Þjóðviljinn - 31.10.1985, Qupperneq 24
Húseign Víðis
Búfjársjúkdómar
Kýlapest
í lömbum
Byggingar
Láglaunalandið
30% kauplækkun á 7 ámm
Kaupmáttur kauptaxta hefur lœkkað um 30% frá árinu 1978 meðan
þjóðartekjur drógustsaman um aðeins2%. Eftekið er mið afárinu!977
er rýrnun kauptaxta24% meðan þjóðartekjur jukust um3%
Kötturinn
rifinn?
Allt þykir nú benda til þess að
Fjalakötturinn, hið umdeilda hús
við Aðalstræti í Reykjavík, verði
rifið í dag. í gær fengu starfs-
menn borgarinnar fyrirskipun
um að aftengja vatns- og raflagnir
inn í húsið og jafnframt komst sá
kvittur á kreik að niðurrifsmenn
myndu hcfja störf síðar í dag.
Miklar deilur stóðu sem kunn-
ugt er um þetta hús og menn ekki
á eitt sáttir hvort það fengi að
standa. Þrátt fyrir óumdeilanlegt
menningarlegt gildi þess urðu
talsmenn niðurrifsaflanna ofan á.
Nú er því allt sem bendir til að 9.
lífi kattarins verði brátt lokið.
Kaupmáttur kauptaxta hefur
lækkað um nálega 30% frá
árinu 1978 til ársins 1984 sam-
kvæmt upplýsingum hjá Þjóð-
hagsstofnun. Á sama tíma hafa
þjóðartekjur aðeins dregist sam-
an um 2% á mann.
Á árinu 1978 var kaupmáttur
kauptaxta 121 (miðað við 100
árið 1970), en hann var kominn
niður í 85 árið 1984. Vergar þjóð-
artaekjur voru 280,4 árið 1978
(vísitalan um þjóðartekjur er
miðuð við 100 árið 1945) en var
275 árið 1984 eða sem savarar 2%
samdráttur meðan kaupmáttur-
inn hrapaði um nær 30%.
Ef hliðstæður samanburður er
gerður milli áranna 1977 og 1984
er svipað uppi á teningnum. Þá
var kaupmátturinn 112, en kom-
inn niður í 85 árið 1984 eða sem
svafar24,2% lækkun kaupmáttar
kauptaxta. Á því tímabili varð
hins vegar aukning á þjóðartekj-
um á mann um 3%, - þannig að
allt er á sömu bók: Kaupmáttur-
inn hrapar og hrapar, hvað sem
líður þjóðartekjum.
-óg
Vilja 110 miljónir kr.
Greiðslustöðvunframlengd tiljóla. Stendur ogfellur með sölu.
Gunnar Helgi Hálfdánarson stj.form.: Verðum að trúa að takist að selja.
Viðrœður viðAxel Eyjólfsson úrsögunni í bili
Eigendur Trésmiðjunnar Víðis
í Kópavogi, sem hafa fengið fram-
lengda greiðslustöðvun á fyrir-
tækið fram að jólum, vilja fá 110
mifjónir fyrir húsakynni tré-
smiðjunnar við Smiðjuveg. Sala á
húseign fyrirtækisins er forsenda
þess að fyrirtækið komst út úr
greiðsluerfíðieikum.
„Okkur hafa borist þó nokkrar
fyrirspurnir um húsnæðið og við
verðum að trúa því að það takist
að selja áður en fresturinn rennur
út. Þrátt fyrir tregðu á fast-
eignamarkaðinum þá get ég ekki
sagt að það sé áhugaleysi um
eignina en þetta er vissulega stór
biti fyrir menn að kyngja og bar-
áttan stendur um kjörin á þessum
kaupum“, sagði Gunnar Helgi
Hálfdánarson stjórnarformaður
Víðis í gær.
Aðallega eru það iðnfyrirtæki
sem hafa verið að velta vöngum
yfir Víðishúsinu en það er um
7.500 ferm. að gólffleti þar af 600
ferm. iðnaðarhúsnæði.
