinu, sem og sænski lands-
liðsbakvörðurinn Petter Oscars-
son.
-VS
Körfubolti
Úrslit á morgun
Valur burstaði ÍS 102-41 og KR Staöan i karlaflokkl:
vann ÍR 72-65 í fjórðu og valur..............3 3 0 249-154 6
næstsíðustu umferð Reykjavík- KR.................3 3 0 227-173 6
urmótsins í körfuknattleik á [^am...............^ ] \ 207-198 2
þriðjudagskvöldið. KR og Valur (s4 0 4 193-367 0
eru efst og jöfn og leika úrslitaleik
mótsins í Hagaskólanum kl. 14 á
morgun, laugardag. Á eftir leika Stigahæstir:
Fram og ÍR um þriðja sætið en kl. Garðar Jóhannsson, KR........48
17 hefst urslitaleikur KR og ÍR 1 símon Ólafsson, Fram........44
kvennaflokki. Bæði lið sigruðu Sturlaóriygsson, Val............41
ÍS. -VS
Föstudagur 27. september 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15