Þjóðviljinn - 18.12.1985, Page 9

Þjóðviljinn - 18.12.1985, Page 9
BÆKUR Odysseifsför með Akraborginni Valgarður Egilsson Ferjuþulur Rím við bláa strönd Guðmundur Thoroddsen myndskreytti Almenna bókafélagið Ekki eru þeir margir sem láta „inspirerast" af sjóferð frá Reykjavík til Skipaskaga og enn færri sem festa slíka reynslu á spjöld. Þó er komin út bók hjá Almenna bókafélaginu sem hef- ur að geyma slíka ferðalýsingu, færða í bundið mál. Bókin heitir „Ferjuþulur" og hefur að undir- titli „Rím við bláa strönd". Höf- undur er Valgarður Egilsson, læknir, en Guðmundur Thorodd- sen myndlistarmaður mynd- skreytti. Ferjuþulur er ekki stór bók. Hún er tæpar 40 síður og lætur lítið yfir sér. Þrátt fyrir það geymir hún rnargt gullkornið í 27 þulum, sem ortar eru um siglingu með Akraborginni og tæpa nán- ast á öllu því sem borið getur til tíðinda í slíkri för. Höfundur byrjar á því að kynna farkostinn og rekur síðan upphaf siglingar. Fyrsti hlutinn endar á sjoppubrag, í þann mund sem skipið leggur út á sundin. Þá eru áttir teknar, eyjarnar skoðað- ar og útsýni lýst. Fjöllin ogFaxa- flói verða Valgarði efni í kvæði, en einnig fuglar himinsins, farm- ur skipsins og farþegarými. Eftir að hafa lýst hinum þverrandi kirkjugarði að Saurbæ á Hval- fjarðarströnd, sem smánt saman er að verða briminu að bráð, tek- ur skáldið til við að yrkja um fiska sjávarins, heimspekilegar vanga- veltur og hagfræði. Að endingu er lýsing á Akraneskaupstað, knattspyrnunni sem íbúar eru þekktir fyrir og ferðalokunt, þeg- ar skipið leggst að bryggju. Eins og titill bókarinnar gefur til kynna, eru kvæðin þulur. Hátturinn er leikandi léttur og fléttar Valgarður saman kveðum sínum af mikilli fimi. Stundum fer hann á kostum í innrími og endarími og skapast þá einkar lipur hrynjandi. Þá falla ríntorð oft á óvenjulegu atkvæði og við það myndast alsérstætt hljómfall og fjölbreytilegt. Þannig glímir höfundur við hinar ýmsu þrautir hefðbundins skáldskapar og virð- ist sú glíma honum næsta auðveid. Valgarður hefur gott vald á ís- lenskri tungu og hvarvetna ntá sjá þess merki. Þulurnar eru fullar af skemmtilegum fléttum. þar sem orð hafa margræða merkingu, allt eftir því hvernig lesið er úr ljóðlínum. Tilvitnunum í íslensk- ar bókmenntir er beitt af smekk- vísi og hnyttni. Þá er Valgarður glöggur sögumaður, sem þekkir vel til staðhátta, sögu og náttúru- fræði, þannig að dregin er upp lifandi mynd af því sern fyrir augu ber. Vangaveltur nteð heim- spekilegu ívafi og alvarlegum undirtón eru einnig til staðar, en jafnharðan bregður skáldið á leik og leysir þær upp í geislandi fynd- ni. Myndskreyting við Ferðaþulur er gerð í nánu samráði við höfund og hefur Guðmundi tekist að bæta nýrri vídd við þessi skemmtilegu kvæði. Skreytingar hans mynda ramma um þulurnar og aðeins á einum stað skarast ljóðlínur og umgjörð á eilítið klaufalegan hátt. Ferðaþulur verða menn að lesa af kostgæfni, til að njóta þess hvernig höfundur beitir tung- unni, en eitt sinn vel og vandlega lesnar má hafa af þeim hina mestu skemmtan. HBR Lífssaga Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur ersaga stórhuga baráttukonu sem mátt hefur þola marga raun og sigrastáþeim öllum. Knúin áfram af bjartsýni og réttlætiskennd hefur Aðalheiður boðið óréttlæti birginn, og krafist þess af landsfeðrum og máttarvöldum að sýna lítilmagnanum miskunn. Aðalheiður þekkir af eigin raun baráttuna fyrir því að fá að halda lífi, og hún hefur kosið að helga krafta sína baráttu íslenskra verkamanna og kvenna fyrir jafnrétti og réttlæti. í þeirri baráttu Aðalheiðar hafa hugsjónir staðið ofar flokksböndum og pólitískri hlýðni. Bókin um Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur er skráð af Ingu Huld Hákonardóttur. Hún á vísast eftir að koma mörgum á óvart og trúlega munu margir samsinna einum þeirra sem lesið hafa bókina og sagði: „Þetta er magnaðurog mannbæt- andi lestur“. Magnaður og mannbætandí íestur VIÐTALSBÓK VIÐ RITHÖFUNDINN OG ÞINGMANNINN JONAS ARNASON Rúnar Ármann Arthúrsson skrásetti. Vörumerki verömæta í bókinni segir Jónas opinskátt frá æsku og uppvexti. Hann talar af mikilli hreinskilni um átök við samherja jafnt sem andstæðinga á sgórnmálasvið- inu. Hann segir frá kynnum af skemmtilegu fólki og leikhúslífi. Bókin er ekki aðeins merkileg heimild um mikilhæfan mann og litríkan persónuleika, því húmorinn óborganlegi er á sínum stað og gerir viðtalsbók- ina við Jónas Árnason að sérstakri skemmtun. ------------—. 5vort á hvítu S-------------r Miðvikudagur 18. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 9 GOTT FÓLK / SÍA

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.