Þjóðviljinn - 18.12.1985, Síða 1
Eimskip
Davíð studdi einokun
Eimskip fœr hafnaraðstöðu Hafskips. Davíð Oddsson mœtti sjálfur áfund hafnarstjórnar
til að tryggja málið. Engin tryggingfyrir tekjum. Skilyrði afhálfu Eimskips fyrir kaupum á
eignum Hafskips að hafnaraðstaðanfylgi.
Eimskipafélagið gerir það að
skilyrði fyrir kaupum sínum á
þrotabúi Hafskips að félagið fái í
Bóksala
Indælt
sbíð
0, þetta er indælt stríð! Efst á
sölulista Þjóðviljans í blaðinu
í dag eru fjórar bækur um stríð:
landhelgisstríð, pólitískt stríð,
njósnir og heimsstyrjöld: Guð-
mundur skipherra, Vilmundur
Gylfason, MacLean og Þór
Whitehead.
Vinsælastir höfundar barna- og
unglingabóka samkvæmt Þjóð-
viljalistanum: Eðvarð Ingólfs-
son, Guðrún Helgadóttir og
Andrés Indriðason.
Nánar í tólf síðna bókakálfi í
blaði dagsins.
Sjá síður 7-18
Kvótinn
og AB
Skúli Alexandersson þingmað-
ur Vestlendinga hefur mótmælt
breyttri afstöðu flokksbræðra
sinna til kvótans með úrsögn úr
iðnaðarnefnd efri deildar.
Sjá bls. 5
6 dagar tiljóla!
Teikning: íris 6 ára, dagheimilínu
Hálsakoti, Reykjavík.
JÓl
Rjúpur
til
Þýska-
lands
175 krónur stykkið.
Fokin tilfjalla
„Við erum byrjaðir að selja
rjúpurnar alla leið til Þýska-
lands" sagði Pétur Pétursson í
Kjötborg Péturs á Laugavegin-
um. „Þetta er nú rétt svona til
prófunar, cn þvskaranum hefur
smakkast rjúpan bara vel, held
ég.“
„Innanlands erum við búnir að
selja einar 2300 rjúpur og stykkið
kostar 175 krónur. Veiðin var
nokkuð góð í byrjun tímabilsins,
en svo fauk hún til fjalla vegna
veðurs“, sagði Pétur. „Veiðin
hefur þó verið að glæðast undan-
farið og þetta lítur nokkuð vel
út“. Mynd: Sig.
IH.
sínar hendur umráðarétt yfir
fyrrum athafnasvæði Hafskips
við austurbakka hafnarinnar.
Þar með fær Eimskip einokun á
nær allri hafnaraðstöðu í Reykja-
vík. Davíð Oddsson borgarstjóri
styður þessa kröfu Eimskips og
fylgdi því fast eftir að hafnar-
stjórn gekk frá samningi við Eim-
skip sl. föstudag um leigu á
austurbakkanum fram til ársins
1991.
Það er til marks um hinn mikla
stuðning Davíðs við málið, að
hann sat sjálfur fund hafnar-
stjórnar til að fylgja málinu eftir,
en sækir að öðru jöfnu slíka fundi
sjaldan. Þegar svo gengið var frá
samningnum sendi hann borgar-
ritara í sinn stað, en það er nánast
einsdæmi að borgarritari komi á
fundi hafnarstjórnar.
Gunnar Guðmundsson hafnar-
stjóri sagði í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær að menn hefðu vitað um
skilyrðin af hálfu Eimskips. „Það
kom ekki fram neitt skriflegt
plagg um það en ég held að flestir
hafi haft einhverja vitneskju um
að slíkt atriði var inni í mynd-
inni“, sagði Gunnar.
í samningnum skuldbindur
Eimskip sig til að nýta vöru-
geymslur Hafskips sem mest
þannig að tekjur hafnarinnar
skerðist sem minnst. Aðspurður
hvaða tryggingu hafnarstjórn
hefði fyrir því að verða ekki fyrir
tekjumissi vegna þessa samnings
sagði hafnarstjóri að sú trygging
væri ekki önnur en orðalag samn-
ingsins. Eigendursmærri skipafé-
laga bentu á, í spjalli við Þjóðvilj-
ann, að þessi samningur myndi
að öllum líkindum þýða tekjutap
fyrir Reykjavík, þar sem minni
skipafélögin myndu sækja til
Hafnarfjarðar með sína flutn-
inga.
Mikil reiði er meðal margra
stórra innflytjenda og eigenda
minni kaupskipafélaganna, en
þessir aðilar höfðu óskað eftir því
við hafnarstjórn að fá til umráða
athafnasvæði Hafskips.
Guðmundur Þ. Jónsson, borg-
arfulltrúi sat einn hjá í hafnar-
stjórn við afgreiðslu ntálsins, og
kvaðst hafa varað mjög sterklega
við þeirri einokunaraðstöðu sem
samningurinn byði Eimskip upp
á.
->g-
Fjölmiðlarisinn
Sex milljónir í ísfilm
Hlutafé borgarinnar aukið úr2 miljónum í8. Davíðfœr
umboð til að veita lán til hlutafjáraukningar og jafnframt til
að selja hlut borgarinnar
Borgarráð samþykkti í gær að
veita borgarstjóra umboð til
að auka hlutafé borgarinnar í ís-
film hf. í allt að 8 miljónir en sem
stendur er hlutafé borgarinnar í
fyrirtækinu 2 miljónir.
Borgarstjóri bar fram tíilögu
um þetta á borgarráðsfundi í gær
og var hún samþykkt með þrem-
ur atkvæðum gegn einu atkvæði
Sigurjóns Péturssonar fulltrúa
Abl. Þetta er þó ekki endanleg
samþykkt þar sem taka verður
málið fyrir í borgarstjórn á morg-
un en gera verður ráð fyrir að
meirihlutinn þar samþykki engu
síðar en borgarráð. Enn fremur
var samþykkt tillaga borgarstjór-
ans um að honum yrði heimilað
að veita bráðabirgðalán upp í
hlutafjáraukningu ef eftir því
verður leitað.
Þá var samþykkt samhljóða að
heimila borgarstjóra að bjóða
hluta hlutafjár eða allt til sölu til
fyrirtækja eða einstaklinga í sam-
ræmi við samþykktir Isfilm hf.
Þessi tillaga er efnislega sam-
hljóða tillögu Sigurðar E. Guð-
mundssonar Alþýðuflokki sem
hann lagði fram á síðasta borgar-
stjórnarfundi.
Ekki er vitað nákvæmlega
hvernig borgarstjóri hyggst not-
færa sér þetta umboð, en telja
verður líklegt áð hann ntuni auka
hlutafé borgarinnar í fyrirtækinu,
sem er sameign Morgunblaðsins,
Sambandsins, Almenna bókafé-
lagsins, borgarinnar o.fl. -gg