Þjóðviljinn - 20.12.1985, Blaðsíða 4
LEHDARI
Fólkið vill opna rannsókn
Almenningur er fullur illra grunsemda um
Hafskipsmálið. Fólk vill fá hreint borð í málinu,
það vill fulla rannsókn sem það getur treyst að
öllu leyti. Til þess er auðvitað ein leið fær, - og
aðeins ein: opin rannsókn.
Einungis þannig getur fólk fylgst með fram-
vindu rannsóknarinnar og sannfærst um, að
engu sé til baka haldið, að samtrygging kerfis-
ins smíði ekki vönd til að sópa með óhreinu mjöli
undir gólfteppið.
Einmitt vegna þessa setti Alþýðubandalagið
fram ótvíræða kröfu um opna rannsókn á
öllum þáttum málsins, sem yrði unnin af
rannsóknarnefnd sem Alþingi skipaði. Með því
vildi Alþýðubandalagið tryggja að fólkið á götu-
nni fengi að fylgjast að vild með rannsókninni og
fengi fulla vissu fyrir því að allt væri fram í dags-
Ijósið dregið. Það er vert að ítreka, að Alþýðu-
bandalagið gekk að þessu leyti feti framar en til
dæmis Alþýðuflokkurinn, sem vildi lokaða
rannsókn á vegum þingskipaðrar rannsóknar-
nefndar.
Kröfur Alþýðubandalagsins á Alþingi um
opna rannsókn á Hafskipsmálinu hafá nú
hlotið ótvíræðan stuðning. í skoðanakönnun
sem Helgarpósturinn birti í gær kom í Ijós, að
yfirgnæfandi meirihluti fólks, eða 76,5 af hundr-
aði, telur að rannsókn málsins eigi að fara fram
fyrir opnum tjöldum. Það er því Alþýðubanda-
lagið sem hefur túlkað hinn raunverulega vilja
fólksins í þessu máli, - vegna þess að það vil.l,
einsog fólkið á götunni, fá fulla rannsókn þar
sem ekkert er undan dregið og þar sem allir eiga
kost á að fylgjast með.
Krafan um opna rannsókn var einmitt það
sem skaut Sjálfstæðisflokknum mestan skelk í
bringu. Það er auðvitað að vonum. Sjálfstæðis-
flokkurinn situr í súpunni, vegna þess að tengsl-
in milli hans og Hafskips eru svo ótvíræð. Flokk-
urinn stendur í skugga Hafskips og ekki víst að
öll kurl séu til grafar komin. Að minnsta kosti
viðurkenndi málgagn Sjálfstæðisflokksins,
Morgunblaðið, að full þörf væri fyrir rannsóknar-
nefnd á vegum þingsins til að kafa ofan í
gruggug málsvötn. Morgunblaðið lagðist þó
gegn slíkri málsmeðferð af þeirri ástæðu einni
að Alþýðubandalagið myndi óhjákvæmilega
eigafulltrúa í rannsóknarnefndinni. Þarmeð yrði
ekki lengur tryggt að hægt yrði að fela það sem
kynni illa að þola dagsbirtu.
Nú hefur hins vegar komið á daginn, að það
er yfirgnæfandi meirihluti fyrir því meðal al-
mennings að rannsókn málsins verði opin, ein-
mitt til að það geti gerst sem Sjálfstæðisflokkur-
inn og Morgunblaðið af einhverjum undarlegum
ástæðum óttast mest: að fólkið fái að fylgjast
með öllum upplýsingum sem fram koma.
Það er líka næsta merkilegt sem fram kemur í
skoðanakönnun HP, að næstum helmingur
fólks í Reykjavík, kjördæmi Alberts Guðmunds-
sonar, telur rétt að hann segi af sér embætti
ráðherra meðan að rannsókn fer fram í málinu.
í Ijósi þeirra niðurstaðna úr skoðanakönnun
HP sem hér hefur verið vitnað til, þá er afar
fróðlegt að sjá hvernig meirihluti ríkisstjórnar-
flokkanna hefurfarið með máliðá Alþingi. Þarer
engu líkara en menn séu hræddir og vilji fela
eitthvað. Að minnsta kosti lætur ríkisstjórnin lið
sitt samþykkja lokaða rannsókn á sama tíma og
meira en 3 af hverjum 4 landsmönnum vilja
opna rannsókn.
Hvað óttast menn? - Hvað er það sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hræðist að komi fram í dags-
Ijósið? Þetta eru spurningar sem heyrast þessa
dagana.
Eftir allt sem á undan er gengið eru því litlar
líkur á að fólk treysti niðurstöðum þeirrar rann-
sóknar sem ríkisstjórnin ætlar að beita sér fyrir.
Hún hefur framið glappaskot.
-ÖS
KLIPPT OG SKORHE)
Opin rannsókn
Helgarpósturinn gerir grein
fyrir niöurstööum merkrar skoð-
anakönnunar í gær. Spurt var um
afstöðu fólks til nokkurra þátta
Hafskipsmálsins. í ljós kom að
ríkisstjórnin og fleiri haga málum
í andstöðu við yfirgnæfandi
meirihluta meðal almennings ef
marka má skoðanakönnunina.
Spurt var: Telur þú að alþingi
eigi að kjósa rannsóknarnefnd til
að kanna Hafskipsmálið? Niður-
staðan var sú að 61,5% þeirra
sem afstöðu tóku lýstu sig fylgj-
andi slíkri málsmeðferð, en
38,5% eru því andvíg.
