Þjóðviljinn - 13.10.1985, Qupperneq 18
KROSSGÁTA
Nr. 488
7— il 5 ¥ 5~ á? 7- £ f <2 9 /o 11 /2
TT )¥ /ÍT /2 /<~ ]? <2 /2 )? /2 2 lSK jsr* 0
/¥ n /9 T }l J? 2 20 8 ¥ // 18 21 1? U>
Z M S' 22 /8 <2 ¥ 28 20 /2 y 2 1? 2¥ 17
25~ 2 /1 y 8 Z¥ H ¥ 9 /2 Ý 18 <2 5-
20 ? <7 27 2 /2 2¥ /2 II 2¥ /2 25T 52
izr /8 £/ 12 l<7 4 /9 l¥ /8 w~ 2 27 7
// 2/ 10 (vj 2 9 /9 /2 4 )2 9 /9
<2 / 10 7- 7 V )¥ 5 <2 n 52 s )¥ ¥ 28
z /2 7 /¥ 8 <2 /íf /2 / é7 17 r ¥ % 2
3/ S <2 2 /¥ 2¥ ¥ )? V 28 12 8o 12
)/ 1$ 5" 21 20 <y 2 )¥ 2¥ 2¥ w 17- <2 17 10
/9 $2 C? 9 n 5 <2 ¥ V )¥ /(? 8 <2 l¥
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn
á þorpi norðanlands. Sendið þetta nafn sem lausn á
krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt:
„Krossgáta nr. 488“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin
verða send til vinningshafa.
7 5 21 /7 28 22 /8
Stafirnir mynda íslenskt orö eöa mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem
lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru
gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að
setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er
rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á
grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á og öfugt.
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Fyrir rétta lausn á
krossgátu nr. 488 er í verð-
laun bók Björns L. Jóns-
sonar „íslenskar
lækninga- og drykkjarjurt-
ir“ sem Náttúrulækninga-
félagið gaf út.
Verðlaun fyrir krossgátu
nr. 485 hlaut Birna Þor-
björnsdóttir Hvamms-
tangabraut 20, Hvamms-
tanga. Hún færsenda hina
glæsilegu bók Maðurinn,
líkaminn í máli og rnynd-
um frá Erni og Örlygi.
Lausnarorðið var SNÆ-
BJÖRG.
ISLENSKAR
LÆKNINGA- OG
DRYKKJARJURTIR
M 1m
..
m * Su
SKAK
BRIDGE
Glœsiskák hjá Helga
Ný bók í vinsælasta bókaflokki
skákmanna er nýkomin út. Þetta er
Informator númer 39. Hann inniheld-
ur að þessu sinni 750 skákir sem hafa
verið tefldar á alþjóðlegum skák-
mótum á fyrri helming ársins 1985.
Einnig er í honum alþjóðlegi stigalist-
inn og síðast en ekki síst er í honum
dómar yfir best tefldu skákir og bestu
nýjungarnar á seinni hluta síðasta
árs.
Til þess að dæma um það fær rit-
stjórn Informatorsins til liðs við sig
ýmsa fræga og virta skákmeistara.
Meðal þeirra sem dæmdu í ár eru
frægastir Mihail Botvinnik og Vasilij
Smyslov báðir fyrrverandi heims-
meistarar.Valið fer þannig fram að rit-
stjórn Informatorsins velur þær þrjá -
tíu skákir sem þeim þykir koma t:l
greina sem best tefldu skákirnar og
síðan gefa skákmeistararnir þeim tíu
skákum sem þeim finnast bestar stig.
Að þessu sinni fékk Helgi Ólafsson
þann heíður að komast með skák sem
hann tefldi við Hort á meðal þessara
þrjátíu útvöldu skáka einsog Þjóðvilj-
inn greindi frá í gær. Þessi skák Ienti
síðan í 20.-22. sæti eftir að talin höfðu
verið saman stigin sem skákmeistar-
arnir gáfu skákunum. Þeir sem gáfu
skákinni hans Helga stig voru hinn
kunni skákdómari Lothar Schmid
sem taldi hana níundu bestu skákina
og Mikhail Botvinnik sem taldi hana
þá tíundu bestu. Botvinnik er lang
virtastur þeirra sem dæmdu skákirnar
og er því einkunnin sem hann gaf
skákinni mikil sæmd fyrir Helga.
Annars voru eftirfarandi fjórar
skákir í efstu sætunum.
1. Karpov-Kasparov (27. skákin)
1-0 58 stig.
2. Dzindzichashvili - Beljavskí 1-0
53 stig.
