Þjóðviljinn - 14.12.1985, Blaðsíða 15
BÆKUR
Heiðinn siður
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
hefur gefið út á ný ritið Heiðinn
siður á Isiandi eftir Ólaf Briem en
frumútgáfa þess frá 1945 er þrot-
in.
Bókin skilgreinir heiðinn sið,
trú og guði fornmanna og áhrif
heiðninnar á menningu okkar og
þjóðhætti.
Heiðinn siður er kunnasta verk
Ólafs og er nú endurskoðað og
aukið. I þessari endurútgáfu er
fjöldi mynda til skýringar efninu.
Minni
og kynni
Minni og kynni heitir bók sem
Emil Björnsson fyrrverandi
fréttastjóri sjónvarpsins með
meiru færði í letur.
í bók Emils Björnssonar eru
frásagnir og viðtöl við fjölmarga
íslendinga sem öðlast hafa sess á
sögubekk þessarar aldar fyrir af-
rek í stjórnmálum, bók-
menntum, mannréttindabaráttu
og fjölmiðlum.
Eftirtalið fólk er tekið tali eða
sagt frá því: Aðalbjörg Sigurðar-
dóttir, Brynjólfur Bjarnason,
Guðlaug Helga Porgrímsdóttir,
Gylfi Þ. Gíslason, Halldór Lax-
ness, Hendrik Ottósson, Jó-
hanna Egilsdóttir, Jónas Jóns-
son, María Maack, Ömar Ragn-
arsson, Sigurður Nordal og Vig-
fús Þórðarson.
Örn og Örlygur gefa bókina út.
Stríð
og smygl
Kolakláfar og kafbátar heita
minningar skipstjórans Jóns
Steingrímssonar sent nú eru
komnar út hjá Vöku-Helgafelli.
Hér segir frá ævintýrum Jóns á
sjó og landi allt frá því hann hóf
feril sinn sem háseti á seglskipum
til starfa á nútímaflutninga-
skipum.
Fjallað er meðal annars um
hættuferðir á stríðsárunum og
sagt frá „aukabúgreininni góðu”
þegar laumað var framhjá tollur-
um nokkrum glerjum af vænum
veigum.
Skaut
hann hana?
Annað bindið í bókaflokknum
Aldarspegill í samantekt Elíasar
Snælands Jónssonar heitir Undir
högg að sækia oe er gefin út af
Vöku-Helgafelli.
f ritinu er fyrst og fremst fj allað
um kollumálið svonefnda, þegar
Hermann Jónasson var sakaður
um að hafa skotið æðarkollu í Ör-
firisey, - og varð pólitískt hitamál
á fjórða áratugnum.
Aðrir heimildaþættir í bókinni
eru líka frá fyrri hluta aldarinnar
og er þar lýst tveimur málum sem
spunnust af illri meðferð á börn-
um.
Á ALDARAFMÆL!
Minni
Jónasar
A aldarafmæli Jónasar frá
Hriflu heitir bók sem Santbandið
hefur gefið út og geymir frásagnir
um líf og starf skörungsins mikla.
Þetta er safnrit þarsem 26 höf-
undar og viðmælendur leggja sitt
lóð á vogarskál til lýsingar Jónas-
ar í erindum, greinum, ræðum og
viðtölum. Efni er fyrst og fremst
af tvennum toga: annarsvegar
fræðileg umfjöllun um einstaka
þætti í stjórnmálastarfi Jónasar,
hinsvegar persónulegar minning-
ar manna sem þekktu hann vel og
störfuðu með honum.
Gylfi Gröndal annaðist útgáf-
una og skrifar eftirmála.
Reyndu bara!
Frá nýju bókaforlagi, Bríeti,
berst nú bókin Reyndu það bara!
sem geymir viðtöl við sjö konur
sem vinna störf hingaðtil helguð
karlkyninu.
Kristín Bjarnadóttir er höf-
undur bókarinnar og rætt er við
Steinunni Egilsdóttur . sorp-
hreinsunarmann, Sigrúnu Elínu
Svavarsdóttur stýrimann,
Rannveigu Rist, vélstjóra, Mar-
gréti Guðnadóttur prófessor,
Kristínu Ragnarsdóttur hús-
gagnasmið, Arndísi Jóhannsdótt-
ur söðlasmið og Guðrúnu Ósk-
arsdóttur fangavörð.
Þetta er með orðum útgefanda
„lýsing á viðhorfum kvenna sem
farið hafa ótroðnar slóðir í starfs-
vali sínu. En bókin er nteira. Hún
er einnig hversdagssaga fjölda
annarra kvenna í samfélagi okkar
við lok kvennaáratugar.”
Krtstm Bjaniaúóffir
Reyndu
það
liara!
Styrimáður
Sorj>hi einsunarmaður
Prótessor
Hásgagnasmiður
SöðJíLsmiöur
Véistjórí
Fangavörður
öríer^
''Bókafoiag
Minningar
Huldu
Hjá Erni og Örlygi er komin út
bókin Minningar Huldu A. Stef-
ánsdóttur. Þetta er fyrsta bindi
minninga hennar, sem hún skráir
sjálf, en Hjörtur Pálsson hefur
búið til prentunar.
Hulda segir hér frá ætt sinni og
uppruna, foreldrum sínum og
bernskudögum í Hörgárdal. „Öll
frásögnin er eðlileg og yfirlætis-
laus” segir í bókarkynningu
útgefanda. „Penninn leikur í
höndum Huldu sem kann þá list
að segja sögu þannig að mál og
stíll lilýði höfundinum og hrífi
með sér lesandann. Minningar
Huldu Á. Stefánsdóttur munu ef
að líkum lætur skipa henni á bekk
með nokkrum þeim löndum
hennar sem samið hafa merkast-
ar minningabækur á síðustu ára-
tugum.”
Töluð orð
Töluð orð heitir bók sem
Menningarsjóður hefur gefið út
með sautján áramótahugleiðing-
um Andrésar Björnssonar fyrr-
verandi útvarpsstjóra.
„Töluð orð er annað og rneira
en venjulegar tækifærisræður”
segir í bókarkynningu útgefanda.
„Bókin hefur að geyma einstakar
hugleiðingar manns er finnur til
skyldu og leggur ríka áherslu á
nærtæk samfélagsleg viðhorf.
Yfir málflutningi öllum vakir
blæfegurð og heiðríkja, en undir
niðri býr djúp alvara og siðræn
festa.”
útvaVio.
íár.Skoö'ð'PaU
^tallegíré,^6'
”-*”Nofes
I harrheldnasVa
Tjí
m
• n hiYiur
KU.
S2Sfc-
X"s.nuviðSigtún:Símar36770.686340
Laugardagur 14. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15