Þjóðviljinn - 11.12.1985, Qupperneq 19
England
Spurs og
Everton úr
leik
Portsmouth, efsta lið 2.deildar,
sló Tottenham útúr deildabikarn-
um í knattspyrnu í gærkvöldi með
1-0 sigri á heimavelli sínum, Fra-
tton Park. Noel Blake skoraði
sigurmarkið á 45.mín.
Chelsea er einnig komið í 8-
liða úrslit eftir góðan 2-1 útisigur
gegn Everton. Kerry Dixon og
Joe McLaughlin skoruðu fyrir
Chelsea en Gary Lineker gerði
mark Everton. Darren Wood hjá
Chelsea var rekinn af leikvelli í
stöðunni 1-1.
Rochdale vann Scunthorpe 2-1
í 2.umferð FA-bikarsins og
heimsækir Manchester United í
3.umferð. Bury, Orient, New-
port, Walsall, Wigan og Notts
County tryggðu sér einnig sæti í
3.umferð.
-VS/Reuter
V. Þýskaland
Stórsigur
Schalke vann stórsigur, 6-1, á Bor-
ussia Dortmund í Bundesligunni í
knattspyrnu í gærkvöldi. Schalke
kom sér af mesta hættusvæðinu og
uppí miðja deild með sigrinum.
-VS/Reuter
3.deild
ÍBKá
toppinn
Keflvíkingar tóku forystuna í
3.deildinni í handknattleik í gær-
kvöldi þegar þeir sigruðu Skallagrím
31-22 í Borgarnesi. Leikurinn var jafn
framanaf en ÍBK náði forystu fyrir
hlé, 12-11, og tryggði sér síðan örugg-
an sigur. Þetta var áttundi sigur
Keflvíkinga í röð, þeir hafa nú 20 stig
á toppnum en Týr og Reynir Sand-
gerði 18 stig og ÍA 15 og leiki til góða.
-VS
Körfubolti
UÍA f ékk
fjögur stig
UÍA, lið Austfirðinga, fékk 4
stig í Reykjavík í 2.deild karla um
helgina. Austfirðingar unnu Esju
52-45 og Árvakur 82-69 og eru
jafnir Snæfelli á toppi B-riðils.
Staðan þar er þessi:
Snæfell..............5 4 1 344-277 8
UÍA..................5 4 1 339-312 8
HSK..................3 2 1 184-169 4
Léttir...............4 2 2 233-250 4
Esja.................4 1 3 201-245 2
Árvakur..............5 0 5 296-344 0
í A-riðlinum vann Skallagrím-
ur sigur á ÍA á Akranesi, 73-62.
Staðan þar er þessi:
Tindastóll...........3 3 0 242-213 6
Skallagrímur.........4 3 1 295-269 6
KFl..................2 1 1 128-127 2
lA...................5 1 4 366-402 2
USAH.................2 0 2 145-165 0
Tvö efstu lið úr hvorum riðli
fara í úrslitakeppni þar sem leikið
verður um eitt sæti í 1. deild.
Kvennakarfa
UMFN vann
UMFN sigraði ÍR 31-30 í
kvennadeildinni í körfuknattleik
á sunnudaginn en leikurinn fór
fram í Seljaskóla. UMFN hefur
þá hlotið 8 stig úr 8 leikjum en ÍR
er með 6 stig eftir 5 leiki.
—VS
ÍÞRÓTTIR
Einar Ólafsson er smár en knár bakvörður sem er óhræddur við að skjóta þó
stærri bógar standi fyrir. Hér skorar hann 2 af 23 stigum sínum fyrir Val gegn KR
I gærkvöldi þrátt fyrir varnartilburði tveggja Vesturbæinga. Mynd: E.ÓI.
Knattspyrna
Danir settir í
lakasta flokk
Dregið í riðla á sunnudaginn
Þrátt fyrir mikinn frama á knattspyrnusviðinu síðustu 2-3
árin verða Danir að sætta sig við að vera settir í veikasta styrk-
leikaflokk lokakeppni HM í Mexíkó.
