Þjóðviljinn - 18.12.1985, Page 24

Þjóðviljinn - 18.12.1985, Page 24
Aðalsími: 681333. Kvöidsími: 681348. Helgarsími:81663. DJOÐVIUINN Miðvikudagur 18. desember 1985 292. tölublað 50. árgangur. Útvegsbankinn Bankarað verði endumýjað Framkvœmdastjórn Abl.: Bankaráð Útvegsbankans verði endurnýjað. Abl. tilnefni ekkiþingmenn íbankaráð. Garðar Sigurðsson: ekkimál framkvœmdastjórnar þeirra á alþingi eiga skýlausan eru forsenda þess að vel takist til Framkvæmdastjórn leggur AB gegni þessari upplýsinga- rétt á slíkum upplýsingum sem við stjórnun viðkomandi banka. áherslu á að bankaráðsfulltrúar skyldu." -gg Mjólkursamsölumennirnir Guðlaugur Björgvinsson, (t.v.) og Gunnar Guð- Gunnar Kristinsson, tormaður stjórnar Þjóðskjalasatns og Björk Ingimundar- bjartsson (t.h.) benda á líkanið at verðandi húsakynnum Þjóðskjalasafns ís- dóttir, skjalavörður. Mynd. E. Ól. lands. Aðrir á myndinni eru frá vinstri, Ólafur Ásgeirsson, þjóðskjalavörður, Mjólkurstöðin Skjöl í stað mjólkur Ríkið kaupirhús Mjólkursamsölunnar við Laugaveg til notafyrir Þjóðskjalasafn íslands. Kaupverð: 110 milljónir. Flutningar hefjast í júníá nœsta ári Þessi húsakynni eiga að duga Þjóðskjalasafninu vel fram á næstu öld, sagði Sverrir Her- mannsson, menntamálaráð- herra, þegar hann ásamt stjórn Þjóðskjaiasafnsins og fulltrúum Mjólkursamsölunnar kynnti kaup ríkisins á húseign Mjólkur- samsölunnar við Laugaveg 162 fyrir starfsemi Þjóðskjalasafns- Kaupverðið var 110 miljónir, og Þjóðskjalasafnið mun byrja að flytja inn í húsnæði í júní á næsta ári. Ólafur Ástgeirsson, þjóð- skjalavörður, sagði að þetta hús- næði þyrfti í raun ekki mikilla breytinga við og það væri í góðu ásigkomulagi. Hann taldi að það tæki þrjú til fjögur ár til að flytja alla starfsemina í nýja húsið. Nú eru einungis 13 starfsmenn hjá Þjóðskjalasafni og ekki hefur verið aukið við mannafla þess í 30 ár, enda húsnæði og vinnuað- staða af skornum skammti. „En þetta er afskaplega góð lausn á þeim brýna húsnæðisvanda sem við áttum við að etja“ sagði Ólaf- ur að lokum. IH Súðavík Rækjufarmur innsíglaður Vantraust áfulltrúa Ríkismatsins. Pétur Geir Helgasonfulltrúi óskaði eftir lausnfrá starfi vegna ágreinings um matsaðferð Framkvæmdastjórn Alþýðu- bandalagsins telur óeðlilcgt að fráfarandi bankaráð Útvegs- bankans verði endurkjörið, held- ur eigi vegna atburða síðustu mánaða að endurnýja allt banka- ráðið. Kosið verður í bankaráð fyrir jólaleyfi þingmanna sam- kvæmt nýjum lögum um við- skiptabanka sem taka eiga gildi um áramótin. Þetta kemur fram í samþykkt frá fundi framkvæmdastjórnar á mánudaginn. Þar var ennfremur samþykkt tillaga sem segir að framkvæmdastjórn flokksins samþykki fyrir sitt leyti „þá meg- inreglu að þingflokkur AB til- nefni ekki þingmenn í bankaráð ríkisbankanna. Beinir fram- kvæmdastjórn því til þingflokks að þessi regla verði tekin upp jafnóðum og núverandi banka- ráðsmenn flokksins úr þing- mannahópi víkja fyrir endurnýj- unarreglunni eða að eigin ósk“. Þingflokkar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa hins vegar ákveðið að fulltrúar þeirra í núverandi bankaráði