Þjóðviljinn - 20.12.1985, Síða 13
HEIMURINN
Afvopnunarmál
Sovétmenn opna fyrir eftirlit
Moskva - Pravda, málgagn so-
véska kommúnistaflokksins,
sagði frá því í gær að Sovétrík-
in væru tilbúin til að opna
svæði þau sem þau nota undir
Norðurlönd
Samvinna við
„Framvarðar-
ríki“ Afríki
Helsinki - Á fundi forsætisráð-
herra Norðurlandanna var gef-
in út yfirlýsing þess efnis að
aukin yrði aðstoð Norðurland-
anna við „Framvarðarríkin"
svonefndu, þ.e. þau ríki svörtu
Afríku sem liggja að Suður-
Afríku.
í yfirlýsingunni sagði að að-
stoðin yrði aðallega á sviði tækni-
mála, fjárfestingar og verslunar.
Auk þess sagði í yfirlýsingunni að
menningarleg samskipti milli
þessara tveggja svæða myndi
aukast.
Gert er ráð fyrir að formleg yf-
irlýsing um norræna samvinnu
við Framvarðarríkin verði undir-
rituð í janúar næstkomandi í Har-
are í Zimbabwe.
tilraunir með kjarnorkuvopn
fyrir erlendum aðilum ef
Bandaríkin væru tiibúin tii
þess sama.
Greinin í Pravda kemur í kjöl-
far þess að Gorbachev, formaður
sovéska kommúnistaflokksins,
hefur hvatt bandarísk yfirvöld til
þess að gangast inn á það að
banna allar tilraunir með kjarn-
orkuvopn, áður en einhliða
ákvörðun Sovétmanna um að
gera ekki tilraunir með kjarn-
orkuvopn gengur úr gildi, sem
verður í janúar.
Vestrænir stjórnarerindrekar
segja að þetta sé í fyrsta skipti
sem Kremlarherrar bjóða upp á
þann möguleika að erlendir aðil-
ar fái að rannsaka svæði þau sem
þeir nota til tilrauna með kjarn-
orkuvopn.
í frétt Pravda sagði einnig að
Sovétríkin tækju jákvætt í þá
hugmynd forystumanna ríkis-
stjórna Indlands, Argentínu,
Grikklands, Mexíkó, Tanzaníu
og Svíþjóðar um að þessi ríki
settu upp eftirlitsstöðvar á kjarn-
ERLENDAR
FRÉTTIR
INGÓLFUR r i i -r rn
HJÖRLEIFSSON R E U1 E R
orkutilraunasvæðum Sovét-
manna.
Bandaríkjamenn segjast fagna
tillögum Sovétmanna um eftirlit
með kjarnorkuvopnatilrauna-
svæðum en segjast ekki geta fall-
ist á bann við tilraunum með
kjarnorkuvopn.
Holland
Meirihlutavilji
fyrir líknardrápi
Haag - Nú virðist sem Holland
verði fyrsta landið í heiminum
til að heimila líknarmorð eftir
að Frjálslyndi flokkurinn, sem,
er einn af minni flokkunum í
stjórn Hollands, lýsti sig sam-
þykkan frumvarpi stjórnarand-
stöðunnar um líknardráp.
Talsmenn flokksins sögðu að
þeir myndu lýsa sig samþykka
þessu frumvarpi ef gerðar yrðu
nokkrar minni háttar breytingar
á frumvarpinu. Einn af stjórnar-
flokkunum, Kristilegir demó-
kratar, hafa lýst því yfir að þeir
séu algjörlega á móti þessu frum-
varpi og mun það vera á trúar-
legum forsendum.
Frumvarpið hefur stuðning
stærsta stjórnarandstöðuflokks-
ins, Verkamannaflokksins, og
því nægir fulltingi Frjálslynda
flokksins. Frumvarpið er borið
fram af litlum vinstri flokki,
D'66, og myndi það gera
dauðvona sjúklingum kleift að
fara fram á að bundinn sé endi á
líf þeirra svo lengi sem þeir eru
taldir með fullu viti.