í veikasta flokknum eru Alsír, Marokkó, Suður-Kórea, írak,
Kanada — og Danmörk. Danir þurfa því örugglega að leika
gegn þremur sterkum þjóðum í forriðli keppninnar en þeir
lenda í þessum flokki vegna þess að þeir hafa aldrei áður komist
í úrslitakeppni EIM.
í fyrsta styrkleikaflokki eru gestgjafarnir, Mexíkó,
heimsmeistararnir, Ítalía, Brasilía, Frakkland, Pólland og
Vestur-Þýskaland. í öðrum flokki eru Paraguay, Argentína,
Uruguay, England, Sovétríkin og Spánn. í þriðja flokknum eru
svo Portúgal, Búlgaría, Belgía, Ungverjaland, Norður-írland
og Skotland. Þegar dregið verður í riðlanna á sunnudaginn
kemur verður dregið eitt lið úr hverjum flokki í hvern riðil
þannig að þau sem eru saman í flokki geta ekki dregist saman.
Keppnin verður með nýju sniði. Tvö efstu lið í riðlunum sex
komast áfram ásamt þeim fjórum öðrum sem besta útkomu
hafa. Sextán lið leika því í 2.umferð og upp frá því til úrslita-
leiksins verður leikið með útsláttarfyrirkomulagi.
—VS/Reuter
Úrvalsdeildin
Valur varni í
framlengingu
Fjögur KR-stig síðustu 13 sek. jöfnuðu
leikinn
KR-ingar knúðu fram framleng-
ingu með 4 stigum á síðustu 13 sek-
úndunum gegn Val í gærkvöldi. Stað-
an var 67-63 er Guðmundur Björns-
son skoraði fyrir KR þegar 13 sek.
voru eftir. Valsmenn hófu sókn en
Páll Kolbeinsson komst inní sendingu,
brotið var á honum og hann skoraði
úr tveimur vítaskotum, 67-67. En
Vaiur gerði útum leikinn í framleng-
ingu, skoraði 7 stig í röð og tvær körf-
ur KR á síðustu hálfu mínútunni
breyttu engu. Valur vann 74-71 —
dýrmætur sigur í baráttunni um sæti í
4-liða úrslitunum en KR stendur orð-
ið mjög höllum fæti í þeim slag.
Framanaf stefndi allt í léttan Vals-
sigur en undir lok fyrri hálfleiks tók
KR geysilegan kipp með Ástþór sem
mestu driffjöður og breytti stöðunni í
41-37 sér í hag. Valur náði fljótlega
forystu á ný og hélt henni framá síð-
ustu sekúndu einsog áður er lýst.
Einar Ólafsson átti mjög góðan
leik með Val og Torfi hélt vörninni
saman. Hún stendur og fellur með
honum. Leifur og Jón léku einnig
ágætlega.
KR-inga vantaði kraft í fráköstin
og einbeitingu á þýðingarmiklum
augnablikum. Birgir og Páll áttu góð-
an leik, Garðar var ágætur og Ástþór
kraftmikill seinni hluta fyrri hálfleiks
en lenti í villuvandræðum og lék lítið
eftir það.
-Logi/VS
Seljaskóli 10.des.
Valur-KR 74-71 (67-67) (37-
41)
8-2, 18-6, 30-21, 35-27, 37-
41 - 50-49, 58-57, 67-63,67-
67 - 74-67, 74-71.
Stig Vals: Einar Ólafsson 23, Torfi
Magnússon 13, Leifur Gústafsson 11,
Sturla Örlygsson 9, Jón Steingríms-
son 6, Björn Zoega 6, Tómas Holton 3,
Jóhannes Magnússon 3.
Stig KR: Birgir Mikaelsson 20, Páll
Kolbeinsson 14, Þorsteinn Gunnars-
son 11, Garðar Jóhannsson 8, Matthí-
as Einarsson 6, Áslþór Ingason 5,
Guömundur Björnsson 4, Guðmundur
Jóhannsson 3.