Utvegs- bankans skuli vera þar áfram í kjöri. Alþýðuflokkur telur að ráðinu beri að víkja. Garðar Sigurðsson fulltrúi Abl. í bankaráði Útvegsbankans sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að hann væri ekki reiðubúinn að gefa neinar yfirlýsingar um þessar samþykktir framkvæmda- stjórnar. „Framkvæmdastjórn ræður engu um það hverjir skipa bankaráð, það er Alþingis að á- kveða það“ sagði Garðar. Framkvæmdastjórn Abl. sam- þykkti einnig á áðurnefndum fundi að leggjast eindregið gegn því að Útvegsbankanum verði breytt í sjálfstæðan einkabanka. Þá segir: „Framkvæmdastjórn á- réttar að lög um bankaleynd koma ekki í veg fyrir að bankar- áðsmenn, bankastjórar eða ráð- herrar bankamála komi skil- merkilega á framfæri við alþingi og almenning öllum almennum upplýsingum er varða stöðu við- komandi ríkisbanka eða stefnu- mörkun hans m.a. í bygginga- og vaxtamálum. Eigendur þjóð- bankanna eru skattborgarar landsins og kjörnir fulltrúar Þyrlukaupin Albert „týndist“ Fjármálaráðherra og dóms- málaráðherra hafa í skriflegu svari við fyrirspurn Guðrúnar Helgadóttur um kaupin á frönsku Dauphine-þyrlunni fullyrt að ekki sé vitað hver hafi verið um- boðsmaður fyrir þyrluna á árun- um 1980-1983. Guðrún Helgadóttir lýsti þetta ósannindi á alþingi í gær og krafð- ist þess að ráðherrarnir drægju þingskjalið til baka. Sjá bls. 5 Pétur Geir Helgason fulltrúi hjá Ríkismati sjávarafurða hefur óskað eftir því að verða leystur frá störfum hjá stofnun- inni vegna ágreinings um aðferðir við mat á rækjufarmi vestur á fjörðum. Málsatvik eru þau að í ágúst í sumar var rækjufarmur á Súðavík dæmdur óhæfur til útflutnings, en Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna fékk því framgengt að fram- kvæmt var endurmat í byrjun desember. Pétur átti að vera við- staddur matið, en á síðustu stundu óskaði SH eftir því að svo yrði ekki og samþykkti fiskmat- stjóri það. Pétur iítur á þá ákvörðun sem vantraust á sig og hefur óskað eftir því að verða leystur frá störfum þar til málið er útkljáð. Pétur hefur yfirumsjón með rækjumati fyrir Ríkismati um allt land. Fyrir nokkrum dögurn sam- þykkti fjölmennur fundur í Starfsmannafélagi Ríkismat sjá- varafurða stuðningsyfirlýsingu við Pétur „vegna mála hans varð- andi svokallað „endurmat" á rækju sem fram fór á ísafirði 3. desember s.l.“ Telur fundurinn að endurmat eigi sér ekki laga- stoð. Ennfremur skorar fundur- inn á Pétur að halda áfram störf- um. Matsmenn eru mjög óánægðir með þessi vinnubrögð og heimildarmenn blaðsins telja frá- leitt að verkendur og útflytjendur geti valið sér menn á þennan hátt til að sinna mikilvægu mati. Atvik sem þetta á sér ekki for- dæmi að því er næst verður kom- ist. Rækjufarmurinn er enn innsiglaður á Súðavík og er fyrir- hugað að fiskmatsráð fjalli um málið í janúar. Fiskmatsráð er skipað fjórum fulltrúm hagsmunaaðila í sjávarútvegi og að auki skipar ráðherra þrjá menn í ráðið. Þó er talið að það sé ekki í verkahring ráðsins að skera úr um málið. -88 Happdrætti Þjóðviljans - Dregið 13. janúar - Gerið skil!

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.