Þjóðviljinn - 18.12.1985, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 18.12.1985, Blaðsíða 7
Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir: Kvennaforlög hafa gengið vel í öðrum löndum og því þá ekki hér? Mynd: E. Ól. Umsagnir Að þessu sinni er fjallað uni þessi verk í bókakálti Þjóðvilj- ans: Af jarðarför landsmóður- innar (Gabriel Garcia Marquez/Þorgeir Þorgeirs- son) s. 17, Astkona franska lautinantsins (John Fowles/ Magnús Rafnsson) s. 14, Ban- eitrað samband á Njálsgöt- unni (Auður Haralds) s. 8, Eldur og regn (Vigdís Gríms- dóttir) s. 8, Ferjuþulur (Val- garður Egilsson, Guðmundur Thoroddsen) s. 9, Fjúk (Steingerður Guðmundsdótt- ir)s. 12-13, Flautanog vindur- inn (Steinunn Jóhannesdótt- ir) s. 11, Gabríela í Portúgal (Sveinn Einarsson, Baltasar) ' s. 13, Hvar stend ég þegar ég flýg? (Bjarni Einarsson, Guð- i mundur Ármann) s. 12-13, Jónas Árnason (Rúnar Ár- mann Arthúrsson) s. 16, Ljós- ahöld og myrkavöld (Ingimar Erlendur Sigurðsson) s. 12- 13, Lýsing (Jón Bjarman) s. 12-13, Memed mjói (Yashar Kemal/Þórhildur Ólafsdóttir) s. 14, Sagan af Sigríði stór- ráðu (Játvarður Jökull Júlí- usson) s. 18, Sagan öll (Pétur Gunnarsson) s. 10, Sóla, Sóla (Guðlaugur Arason) s. 18, Vængbrotin orð (Jónas Frið- geir) s. 12-13. Útgófa Bœkur um konur eflir konur Nýtt foriag stofnað: Bríet. Vill bœta úr fáfrœði kvenna um sögu sína Viðstofnuðum þettaforlag vegna þess að okkurfannst vera þörf á sérstöku kvenna- forlagi. Okkurvirðistáútgáfu síðustu ára að konur eigi undir högg að sækja á bókamark- aði, sagði Sigurbjörg Aðal- steinsdóttir í spjalli við Þjóð- viljann. Sigurbjörg hefur ásamt Guð- rúnu Jónsdóttur stofnað bókafor- lagið Bríet. Þær ýta úr vör með tvær bækur, aðra íslenska, hina þýdda úr dönsku. íslenska bókin heitir Reyndu það bara! og hefur að geyma viðtöl Kristínar Bjarnadóttur við sjö konur sem eiga það sameiginlegt að vinna störf sem lengst hafa verið álitin karlastörf. Konurnar sjö eru stýrimaður, sorphreinsunarmað- ur, prófessor, húsgagnasmiður, söðlasmiður, vélstjóri og fangavörður. Hin bókin heitir Dídí og Púspa og er eftir dönsku skáldkonuna Marie Thöger. í þeirri bók segir frá 14 ára stúlku sem býr í fjalla- þorpi í Himalaja. Það er búið að ákveða framtíð stúlkunnar fyrir- fram, velja henni starfsvettvang og ákveða að hún á ekkert erindi í skóla. Dídí föðursystir hennar hefur aðra stöðu, hún bjó í stærri bæ en fluttist heim í þorpið orðin ekkja. Saman gera þær uppreisn gegn hefðbundnu hlutverki kvenna í þorpinu. Á eldhúsborðinu Við spyrjum Sigurbjörgu hver sé tilgangur þeirra með stofnun Bríetar. „Við ætlum að gefa út bækur eftir konur og unt konur, líf þeirra og hugsanir, jafnt skáld- verk og bækur um kvennafræði. Sem dæmi um þörfina á slíkum bókum má nefna þá staðreynd að það er ekki fyrr en á þessu ári sem kvennasögu er getið í almennum kennslubókum í sögu. Stúlkur læra því lítið um sögu formæðra sinna í skólum. Úr þessu viljum við bæta og þess vegna völdum við þetta nafn á forlagið, Bríet. í því felst ábending um að konur eigi sér sögu þótt hún hafi ekki verið skrifuð. Við höfum báðar fundið fyrir því í kvennabaráttunni að það er eins og hún sé alltaf að byrja upp á nýtt. Helsta ástæðan er sú að saga okkar er ekki til.