Dómarar: Jóhann Dagur og Kristb-
jörn Albertsson - slakir.
Maöur leiksins: Einar Ólafsson
Val.
Úrvalsdeildin
Klúður hjá ÍR
Tapaði fyrir ÍBK í framlengingu
ÍR-inear geta nagað sig í hand- ómetanlegur undir lokin og í
arbökin fyrir að tapa tveimur framlengmgunm.
dýrmætum stigum gegn ÍBK í
gærkvöldi. Þeir höfðu niikla yfir-
burði framanaf leik en þegar ÍBK
gerði 12 stig í röð snemma í seinni
hálfleik fór allt úr sambandi hjá
ÍR, og liðið var síðan heppið að
ná t framlengingu — Jóhannes
Sveinsson jafnaði 69-69 þegar 2
sek. voru eftir. ÍBK, mcð Þor-
stein Bjarnason fremstan í flokki,
stakk síðan af í framiengingunni
og vann 81-75.
ÍR-liöiö lék frábærlega í fyrri
hálfleik, sérstaklega í vörninni.
Síðan fór allt úr skorðum. Ragn-
ar var bestur, Hjörtur og Jón Orn
léku ágætlega og Björn var sterk-
ur í vörninni. Guöjón, Jón Kr.,
Sigurður og Hreinn voru burðar-
ásar Keflvíkinga og Þorsteinn var
Seljaskóli 10.des.
ÍR-ÍBK 75-81 (69-69) (37-
26)
6-10, 19-15, 33-19, 37-26 - 53-34,
53-46, 63-62, 66-69, 69-69 - 69-77,
73-77, 75-81.
Stig ÍR: Ragnar Torfason 21, Karl
Guðlaugsson 14, Hjörtur Oddsson 12,
Jón Örn Guðmundsson 7, Vignir Hilm-
arsson 7, Jóhannes Sveinsson 6,
Benedlkt Ingþórsson 4, Björn Stef-
fensen 4.
Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 21, Sig-
urður Ingimundarson 18, Jón Kr.Gísla-
son 12, Hreinn Þorkelsson 11, Þor-
steinn Bjarnason 9, Magnús Guð-
finnsson 4, Hrannar Hólm 3, Ólafur
Gottskálksson 2, Ingólfur Haraldsson
1.
Dómarar: Ómar Scheving og Berg-
ur Steingrímsson - sæmilegir.
Maður leiksins: Guðjón Skúlason,
IBK
HM U21
Yfir í hálfleik en
sex marka tap
Austur-Þjóðverjar sigruðu ís-
lendinga 25-19 í milliriðli
heimsmeistarakeppninnar í
handknattleik hjá liðum undir
21-árs sem nú stendur yfir á ítal-
íu.
ísland hafði undirtökin í fyrri
hálfleik og hafði þriggja marka
forystu í hléi, 12-9. f seinni hálf-
leik voru austur-þýsku piltarnir
hinsvegar mun sterkari og
tryggðu sér öruggan sigur.
Island hefur 2 stig eftir 3 leiki í
milliriðli og leikur við Svía í kvöld
en Sviss á föstudag. Jakob Jóns-
son var markahæstur íslensku
leikmannanna í gærkvöldi,
skoraði 4 mörk.
-VS
B-keppnin
Tap með 23 möikum
Kvennalandsliðið í handknatt-
leik fékk skell gegn Ungverjum,
38-15, í fyrsta leik B-keppninnar
sem hófst í Vestur-Þýskalandi í
gærkvöldi.
Hið geysisterka ungverska lið
leiddi 18-5 í hléi og hafði mikla
yfirburði einsog tölurnar bera
með sér. Margrét Theodórsdóttir
var í aðalhlutverki hjá íslenska
liðinu, skoraði 10 af 15 mörkum
þess, þar af 7 úr vítaköstum. ís-
lenska liðið leikur gegn Austur-
ríki í dag. -VS
Miðvikudagur 11. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19