Þjóðviljinn - 20.12.1985, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
Okurmálið
Geysileg skriffinnska
Mun dragastfram yfir áramót. 160 manns yfirheyrðir
Við sjáum nú fram á að við
munum ekki ná að ljúka
rannsókn okurmálsins fyrr en
skömmu eftir áramót, því það
hefur reynst erfitt að ná til nokk-
urra vitna sem við verðum að
kalla til yfirheyrslu, sagði Þórir
Oddsson vararannsóknarlög-
reglustjóri í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Upphaflega var stefnt að því að
senda ríkissaksóknara öll gögn í
málinu fyrir áramót en ljóst er að
af því getur ekki orðið. Þórir
giskaði á að nú þegar væri búið að
yfirheyra um 160 manns. „Það
hefur verið alveg gífurleg skif-
finnska í kringum þetta, skýrsl-
urnar liggja hér hjá okkur í
haugum. Þetta mun liggja fyrir
allt sundurgreint og rannsakað í
botn fyrir hvern og einn, en þrátt
fyrir alla þessa vinnu hefur verið
góður gangur á þessu máli, og
býst ekki við á að þetta þurfi að
taka langan tírria hjá saksókn-
ara“, sagði Þórir í gær. ~gg
ORGIÐ^jy—
9
Topplagið á Alþingi þessa
dagana: Vert’ ekk’ að horfa
svona alltaf á mig ...
• /
• ••
Byggingar
Mogginn
blómstrar
Fœr2.500fermetra
stœkkun í nýja
miðbænum
Sjálfstæðismenn í borgarráði
samþykktu í gær heimild til
hf. Arvakurs, útgáfufélags Mogg-
ans, um 2.500 fermetra viðbót við
stórhýsi þeirra í Nýja miðbænum
við Kringlu.
Stækkunin jafngildir 25 hundr-
að fermetra íbúðum en húsið allt
verður 11.500 fermetrar. Þegar
hefur verið byggt yfir prent-
smiðju Morgunblaðsins sem er
flutt í Nýja miðbæinn en eftir er
að reisa ritstjórnar- og skrifstofu-
bygginguna. Minnihlutinn í borg-
arráði sat hjá við þessa af-
greiðslu. _Á1
Reykjavíkur-
kort
í tilefni af 200 ára afmæli
Reykjavíkurborgar, hefur Ár-
bæjarsafn gefið út dagatal fyrir
árið 1986 með litprentuðum
Reykjavíkurkortum. Elsta kortið
er frá 1715 en það yngsta frá
1981.
Ha, ha, ha! Kremlverjinn glottir við Jóni og þinghúsinu. Ljósm. Sig.
Kreml
Rússamir komnir
á Austurvöllinn
Tillaga í borgarráði
að fjarlœgja gripinn
Kristján Benediktsson, borg-
arfulltrúi Framsóknarflokks-
ins, hefur lagt til að auglýsinga-
skilti Kremlverja við Austurvöll
verði fjarlægt. Byggingarnefnd
hefur tillögu Kristjáns nú til at-
hugunar.
Þegar veitingahúsinu Óðali við
Austurvöll var breytt nýlega var
nafninu líka breytt í Kreml,
auðvitað ritað með
„rússneskum“ hætti. Þar fyrir
ofan er á að giska 16 fermetra
tjald með glottandi Kremlverja
sem bendir hæðnislega á Jón Sig-
urðsson og alþingishúsið. Skiltið
er hárautt að lit og vægast sagt
mjög áberandi í annars látlausu
umhverfi Austurvallar. Og nú
hefur byggingarnefnd sem sagt til
athugunar hvort fjarlægja eigi
gripinn.
El Salvador-nefnd
Söfnunin
gengur vel
Jólasöfnun El Salvadornefnd-
arinnar heldur áfram af full-
um krafti í dag og næstu daga.
Um síðustu helgi söfnuðust um
60 þúsund krónur á götum úti
fyrir sjúkrastöð í Santa Barbara í
E1 Salvador, en stefnt er að því að
safna nægu fé til að reka þessar
sjúkrastöð í 3 mánuði. Við
minnum hér á póstgírónúmer
söfnunarinnar sem er
3032610401. Framlög má einnig
senda Sjúkrastöðinni, pósthólfi
1032, 121 Reykjavík. -gg
Viðburður
Jólaævintýri
Kramhússins
essa dagana snýst allt um skerrimta sjálfum sér konunglega
blessuð jólin og undirbúning í leiðinni.
þeirra. í Kramhúsinu við Berg- (Fréttatilkynning
staðastræti, sem venjulega er frá Kramhúsinu)
vettvangur leik- og dansiðkenda,
er nú hægt að kaupa jólagjafir
handa ungum sem öldnum.
Hópur fólks, sem á það sam-
merkt að hafa eitthvað fallegt og
áhugavert á boðstólum, býður
þar fram sköpunarverk sín dag
hvern fram til jóla, að sunnudeg-
inum 22. desember og aðfanga-
degi meðtöldum. Úrvalið er fjöl-
breytt og margt af þessu
heiðursfólki treður auk þess upp
með söng og upplestur úr verkum
sínum, og má búast við slíkum
uppákomum dag hvern kl. 16 til
17, og jafnvel oftar eftir aðstæð-
um. Þau sem þannig munu gera
þetta „jólaævintýri“ Kramverja
að sannkölluðu ævintýri í
skammdeginu eru m.a. rithöf-
undarnir Pétur Gunnarsson og
Þórarinn Eldjárn, tónlistarfólkið
og leikararnir Kristín Á. Ólafs-
dóttir og Helgi söngvari í Grafík.
Og hver veit nema ástandspíur og
draumadátar úr Iðnó reki inn
nefið og taki lagið af nýútkom-
inni söngleiksplötu.
Kaffi, kakó og vöfflur ættu
varla að draga úr jólagleði þeirra
sem gera sér ferð í Kramhúsið
fyrir þessi jól. Og svo mikið er
víst að þar er hægt að bjarga fjöl-
mörgum úr klóm jólakattarins og
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Umferðin
Virðið stæði
fatlaðra
Sjálfsbjörg, landssamband fatl-
aðra, hefur látið prenta
spjöld, sem vekja athygli á merkt-
um bílastæðum fatlaðra. Fyrir
hreyfihamlaða, sem nauðsynlega
þurfa á bíl að halda til þess að
komast leiðar sinnar, er áríðandi
að geta lagt bílnum nálægt stöð-
um; þar sem þjónusta er veitt.
Á síðustu árum hefur stæðum,
sérstaklega merktum fötluðum,
fjölgað töluvert. Hins vegar er
mikill misbrestur á því að al-
menningur taki tillit til þeirra.
Menn hugsa oft sem svo, að 2-3
mínútur skipti engu máli og
leggja bílum sínum í merktu
stæðin. Fatlaðir verða fyrir tölu-
verðum óþægindum af þessum
sökum.
Spjöldin fást á skrifstofu Sjálfs-
bjargar, Hátúni 12, s. 91-29133,
og eru afhent ókeypis, meðan
birgðir endast.