Petta er dálítið merkileg niður-
staða í ljósi þess, að stjórnar-
flokkarnir lögðu ofurkapp á að
alþingi skipaði ekki rannsóknar-
nefnd.
Enn merkilegri er sú niður-
staða sem sagt er frá í leiðaranum
hér að ofan, að 76,5% þeirra sem
afstöðu taka telja að rannsókn
málsins eigi að fara fram fyrir
opnum tjöldum, - en 23,5% eru
því andvíg. Einungis Alþýðu-
bandalagið lagði til þannig máls-
meðferð á þingi, en t.d. tillaga
Alþýðuflokksins um rannsóknar-
nefnd fól í sér rannsókn fyrir lukt-
um dyrum.
Albert áfram?
Tæplega 70% telja að skipta-
ráðandi og þriggja manna nefnd-
in eigi að rannsaka Haf-
skipsmáið.
En sú spurning - og þó öllu
frekar túlkun HP, sem mest vefst
fyrir klippara, er þó sú um það,
hvort svarendur telji að Albert
eigi að segja af sér ráðherraemb-
ætti meðan rannsókn á máli Haf-
skips og Útvegsbankans fer fram.
35,9% þeirra sem afstöðu taka
telja að ráðherrann eigi að segja
af sér,-en 64,1% aðhann eigi að
sitja áfram. Þetta gefur HP tilefni
til að hrópa á forsíðu: Áfram Al-
bert! og í innblaði þarsem segir
frá allri skoðanakönnuninni er
aðalfyrirsögnin „Albert á að sitja
áfram“.
Ef spurt hefði verið t.d. um
Þorstein Pálsson í þessu sam-
bandi, hefðu áreiðaniega nær
100% svarað því neitandi að Por-
steinn ætti að segja af sér vegna
málsins, - þó svo 30% til 70% séu
andvíg honum í pólitík. Hér er
því ekki spurt um pólitíska af-
stöðu til Alberts Guðmunds-
sonar, heldur hvort skjöldur hans
í þessu máli sé svo flekkaður að
ástæða sé til fyrir hann, að segja
af sér á meðan rannsókn málsins
fer fram.
Sú staðreynd, að meira en
þriðjungur þeirra sem tóku af-
stöðu í skoðanakönnuninni telja
að ráðherrann eigi að segja af sér,
hlýtur því að teljast pólitískt áfall
fyrir Albert og þá flokka sem
mynda með honum ríkisstjórn.
Og þessi niðurstaða gefur tæpast
tilefni til að setja áðurnefndar
fyrirsagnir. Þær eru m.ö.o.
klaufalegar.
Urvalsdeildin
í fréttaskýringu Halldór Hall-
dórssonar í HP koma margir nýir
hlutir í ljós í Hafskipsmálinu. Þar
segir t.a.m. frá því að Ragnar
Kjartansson stjórnarformaður
Hafskips hafi á vegum Hafskips
náð hagstæðum samningum um
tryggingar, en Reykvísk endur-
trygging yfirtekið þessa samn-
inga. „Þetta táknar m.ö.o. að
stjórnarformaður Hafskips færir
eigin einkafyrirtæki á silfurfati
mjög góðan tryggingasamning,
sem hann sjálfur er búinn að
ganga frá“.
Þar segir einnig að afsláttar-
málin hafi verið mjög flókin og
margþætt hjá Hafsicip. Þeir sem
voru annað hvort stórir við-
skiptavinir eða í stjórn Hafskips
hafi fengið sértaka afslætti og fyr-
irgreiðslu og verið kallaðir „úr-
valsdeildin“. Birt er skrá yfir fyr-
irtæki sem höfðu fengið afslátt í
júlí 1983. Meðal fyrirtækja er
nefnt Ljómi (en þar er margarín-
ið sem framleitt er af Smjörlíki) -
eign Davíðs Schevings, sem skrif-
að hefur síðustu daga um afslátt-
armálin í dagblöð.
Hafskipið
sökkur í kaf
Sjálfstæðisflokkurinn á býsna
bágt um þessar mundir og í gær
sögðum við frá því hvernig
skáldið í Aðalstræti greip til lík-
ingamáls þegar Flokkinn bar á
góma, - hann væri „EINSOG
HAFSKIP í HAFRÓTI“.
Einsog kunnugt er hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn gert grimman
ránfugl, að einkennismerki sínu.
Hvort sá Jónas Hallgrímsson
þetta fyrir, - þegar hann orti um
örninn og hafskipið í Hornbjargi
snemma á síðustu öld?:
Og örninn lítur ekki
oní hið dimma haf
og horfir í himinljómann.
Hafskipið sökkur í kaf.
-óg
DJOÐVIIJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Utgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergman, össur Skarphóðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaöamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Garðar
Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson, Þór-
unn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar Ólason, Sígurður Mar Halldórsson.
Utlit: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Simvarsla: Sigriður Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Agústa Þórisdóttir, Olöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Utbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson,
Olga Clausen.
Afgreíðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumula 6, Reykjavík, simi 681333.
Umbrot og setning: Prentsmlðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð i lausasölu: 35 kr.
Sunnudagsblaö: 40 kr.
Áskrift á mánuði: 400 kr.
4 SÍÐA - ÞJOÐVILJINN Föstudagur 20. desember 1985