Þjóðviljinn - 20.12.1985, Page 3
FRÉTflR
Námslánin
Sjóðurinn tómur á miðju ári
Um tvennt að velja: Skerða lánin um 30% frá og með áramótum eða loka LÍN á miðju ári! Ráðherra þegirþunnu hljóði
Fjárlaga- og hagsýslustofnun
telur að skerða verði námslán
um 30% frá og með næstu ára-
mótum ef framlög ríkisins á næsta
ári verða eins og fjárlagafrum-
varpið gerir ráð fyrir. Tæpar 400
miljónir vantar til að endar nái
saman að óbreyttum Iánareglum.
Þetta upplýsti Svavar Gestsson
varðandi Lánasjóðinn. Hann
krafði menntamálaráðherra
svara um hvað hann hygðist fyrir
því ef hann ætlaði ekki að svíkja
fyrirheit við þá sem eru nú á
miðju námsári, hlyti hann að
verða að loka Lánasjóðunum á
miðju ári. „í júní verður allt fé
sjóðsins uppurið", sagði Svavar.
„Þá verða fjárveitingarnar bún-
ar.“
Sverrir Hermannsson vill ekk-
ert láta uppi um fyrirætlanir sínar
en Þjóðviljinn hefur fyrir því á-
reiðanlegar heimildir að hann
hafi haft tillögur sérskipaðrar
nefndar um niðurskurð lána-
sjóðsins tilbúnar síðan í nóv-
ember en þori ekki að upplýsa
þær.
-ÁI
Ónœmistæring
Fmmvaip Ragnhildar
bíður nýs árs
Stjórnarandstœðingar vilja ekkiflokka
ónæmistæringu sem kynsjúkdóm
Borgarkerfið
Kóngamir
með hátt
í miljón
í greinargerð með fjárhagsá-
ætlun borgarinnar kemur fram að
hver fulltrúi í borgarstjórn á að fá
á næsta ári sem nemur 238.118
krónur fyrir setu sína þar. Sitji
sami maður í borgarráði bætast
357.178 krónur við launin þannig
að samanlagt verða laun fyrir
setu í borgarstjórn og borgarráði
tæpar 600 þúsund krónur á árinu.
Þá eru ótalin laun fyrir setu í
hvers konar nefndum og ráðum.
Sem dæmi má nefna laun fyrir
setu í stjórn veitustofnana, tæpar
80 þúsund krónur fyrir árið. Fyrir
setu í skipulagsnefnd fást um 107
þúsund krónur. ~ 88-
Dagvistun
Osi synjað
Meirihluti borgarstjómar féllst
ekki á það í gær að kaupa lóð
undir barnaheimilið Ós við
Bergstaðastræti. Málið var tekið
upp á borgarstjórnarfundi í gær-
kvöldi en með synjun verður gert
ráð fyrir að starfsemin í Ósi legg-
ist niður, en þar voru 19 börn vist-
uð. -gg
Ragnhildur Helgadóttir
heilbrigðisráðherra varð í
gær að láta í minni pokann fyrir
harðri andstöðu stjórnarand-
stæðinga í neðri deild gegn frum-
varpi hennar um að flokka
ónæmistæringu með kynsjúk-
dómum. Ráðherra hefur lagt allt
kapp á að koma frumvarpinu í
gegn fyrir jólin en stjórnarand-
stæðingar telja sig þurfa að ræða
það „ítarlega og lengi“. Til þess
gefst ekki tími fyrir jólahlé.
Guðrún Helgadóttir, Kristín S.
Kvaran og Steingrímur J. Sigfús-
son hófu skothríð á tillögur ráð-
herra strax að lokinni framsögu
hennar á þriðjudag. 1. umræðu er
enn ekki lokið og margir á mæl-
endaskrá, þeirra á meðal Guðrún
Agnarsdóttir sem hefur aflað ít-
arlegra upplýsinga um hvernig
nágrannaþjóðir okkar skrá þenn-
an ógnvekjandi sjúkdóm. Ráð-
herra hefur lagt hart að andmæl-
endum frumvarpsins að gefast
upp strax en svarið hefur verið
þvert nei. Telja þeir það síst mun
hindra útbreiðslu ónæmistæring-
ar að halda ítarlega skrá yfir nöfn
og fæðingarnúmer þeirra sem eru
í hvað mestri hættu og hóta refsi-
ngu ef ekki er bent á hugsanlega
smitbera eins og kynsjúkdóma-
lög kveða á um.
