Þjóðviljinn - 11.12.1985, Side 4
LEHDARI
Er Þorsteinn týndur?
Fjármátakerfi landsins riöar til falls. Ríkis-
stjórnin sem byrjaði á því aö skera niður launin
og færa til fjármagnsaflanna stærri hlut af aröi
vinnunnar, sleppti síöan frumskógarlögmálinu
á fjármagnið.
Afleiöingarnar blasa viö; sökkvandi fyrirtæki,
fallandi gengi og sviðin jörö. Fasteignirnar
hrapa í veröi afþví þær mega sín einskis í sam-
keppninni viö fjármagnið. Sömu sögu er að
segja af fyrirtækjunum, en ein réttlætingin fyrir
núverandi peningastefnu var sú, aö þaö ætti aö
veita fjármagni til fyrirtækjanna.
Nú eru fyrirtækin á hausnum. Á hverjum degi
berast fregnir af skelfilegri stööu þeirra, Haf-
skip, Sjöstjarnan, Arnarflug, Byggung, Olís,
Víöir og fleiri og fleiri.
Síðustu daga hefurflokkurforstjóranna boöiö
alþjóð uppá sýnikennslu í því hvernig ekki á aö
reka fyrirtæki, hvernig fyrirtæki eru rekin undir
formerkjum einstaklingsframtaksins og hvernig
frjálshyggjan verkar í raun á efnahagskerfi á
borð viö okkar.
Það er vert aö minna á aö þegar efnahagur
einstakra fjölskyldna í landinu kollsteypist, þá er
ekki frétt um þaö á forsíðu dagblaða. Efnahagur
heimilanna, ástandiö hjá fjölskyldunum er hin
hliöin á fjármáiahneykslinu sem ríkisstjórn ríka
fólksins hefur efnt til meö svo skelfilegum afleiö-
ingum síöustu tvö árin.
Útvegsbankahneykslið/Hafskipshneykslið
hefur sýnt þjóöinni aö þaö hafa verið til pening-
ar. Þeir fóru í lúxusinn, þeir fóru sem lánsfé til
manna sem sváfu værum blundi fyrir þúsund
dollara á hótelherbergi útí Nýjujórvík, meöan
höfuðstóllinn brann. Meöan eignarfjárstaöan
rýrnaöi, þá létu þeir einkabílstjórann með kask-
eitið aka sér útá golfvöll, þarsem þeir gátu kýlt
sérhannaöa golfkúlu merkta Hafskip. Og
skúffan heima hjá forstjóranum, sem tók viö
skattinum í fyrra, Georgia Export Import var
einsog fjársjóöur fyrir lúxusliöiö sem fengiö hef-
ur að leika sér meö lánsfjármagnið frá íslensku
launafólki - í skjóli og undir náöarvæng
stjórnmálamanna á íslandi. Þeir vita þaö kjós-
endur Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins hvert lánsfjármagnið hefur farið.
En hvar eru þeir sem ákvöröuöu þessa efna-
hagsstefnu? Af hverju ganga þeir ekki fram fyrir
alþjóö og lýsa ábyrgö á hendur sér? Hvar er sá
Sjálfstæðisflokkur sem sagði fyrir tveimur árum
og reyndar einnig fyrir einu ári, aö nú væri verið
aö bjarga íslensku atvinnulífi meö peninga-
stefnunni? Hvar er sá Sjálfstæðisflokkur sem
sagöi að frelsi fjármagnsins ætti eftir að bæta
upp kaupskeröinguna frá 1983?
Og hvar er fjármálaráðherrann nýi? Er hann
ekki lengur fjármálaráðherra? Hvaö telur hann
nú vera til ráöa? Eöa er Þorsteinn týndur? Og
hvar er sá Framsóknarflokkur sem látið hefur
allt þetta eftir Sjálfstæöisflokknum? Hvar er sá
Framsóknarflokkur sem eitt sinn sagöi aö allt
væri betra en íhaldið?
Ætlar allt þetta liö aö mæta í næstu lúxus-
veislu hjá forstjórunum í Hafskip? Á aö slá í fleiri
sérhannaöar golfkúlur? Eöa á þessi ríkisstjórn
ekki aö sjá sóma sinn í því aö fara burt, - meö
þeirri ævarandi skömm sem hún hefur unnið
sér til?