“ — Haldið þið að svona forlag geti gengið ú þessum litla markaði sem hér er? „Við erum bjartsýnar á það. Kvennaforlög hafa starfað og gengið vel í öðrum löndum og ættu því að geta gengið hér. Við rekurn þetta ekki með gróðahug- sjónina að leiðarljósi. Útgáfan er aukageta hjá okkur, rekin á eld- húsborðinu.“ — Hvernig hafa viðbrögð kvenna verið? „Þau hafa verið jákvæð. Konur virðast ánægðar með þetta fram- tak og okkur hefur verið vel tekið þegar við komum með bækurnar í verslanir “ sagði Sigurbjörg Áð- alsteinsdóttir. —ÞH Sölulisti Þjóðviljans Skipherrann a fullu stimi Eðvarð, Guðrún og Andrés njóta mestrar hylli barna og unglinga Stríð fyrir ströndum Þórs White- head siglir mikinn á sölulista Þjóðviljans, teknum saman eftir upplýsingum frá flmm bókabúð- um, - en Guðmundur skipherra Kjœrnested er þó fremstur í flokki og á fullu stími. Listinn yfír bækur ætlaðar fullorðnum (í svigum sæti á lista Þjóðviljans fyrir viku (fyrri tala) og sæti á lista Kaupþings frá föstudegi (seinni tala)) er þessi: 1. (3/1) Guðmundur Skipherra Kjærnested / Sveinn Sæmundsson 2. (2/2) Löglegt en siðlaust/ Jón Ormur Halldórsson 3. (4/3) Njósniráhafinu/Alistair MacLean 4. (-/-) Stríð fyrir ströndum / Þór Whitehead 5. (1/4) Margsaga / Þórarinn Eldjárn 6. (9/5) Lífssaga baráttukonu / Inga Huld Hákonardóttir 7. (7/-) Gerður/ Elín Pálmadótt- ir 8. (6/6) Sögur og Ijóð / Ásta Sig- urðardóttir 9. (-/-) Sóla, Sóla / Guðlaugur Arason 10. (-/-) Stúlkan á bláa hjólinu / Régine Deforges Næstar í stigaröðinni hjá okkur voru: Trölleykið (Desmond Bagley), Minni og kynni (Emil Björnsson), Skilningstréð (Sig- urður A. Magnússon), Landið þitt, sjötta bindi, Djass (Jón Múli Árnason). Þar neðanvið: Birtan að handan (Sverrir Pálsson), Minningar Huldu Á. Stefánsdótt- ur, Kommissarinn (Sven Hasel), ífóstri hjáJónasi (Halldór E. Sig- urðsson), íslenskir elskhugar (Jó- hanna Sveinsdóttir). Listi um barna- og unglinga- bækur lítur svona út (svigatölur einsog áður): 1. (1/1) Sextán ára í sambúð / Eðvarð Ingólfsson 2. (4/4) Gunnhildur og Glói / Guðrún Helgadóttir 3. (2/2) Bara stælar! / Andrés Indriðason 4. (-/-) Elías á fullri ferð / Auður Haralds 5. (3/3) Jólasveinabókin / Rolf Lidberg Næstar komu þessar: Hvað er klukkan? (Vilbergur Júlíusson), Blómin á þakinu (Ingibjörg Sig- urðardóttir, Brian Pilkington), Ekki kjafta frá (Helga Ágústs- dóttir). Það er óþarft að telja upp fyrir- vara við þennan lista. Hann er ekki tekinn saman með strangvís- indalegum hætti, en þó kerfis- bundnum og heiðarlegum. Upplýsingar voru sóttar til kunnáttumanna í fimm bókabúð- um sem hérmeð er þakkað: Bókadeild Hagkaups, Bókabúð Máls og menningar, Bókabúð Jónasar Jóhannssonar Akureyri, Bókaverslun Sigfúsar Eymunds- sonar, Bókabúð Lárusar Blöndal.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.