-ÁI
BSRB
Hlakkar til að taka við
Guðrún Árnadóttir nýráðinn framkvœmdastjóri BSRB: Taka verður rekstur og
skipulag BSRB til endurskoðunar. Bjartsýn áframtíð BSRB
Guðrún Árnadóttir: Við þurfum á næstu mánuðum að taka ýmislegt varðandi
rekstur og skipulag BSRB til endurskoðunar.
„Ég hlakka til að taka við þessu
starfi og finnst mjög spcnnandi að
spreyta mig á því. Það er augsýni-
legt að verkefnin eru margvísleg
og við verðum að staldra aðeins
við og íhuga ýmislegt nú þegar á
fjórða þúsund manns eru að yfir-
gefa samtökin“, sagði Guðrún
Árnadóttir meinatæknir í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Guðrún var ráðin fram-
kvæmdastjóri BSRB síðast liðinn
mánudag og mun taka til starfa í
byrjun næsta árs. Hún hefur
starfað talsvert að félagsmálum,
var um tíma formaður Meina-
tæknafélags íslands, hún var
lengi í stjórn BSRB og SFR og
ekki má gleyma því að hún var
formaður verkfallsnefndar
bandalagsins í verkfallinu fræga.
„Við þurfum á næstu mánuð-
um að taka ýmislegt varðandi
rekstur og skipulag BSRB til
endurskoðunar. Það verður hald-
ið aukaþing BSRB í vor og ég
vona að það muni skila já-
kvæðum niðurstöðum", sagði
Guðrún í gær.
BSRB er nú að ganga í gegnum
miklar hræringar og fyrir dyrum
standa kjarasamningar við ríkis-
valdið. Guðrún sagðist alls ekki
svartsýn á framtíð BSRB. Hún
vildi ekki spá um framvindu
kjaramála á næsta ári, en sagði að
það hlyti að verða að taka á þvf að
Islendingar eru að verða lág-
launaþjóð. „Það verður að koma
að því að fólk fái mannsæmandi
laun“. ~ gg-
Þróunarfélagið
Gæludýr kostað af almenningi
Jólafrí
Þinglausnir
á laugardag
Þing hefst aftur
27. janúar
Ljóst er að þingstörfum lýkur
vart fyrr en síðdegis á laugardag
en forsetar þingsins hafa þó allan
varann á og í sérstöku þingskjali
um þingslit er laugardagurinn
nefndur „eða síðar“ ef henta þyk-
ir. Alþingi verður svo kvatt sam-
an á ný 27. janúar.
Gífurlegar annir voru á þing-
inu í gær og var fundað langt fram
á kvöld. Lánsfjárlög voru aðal-
umræðuefnið í neðri deild og
kvótinn í þeirri efri. Fjárlögin
verða svo á dagskrá í dag en ekki
er búist við atkvæðagreiðslum
fyrr en á laugardag. Þær munu
taka langan tíma enda eru
breytingartillögur hátt á annað
hundrað talsins. -ÁI
Svavar Gestsson: Davíð Scheving illa svikinn
Ihaldið hefur valdið Davíð Sche-
ving Thorsteinssyni miklum
vonbrigðum og þykist hann nú
svikinn mjög, sagði Svavar Gests-
son í umræðum á alþingi í gær um
Þróunarfélagið en Davíð er for-
maður þess.
Svavar upplýsti að formaður-
inn hefði á fundi með fjárhags- og
viðskiptanefnd sagst hafa búist
við 450 miljónum króna og það
vertryggðum á næsta ári en niður-
staðan hefði orðið 1-200 miljónir
óverðtryggðar. Svavari þótti það
þó of mikið: „Það er alger óþarfi
að láta allt þetta fé í nýjasta gælu-
dýr íhaldsins“, sagði hann. „Það
verður að ætlast til þess að menn-
irnir kosti sín ævintýr sjálfir enda
sanna dæmin að annað getur orð-
ið þjóðinni dýrt“.