„Sök“ fjölmiöla
Hvaö eftir annaö hafa ráöamenn þjóöarinnar
látið í þaö skína, aö opinber umfjöllun og fréttir
fjölmiöla af spillingu fyrirtækjanna, fáránlegum
rekstri þeirra, eftirlitsskorti bankastjóra, banka-
ráöa, alþingis og ríkisstjórna, sé til þess eins að
koma fyrirtækjunum á hausinn.
íslenskir ráöamenn veröa aö átta sig á því
hvað er orsök og hvaö afleiðing. Þaö eru ekki
fréttirnar af spillingunni, eftirlitsskortinum og lé-
legri fjárhagsstööu, sem koma fyrirtækjunum á
kné, - heldur hitt aö t.d. lélegur rekstur, afleit
efnahagsstefna, viöurstyggileg spilling sem
leiöir til þess aö fyrirtækin standa illa. Og gott ef
ekki sinnuleysi ríkisstjórna eigi ríkan þátt í á-
standinu. Fjölmiölum ber hins vegar félagsleg,
siöferöisleg og pólitísk skylda til aö greina sem
gerst frá þessum málum. Má færa gild rök að
því, aö þjóðarbúinu heföi veriö sparaö verulegt
fjármagn ef fjölmiðlar hefðu fleiri kippt fyrr viö
sér í þeim óskapamálum sem nú hafa komið
uppá.
-óg
KLIPPT OG SKORIÐ
”"rríziTÁfprði friáíshyg9Íunnar„,
3rSSSSjsft»tíasa
■*
LEHDARI
Hafskipshnevkslift
Gagnleg rannsókn
Leiðarar allra dagblaðanna í gær fjölluðu um Hafskipshneykslið - meira að segja leiðari DV.
Hafskip
og íhald
Gífurlegur titringur er innan
Sjálfstæðisflokksins útaf Hag-
skipshneykslinu. Forystumenn
flokksins keppast við hver um
annan þveran að neita hlutdeild
að kreppu fyrirtækisins og þar -
með flokksins.Hins vegar er eng-
um blöðum um það að fletta, að
glópska og mistök einstakra ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins hafa
orðið okkur, sem með sköttum
okkar ábyrgjumst Útvegsbank-
ann, giska dýrkeypt. Þessvegna
munu þau líka reynast Sjálfstæð-
isflokknum dýrkeypt, því auðvit-
að setur fólk jafnaðarmerki á
milli flokks og fyrirtækis.
Það er öllum ljóst, að forráða-
menn Hafskips hafa verið að-
sópsmiklir innan Sjálfstæðis-
flokksins, og raunar var sumum
þeirra til skamms tíma hampað
sem sérstökum töframönnum í
fjármálaheiminum. Nú er hins
vegar orðið ljóst, að dúfurnar
sem töframennirnir í Hafskip
lokkuðu upp úr höttum sínum
voru aldrei til. Töfrabrögðin voru
ekkert annað en óhófleg spilling
og óstjórn.
Vegna tengsla Hafskips og
Sjálfstæðisflokksins þreifst ó-
stjórnin og spillingin jafn lengi og
raun bar vitni. Það þarf engum að
koma á óvart, vegna þess að
spilltar smáfjólur vaxa svo víða í
skjóli flokksins. Vegna tengsla
sinna við Hafskip, þá einfaldlega
kemst Sjálfstæðisflokkurinn ekki
undan ábyrgð í málinu. Þetta er
meira að segja Morgunblaðinu
ljóst. í leiðara þess í gær segir
þannig:
„Hafskipsmálið teygir anga
sína inn í stjórnmálabaráttuna í
landinu. Ástœðan er sú, að marg-
ir afforystumönnum félagsins hin
síðari ár hafa gegnt ábyrgðar-
miklum trúnaðarstörfum fyrir
Sjálfstœðisflokkinn".
Pílatusar-
þvottur
Morgunblaðið notar svo tæki-
færið - og ekki í fyrsta sinn síðan
málið kom upp - til að vekja sér-
staka eftirtekt á þætti Alberts
Guðmundssonar í málinu: „Sér-
staka athygli hefur vakið sú stað-
reynd, að Albert Guðmundsson,
iðnaðarráðherra, var stjórriarfor-
maður Hafskips hf. og formaður
bankaráðs Utvegsbankans á sama
tíma. “
Að þessum ummælum loknum
fer hins vegar Morgunblaðinu
einsog mörgum gæðing göldum,
það hleypur upp á skeiðinu. Það
freistar þess á engan hátt að verja
Albert, heldur fer að dæmi Pílat-
usar, þvær hendur sínar af þess-
um mistæka forystumanni Sjálf-
stæðisflokksins og reynir að
kenna Alþýðubandalaginu og
Framsókn um formennsku hans í
bankaráði Útvegsbankans! Þarf
frekari vitna við um þá tauga-
veiklun sem ríkir hjá ritstjórum
Mogga og forystumönnum Sjálf-
stæðisflokksins?
