Þjóðviljinn - 31.10.1985, Síða 9

Þjóðviljinn - 31.10.1985, Síða 9
Bílgreinasambandið sendi ný- lega frá sér bækling með tölu- legum upplýsingum um stöðu og þróun bílgreinarinnar hér á landi síðustu ár. Helstu heimildir þessa bæklings eru opinberar skýrslur, þ.e. Bifreiðaskýrslur og Hagtíð- indi sem Hagstofan gefur út og atvinnuvegaskýrslur Þjóðhags- stofnunar. 110.000 bílar Þjóðviljinn hafði samband við formann Bílgreinasambandsins, Þóri Jenssen og ræddi við hann um þessa skýrslu og ýmislegt sem tengist bílgreininni á íslandi. Þór- afturkippur, þá er gengið fellt. Talan yfir innflutta bíla fer úr rúmlega 10.000 árið ’82, niður í tæplega sex þúsund árið ’83. Nú í fyrra jókst innflutningurinn, fór upp í rúmlega 8.000 bíla. Við bjuggumst nú ekki við svo mikilli aukningu en hún varð vegna þess að það var flutt inn meira af litl- um og ódýrari bílategundum'-. Það má nefna annað í þessari skýrslu sem hinn háa meðalaldur bfla hér á landi, hann er yfirleitt upp undir 14 ár frá árinu 1970. Það held ég að sé vegna þess að við skattleggjum bílanna svo hátt. Það má sjá það á einni töfl- unni að tekjur af bflum eru u.þ.b. 20% af tekjum ríkissjóðs". - Það kemur fram hér íþessum skýrslum að meðalfjöldi árs- Þórir Jenssen, formaður Bílgreinasambandsins. Bílainnflutningur hefur dregist saman í ár 2861 fólksbifreiðar seldust á tímabilinujanúar tiljúnííáren 4177á sama tíma ífyrra. Bílgreinasambandið vill færa bílskoðun að hluta út til verkstæðanna. Slíkt hefur verið reynt víða á Norðurlandi og gefist vel. Svört atvinnustarfsemi mikil íbílgreininni. ir var fyrst spurður hvað honum fyndist einna merkilegasta at- riðið í þessari skýrslu. „Merkilegasta atriðið er það hversu mikil og almenn bflaeign er ílandinu. Fjöldi skráðra bílaer nú u.þ.b. 110.000. En þetta á sér auðvitað sínar skýringar. Við búum í stóru landi, erum fá og almenningssamgöngur eru dýrar fyrir fáa aðila sem búa dreift. Við erum, að ég held, með 2.12 per- sónur á bíl og það er held ég sama hlutfall og á Nýja-Sjálandi, enda eru þeir fáir og búa í stóru landi. Nú, svo er það annað sem hér kemur fram og það er það að bílainnflutningur og allt sem bíl- linn þarf og umferðin greiða fimmtu hverja krónu sem fer í ríkiskassann. Þetta eru að mínu áliti aðalatriðin í þessari skýrslu“. - Nú hefur bílaintiflutningur dregist saman á þessu ári. „Já, við bjuggumst reyndar við því að hann myndi aukast frá 1984 en svo hefur ekki orðið. Ástæðan er auðvitað sú að það hefur ekki árað það vel hjá okkur að fólk hefur ekki haft efni á að endurnýja eins og við höfðum bú- ist við. Nú taflan sýnir að árið 1974 er eiginlega stærsta bílainn- flutningsár sem komið hefur. Og næsta ár dettur salan niður. ’74 fór bflainnflutningur yfir 10.000 stykki en árið eftir fór hann niður í rúmlega 2.500 bíla. Síðan eykst innflutningurinn smátt og smátt á næstu árunt en ’82 kemur annar manna á verkstœðum fer fœkk- andi á meðanfjöldi bílaverkstœða eykst. Hver er skýringin á því? „Bílarnir eru öðruvísi upp- byggðir heldur en þeir voru. Það er ekki eins mikið af þessum gömlu hefðbundnu viðgerðum. Þetta er orðin meiri skiptivinna. Þú skiptir um bretti í dag í stað þess að vera að rétta og teygja og brasa við það eins og áður var. Vinnutilhögunin er öðruvísi en hún var“. Tækni- nýjungar - Nú segir í ályktun frá síðasta aðalfundi Bílgreinasambandsins frá því í haust að miklar tœkninýj- ungar eigi sér nú stað í bílaiðnað- inum og að nauðsynlega þurfi að efla menntun og bœta aðstöðu þeirra sem sinna þjónustu við bíl- eigendur. Hvernig viljið þið að þetta verði gert? „Já, við sjáum fram á það að iðnaðarmenn í þessari iðngrein þurfa að geta notið góðrar endur- menntunar. Þar kemur auðvitað fyrst til Iðnskólinn, hann er auðvitað musteri iðnaðarmanna. Og það er eiginlega í fáum hlutum sem hefur orðið eins ör tækniþróun og í bflaiðnaði. Nú þegar um menntun er