Þjóðviljinn - 14.12.1985, Side 2
FRETTIR
Olís
Viðræður hafnar um sölu
Þjóðviljinn hefur heimildir fyrir því
að viðrœður hafa fariðfram milli Olís og Olíufélagsins
um að hið síðarnefnda kaupi Olís
Þjóðviljinn hefur fyrir því ör-
uggar heimildir að viðræður
hafa þegar átt sér stað milli Olís
og Olíufélagsins um að hið síðar-
nefnda kaupi að hluta til eða að
öllu leyti hið fyrrnefnda. Mjög
mikil leynd hvílir yfir þessu máli,
enda er það enn á byrjunarstigi.
Ástæðan fyrir því að Olís er til
sölu ef viðunandi tilboð fæst er
afar slæm fjárhagsstaða þess.
Olís skuldar um eða yfir 800 milj-
ónir króna í lausaskuldum í
Landsbankanum, bankaleynd
kemur í veg fyrir að hægt sé að fá
nákvæmlega upphæð. Þar fyrir
utan er Olís svo með venjulegar
viðskiptaskuldir, svo sem banka-
ábyrgð o.fl. en öll olíufélögin
standa í þannig skuldum og þykir
eðlilegt.
Enn sem stendur er talið að
Olís eigi fyrir skuldum, en það
hallar stöðugt á stjórnborða,
þannig að frumathugun er í gangi
með að selja Olís áður en verr
fer.
Höfuðástæðan fyrir þvt' hve illa
Olís stendur eru skuldir útgerð-
arfyrirtækja. Vitað er að mikið af
þeim skuldum nást aldrei inn og
verða því afskrifaðar. Einna verst
var staða ísbjarnarnins h.f. áður
en Reykjavíkurborg bjargaði því I
fyrirtæki frá gjaldþroti í haust.
-S.dór
Þarf ekki Sjálfstæðisflokkurinn að
koma sér upp hreinsunardeild?
Undirbúningur samninga
Kröfur kynntar
VSÍ á mánudag
Guðmundur Þ. Jónsson: Sérkröfur iðnverkafólks að fœðast.
Góð samstaða innan hreyfingarinnar um meginkröfur
Guðmundur Þ. Jónsson.
Þær tillögur scm samþykktar
voru á formannafundi ASI á
dögunum verða líklega kynntar
fyrir atvinnurekendum á mánu-
Goð jolagjoý
daginn kemur og ég á von á því að
nú strax upp úr áramótum fari
þessi mál í almennar umræður í
félögunum auk þess sem ganga
þarf endanlega frá hinum ýmsu
sérkröfum félaganna, sagði Guð-
mundur Þ. Jónsson formaður
Landssambands iðnverkafólks í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Guðmundur sagði að búið væri
að leggja töluverða vinnu í að
undirbúa sérkröfur iðnverka-
fólks og þær væru nú komnar á
lokastig. Við höfum bæði rætt
þessi mál á vinnustaðafundum og
eins í trúnaðarmannaráði og við
eigum eftir að taka þessi mál fyrir
á almennum félagsfundi. „Fólk
er nú komið á kaf í jólaundirbún-
inginn þannig að ég á ekki von á
því að þetta verði fullmótað fyrr
en í upphafi næsta árs,“ sagði
Guðmundur.
Hann sagði að nokkuð góð
samstaða virtist vera um aðal-
kröfur komandi samninga,
aukinn kaupmátt og kaupmátt-
artryggingu. „Ég á frekar von á
því að það liggi ekkert á lausu í
þessum samningum, hvorki frá
atvinnurekendum né ríkisvaldi
og því eins víst að menn verði að
leggja nokkuð á sig til að ná sínu
fram,“ sagði Guðmundur Þ.
Jónsson.
-lg-
Afsláttur á skyri
Opið svarbréftil Davíðs Scheving
Thorsteinssonarfrá Ólafi Ragnari
Grímssyni
Hæstvirti forstjóri og fyrrunt
stjórnarmaður í Hafskip h.f.
Ég ‘ þakka opið bréf þitt í
tveimur dagblöðum. sent bar
heitið „Þeir sletta skyrinu sem
eiga það“. Þar víkur þú að
tveimur efnisatriðum.
í fyrsta lagi segir þú að hvorki
Smjörlíki h.f. né Sól h.f. hafi
fengið desember- og jólauppbæt-
ur frá Hafskip h.f. Er sjálfsagt að
taka orð þín gild, þótt mínar
heimildir hafi haldið öðru fram.
í öðru lagi viðurkennir þú að
það sé rétt hjá mér, að fyrirtæki
þín hafi fengið afslátt á farm-
gjöldum hjá Hafskip h.f. Þú verð
þig hins vegar með því að nefna
fjölmörg önnur fyrirtæki, þar
sem þú hefur einnig fengið af-
slátt. Sá er þó munurinn á þessum
fyrirtækjum - flestum eða öllum
— og Hafskip h.f., að hvorki munt
þú hafa verið stjórnarmaður né
stór hluthafi í þeim. Það varst þú
hins vegar hjá Hafskip h.f. og
fékkst því í því tilfelli afslátt hjá
sjálfum þér.
í bréfi þínu kom ekki fram hve
oft þú fékkst þennan afslátt né
hve miklum upphæðum hann
nam né heldur hvort hann var
meiri eða svipaður og sá afsláttur
sem Hafskip veitti hliðstæðum
fyrirtækjum, sem ekki voru í eigu
stjórnarmanna Hafskips. Væri
æskilegt að slík efnisatriði kæntu
fram, fyrst þú ert á annað borð
korninn út í opinbera umræðu unt
málið. Eða eigum við kannske að
bíða í mörg ár eftir að það verði
upplýst í rannsókn skiptaréttar?
Það er hins vegar rétt að hæla
þér í leiðinni fyrir að hafa ekki
gefið kost á þér áfram í stjórn
Hafskips á síðasta aðalfundi. Þar
sýndir þú meiri vitsmuni en ýmsir
aðrir.
Með sambærilegr virðingu.