D’66 hefur barist fyrir þessu
máli í fjölda ára. Málið fékk byr
undir báða vængi síðasta sumar
þegar ríkisskipuð nefnd komst að
þeirri niðurstöðu að líknardráp
væru réttlætanleg í sérstökum til-
fellum. Skoðanakannanir meðal
almennings í Hollandi hafa leitt í
ljós að meirihlutavilji er- meðal
Hollendinga fyrir líknardráp.
Afganistan
Frakkland
Dómari
og kvið-
dómari
í gíslingu
Nantes - „Við viljum gefa
Frakklandi einn utanundir"
sagði Arabi nokkur í Nantes í
Frakklandi í gær, sem tók rúm-
lega 30 manns í gíslingu í
dómshúsi þar sem verið var að
fjalla mál tveggja Frakka sem
ákræðir höfðu verið fyrir vopn-
að rán.
Dómshúsið var fljótlega um-
kringt af öryggislögreglu.
Myndatökuhópur frá franska
sjónvarpinu fékk að fara inn í
réttarsalinn og fengu franskir
sjónvarpsáhorfendur því að fylgj-
ast með öllum gangi mála. Að
miljónum Frakka áhorfandi
ávarpaði Arabinn dómara og
kviðdómendur og sagði: „Ég vii
að þið vitið hvernig það er að
vera dæmdur, þar eð þið komuð
hingað til að dæma.“
Þegar síðast fréttist hafði 14
manns verið sleppt en ekki höfðu
þá komið í ljós neinar kröfur frá
mönnunum þremur sem halda
fólkinu í gíslingu.
Sovétmenn færast í aukana
Hefur tekist að laga sig að aðstœðum íAfganistan
Pesh awar - Eftir sex ára styrj-
aldarástand í Afganistan virð-
ist sem sovéski herinn sé að
styrkja stöðu sína til muna.
Honum virðist hafa tekist að
tileinka sér aðferðir til að berj-
ast gegn skæruliðum, skæru-
hernað. Setja þar með skæru-
liða múhameðstrúarmanna í
varnarstöðu í fyrsta skipti í sex
ár.
Erlendir sendimenn og afg-
anskir útlagar segja að frá Mos-
kvu hafi að undanförnu komið
mun betur þjálfaðir njósnarar og
sérþjálfaðar skyndiárásarher-
sveitir til viðbótar við þær hefð-
bundnu aðferðir sem hingað til
hafa verið tíðkaðar, t.d. að ger-
eyða landsvæðum með öllum til-
tækum ráðum.
Breytingar
Sovéskar og afganskar her-
sveitir hafa einnig náð betra haldi
á höfuðborginni Kabúl og svæð-
unum umhverfis hana.
Sovétmenn eiga samt enn langt
í land með að sigra í stríðinu, sem
virðist nú geta haldið áfram árum
saman. Og skæruliðar vitna í
tölur frá Moskvu sem sýna að
tölur yfir fallna sovéska hermenn
hafa hækkað til muna á þessu ári
auk þess sem þeir hafa misst enn
fleiri flugvélar og þyrlur en á síð-
asta ári. Þetta sýnir að skæruliðar
hafa ekki í neinu látið af baráttu
sinni. En erlendum sendimönn-
um og afgönskum útlögum í Pak-
istan finnst samt mikið til koma
varðandi þær breytingar sem hafa
orðið á hernaðartækni Sovét-
manna í Afganistan. Þeir hafa
látið af stórvirkum landhernaði
og tekið upp skyndiárásir í
auknum mæli sem hafa skapað
aukna pressu á skæruliða.
„Sovétmenn hafa lært að koma
þeim á óvart sem sitja fyrir
þeim“, sagði Barhouddin Majro-
oh, fyrrverandi rektor háskólans
í Kabúl, sem nú stjórnar upplýs-
ingaþjónustu útlægra Afgana í
Pakistan. í fyrsta skipti í öllu
stríðinu eru afganskir skæruliðar
nú meira í vörn en í sókn. Það
hefur gerst á þessu ári.