Albert hefur reyndar mátt sæta
heldur ómannúðlegri meðferð af
hálfu Morgunblaðsins, og kann-
ski ekki að furða. Blaðið hefur
hins vegar ekki kjark til að segja
hug sinn allan, en lætur sér nægja
að gagna hæla hins illa stadda for-
ystumanns Sjálfstæðisflokksins.
Þannig er að finna mjög ísmeygi-
lega árás á Albert í blaðinu í gær.
ísmeygi-
leg árás
Á síðu tvö er Steingrímur Her-
mannsson(!) leiddur fram til vitn-
is um að eftirlitsskylda bankans
með fjárreiðum Hafskips hafi
gersamlega farið úrskeiðis í tíð
Alberts sem bankaráðsfor-
manns. Þar upplýsir forsætisráð-
herra nefnilega að þrír fyrrver-
andi bankastjórar hafi sagt sér,
að „þeir minntust þess ekki að
viðskiptamál við Hafskip hefði
sérstaklega borið á góma á bank-
aráðsfundum þann tíma sem Al-
bert var formaður stjórnar Haf-
skips og bankaráðs Útvegsbank-
ans.“
Með þessum hætti er Morgun-
blaðið að segja lesendum sínum,
að í tíð Alberts hafi bankinn ekki
haft neitt eftirlit með stærsta við-
skiptavini bankans, mál hans hafi
ekki einu sinni verið rædd! Þó er
það á allra vitorði að Hafskip var
á hausnum á þessum tíma. í
leiðara er hnykkt á þessu á klók-
indalegan hátt. Þar er sagt,
auðvitað án þess að nefna nokk-
urn á nafn, „...ótal spurningar
hljóta að vakna um eftirlit og að-
hald bankans með viðskiptavin-
um sínum.“
Staðreynd málsins er nefnilega
sú, að Sjálfstæðisforystan íhugar
nú sterklega að losna undan
ábyrgð í Hafskipshneykslinu með
því að fórna Álbert. Hún sér í
hendi sér, að líklegt er að Haf-
skipshneykslið verði í sviðsljós-
inu fram eftir vetri, og erfitt muni
reynast að ganga til borgar- eða
sveitarstjórnarkosninga með
þann bagga á herðum. Þess vegna
eru nú brugguð ráð til bjargar.
Þau felast í því að skella skuld á
Albert, og koma honum svo fyrir
pólitískan ætternisstapa. Þannig
á að þvo smánarblettinn af Sjálf-
stæðisflokknum.
En menn skulu bara ekki
gleyma því að Albert er ekki eini
tengill Sjálfstæðisflokksins við
Hafskipshneykslið. Heil runa af
framámönnum flokksins hefur
starfað hjá fyrirtækinu. Þó Sjálf-
stæðisflokkurinn vilji gjarnan
koma sér úr skugga Hafskips-
hneykslisins með því að fórna Ál-
bert, þá er það einfaldlega ekki
hægt. Til þess eru þræðirnir milli
flokks og fyrirtækis of margir.
-ÖS
DJOÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
i Útgefandl: Útgáfufólag Þjóöviljans.
Ritstjórar: Ámi Bergman, Ossur Skarphóöinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fréttastjóri: Valþór Hlööversson.
Blaöamenn: Aöalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiöur Ingadóttir, Garöar
Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Lúövík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurösson, Þór-
unn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkaleatur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar Ólason, Siguröur Mar Halldórsson.
Útlit: Sævar Guöbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Símvarsla: Sigriöur Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Agústa Þórisdóttir, Olöf HúnQörö.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Framkvæmdastjóri: Guörún Guðmundsdóttir.
Skrif8tofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrlfstofa: Guðrún Guövaröardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreiðslustjóri: Sigríður Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Ragnheiöur Óladóttir.
Auglyslngar: Ásdís Kristinsdóttir, Guöbergur Þorvaldsson,
Olga Clausen.
Afgreiöslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgroiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaöaprent hf.
Verð í lauaasölu: 35 kr.
Sunnudagsblaö: 40 kr.
Áskrift á mánuði: 400 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 11. desember 1985