að ræða eru það auðvitað peningar sem eru snar þáttur í því að koma slíku í kring. En ráðamenn í Iðnskólan- um hafa verið mjög jákvæðir hvað þetta varðar. Við það að koma fram breytingum. Það er nefnd starfandi sem sett var á laggirnar af faggreinum, Bíl- greinasantbandsins og skólanna. Eitt dæmi er t.d. mjög sláandi. Það er lögð mikil áhersla á það að kenna Norðurlandamálin á með- an allar fagbækur, allt það lesefni sem mennirnir þurfa að nota er á ensku. Þetta skýtur dálítið skökku við. Þannig eru margir hlutir sem verið er að reyna að lagfæra. Svo er verið að reyna að koma afgreiðslumönnum og hjólbarðaviðgerðarmönnum á koppinn lfka, þá með námskeiða- haldi eða öðru slíku. Þeir hafa ekki getað verið þess aðnjótandi að komast í slíkt því þetta er allt sérhæfð vinna. Hjól- barðaviðgerðarmaðurinn sér um einn aðal öryggisþáttinn í tengsl- um við bílinn. Þessu öllu er verið að reyna að koma saman í eina heild“. Skoðunar- stöð - Nú hafa komið upp hug- myndir um skoðunarstöð hér í Reykjavík, hvað sýnistþér um þá hugmynd? „Sú hugmynd hefur komið frant og það var tekið húsnæði á leigu en síðan þegar var farið að athuga með hönnun á slíku hús- næði kom í ljós að hönnunar- kostnaður var fyrir stuttu síðan kominn upp í einar 40 milljónir króna. Það hefur því verið hætt við þetta, að minnsta kosti í bili. Menn á okkar vegum, Bifreiða- eftirlitsins og FÍB hafa farið í skoðunarferðir um nágranna- löndin til að skoða þessa hluti en niðurstaðan hefur orðið svona stórt peningadæmi." - Nú hafa komið upp hug- myndir varðandi það að kóma bifreiðaskoðun yfir á verkstœðin. Hvað sýnist ykkur hjá Bílgreina- sambandinu um það? „J á, það er nú svo að þegar þarf að breyta einni rásinni tekur það nú dálítinn tíma. En það hefur nú verið gerð tilraun í þessa átt, tvö síðastliðin ár norður á Akureyri og á Dalvík. Þar var gerð n.k. eftirskoðun á bílum. Það eru þá verkstæði sem eru til þess hæf til til þess búin sem geta tekið bíl til skoðunar sem er búinn að fá grænan rniða. Þessi verkstæði sjái þá um að lagfæra það sem bif- reiðaeftirlitsmenn hafa fundið at- hugavert við hann og setji síðan hvítan miða í bílinn. Eins og ég sagði áðan var byrjað með þetta á Akureyri og Dalvík, síðan var þetta fært út, til Ólafsfjarðar og Siglufjarðar núna á þessu ári. Þetta hefur gengið ljómandi vel og við erum að vonast til þess að þetta verði fært enn frekar út á þessu ári og hinu næsta. Það er nú þannig úti á landi að það eru kannski einn eða tveir bifreiðaeftirlitsmenn sem eru með nokkuð stór svæði og þetta sparar bæði þeim og bfleiganda mikla fyrirhöfn. Þetta kerfi hefur lukkast alveg ljómandi vel. Og við vonumst til að geta útfært þetta smátt og smátt.“ - Hvernig eru þessi verkstœði valin? „Bifreiðaeftirlitið hefur nú hönd í bagga nteð það. En við í Bílgreinasambandinu höfum ákveðnar reglur sem við setjum til þess að verkstæði geti t.d. orð- ið aðilar að okkar sambandi. Og ég held að flest allir aðilar sem hafa þetta að aðalatvinnu geti séð um þetta“. Svört vinna - Hvernig er með svarta at- vinnustarfsemi í þessari grein? „Já, hún finnst auðvitað í mörgum iðngreinum en það er óhætt að segja að hún er mikil í þessari grein. Annars er ég nú á því að þessi svarta atvinnustarf- semi sé á undanhaldi. Það þarf orðið svo mikla sérþekkingu og sérbúnað til þessara viðgerða. Við höfum verið að fá bfla sem hafa verið í þessum skúravið- gerðum þar sem ekki hefur verið hægt að klára viðgerð". - Og heldurðu að þetta sé að minnka? „Ja, maður veit það ekki. Oft er það svo að það er verið að banka upp á í þessurn skúrum á kvöldin, starfssemin er stoppuð, það er lokað í nokkrar vikur en síðan er opnað aftur. Það er erfitt að eiga við þetta.“ Fimmtudagur 31. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 -:saa:>:o . t!> yJjr.iv,.!V,KJ.v 1 - AStö L

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.