Þjóðviljinn - 11.12.1985, Page 20

Þjóðviljinn - 11.12.1985, Page 20
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663. MðÐWUINM Fasteignir Miðvikudagur 11. nóvember 1985 286. tölublað 50. árgangur Allsherjarþing Verðfall á fasteignum Hjásetan staðreynd Á einu ári hefur fasteignaverð lœkkað um 18%. Verð í krónum talið hefur hœkkað um 13%-15% en lánskjaravísitala um nœrri 40% Aeinu ári hefur fasteignaverð hér á landi lækkað um 18%, samkvæmt upplýsingum frá Fast- eignamati ríkisins. Hér er því um hreint verðfall að ræða og virðist ástandið svipað um allt land. Eiturlyf „200 Lækkunin er meiri á stærri fast- eignum en minni að því er Hall- dór Páll hjá Kaupþingi h.f. tjáði Þjóðviljanum í gær. Samkvæmt heimildum frá Fasteignamati ríkisins hefur verð á fasteignum hækkað á bilinu 13% til 15% frá haustdögum 1984 til jafnlengdar í ár, á sama tíma og lánskjaravísitala hefur hækkað um nærri 40%. Halldór Páll sagði að ástæður fyrir þessari verðlækkun væru fleiri en ein, aðal ástæðuna sagði hann vera meira framboð en eftirspurn sem helgaðist af minni kaupgetu almennings, lánakjör- um og vaxtapólitík. Halldór sagði það reynslu þeirra sem við fast- eignaviðskipti fást að fasteigna- sala tæki kipp ef fólk hefði vænt - ingar um betri ti'ð og blóm í haga. Þannig hefði fólk verið mjög bjartsýnt seinnipart árs 1983 og hefði fasteignasala þá aukist og verð farið uppávið. Fljótlega dró þó úr og eftir það og þó alveg sérstaklega á síðustu 12-13 mán- uðum hefur orðið mikil verð- lækkun á fasteignum. Um áratuga skeið hefur fjár- festing í húsnæði þótt einhver besta peningaávöxtun sem um getur hér á landi. Ljóst er að svo er ekki lengur og ef borið er sam- an hvað fólk sem á íbúð að verð- mæti 2,5 miljónir króna getur fengið í ávöxtun hjá verðbréfa- mörkuðunum og hvaða ávöxtun fasteign gefur í dag er um hreint verðhrun á fasteignum að ræða. -S.dór. Nú er útséð um að Alþingi af- greiði þær þrjár tillögur sem fyrir liggja um afstöðu íslands til fryst- ingar kjarnorkuvopna áður en allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna greiðir atkvæði á morgun, Hmmtudag, um tillögu Svíþjóðar og Mexíkó. Þorvaldur Garðar Kristjáns- son svaraði fyrirspurn Hjörleifs Guttormssonar um það neitandi í upphafi þingfundar í gær og bar við tímaskorti vegna Hafskips- umræðunnar og því að næsti fundur sameinaðs Alþingis yrði ekki fyrr en á fimmtudag. ísland mun því eitt Norðurlandanna sitja hjá við afgreiðslu SÞ á morg- un. -ÁI reglulegir neyt- endur“ ítarleg könnun á neyslu fíkniefna gerð opinber. (Jm 20 þúsund landsmenn á aldrinum 16-36 ára hafa prófað kannabisefni. Þaraferu 200 sem neyta eiturefnanna reglulega Tæplega fjórðungur þeirra sem eru á aldrinuin 16-36 ára hef- ur einhvern tímann neytt kanna- bisefna. Þetta jafngildir því að um 20 þúsund Islendingar á þess- um aldri hafa neytt þessa efnis. Þessar upplýsingar koma fram á nýútkomnu riti um ólögleg ávana- og fíkniefni á Islandi, eftir Ómar H. Kristinsson sem dóms- og kirkjumálaráðuneytið gefur út. Meginuppistaða í þessu riti er niðurstöður könnunar sem gerð var sl. haust á útbreiðslu og notk- un fíkniefna hérlendis. Norræna samfræðiráðið og dómsmála- ráðuneytið veittu þeim Ómari, Steingerði Sigurbjörnsdóttur stud. med. og dr. Élíasi Héð- inssyni styrk til að kanna þessi mál. 600 manna úrtak lands- manna á aldrinum 16-36 ára