3. Speelman- Uhlmann 0-148 stig.
4. Kasparov - Karpov (48. skák'nl
1-0 41 stig.
Besta nýjungin var síðan valin nýj-
ung Adorjans í Keresar árásinni
gegn Sznapik.
En hérna kemur svo hin umtalaða
skák Helga gegn Hort. f skýringunum
styðst ég við skýringar Helga í Infor-
mator 38 og vona ég að hann fyrirgefi
mér það.
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: Vlastimil Hort
Móttekið Drottningarbragð.
Riddari b4 hefur gefið betri raun
upp á síðkastið.
8. bxc3 Dd5
9. g3 Bb7
10. Bg2 Dd7
Hvítur hótaði að vinna mann með
Rh4.
11. Ba3
Árið 1978 lék Kavalek hér Rh4 á
móti Miles og fékk mun betra tafl. En
þó að þessum Rh4 leik hafi síðan ver-
17. eó!
Rífur upp svörtu stöðuna.
17. - fxeó
Ef 17. - Dd5 þá 18. exf7+ Kd7 19.
Dg4+ og vinnur.
18. Kxg2 Dd5+
19. Df3 Dxf3+
20. Kxf3 Hd5
21. Rxeó Kd7
22. He2 Bh6
20. Kxf3 Hd5
ið marg hampað í hinum ýmsu byrj-
unarbókum hefur Ba3 verið leikið í
öilum þeim skákum sem ég hef séð
með þessu afbrigði.
11. - Bd5
12. 0-0 Rc6
13. Hel g6
14. Bc5
1. Rf3 d5
2. d4 Rf6
3. c4 dxc4
4. Ra a6
5. e4 b5
6. e5 Rd5
7. a4 Rxc3
Þessa stöðu hlýtur Helgi að hafa
reiknað með að fá upp því Hort hafði
teflt áður skák þar sem þessi staða
kom upp.
14. - Hd8
Nýr leikur. Áður hafði verið leikið
Hb8 með slælegum árangri.
15. axb5 axb5
16. Rg5 Bxg2
H Jl H
±#± ± ±
4 ±
±A t &
4 ±i
t t
tJLt
s <s?
Ef svartur leikur Re5+ þá á hvítur
bráðsnjallt framhald í pokahorninu.
23. Hxe5 Hxe5 27. dxe5 Kxe6 25.
Ke4! Bg7 26. Ha6+ Kf7 27. e6+ og
vinnur.
23. Hael Ha8
24. g4 Bg5?!
Klunnalegur leikur. Eina von
svarts til að halda lífi var framrás á
drottningarvæng. 24. - b4 25. cxb4 c3
26. g5 (b5? Re5 + !) Bxg5 27. Rxg5
Hxg5 28. Ke4 Hb8 með jafnri stöðu.
25. Rxg5 Hxg5
26. Bxe7 Hd5
27. Bc5 b4
Nú kemur þessi leikur of seint.
28. Ke4! Hg5
29. cxb4 Hxg4+
30. Kd5!
Með hugmyndinni að leika b5.
Gegn þessari áætlun á svartur aðeins
eitt svar.
30. - Hb8
31. Kxc4 Hxd4+
32. Bxd4 Hxb4+
33. Kc5 Hxd4
34. He7+ Rxe7
35. Kxd4 Kd4
36. Ke4 Ke6
37. He3 c6
38. Hh3 h5
Hort var orðinn tímanaumur þegar
hér var komið við sögu og tók ekki
eftir Rg8 sem valdar peðið á h7
óbeint. Sá leikur hefði þó ekki bjarg-
að skákinni.
39. Kd4 h4
40. Ke4 g5
41. f4 Kf6
42. fxg5 Kxg5
43. Hc3 Kg4
44. h3+ Kg5
45. Hc5+ Kf6
46. Kf4 Rg6+
47. Kg4 Re5+
48. Kxh4 Kf5
49. Kg3 Ke4
50. h4 Kf5
51. h5 Kf6
52. Kh4 Rf3+
53. Kg4 Re5+
54. Hxe5!
Laglegur lokahnykkur. 54. - Kxe5
er svarað með Kg5 og hvíta peðið
verður á undan upp á borð. Hort kaus
því að leggja niður vopnin.
Spilagleði á Húsavik
Samvinnuferðir/Landsýn í sam-
vinnu við Bridgesamband íslands,
hafa í hyggju að hrinda af stað keðju-
mótum í Bridge á Húsavík, með sam-
hangandi sniði (Philip Morris-
fyrirkomulag).