Svavar gagnrýndi harðlega að
ýmsir opinberir sjóðir, bankar og
lífeyrissjóðir hafa látið tugmilj-
ónir króna til Þróunarfélagsins á
sama tíma og þeir segjast vera á
hausnum og biðja um auknar
fjárveitingar frá ríkinu. Hann
nefndi sem dæmi að Lífeyrissjóð-
ir SÍS og VR láta 15 og 20 miljónir
í félagið og sagði einmitt þessa
sjóði hafa „emjað“ undan
skuldabréfakaupum í húsnæðis-
lánakerfinu. Þá nefndi hann Fisk-
veiðasjóð og Stofnlánadeild
landbúnaðarins þar sem allt er í
vanskilum en þó geta þeir látið 30
og 20 miljónir af hendi rakna.
Stofnlánadeildin fær á næsta ári
200 miljónir frá ríkinu og óskaði
eftir 700 miljónum. Landsbank-
inn og Búnaðarbankinn eru líka
ofarlega á blaði með 20 miljónir
króna.
Svavar sagði að þetta sannaði
að einkaframtakið hefði ekki
rokið upp til handa og fóta og
látið fé í fyrirbærið af uppbygg-
ingarþrá eins og ríkisstjórnin
hefði viljað vera láta. Hins vegar
hefðu verið settar þumalskrúfur á
menn á réttum stöðum og þetta
væri útkoman: Gæludýrið væri
kostað af sameiginlegum sjóð-
um. Formaðurinn, Davíð Sche-
ving miðstjórnarmaður í Sjálf-
stæðisflokknum, hefði hins vegar
aðeins haft eitt um framtíð félags-
ins að segja á fundi með þing-
mönnum: Að þar mætti aldrei
koma neinn pólitíkus nálægt! Um
verkefni félagsins hefði hann
ekki getað sagt aukatekið orð.
Auk Davíðs eru í stjóminni
Hörður Sigurgestsson, Eimskip-
um, Jón Ingvarsson, Granda,
Guðmundur G. Þórarinsson,
„máttarstólpi í atvinnulífinu, lík-
lega?“ og Þorsteinn Ólafsson hjá
SIS. „Þessir menn eru allir hvít-
þvegnir af pólitík eða er ekki
svo?“, sagði Svavar. „Þróunarfé-
lagið er ekkert annað en flokks-
pólitískt gæludýr íhaldsins og hef-
ur ekkert með þetta fjármagn úr
ríkissjóði að gera. Hins vegar er
rannsóna- og þróunarstarfsemi í
atvinnulífinu skorin niður við
trog og tillögur um eflingu fisk-
eldis allar í skötulíki“, sagði
Svavar og boðaði breytingartil-
lögur AB um atvinnuuppbygg-
ingu.
-ÁI
Kvótinn orðinn að lögum
Flokksbönd brustu þegar efri
deild alþingis samþykkti i
gærkvöldi kvótafrumvarp Hall-
dórs Ásgrímssonar með 12 at-
kvæðum gegn 7,1 sat hjá, Eyjólf-
ur Konráð Jónsson.
Einn stjórnarþingmaður,
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
greiddi atkvæði gegn kvótanum,
hinir með. Skúli Alexandersson
og Ragnar Arnalds voru á móti
en Helgi Seljan studdi kvótann.
Þingmenn Alþýðuflokks og
Bandalags jafnaðarmanna voru á
móti en þingmaður Kvennalista
með. Áður hafði verið felld með
öllum atkvæðum gegn 2 tillaga
Stefáns Benediktssonar um að al-
þingi úthlutaði hverjum fslend-
ingi kvóta í hinum ýmsu fiski-
stofnum eftir að hafa ákveðið
hámarksaflamagn fyrir 1. des-
ember ár hvert. Tillagan gerði
ráð fyrir að hver einstaklingur
gæti síðan ráðstafað sínum hlut
að vild. _ÁI
Föstudagur 20. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3