var valið og haft samband við við- komandi í síma. Aðeins 2% að- spurðra neituðu að svara spurn- ingum. Niðurstöður könnunarinnar sýna að af þeim sem hafa neytt kannabisefna eru tæplega 60% karlar og um 40% konur. Helm- ingur neytenda býr í Reykjavík um 20% í nágrenni borgarinnar en aðeins 17% úti á landi. Um 35 af hundraði hafa ekki neytt kannabis í 5 ár eða lengur, 37% höfðu neytt efnisins síðustu 12 mánuði fyrir könnunina og 4% sögðust neyta efnisins einu sinni í viku. Það gerir miðað við mann- fjölda í þessum aldurshópi um 200 manns sem flokkaðir eru sem reglulegir neytendur. Ýmsar aðrar fróðlegar upplýs- ingar er að finna í ritinu um neyslu fíkniefna og um eiturlyfj- amarkaðinn auk þess sem gerð er grein fyrir fyrri rannsóknum og könnunum á neyslu þessara efna hérlendis. _i„ Hingaft kemur mikiö af fólki og mér finnst bersýnilegt að þeir sem eru að gera jólainnkaupin kunna vel við sig á nýja Laugaveginum, sagði Helga Mattína eigandi Tínu Mínu við Laugaveg. Hún kvað greinilegt að tólk velti verði hlut anna meira fyrir sér en áður. Ljósm: Sig. Laugavegurinn Undirbúningur alltof lítill Enginn umferðarsérfrœðingur hafður með íráðum við hönnun. Ingi V. Magnússon gatnamálastjóri: Hefðiþurft betri undirbúning. Óskar Ólafsson yfirlögregluþjónn: Gengur ekki endalaustað halda uppisvo mikillilöggæslu að hefur komið í Ijós að bíla- stæðin á neðri hluta Lauga- vegar eru vitlaust hönnuð og þess vegna gengur umferð þarna um ekki eins greiðlega og æskilegt væri. Það er Ijóst að það var pressað of mikið á framkvæmd- irnar og tíminn til undirbúnings var of skammur. Það hefði þurft mun meiri undirbúning við þess- ar framkvæmdir en raun varð á, sagði Ingi U. Magnússon gatna- málastjóri Reykjavíkurborgar í samtali við Þjóðviljann I gær. „Stæðin þarna eru of þröng og jafnvel þótt bflum sé lagt rétt í þau tefja þeir fyrir stræti- svögnum. Eftirað málið vartekið fyrir í umferðarnefnd höfum við verið með kranabfla á þessu svæði og eins marga lögreglu- þjóna og við mögulega getum. En auðvitað gengur ekki að hafa svo mikla löggæslu á þessu svæði endalaust,“ sagði Óskar Ólafsson yfirlögregluþjónn í umferðar - deild þegar Þjóðviljinn spurðist fyrir um ástandið. Strætisvögnum hefur verið ó- gerlegt að halda áætlun eftir Laugavegi eftir að breytingarnar voru gerðar. Nú er svo komið að ákveðið hefur verið að banna umferð einkabfla um neðri hluta götunnar í nokkra daga fram að jólum. Talið er víst að við hönnun breytinganna hafi enginn um- ferðarsérfræðingur verið hafður með í ráðum. Málið kom til umræðu á síðasta fundi borgarstjórnar og taldi Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson formað- ur skipulagsnefndar þá að ef á- standið skánaði ekki yrði hrein- lega að loka þessum bflastæðum sem eru 7 talsins. Davíð Oddsson og Albert Guðmundsson lögðust gegn þeirri hugmynd, enda yrðu verslunareigendur ekki hrifnir af því. -€g Happdrœtti Þjóðviljans Gerið skil strax! Skammt er nú til þess að dregið verði í Happdrætti Þjóðviljans, en 15. desember er ætlunin að draga. Þeir sem hata fengið heimsenda miða eru minntir á að gera skil strax, en afgreiðsla blaðsins að Síðumúla 6 og skrifstofa Alþýðubandalagsins að Hverfisgötu 105 taka á móti skilum. Einnig er hægt að greiða í gíró, reikningsnúmer 6572 í Alþýðubankanum aðalbanka.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.