Ætlunineraðhaldaþrjú opinstór-
mót á Húsavík, með glæsilegustu
verðlaunum sem veitt hafa verið í bri-
dgekeppnum hér á landi (og þótt
víðar væri leitað).
Fyrsta opna mótið verður helgina
9.-10. nóvember. Annað opnamótið
verður helgtna 7.-8. desember og
þriðja mótið verður helgina 15.-16.
febrúar ’86. Ætlunin er að öll þessi
mót gefi ákveðin stig, þannig að
keppt verður um endanleg heildar-
verðlaun (samanlögð stig úr þremur
mótunum) auk glæsilegra verðlauna
fyrir hvert einstakt mót.
Bridgesamband íslands mun
standa að öllum undirbúningi, í sam-
vinnu við nörðanmenn og Samvinnu-
ferðir/Landsýn. Flugleiðir munu
koma til móts við allt keppnisfólk og
bjóða helmingsafslátt af fargjöldum,
auk þess sem boðinn verður út sér-
stakur hótelpakki fyrir þátttakendur.
Reynt verður að hafa allt sem ódýr-
ast, þannig að allir eiga að geta verið
með, kostnaðarlega séð.
Væntanlegir keppendur geta látið
skrá sig hjá Bridgesambandi fslands
og öllum spilafélögum norðan heiða.
Skráningu lýkur miðvikudaginn 6.
nóvember, en spilað verður eftir
Mitchell-tölvufyrirkomulagi, þannig
að í raun verða mótin opin fram á
síðasta dag, því ekki skiptir máli í
Mitchell-keppni, hvort 10 pör eða 100
pör keppa.
Stjórnandi verður Ólafur Lárusson
en Vigfús Pálsson mun annast tölvu-
útreikning í báðum mótunum fyrir
áramót. Spilað verður um gullstig í
þessum mótum. Nánar síðar.
Frá Bridpe-
sambandi Islands
íslandsmót kvenna í tvímennings-
keppni verður haldið um næstu helgi
(laugardag og sunnudag) í Gerðu-
bergi í Breiðholti. Spilamennska
hefst kl. 13 báða dagana.
Sl. þriðjudag voru 15 pör skráð til
leiks í kvennamótið, sem er afar
dræm þátttaka, vægast sagt.
Spilað verður eftir Baromet-
er-fyrirsamkomulagi, allir v/alla og 4-
5 spil milli para (fer eftir endanlegri
þátttöku).
íslandsmótið í parakeppni
(blönduðum flokki) verður haldið í
Gerðubergi um aðra helgi. Þar eru
þegar skráð til leiks 12 pör, en frestur
til að tilkynna þátttöku í það mót
rennur út miðvikudaginn 16. október
n.k. Spilaður verður Barometer einn-
ig í þessu móti.
Síðasta ár voru yfir 20 pör í báðum
þessum mótum. Keppnisstjóri verður
Agnar Jörgensson.
Athygli er vakin á því, að spilað er
um guilstig í báðum þessum mótum,
sem og í öllum mótum á vegum
Bridgesambands fslands.
Frá Skagfirðingum
Reykjavfk
Allt að 6 pör geta blandað sér í
toppbaráttuna hjá Skagfirðingum í
Barometer-keppninni síðasta kvöld-
ið. Aðeins er ólokið 5 umferðum (20
spilum) og er staða efstu para þessi:
. , stig
1. Armann J. Lárusson -
Jón Þ. Hilmarsson 211
2. Baldur Árnason -
Sveinn Sigurgeirsson 207
3. Steingrímur Steingrímsson -
Örn Scheving 188
ÓLAFUR
LÁRUSSON
4. Guðrún Hinriksdóttir -
HaukurHannesson 167
5. Guðrún Jörgensen -
ÞorsteinnKristjánsson 152
6. Guðmundur Áronsson -
SigurðurÁmundason 146
7. Bernódus Kristins -
Birgir Jónsson 115
8. Guðni Kolbeinsson -
MagnúsTorfason 82
9. Sigmar Jónsson -
Vilhjálmur Einarsson 73
Annan þriðjudag hefst svo aðal-
sveitakeppni félagsins. Efstu sveitir
úr þeirri keppni fá rétt til þátttöku í
heimsókn félagsins til Sauðárkróks á
sæluviku á næsta ári. Ólafur Lár. og
Sigmar sjá um skráningu.
Einnig er vakin athygli á því, að
almennur félagsfundur verður hald-
inn að lokinni spilamennsku næsta
þriðjudag. Þar verða afhent verðlaun
fyrir allt síðasta keppnisár, auk yfir-
standandi keppni.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. október 1985