Þjóðviljinn - 13.10.1985, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 13.10.1985, Blaðsíða 4
Góðir dagar Fœreyinga Árni Bergmann rœðir við Erlend Patursson um sigra og ósigra í fœreyskri sjólfstœðisbaróttu „Allir höfum við beðið okkar ósigra, en þegar horft er til baka get ég nefnt nokkra merkisdaga, sem ég er ánægður með - á þeim dögum hafa gerst tíðindi sem hafa skilað okkur Færeying- um áleiðis til meiri réttinda og sjálfstæðis, áfangasigrar sem hægt er að byggja á í framtíð- inni.“ Svo mælti Erlendur Patursson í viðtali við Þjóðviljann á dögun- um, en þessi ágæti forystumaður í færeyskri sjálfstæðisbaráttu um áratugi hélt hér erindi um réttar- stöðu Færeyja í Norræna húsinu um sl. helgi og var á leið til Vest- fjarða og ætlaði þar að ræða við menn um samstarf þriggja eyþjóða, Færeyinga, íslendinga og Grænlendinga sem er nú að taka á sig áþreifanlegt form. Þjóðviljamaður hafði spurt Er- lend hvað honum fyndist að Fær- eyingum hefði vel tekist á þeim tíma sem liðinn er frá því hann * sjálfur hóf afskipti af stjórnmálum og hvað það er sem vonbrigðum veldur. Þjóðar- atkvœði „Ég nefni fyrst til þann merkis- dag 14. september 1946. Þá var efnt til þjóðarátkvæðagreiðslu og okkur stóð til boða áframhald- andi samband við Danmörku eða að við gerðumst sjálfstæð þjóð. Danskir ráðamenn og færeyskir sambandssinnar töldu víst að við kysum að halda sambandinu áfram, en svo fór að okkur tókst að vinna þessa þjóðaratkvæða- greiðslu. í fyrsta skipti sem Fær- eyingar fengu tækifæri á að taka afstöðu í sínu stjórnskipunarmáli höfnuðu þeir sambandinu við Danmörku. Nú fór þetta á annan veg en við vonuðum eftir þá „Tíu daga sem hrelldu dani“ svo ég vitni í hlið- stæðu við bókina frægu eftir John Reed, „Tíu dagar sem skóku heiminn". Danska stjórnin leysti upp Lögþing Færeyja og efndi til nýrra kosninga. En það sem gerst hafði var ekki gleymt - Færeying- ar hafa aldrei samþykkt að vera í þessu sambandi við Danmörku og þetta er grundvöllurinn að þeirri sjálfstæðisbaráttu sem síð- an hefur verið háð. Sjómenn og landhelgin Næsti merkisdagur er 25. apríl 1954, en þá var ég formaður í Fiskimannafélaginu. Þetta var eymdartími fyrir færeyska sjó- menn, kjör þeirra og staða hin verstu. Við fórum í verkfall og það var reynt að brjóta það á bak aftur. Þá lá á ytri höfninni í Þórs- höfn togarinn Vesturskin með verkfallsbrjóta um borð og var á leið til veiða. Við verkfallsmenn tókum togarann og stöðvuðum hann og upp úr þessu vannst verkfallið. Með þeim sigri höfðu færeyskir sjómenn stórbætt stöðu sína, þeir voru orðnir það afl sem menn urðu að taka tillit til, hvort þeim líkaði betur eða verr. Þriðji dagurinn er 12. mars 1964. Við í Þjóðveldisflokknum og Fiskimannafélaginu höfðum allar götur frá 1952 barist fyrir stækkun landhelginnar og fyrir því að losna við samninginn um þau mál sem danir gerðu við Breta 1901 og þið íslendingar kannist vel við. Og eftir tólf ára baráttu losnuðum við við þann samning 1964 og fengum tólf mflna landhelgi, þótt danska stjórnin, sem hafði ákvörðunar- valdið og svo margir færeyingar væru lítt hrifnir af útfærslu - m.a. vegna svartsýni á færeysk heimamið. (Þegar verst gegndi fyrir stríð veiddum við aðeins 1-2 þúsund tonn við Færeyjar sjálfar, en nú veiðum við þar 140 þúsund tonn á ári af botnfiski). Þessi útfærsla var svo fyrir- rennari útfærslunnar 1977. Nú höfum við 200 mflna fiskveiðilög- sögu, þetta litla land með rúm- Erlendur: Það er hægt að halda þjóð niðri með vopnum eða þá peningum ... (Ijósm.: e.ól.). lega 40 þúsund íbúa hefur nú 275 þúsund ferkflómetra stórt svæði og fiskauðugt til að athafna sig á. Sem minnir á það, að færeyingar eru með ríkustu þjóðum að því er náttúruauðlindir varðar. Og er ég þá ekki að tala um olíuna sem við vitum lítið um enn, en gæti vel verið innan seilingar, Fjórði dagurinn er svo 8. maí 1983 þegar Norræna húsið í Þórs- höfn var opnað ... (Hér má skjóta því að, að okk- ur á Þjv. er kunnugt um að í því efni hafði Erlendur frumkvæði og má reyndar segja um flest af því sem hér ber á góma - en sj álfur er hann ekkert að taka það fram sér- staklega). Þrjór eyþjóðir „Og svo“, hélt Erlendur áfram, „mætti bæta við alveg spánýjum degi, 24. september í ár, þegar stofnað var í Nuuk á Grænlandi vest-norrænt þing- mannaráð tilað efla samvinnu milli Færeyinga, íslendinga og grænlendinga. Þessu máli var fyrst hreyft 1961 í sambandi við hálfrar aldar af- mæli Fiskimannafélagsins. Þá komu til Þórshafnar ágætir gestir frá íslandi, Hannibal Valdimars- sonogEðvarðSigurðsson, norð- maður var og mættur til leiks og voná grænlendingum. Þeirkom- ust alla leið til Kaupmannahafnar en þar voru þeir kyrrsettir, því dönum fannst ekki ráðlegt að þeir færu til Færeyja og allra síst til að heimsækja Érlend Paturs- son. Þá var reyndar aðeins talað um samvinnu á sviði fiskveiða. En mér líst vel á þetta samstarf — við þessar smáu þjóðir á tak- mörkum hins byggilega heims, eigum svo margt sameiginlegt, sérstaklega þurfum við á að halda góðu samstarfi um nýtingu nátt- úruauðlinda okkar. Við erum með þessu samstarfi ekki að keppa við Norðurlandaráð — við erum öllu heldur einskonar við- bætir viö það. Þær þjóðir sem nú er stundum farið að kalla Megin- landsnorðurlönd, þær eru okkur vissulega góðviljaðar, eins og m.a. kemur fram í þeim Norrænu húsum sem risin eru í Reykjavík og Þórshöfn, en þær munu seint skilja okkur og okkar sérmál til fulls, því sá er eldurinn heitastur er á sjálfum brennur. Auðlinda- mólið Nú er ég að bíða eftir einum 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. október 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.