Við fyrstu sýn virðist kannski
sem skæruliðar hafi staðið sig vel
á þessu ári. Seint á síðastliðnu
sumri börðust þeir í fimm vikur, í
einum blóðugustu átökum sem
verið hafa í stríðinu til að verjast
því að sovéskum hersveitum og
afgönskum stjórnarhermönnum
tækist að ná landamærastöðvum
skæruliða. í Pansjher-dal drápu
skæruliðar afganskan hershöfð-
ingja og uþb. 300 menn úr liði
hans í júní síðastliðnum. Þar
tókst skæruliðum að sprengja
upp hverja eldsneytisflutninga-
lestina af annarri.
Varnir hrynja
En í maí og júní í sumar hrundu
varnir þeirra þegar þúsundir
sovéskra hersveita æddu upp eftir
Kunar-dalnum og tókst að ná á
sitt vald einni af mikilvægustu
landamærastöðvunum við Pak-
istan.
Eftir þessa og aðrar skyndi-
sóknir Sovétmanna hafa skæru-
liðar sem staðsettir eru í Pesh’aw-
ar í Pakistan átt í auknum erfið-
leikum með að senda vistir til
skæruliða í Afganistan. Snemma
á árinu komu sovéskar þyrluher-
sveitir skæruliðum í opna skjöldu
með skyndiárásum fyrir dögun.
Þessar árásir voru enn áhrifam-
eiri fyrir þá sök að leyniþjónusta
Sovétmanna á jörðu niðri var
orðin mun virkari og gat bent
hersveitum á mikilvæga árásar-
staði.
Og höfuðborgin Kabúl, sem á
síðasta ári bergmálaði stöðugt af
fallbyssuskothríð skæruliða, hef-
ur á þessu ári verið mun betur
varin. Fréttir þaðan herma að
ekki séu nú gerðar eins strangar
öryggiskröfur og áður var. Betri
stjórn Sovétmanna á borginni
hefur haft það í för með sér að
skæruliðar hafa átt mun erfiðara
með að ráðast inn í borgina, sem
þeir gerðu áður mikið af. Einn af
helstu foringjum skæruliða á Ka-
búl svæðinu hefur sagt að hann
geti enn komið mönnum sínum
inn í borgina en hann eigi nú erf-
iðara með að koma þeim þaðan
burt aftur.
Fjöldamorð
Samkvæmt skýrslu frá sér-
stakri sendinefnd Sameinuðu
þjóðanna sem fór til Kabúl, hafa
sovéskar og afganskar hersveitir
framið tilviljanakennd morð á
óbreyttum borgurum og aftökur
án dóms og laga á grunuðum pól-
itískum andstæðingum stjórnar-
innar í Kabúl. Frá Kunduz í Afg-
anistan bárust þær fregnir til Pes-
h’awar að framin hefðu verið
a.m.k. fern fjöldamorð og tölur
um fjölda látinna voru allt að þús-
und manns. í Kunduz höfðu So-
vétmenn verið að koma sér upp
herflutningaleiðum og vopna-
búri.
Eitt af því sem staðið hefur
skæruliðum í Afganistan fyrir
þrifum er að þeir hafa verið
klofnir í mörg samtök. í maí síð-
astliðnum stofnuðu flokkar mú-
hameðstrúarmanna annars vegar
og flokkar þjóðernissinna hins-
vegar með sér bandalag í Pes-
h’awar. Var það gert eftir mikinn
þrýsting frá yfirvöldum í Pakist-
an, Saudi-Arabíu og Bandaríkj-
unum. Þetta bandalag átti að
samhæfa aðgerðir skæruliða. Það
höfðu komið fram ásakanir um
að fulltrúar skæruliða í Pakistan
hefðu notað fjármuni sem þeim
voru fengnir í hendur til eigin
nota. Þessa fjármuni átti að nota
til að styrkja skæruliðasveitir í
Afganistan.
En áframhaldandi deilur milli
andstæðra fylkinga innan sveita
skæruliða komu í veg fyrir að
fyrrnefnt samband yrði virkt. Það
virðist því ekki blása byrlega fyrir
afgönskum skæruliðum þessa
stundina.
Föstudagur 20. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13