Gunnar sagði að viðræður við
Axel Eyjólfsson um sameiningu
fyrirtækjanna væru úr sögunni í
bili en verið væri að ræða við aðra
innlenda aðila um samvinnu í út-
flutningsmálum. „Það er engin
spurning að markaðurinn er fyrir
hendi en okkur hefur verið bund-
inn þröngur fjárhagslegur stakk-
ur. Við höfum getað staðið við
okkar samninga hingað til, en við
verðum að komast út úr þessari
úlfakreppu ef á að halda rekstrin-
um áfram“, sagði Gunnar Helgi.
.........................
Tilfinnanlegt tjón.
Priðja hvert lamb
íSuðursveitsýkt
Hvimleiður og slæmur sjúk-
dómur hefur herjað á lömb í
Austur-Skaftafellssýslu í haust.
Hefur hans einkum orðið vart í
Suðursveit og valdið bændum þar
tilfínnanlegu tjóni.
Birnir Bjarnason, dýralæknir á
Höfn, sagði blaðinu að sjúkdóm-
ur þessi lýsti sér í því, að hrúður
mynduðust í munnvikjum kind-
arinnar og á milli klaufa, og
kjötkirtlar bólgnuðu. Síðan vill
gjarnan rifna ofan af hrúðrunum
og græfi þá í þeim. Þessa verður
einungis vart á dilkum en ekki
fullorðnu fé.
Sjúkdóms þessa hefur gætt í
dilkum Austur-Skaftfellinga sl.
6-8 ár, og raunar vottað fyrir hon-
um víðar, en aldrei í slíkum mæli
sem nú. Langsamlega mest kveð-
ur að honum í Suðursveit en þar
má kalla að þriðja hvert lamb hafi
sýkst.
Kirtlarnir eru skornir burt úr
skrokkunum, sem eru eftir sem
áður hæfir til neyslu en verða
auðvitað ekki fyrsta flokks vara
og lækka veruleg í verði. Þeir
bændur, sem eiga sýkta dilka svo
einhverju nemur, verða því fyrir
tilfinnanlegu fjárhagstjóni.
- mhg
Hluti Hrauneyjarhöggmyndarinnar á leið úr einu húsi Stálsmiðjunnar í annað,
höfundur stendur hjá. Á myndinni til hliðar er líkan af verkinu á stöðvarhúsvegg.
S Mynd Sig.
A máti
straumnum
IStálsmiðjunni í Reykjavík
liggur nú fyrir fullbúið högg-
verk Hafsteins Austmanns, Á
móti straumnum, og ekki annað
eftir en að flytja það á áfanga-
stað, sem er stöðvarhús Hraun-
eyjarfossvirkjunar.
Þegar Þjóðviljann bar að var
verið að flytja þriðjung verksins
úr sandblæstri að viðstöddum
höfundi og smiðum kampaká-
tum. Verkið er úr cor-ten stáli
sem er þeirrar náttúru að ryðga
aðeins að ákveðnu marki, þannig
að ryðið sér um litinn, og þarf
ekkert viðhald.
Hafsteinn var beðinn að sjá um
þessa listskreytingu stöðvarhúss-
ins fyrir um ári, - hafði áður feng-
ið önnur verðlaun í samkeppni
um listaverk fyrir Sigölduvirkj-
un.
Hafsteinn benti Þjóðviljanum
á virkjunarmenn þegar spurt var
um kostnað, en sagði að þetta
væri örugglega ein besta fjárfest-
ing sem Landsvirkjun gæti lagt í,
- og kostaði örugglega ekki meira
en sosum hálfur laxveiðibíll.
„Á móti straumnum“ verður
flutt austur um eða eftir helgi.
Það hefur verið um tvo mánuði
að skapast í höndum Sigurðar
Guðjónssonar í Stálsmiðjunni.
- m
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348.,Helgarsími: 81663.
UOÐVIUINN
Fimmtudagur 31. október 1985 251. tölublað 50. árgangur