Þjóðviljinn - 11.12.1985, Síða 1
Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra, fyrrverandi stjórnarformaður Hafskips, Útvegsbankans
og fjármálaráðherra (standandi). Matthías Á Mathiesen fyrrverandi bankamálaráðherra (sitjandi).
á ögurstundu í gær. Mynd. - E.Olason.
/ »
Utvegsbanka/Hafskipsmálið
Matador
forstjóra
Ólafur Ragnar í utandagskrárumrœðunni: Margt bendir til
þess að lánsfénu úr Útvegsbankanum til Hafskips hafi
verið komið undan til annarra fyrirtœkja. Fáheyrður lúxus
áforstjórunum. Staða Útvegsbankans verri en haldið var.
Eimskip borgar vaxtalaust um aldamótin. Hafskipsskattur
nœr20þúsundum á hverjafjölskyldu ílandinu.
Jólaglaðningur fyrir forstjórana í desember árlega
6 Hafskip skuldi 1300 miljónir, þá
skuldar Hafskip Reykvískri endur-
tryggingu ekki neitt, enda eru fram-
kvæmdastjóri og stjórnarformaður Haf-
skips eigendur að stórum hluta síðarnefnda
fyrirtækisins, sagði Ólafur Ragnar Gríms-
son sem hóf umræðu utan dagskrár á al-
þingi í gær um Utvegsbanka/Hafskipsmál-
ið. Hann kvað forystumenn í Sjálfstæðis-
flokknum og forstjóraveldið í Hafskip hafa
komið upp „Matador“ fyrirtækja, þannig
að svo liti út sem að lánsfé frá Útvegsbank-
anum hafi verið notað til að fjármagna
önnur fyrirtæki - og fáheyrðan lúxus á for-
stjórunum.
Ólafur kvað ekki nóg með að Reykvísk
endurtrygging væri í eigu þeirra forstjór-
anna hjá Hafskip, heldur væri fyrirtækið til
húsa í einu glæsilegasta húsnæði miðborg-
arinnar, í eigu enn annars fyrirtækis, Stað-
arstaðar hf, sem að sjálfsögðu væri einnig
að hluta í eigu Ragnars Kjartanssonar og
Björgúlfs Guðmundssonar. „Þetta hús er
táknrænt - og á björtum síðkvöldum má sjá
hversu glæsilegt það er, - það er nefnilega
flóðlýst, svo kjósendur Framsóknarflokks-
ins og Sjálfstæðisflokksins geti séð hvert
fiármagnið úr Útvegsbankanum fór,“ sagði
Ólafur Ragnar. „Þetta er Hafskipsskattur-
inn“.
Hann nefndi skúffut'yrirtæki og platfyrir-
tæki einsog Georgia Export Import og
spurði hvort menn héldu að „rannsókn"
Þórðar frænda og ríkisstjórnarinnar myndi
ná til slíkra fyrirtækja. Hann kvað Matador
forstjóraveldisins og Sjálfstæðisflokksins
hafa m.a. gengið út á það í Hafskip, að
fyrirtækin hefðu fengið afslátt, desember-
afslátt, jólaglaðning svo þeir færu ekki í
jólaköttinn, - og að fyrirtækin hefðu þannig
grætt á Hafskip, - með lánsfé frá Útvegs-
bankanum.
Ólafur Ragnar kvað margt benda til þess
að tap Útvegsbankans á þessu Hafskips-
máli yrði miklu meira en hingað til hefði
komið fram.
Þannig væri t.d. kveðið á um í samnings-
drögum að þann hluta eignanna sem
greiddur yrði í íslenskum krónurn, myndi
Eimskip greiða vaxtaiaust fram til alda-
móta. I drögunum væri skilyrði um ástand
eignanna, Útvegsbankinn hefði einnig
ábyrgt lán til „íslenska skipafélagsins" og
fleira, þannig að tapið yrði máske í reynd
allt að 1000 miljónir. Hafskipsskatturinn
yrði því ekki 10 þúsund krónur á hverja
fjölskyldu, - heldur nær 20 þúsundum.
-óg
Sjá bls. 2
Bóksala
Þórarínn
og Eðvarð
Smásagnasafn Þórarins Eld-
járns, Margsaga, er sú útkominna
bóka sem best hefur selst ennþá á
þessu hausti samkvæmt lista sem
Þjóðviljinn hefur tekið saman
eftir upplýsingum bókaverslana.
Þórarni fylgja fast á eftir bók
Jóns Orms Halldórssonar um
Vilmund Gylfason, Löglegt en
siðlaust, og seinna bindið um
Guðmund skipherra Kjœrnested.
Af barna- og unglingabókum
eru öflugastar 16 ára í sambúð
eftir Eðvarð Ingólfsson og Bara
stœlar Andrésar Indriðasonar.
Rekstur
Opinber umræða er oft til hins
verra, sagði Matthías Bjarna-
son samgönguráðherra m.a. í ut-
andagskrárumræðu á alþingi í
gær og gat í því sambandi frétta
um slæma stöðu Arnarflugs og
Luxemburgarflugvöllur
Lá við stórstysi
Þegar Flugleiðaþotanfór út afflugbrautinni í Luxemburg23.
nóvember sl. munaði aðeins 100 m að sovéskfarþegaþota keyrði á
hana. Pétur Einarsson flugmálastjóri: Rannsókn málsins er ígangi
egar það óhapp varð 23. nóv-
ember sl. að þota frá Flug-
leiðum lenti útaf flugbrautinni
við lendingu, gerðist sá furðulegi
atburður að þotu frá sovéska
flugfélaginu Aeroflot var leyft að
lenda strax á eftir Flugleiðaþot-
unni þrátt fyrir óhappið og náði
sovéska þotan ekki að stöðva fyrr
en um 100 m frá íslensku þotunni.
Þoka og slæmt skyggni var þegar
þetta gerðist. Ljóst er að þarna
hefur litlu munað að stórslys'
yrði.
Pétur Einarsson flugmálastjóri
sagði í samtali við Þjóðviljann í
gær að Flugleiðamenn sem
komnir voru útá brautina hefðu
skýrt sér frá þessu og væri rann-
sókn málsins í gangi í Luxem-
burg.
Rannsókn á orsökum þess að
Flugleiðaþotan fór út af brautinni
er ekki lokið en í byrjun var því
ýmist haldið fram að bremsuskil-
yrði hefðu verið slæm eða að þot-
an hefði komið of seint niður.
Amarflugs gæti stöðvast
einnig í sambandi við Utvegs- lagsins stöðvaðist næstu daga bankanum hefðu dregist saman
bankann. Upplýsti ráðherrann vegna erfiðleika þeirra sem Þjóð- um 200 miljónir króna í nóvem-
að samkvæmt bréfi frá fram- viljinn greindi frá í gær. ber „í kjölfar opinberrar um-
kvæmdastjóra Arnarflugs sem ræðu“ um vandamál bankans og
hann hefði fengið í fyrrakvöld, Matthías hafði einnig orð á því yfirvofandi gjaldþrot Hafskips.
gæti svo farið að rekstur flugfé- í umræðunni að innlán í Útvegs- - óg